Þjóðviljinn - 16.10.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.10.1987, Blaðsíða 2
-SPURNINGIN Hvort þykir þér hyggilegra að borgin verji um 750 milljónum króna til byggingar ráðhúss, eða leiti samstarfs við ríki og atvinnurekendur um að veita svipaðri upphæð til lausnar dagheimilsvandans á næstu þremur árum? H' að im Helga Runólfsdóttir húsmóðir: Mér finnst ekki raunhæft að fara að byggja ráðhús þegar margt annað bíður sem er óneitanlega meira að- kallandi, eins og dagheimilismálin. Pálína Héðinsdóttir bókasafnsfræðingur: Að sjálfsögðu finnst mér það ekki vera nein spurning að síðarnefndi kosturinn er mun viturlegri. En ég hef ekki trú á að meirihlutinn í borgar- stjórn taki vel undir tillögu minnihlut- ans um þriggja ára átak í dagvistar- málum. Guðrún Þorsteinsdóttir verkakona: Vitanlega er hyggilegra að verja fjármununum til lausnar dagheimilis- vandanum en til byggingar ráðhúss. Bragi Þór Guðjónsson húsasmiður: Ég er meðmæltur síðari kostinum. Ég er ekki spenntur fyrir ráðhúsi. Það er svo margt annað sem er meira aðkallandi en að byggja skrauthýsi á Tjarnarbakkanum. Baldur Sigurðsson bifvélavirki: Engin spurning um það að dag- heimilismálin eiga að sitja fyrir. Við eigum að veita peningunum þangað sem þörf er fyrir þá. FRETTIR Vegagerð Miljarðar í vanefndum Héraðs- og rekstrarstjórar hjá Vegagerðinni: 3 miljarðar í vanefndum frá 1983. Hefði dugað Í20 km jarðgöng Þrátt fyrir viljayfirlýsingar Al- þingis um að 2,4% af vergri þjóðarframleiðslu færi til vega- gerðar, er svo komið að á árinu 1987 ná framlög til Vegagerðar ríkisins aðeins milli 1,4-1,5% af vergum þjóðartekjum. Þessi samdráttur bitnar ekki síst á viðhaldi malarvega sem víða er orðið að verulegu vanda- máli og fer vaxandi. Þar sem til viðbótar versnandi viðhaldi koma auknar kröfur vegfarenda um betri vegi, enda viðmiðun öll við bundin slitlög, segir í ályktun aðalfundar Félags héraðs- og rekstrarstjóra hjá Vegagerð ríkisins sem haldin var í Hafnar- firði á dögunum. Vanefndir frá markmiðum langtímaáætlunarinnar nemur um 3 miljörðum króna á árunum 1983-1987. Til þess að skýra framkvæmdamagn þessa niður- skurðar má benda á: 1. Km í bundnu slitlagi kostar um 1,5 miljón króna þannig að fyrir þennan niðurskurð hefði verið hægt að leggja um 2000 km af bundnu slitlagi. 2. Talið er að kostnaður við jarðgangnagerð hér á landi sé um það bil 150 miljónir króna/km. Hefði verið hægt að leggja 20 km jarðgöngum fyrir þá peninga sem vantar uppá loforð stjórnvalda til vegamála. Myndin sýnir framkvæmdir við jarðgöng í Oddsskarði. Þannig að fyrir niðurskurðinn gerði ráð fyrir, umreiknað í jarð- jarðgöngum, segja rekstrar- frá því sem að langtímaáætlun göng hefði mátt leggja 20 km af stjórar. Skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna 5 sjóðir keyptu helming Lífeyrissjóður verslunarmanna langstœrsti kaupandinn. Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur keypt langmest af skuldabréfum Húsnæðisstofnun- ar eða um 18% allra skuldabréfa sem stofnunin seidi á fyrri helm- ingi ársins í ár. Fimm stærstu sjóðirnir keyptu um helming allra skuldabréfanna. 1. ágúst sl. höfðu 56 lífeyris- sjóðir keypt skuldabréf fyrir rúma 2,3 milljarða króna, sem er u.þ.b. 65% þess fjármagns sem Húsnæðisstofnun aflaði á fyrri hluta ársins, en alls hafði stofnun- in aflað tæpra 3,5 milljarða króna, þar af eru afborganir og vextir 516 milljónir og framlag ríkissjóðs 406 milljónir. Þetta kemur fram í Fréttabréfi Hús- næðisstofnunar í september. Lífeyrissjóður verslunar- manna keypti bréf fyrir rúmar 400 milljónir króna. Næstur í röð- inni er Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins með tæp 13% af kaupunum eða tæpar 300 milljónir króna. Söfnunarsjóður- inn kemur næstur í röðinni, þá Lífeyiissjóður sjómanna og fimmti stærsti kaupandinn er Líf- eyrissjóður Dagsbrúnar og Fram- sóknar, en samtals keyptu þessir fimm sjóðir um helming allra skuldabréfanna. -Sáf Andakílshreppur Tveir nýir Stjórn verkamannabústaða í Andakflshreppi hefur afhent tvo nýbyggða verkamannabúastaði á Hvanneyri til nýrra eigenda. Húsin sem eru timburhús eru 120 ferm. að stærð. Byrjað var á smíði húsanna fyrir réttu ári síð- an. Verktaki var Pétur Jónsson húsasmíðameistari á Hvanneyri. Kostnaðarverð hvors hús með frágenginni lóð er um 5 miljónir. Með þessu nýju húsum eru nú 4 verkamannabústaðir í hreppn- um, 1 í Bæjarsveit og 3 á Hvann- eyri. _lg. Mannréttindi Jón inn í Strassborg Líkur taldar á sáttum þegar niðurstöður nefndar koma framkvœmdavalds á landsbyggðinni. Jón Kristinsson: skuli hafa hreyft við þeim Jóns og lögfræðings hans, Eiríks Tómassonar. Jón sagði í gær að hann væri ánægður með að sitt mál skyldi hafa hreyft við yfirvöldum, en sagði Eirík lögfræðing eiga allan heiður skilinn, - málsókn ytra hefði verið hans hugmynd. Málatilbúnaður í Strassborg fjallar um það hvort rétt sé að sama embætti rannsaki meint lag- abrot og felli um þau dóm, einsog viðgengst hérlendis utan Reykja- Hjólreiða- og ökukappinn Jón Kristinsson á Akureyri gerir það ekki endasleppt og varð í fyrradag fyrsti ísiendingurinn tii að fá mál sitt inná borð hjá Mannréttindanefnd Evrópuráðs- ins. Líkur benda nú til að sættir tak- ist eftir að nefnd leggur fram til- lögur að aðskilnaði dóms- og framkvæmdavalds á landsbyggð- inni, - en sú nefnd var einmitt skipuð í kjölfar málarekstrar um aðskilnað dóms- og Ánœgður með að þetta víkur, en þau málsatvik sem byggt er á eru tvenn væg umferð- arbrot Jóns. Mannréttindanefndin í Strass- borg hefur samþykkt að fjalla um málið, en ekki tekið neina efnis- lega afstöðu til þess, og yrði langt í slíkt ef ekki nást sættir áður. Dómsmálaráðherra skipaði nefnd til að gera tillögur um rétt- arbætur á landsbyggðinni seint í september, og á hún að skila af sér fyrir febrúar á næsta ári. -m 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. október 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.