Þjóðviljinn - 16.10.1987, Síða 3
____________________________FRÉTT1R__________________________
Alþingi
Stjómin falli með genginu
Utandagskrárumrœða um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gœr
Eg fer fram á það að forsætis-
ráðherra lýsi því yfir afdrátt-
arlaust, að ríkisstjórnin muni
hvorki á þessu ári né næsta fella
gengi krónunnar og leggi líf ríkis-
stjórnarinnar að veði. Að stjórn-
in fari frá ef nauðsynlegt reynist
að fella gengið. Að líf stjórnar-
innar og gengi krónunnar verði
tengt saman, sagði Ólafur Ragn-
ar Grímsson m.a. í utandagskrár-
umræðu um síðustu ákvarðanir
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um.
Ólafur Ragnar fór fram á þessa
umræðu og gagnrýndi hann harð-
lega þau vinnubrögð sem fjár-
málaráðherra hafði við samningu
fjárlagafrumvarpsins. Hann
spurði hvaða stöðu þetta „rósa-
frumvarp" Jóns Baldvins hefði
þar sem ljóst væri að það nyti
ekki stuðnings eins ráðherrans,
en haft er eftir Jóni Helgasyni,
landbúnaðarráðherra, í Tíman-
um í gær að hann sé ósáttur við
tillögur Jóns.
Þá bað Ólafur Ragnar um skýr
svör við bréfi Ásmundar Stefáns-
sonar til forsætisráðherra um að
hætt verði við matarskattinn, en
við síðustu samninga lofaði ríkis-
stjórnin að vera ekki með hækk-
anir umfram almennar verð-
lagsþróanir. „Eina svarið sem
Ásmundur hefur fengið er skæt-
ingur frá forsætisráðherra í blöð-
um.“
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, tók næstur til máls og taldi
ræðu Ólafs Ragnars bera keim af
framboðsræðu til formannsem-
bættis Alþýðubandalagsins. For-
sætisráðherra var ekki tilbúinn að
leggja líf ríkisstjórnarinnar að
veði. „Það hefur verið ákveðið að
halda fast við fastgengisstefnuna
einsog sést á aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar. Fastgengisstefnan
hefur verið, er og verður horns-
teinn ríkisstjórnarinnar."
Þorsteinn sagði að það kynnu
að vera uppi efasemdir um það
hvort fastgengisstefnan standist
en að með þessum aðgerðum hafi
verið tekin af öll tvímæli um að
ríkisstjórnin ætli að halda við
fastgengisstefnuna. Þá neitaði
Þorsteinn því að ríkisstjórnin hafi
gengið á bak orða sinna einsog
segir í bréfi Ásmundar Stefáns-
sonar.
Steingrímur Hermannsson,
utanríkisráðherra sagði það rangt
að Framsóknarflokkurinn stæði
ekki að frumvarpinu. „Við styðj-
um heilshugar grundvallaratriði
þess að það sé afgreitt halla-
laust.“ Þá taldi hann ekkert
óvanalegt við fyrirvara landbún-
aðarráðherra.
Albert Guðmundsson sagði að
svör Þorsteins Pálssonar við
tímabærum spurningum Ólafs
Ragnars hefðu ekki verið nein
svör heldur dylgjur sem skiptu
efnahagsumræðuna engu máli.
Sagðist hann vera engu nær um
það hvort ríkisstjórnin stæði eða
félli með einhverri stefnu, hvað
þá að ríkisstjórninni takist að
halda genginu stöðugu.
Jón Baldvin Hannibalsson,
fjármálaráðherra, gaf heldur
engin skýr svör um það hvort
ríkisstjórnin stæði eða félli með
fastgengisstefnunni. Sagði hann
einsog Þorsteinn að með aðgerð-
um sínum hefði ríkisstjórnin
tekið af öll tvímæli um að hún ætli
ekki að fella gengið.
Jón Baldvin sagðist hafa átt
fund með atvinnurekendum þar
sem komið hefðu fram skiptar
skoðanir um hvort gengið skuli
fellt. Sagði hann að aðilar sjávar-
útvegsins væru andvígir slíkum
skottulækningum. Sagðist hann
telja sig hafa vísað á bug öllum
hugmyndum um gengislækkun.
Nú-væri eftir að sjá hvort for-
svarsmenn atvinnulífsins hegði
sér í samræmi við þetta.
Hvað matarskattinn varðaði
þá kvaðst Jón Baldvin vera tilbú-
inn að ræða frestun hans við for-
svarsmenn verkalýðshreyfingar-
innar svo fremi það leiði til hag-
stæðari kjarasamninga fyrir at-
vinnurekendur.
Kristín Halldórsdóttir,
Kvennalista, tók undir með Al-
berti Guðmundssyni að ráðherr-
arnir treystu sér auðheyrilega
ekki til þess að gefa skýr svör.
Svavar Gestsson sagði augljóst
að fastgengisstefnan fái ekki
staðist miðað við horfur í efna-
hagsmálum. Erlendar lántökur á
næsta ári verða 8 milljarðar
króna, viðskiptahalli um 5
milljarðar. „Fastgengisstefnan á
að byggjast á óbreyttum kaup-
mætti á næsta ári en það verður
ekki liðið. Ríkisstjórn sem byrjar
sinn feril með siðlausum árásum
á hag láglaunafólks. Ríkisstjórn
sem efnir til illinda við verka-
lýðshreyfinguna, út af ráðstöfun-
um sem kynntar hafa verið und-
anfarna daga. Slík ríkisstjórn
ræður ekki við þann efnahags-
vanda sem nú er uppi.“
Svavar taldi aðalatriðin vera
þau að gengisstefnan væri ó-
traust, yfirlýsingar ráðherranna
um fast gengi loðnar, allsstaðar
smugur á milli setninga og auka-
setninga. Þá sagði hann að fjár-
lagafrumvarpið væri ekki fjárlag-
afrumvarp ríkisstjórnarinnar í
heild, því landbúnaðarráðherra
styðji aðeins tekjuhlið frum-
varpsins. í þriðja lagi taldi Svavar
augljóst að ríkisstjórnin væri ekki
tilbúin að draga til baka matar-
skattana til að koma til móts við
verkalýðshreyfinguna þannig að
eðlilegt andrúmsloft skapist._Sáf
RALA
Röng vúinubrögð
Þorsteinn Tómasson: Þörfinfyrir rannsóknir og
þekkingaröflun aldrei brýnni en nú. Tilraunastöðv-
arnar skornar burt. Landbúnaðarráðherra skipar
þriggja manna nefnd til að leita leiða
Við erum riijög óhressir með
þessa niðurstöðu og ég tel að
hér sé um mjög alvarlegt mál að
ræða fyrir landbúnaðinn, sem nú
stendur á tímamótum. Það er
ekki síður þörf fyrir rannsóknir
núna þegar verið er að söðla um í
landbúnaðinum. Þörfin hefur
sennilega aldrei verið jafn brýn
og nú fyrir rannsóknir og þekk-
ingaröflun, sagði Þorsteinn Tóm-
asson, forstjóri Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins, við Þjóð-
viljann.
I fjárlögum fyrir næsta ár er
skorið mjög harkalega niður við
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins og fjárveitingar til allra til-
raunastöðva fyrir utan tilrauna-
stöðina að Sámsstöðum, skornar
burt. Jón Helgason, landbúnað-
arráðherra samþykkti frumvarp-
ið með fyrirvara um niðurskurð-
inn til þeirra stofnana sem heyra
undir landbúnaðarráðuneytið.
Að hans frumkvæði var skipuð
þriggja manna nefnd til að fjalla
um niðurskurðinn og finna leiðir
fyrir stofnanirnar til að halda
starfseminni gangandi. í nefnd-
inni sitja þeir Páll Pétursson,
Egill Jónsson og Eiður Guðna-
son.
„Það eru ekki síst vinnubrögð
fjármálaráðherra, sem við
gagnrýnum,“ sagði Þorsteinn
Tómasson. „Fjármálaráðherra
hefur tekið upp á sína arma að
leggja faglegt mat á þessar stofn-
Dr. ÞorsteinnTómasson: Gagnrýnum vinnubrögð fjármálaráðherra.
anir, án þess að það hafi farið
fram rökræn umræða um stofn-
anirnar. Þetta eru röng vinnu-
brögð og við mótmælum aðferð-
inni. Hafi ráðuneytið hug á hag-
ræðingu hjá þessum stofnunum
hefði átt að ræða slíkt við hlutað-
eigandi. Svona vinnubrögð hafa
mjög slæm áhrif á aðra starfsemi
stofnunarinnar.“
Meðal þeirra rannsókna sem
eru í undirbúningi hjá Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins má
nefna að í undirbúningi var mikið
verkefni hvað varðar sauðfjárr-
ækt. „Á því sviði er nú brýnni
þörf en áður að leita leiða úr þeim
ógöngum sem hinn hefðbundni
búskapur er í,“ sagði Þorsteinn
að lokum.
-Sáf
Fjárlagafrumvarpið
Hallar á sveitarfélögin
100 miljónir duga skammt til að sinna stórauknum
verkefnum. Ýmsum velferðar- og menningarverkefn-
um stefnt í voða
Fjárlögin
Misræmi
Reykjavíkúrborg reiknar
með mun meiri verð-
bólgu en ríkissjóður
Við gerð fjárlagafrumvarpsins
var gert ráð fyrir að verðlag
hækki ekki nema tæp 10% frá
upphafi til loka árs 1988 en það
þýðir að meðalverðlag 1988 á
ekki að vcra nema 17-18% hærra
en á yfirstandandi ári. Sam-
kvæmt upplýsingum Eggcrts
Jónssonar borgarhagfræðings
mun til að byrja með verða
reiknað með 22% hækkun með-
alverðlags við gerð fjárhagsáætl-
unar Reykjavíkurborgar.
Ekki er vitað hvað veldur meiri
bjartsýni hjá borg en ríki. Það
skiptir reyndar ekki sköpum fyrir
ríkissjóð hvort verðbólga fer
fram úr spá því að stór hluti tekna
fylgir sjálfkrafa verðlagsbreyt-
ingum.
Við kynningu á fjárlagafrum-
varpinu var lögð töluverð
áhersla á að til stæði að auka
valddreifingu sveitarfélaga. Það
yrði gert með því að færa verk-
efni frá ríkinu til sveitarfélaga en
þeim jafnframt tryggðar meiri
tekjur. M.a. er gert er ráð fyrir
eftirfarandi breytingum.
Ríkið hætti að greiða helming
launa kennara í tónlistarskólum,
153 miljónir króna miðað við
17% hækkun á núgildandi fjár-
lögum.
Ríkið greiði ekki lengur helm-
ing stofnkostnaðar við leikskóla
og dagheimili. Framlag ríkisins
hefur skilað sér seint og talsmenn
sveitarfélaga telja það allt of lágt í
ár. Til að halda í horfinu ætti það
að vera 50 miljónir króna á næsta
ári.
Framlög ríkisins í íþróttasjóð
verða afnumin. Fé úr honum hef-
ur aðallega verið nýtt til að greiða
að hluta kostnað við byggingu
fþróttahúsa. Mikið hefur verið
kvartað yfir því hvað sjóðurinn
hefur verið rýr. Framlag til hans
hefði þurft að vera 47 miljónir
króna til að verða ekki minna en í
ár.
Félagsheimilasjóður verður
lagður niður. Hann hefur lengi
verið það lítill að sveitarfélög
hafa þurft að bíða í mörg ár eftir
fjárveitingu. Framlag til hans
hefði þurft að vera 14 miljónir á
næsta ári ef halda hefði átt í horf-
inu.
Til að sveitarfélögin geti mætt
þessum auknu álögum ásamt því
að standa ein undir kostnaði af
heimaþjónustu við aldraða er
lagt til í fjárlagafrumvarpinu að
100 miljónir króna verði settar í
sérstaka deild í Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Mikill kurr er í sveitarstjórnar-
mönnum vegna þessa máls. Þeir
hafa margir viljað breytta verk-
efnaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga en telja að við þær breyting-
ar verði að ríkja fjárhagslegt
jafnræði.
Föstudagur 16. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3