Þjóðviljinn - 16.10.1987, Side 1
Föstudagur 16. október 1987 230. tölublað 52. örgangur
Borgarstjórn
SVR hækkar
- SVR kemur vart til að hagn-
ast á fargjaldahækkuninni ef
reyndin verður sú að fólk hættir í
stórum stfl að notfæra sér strætis-
vagnana, sagði Hallur Magnús-
son, varaborgarfulltrúi Fram-
sóknar á borgarstjórnarfundi í
gær, þegar 21% hækkun far-
gjalda SVR var samþykkt með at-
kvæðum fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokks.
Við umræður lýstu fulltrúar
Alþýðubandalags, Framsóknar
og Kvennalista því yfir að nær
væri að bæta þjónustu strætis-
vagnanna og fjölga ferðum. - Þá
væri kanski von til þess að hægt
væri að fjölga farþegum og skapa
raunverulegan valkost við einka-
bílinn, sagði Guðrún Ágústsdótt-
ir, Aiþýðubandalagi.
Bjarni P. Magnússon sagðist
styðja hækkunina vegna þess að
SVR ætti við rekstravanda að
gh'ma. - Fækkun farþega er
staðreynd og við verðum einfald-
lega að axla þá ábyrgð sem fylgir
því að standa í svona rekstri,
sagði Bjarni. -rk
Kjaramál
Fulla verðtryggingu
Guðmundur Þ. Jónsson, Iðju: Skilyrðislaus krafa. Tökum skerðingu
kaupmáttar ekki þegjandi. Benedikt Davíðsson, Sambandi bygginga-
manna: Verðtrygging óhjákvæmileg. Fjárlagafrumvarpið haldlítið plagg
að er alveg Ijóst að við gerum
r skilyrðislausa kröfu um fulla
verðtryggingu launa í næstu
samningum. Við líðum ekki
kaupmáttarskerðingu launa,
sagði Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Iðju - félags verk-
smiðjufólks í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær um forsendur fjárlaga-
frumvarpsins.
Guðmundur Þ. Jónsson sagði
að það væri höfuðatriði í næstu
samningum að kaupmátturinn
yrði tryggður. - í mínum huga
kemur ekki annað til greina, ef
við eigum ekki að glutra niður
kaupmættinum, eins og boðað er
í fjálagafrumvarpinu og helst
verðum við að sækja meira, sagði
Guðmundur. í fjárlagafrumvarp-
inu er gert ráð fyrir að kauptaxtar
hækki að meðaltali um 7% á
næsta ári á sama tíma og reiknað
er með 10% verðbreytingum.
- Það má öllum vera ljóst að
við hljótum að krefjast
verðtryggingar launa. Ef við ger-
um samninga sem eiga að halda
lengur en þrjá mánuði, þá er ann-
að óhjákvæmilegt, sagði Bene-
dikt Davíðsson, formaður Sam-
bands byggingamanna.
- Mér finnst þetta ekki trú-
verðugt. Allra síst eftir síðustu
aðgerðir stjórnvalda með
auknum álögum á matvæli. Þetta
er heldur ómerkilegt plagg ef það
er byggt á forsendum sem þess-
um, sagði Benedikt Davíðsson.
- Við höfum þegar fengið
smjörþefinn af kjaraskerðingar-
áformunum með matarskattin-
um. Skattlagning á matvælum
kemur verst niður á þeim sem síst
skyldi. Lágtekjufólkiðeyðirhlut-
fallslega stærri hluta tekna sinna í
kaup á matvöru, en þeir tekju-
hærri og þetta verður að fást bætt
í næstu samningum, sagði Guð-
mundur.
-rk
Norðfirðingar
Hugað að
áfengisútsölu
Höskuldur Jónsson,
forstjóri Á TVR:
Höfum verið að
skyggnast um eftir
hentugu húsnœði
íbúar á Neskaupstað mega
gera sér vonir um að Afengis- og
tóbaksverzlun ríkisins sjái aiAnur
á þeim og opni áfengisútsölu á
staðnum. I siðustu sveitarstjórn-
arkosningum lýsti meirhluti íbú-
anna sig meðmælta því að fá áf-
engisútsölu í bæinn. ATVR hefur
kannað hvaða húsnæði er í boði
til að hýsa sopann ef af verður að
ATVR opni útsöiu á Neskaup-
stað.
Að sögn Höskuldar Jónssonar,
forstjóra Áfengis- og tóbaks-
verzlunarinnar, hafa engar á-
kvarðanir verið teknar um opnun
á áfengisútsölu á Neskaupstað.
- Við höfum litið á húsnæði
sem er í boði. En ef af verður, þá
höfum við helst hug á að útsalan
yrði rekin í samvinnu við aðra
starfsemi sem er fyrir hendi,
sagði Höskuldur.
- Við höfum ekki í huga að
setja upp neina stórverslun, held-
ur aðeins verslun sem gæti sinnt
venjulegum þörfum manna í til-
tölulega fámennu byggðarlagi.
Pöntunarþjónusta gæti síðan
leyst úr sérþörfum manna í þess-
um efnum, sagði Höskuldur.
ÁTVR opnar um næstu mán-
aðamót áfengisútsölu í Ólafsvík
og sagði Höskuldur að æskilegt
væri að einhver reynsla væri kom-
in af rekstrinum þar, áður en
ákvörðun yrði tekin um útsölu á
Neskaupstað.
Á Seyðisfirði er eina áfengis-
útsalan á Austurlandi. Að vonum
er því margan Ausfirðinginn far-
ið að lengja eftir því að útsölu-
stöðunum fjölgi í fjórðungnum.
- rk
Dagvistarmál
íhaldið
hafnaði lausn
íhaldið í borgarstjórn vísaði
tillögu minnihlutans um þriggja
ára átak til lausnar dagvistar-
vandanum frá á borgarstjórnar-
fundi f gærkvöldi. Allir sem einn
greiddu meirihlutafulltrúarnir
atkvæði með frávísun.
- Samhenntur meirhluti í-
haldsins laut svo lágt að afgreiða
tillögu minnihlutans með dylgj-
um, gífuryrðum og útúrsnúningi,
sagði Kristín Á. Ólafsdóttir,
borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins.
- Það fór lítið fyrir málefna-
legum forsendum í frávísunartil-
lögu meirihlutans sagði Kristín.
I frávísunartillögu Sjálfstæðis-
manna segir að tilllaga minnihlut-
ans um þriggja ára átak til lausnar
dagvistarvandanum sé óábyrg
sýndartillaga.
-rk
gærkvöldi voai kjörnir á félagsfundi ABR 100 aðalfulltrúar og jafnmargir varamenn til að fara á landsfund Alþýðubanda-
lagsins sem haldinn verður í Reykjavík 5.-8. nóvember n.k. Gífurlegur fjöldi mætti til fundarins en þegar Þjóðviljinn fór í,
prentun var ekki búið aö telja enda er það ekki áhlaupaverk þegar hátt á þriðja hundrað manns eru í framboöi.
Flest félög í Alþýðubandalaginu hafa nú tilnefnt fulltrúa sína en önnur gera það á næstu dögum. Samkvæmt lögum
flokksins skal halda reglulegan landsfund annað hvert ár en síðasti landsfundur var haldinn í Reykjavík haustið 1985.
Ríkisstjórnin
Gengisstefnan ótraust
Utandagskrárumræða um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar á Alþingi
ígœr. Ólafur Ragnar Grímsson: Eru ráðherrar ríkisstjórnarinnar
tilbúnir að leggja líf hennar að veði fyrir fastgengisstefnu?
Engin skýr svör fengust frá for-
sætisráðherra og fjármála-
ráðherra í utandagskrárumræðu
um cfnahagsstefnu ríkisstjórnar-
innar á Alþingi í gær, hvort
stjórnin hyggðist standa við
fastgengisstefnuna í ár og á næsta
ári. í stað þess ræddu ráðherr-
arnir almennt um aðgerðir
stjórnarinnar í efnahagsmálum
og töldu þær aðgerðir nægilega
skýrt svar um gengisstefnuna.
Það var Ólafur Ragnar Gríms-
son sem hóf þessa umræðu og fór
fram á það að ráðherrarnir legðu
líf ríkisstjórnarinnar að veði fyrir
fastgengisstefnuna. Þá fór Ólafur
fram á skýr svör um stöðu fjár-
lagafrumvarpsins, sem landbún-
aðarráðherra hefur samþykkt
með fyrirvara. Einnig bað Ólafur
Ragnar um svör við bréfi Ás-
mundar Stefánssonar til forsætis-
ráðherra.
Mikill fjöldi þingmanna tók
þátt í umræðunni og voru fulltrú-
ar stjórnarandstöðunnar sam-
mála um að svör ráðherranna
væru mjög loðin og gengisstefnan
því afar ótraust.
- Sáf
Sjá bls. 3