Þjóðviljinn - 16.10.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómfiuiNN
Föstudagur 16. október 1987 230. tölublað 52. órgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Sjávarútvegsráðuneytið
Sóknarmark hreyfist
Sóknardögumfœkkað að meðaltali um5% Álagið á eigin reynslu lœkkað úr 20% í 10%
Afundi ráðgjafanefndar um
mótun fiskveiðistefnunnar i
gær lagði Árni Kolbeinsson ráðu-
neytissijóri sjávarútvegsráðu-
neytisins fram tillögur í fimm lið-
um um breytingar á sóknar-
marki. Hetstu atriði þeirra eru
sem hér segir:
í fyrsta lagi að sóknardögum
verði fækkað nokkuð eða að
meðaitali um 5%.
í öðru lagi að álagið á eigin
reynslu yrði lækkað úr 20% eins
og það er í dag, niður í 10%.
í þriðja lagi er lagt til að sú nýja
reynsla sem sóknarmarkskip
ávinna sér árlega verði takmörk-
uð þannig að hún hafi ekki áhrif á
framtíðaraflamöguleika þeirra
skipa sem völdu aflamörk. Þetta
verði gert með því að reikna nýja
reynslu sóknarmarksskipanna.
í fjórða lagi að afli sóknar-
marksskipa á árinu 1987 verði
ekki látinn hafa áhrif á aflamark
þeirra á næsta ári. Aflamark allra
skipa á næsta ári verði því hið
sama og í ár að teknu tilliti til
almennra breytinga í heildarafla
einstakra tegunda.
Og í fimmta og síðasta lagi
verði sérstakt aflahámark tekið
upp í karfa að því er sóknar-
markstogarana varðar, líkt og
þorskaflahámarkið.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans vöktu þessar tillögur ráð-
uneytisstjórans litla hrifningu
meðal nefndarmanna, nema ef
vera skyldi hjá útgerðar-
mönnum.
Næsti fundur ráðgjafarnefn-
darinnar er boðaður
næstkomandi miðvikudag. grh
Dagsbrún
Varar við
matarskattinum
Trúnaðarráð Dagsbrúnar hef-
ur varað ríkisstjórnina alvarlega
við að leggja 10% söluskatt á
landbúnaðarvörur. Skattur þessi
kemur þyngst niður á tekjulitlum
bamafjölskyldum.
í ályktun trúnaðarráðsins segir
að verkalýðshreyfingin muni
ekki horfa aðgerðarlaus á að
þeim tekjulægstu verði íþyngt
enn frekar en orðið er. *
Grunnskólanemar
Skemmtistaö
í miðbæinn
að er útbrciddur misskilning-
ur og ber vott um mikla for-
dóma í garð okkar unglinganna
að halda því statt og stöðugt fram
að við séum upp til hópa skemmd-
arvargar og ávallt undir áhrifum
áfengis, þegar við erum að
skemmta okkur, sagði Sólveig
Arnarsdóttir nemandi í Austur-
bæjarskólanum.
I gær var haldið málþing
grunnskólanema í Tónabæ, þar
sem saman voru komnir fulltrúar
nemendaráða í 8. og 9. bekk úr
öllum grunnskólum borgarinnar.
Umræðuefni málþingsins var
skemmtanir unglinga og
skemmdarverk sem unnin hafa
verið að undanförnu í miðbænum
og það orð sem þær hafa komið á
unglinga höfuðborgarinnar.
Þeir sem til máls tóku á mál-
þinginu deildu hart á vinnubrögð
frétta- og blaðamanna og stjórn-
endur fjölmiðla sem virtust ekki
hugsa um neitt annað en að segja
sem verstar sögur af unglingum.
Eða eins og ein stúlkan komst að-
orði: „Unglingar upp til hópa eru
gerðir að blórabögglum vegna
svartra sauða sem alltaf finnast í
sérhverri hjörð. Lausnin á þessu
vandamáli er að koma upp
skemmtistað fyrir unglinga í mið-
bænum, því þangað liggja allar
leiðir, jafnt unglinga sem full-
orðna.“
grh
„Okkur vanta skemmtistað í miðbæinn tyrir unglinga. Þangað liggja allar leiðir jafnt fullorðinna sem unglinga,“ sögðu
grunnskólanemar á málþingi í Tónabæ í gær. Mynd: Sig.
Beiðni um skýrslu
Ákvörðun frestað
Ákvörðun umskýrslu vegnaflugstöðvarinnarfrestað. Samþykktað
verða við beiðniAlþýðubandalags um skýrslu vegnafasteignakaupa
ríkisins
Afundi sameinaðs Alþingis í
gær var ákveðið að fresta
ákvörðun um hvort orðið yrði við
beiðni Guðrúnar Agnarsdóttur
og annarra kvenna í þingmanna-
au undur og stórmerki gerð-
ust fyrr í vikunni að embættis-
maður borgarinnar, Davíð Odds-
son, borgarstjóri, meinaði borg-
arfulltrúum minnihlutaflokk-
anna afnot af fundarherbergi
borgarráðs, sagði Sigurjón Pét-
ursson, Alþýðubandalagi við um-
ræður á borgarstjórnarfundi í
gær, en borgarstjóri úthýsti blað-
amannafundi sem minnihlutinn
boðaði til að kynna tillögu til
lausnar á dagvistarmálum.
Tillögu minnihlutans um að
borgarfulltrúum væri heimilt,
hvar í flokki sem þeir stæðu, að
nota húskynni borgarstjórnar til
smærri funda og blaðamanna-
liði stjórnarandstöðunnar, um
skýrslu frá fjármálaráðherra um
útgjöld og kostnað við byggingu
nýju flugstöðvarinnar.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
funda, var vísað til annarrar um-
ræðu.
- Ég tel mig ekki þurfa að
standa borgarstjóra skil á því við
hverja ég kýs að ræða í herbergj-
um borgarstjórnar. Það er hlálegt
að borgarfulltrúum skuli meinað
með þessum hætti að upplýsa al-
menning um borgarmál, sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Kvennalista.
Bjarni P. Magnússon Alþýðu-
flokki minnti Davíð Oddsson á
að sem borgarstjóri væri hann
embættismaður og hefði ekkert
með málefni borgarstjórnar að
gera og því væri þetta óafsakan-
leg afskiptasemi af störfum borg-
arfulltrúa. -rk
vegsráðherra taldi formgalla á
beiðninni, þar sem Flugstöðin
heyrði undir utanríkisráðherra
en ekki fjármálaráðherra.
Guðrún Agnarsdóttir bað þá
um að báðir ráðherrarnir skiluðu
skýrslunni en Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, forseti sameinaðs
Alþingis ákvað þá að fresta á-
kvörðuninni þar til formsatriði
væru komin á hreint.
Fallist var hinsvegar á beiðni
þingflokks Alþýðubandalagsins
um skýrslu frá fjármáiaráðherra
um kaup og sölu fasteigna á veg-
um ríkisins síðan 26. maí 1983.
Beiðnin var lögð fram á síðasta
þingi en er nú lögð fram aftur þar
sem ekki tókst að skila henni þá.
í skýrslunni skal getið um
kaup- og söluverð hverrar fast-
eignar, fasteigna- og brunabóta-
matog greiðsluskilmála. Gerð
skal grein fyrir stærð húsnæðis,
afhendingartíma og kostnað við
breytingar. Einnig er farið fram á
að það komi fram hvort heimild
hafi verið fyrir viðskiptunum í
fjárlögum þegar kaupin fóru
fram.
- Sáf
Borgarstjórn
Borgarfulltmum úthýst
Kennarar
Leiðbeinendur
hrökklast frá
Halldóra Magnúsdóttir, Frœðsluskrifstofu
Vestfjarða: Mikill seinangangur við ráðningu
réttindalausra kennara. Sumir ekkienn
komnir inn á launaskrá
Nokkur brögð hafa verið að því
að réttindalausir kennarar,
sem kallast nú leiðbenendur, hafi
hrökklast frá kennslu eftir nokk-
urra ára starf, af völdum ýmis-
konar kárina. Að sögn Halldóru
Magnúsdóttur, fulltrúa á
Fræðsluskrifstofu Vestfjarða, er
farið með leiðbeinendur eins og
hornrekur í skólakerfinu.
Hefur bæði seint og illa tekist
að fá ráðningar þeirra staðfestar
hjá ráðuneyti menntamála og að
■ finna þeim stað í launaskrá launa-
deildar fjármálaráðuneytisins.
Dæmi eru til þess, að
leiðbeinendur hafi ekki fengið
greidd laun það sem af er skóla-
árinu.
- Það eru nokkur brögð að því
að leiðbeinendur, sem töldu sig
ráðna, hafi hætt við á síðustu
stundu, eftir að hafa verið búnir
að gefast upp á biðinni eftir stað-
festingu ráðuneytisins, sagði
Halldóra.
í síðasta Fréttabréfi Fræðslu-
skrifstofunnar á Vestfjörðum ber
málefni leiðbeinenda á góma.
Segir þar í þönkum Péturs
Bjarnasonar, fræðslustjóra, að
leiðbeinendur hafi fengið ómak-
lega útreið í umræðunni um rétt-
indamálin „og hafa nokkrir horf-
ið frá kennslu af þeim sökum.
Hefur lítið verið greint á milli
hvort um er að ræða vel menntað
fólk og reynda kennara, eða
reynslu- og menntunarlítið fólk.“
Halldóra sagði að seinagangur-
inn við ráðningar réttindalausra
kennara væri mjög bagalegur
fyrir fræðsluumdæmi eins og það
á Vestfjörðum, þar sem stór hluti
kennara væri án kennsluréttinda
og lítil von væri til að fá réttinda-
fólk til að sækja. Umsóknir rétt-
indalausra kennara fara fyrir
sérstaka undanþágunefnd og síð-
an til staðfestingar hjá ráðuneyti.
- rk