Þjóðviljinn - 16.10.1987, Page 5
Indverski herinn sem situr um Jaffnaborg á
Sri Lanka tilbúinn íslaginn. Óljóst hve margir
frelsistígrar eru í borginni
Indverskir hermenn sitja nú
þúsundum saman um Jaffna-
borg í norðurhluta Sri Lanka,
höfuðvígi frelsistígra Tamfla.
Herinn er studdur stórskotaliði
og vígvélum og er sagður reiðu-
búinn í lokauppgjörið.
Bardagar við Jaffnaborg hafa
staðið síðan á laugardag, og að
sögn ríkisútvarpsins á Sri Lanka
tóku tígrarnir fimm indverska
hermenn höndum og brenndu þá
lifandi. Að sögn útvarpsstöðvar-
innar voru logandi bfldekk hengd
um háls mönnunum.
Búist er við að indversku her-
deildirnar láti til skarar skríða á
hverri stundu. Um er að ræða að
minnsta kosti 6,000 hermenn, en
undanfarna daga hafa þeir skipað
liði sínu við borgarmörkin.
Y firmaður í her Sri Lanka segir
að herinn hafi haldið uppi skot-
hríð á borgina til að draga víga-
móðinn úr andstæðingum sínum.
Indverska sendiráðið gerði
hvorki að játa né neita þessum
upplýsingum.
Indverskir embættismenn
giska á að um 2,500 frelsistígrar
séu í Jaffnaborg, en í tilbót hafa
þeir stuðningsmenn og er ekki
vitað hve margir þeir eru, þar
sem menn greinir mjög á um
hversu margir Tamílar hafa gegnt
kalli foringja sinna um að safnast
saman í Jaffna fyrir lokabardag-
ann.
Tamílar hafa síðustu daga
aukið umsvif sín á austurhluta
eyjarinnar, en almennt er talið að
þær aðgerðir miðist að því að
Fórnarlamb borgarastyrjaldarinnar á Sri Lanka borið á brott. Lokauppgjörið stendur nú fyrir dyrum, en indverskar
hersveitir sitja um höfuðvígi tamílska minnihlutans, Jaffnaborg.
draga athyglina frá Jaffna og losa
um umsátrið.
Sókn indversku hermannanna
gegn Jaffna hófst síðastliðinn
laugardag, eftir að tígrarnir
drápu um 200 Sinhalesa til að
hefna 15 félaga sinna sem frömdu
sjálfsmorð í fangelsum stjórnar-
innar.
Fjöldi Tamíla býr í suðurhluta
Indlands, en þarlend stjórnvöld
undirrituðu samkomulag við
stjórn Sri Lanka 29. júlí síð-
astliðinn, og miðaði samkomu-
lagið að því að binda endi á borg-
arastyrjöldina í eyríkinu, en hún
hefur nú staðið í fjögur ár. Stríðið
stendur milli tamflsks minnihluta
sem berjast fyrir sjálfstæðu
föðurlandi og stjórnarinnar sem
styðst við Sinhalesa, en þeir eru í
miklum meirihluta meðal íbúa
Sri Lanka.
Um 12,000 indverskir her-
menn voru sendir til landsins í
kjölfar samkomulagsins.
IIS
Umsátrið um Jaffna
Lokasókn á
hveiri stundu
I
Brasilía
Dansað gegn
kjamaúrgangi
Amazonindjánar stíga dans útifyrir
forsetahöllinni og mótmœla með því
áformum um að losa geislavirkan úrgang í
regnskógana á Amazonsvœðinu
Amazonindjánar stigu dans
fyrir utan forsctahöllina í
Brasilíu í fyrradag til að mótmæla
þcim áformum stjórnvalda að
losa geislavirkan úrgang í regn-
skógana á Amazonsvæðinu.
Um hundrað indjánar af
Kaiapo-ættbálki ferðuðust 1200
kílómetra leið í þessu skyni, og
með dansinum tjáðu þeir reiði
sína vegna þeirra fyrirætlana
Kjarnorkunefndarinnar að losa
úrgang við hernaðarmannvirki í
fylkinu Para. Forsending þessi
olli alvarlegu slysi í fylkinu Goias
í síðasta mánuði.
Höfðingi ættbálksins, Tapiet,
sagði að efnaúrgangurinn mundi
ógna heilsu og lífsskilyrðum fólks
síns, en ættbálkurinn heldur til í
um 80 kílómetra fjarlægð frá
fyrirhugaðri endastöð úrgangs-
ins. Indjánar þeir sem hér um
ræðir eru um þrettán þúsund tals-
ins.
Fylkisstjórnarmenn í Para eru
einnig æfir yfir ákvörðun nefnd-
arinnar, en foseti landsins, Jose
Sarney, hefur nú ákveðið að
leggja fram frumvarp á þingi þess
efnis að sérhvert fylki beri eitt og
sjálft alla ábyrgð á eigin kjarna-
úrgangi.
I síðasta mánuði urðu að
minnsta kosti 58 manns fyrir
mengunareitrun er unglingar
fundu geislavirk tæki sem skilin
höfðu verið eftir í borginni Goi-
ana. Tíu liggja nú þungt haldnir á
hersjúkrahúsi í Rio de Janeiro.
Að sögn talsmanna sjúkrahússins
hefur einn þegar misst framhand-
legg, og hugsanlega þarf að skera
hendur og fætur af öðrum sjúkl-
ingi til að komast fyrir eitrunar-
áhrifin.
HS
Indjánar í regnskógum Brasilíu reyna nú að hafa vit fyrir stjórnvöldum sínum og
fá þau ofan af fyrirætlunum um að losa geislavirkan úrgang á Amazonsvæðið.
Argentína
Gemm verobólgusprengjuna óvirka
Alfonsínforseti hvetur tilþjóðarsáttar um að vinna á verðbólgunni.
Raul Alfonsín, forseti Argent-
ínu, hvatti landsmenn í gær til
að víkjast vcl við tilraunum
stjórnar sinnar til að gera verð-
bólgusprcngjuna óvirka, eins og
hann komst að orði. Ákalli forset-
ans var útvarpað fáeinum klukk-
ustundum eftir að verðstöðvun og
frystingu launa var komið á í
landinu.
„Verðbólga veldur óvissu.
Hún er óréttlát og veldur mikilli
spennu meðal þeirra sem vilja fá
sitt til baka,“ sagði Alfonsin.
Óhætt er að segja að verðbólg-
an hafi verið komin á fulla ferð í
Argentínu, en um það leyti er
stjórnvöld gripu til sinna ráða var
hún komin í 135%. Fyrri aðgerðir
stjórnarinnar, Austral-áætlunin
svokallaða, mistókust að mestu,
en aðgerðir þessar draga nafn af
gjaldmiðli landsins sem nefnist
austral.
Alfonsin hét á verkalýðsfé-
laga, verkalýðsfélög og áhrifa-
menn í viðskiptalífinu að koma til
móts við stjórnina í þessum efn-
um og koma á þjóðarsátt. „Allir
verða að sameinast í baráttunni
gegn verðbólgunni. Ein og sér
megnar ríkisstjórnin ekki að
vinna bug á henni,“ sagði forset-
inn.
Undirtektir hafa verið daufar,
þrátt fyrir ákall forsetans. Verka-
lýðsleiðtogar segja að launaleið-
réttingar sem eiga að fylgja verð-
og launastöðvuninni séu ó-
fullnægjandi, og viðskipta-
heimurinn efast um að aðgerðir
stjórnarinnar dugi til að hemja
verðbólguna.
Verðbólga hefur verið hvað
þrálátastur höfuðverkur stjórn-
arinnar síðan hún komst til valda
árið 1983, en þar áður ríkti her-
foringjastjórn í átta ár.
Meðal aðgerða Alfonsins var
gengisfelling australsins um
10,8%. Tekið er fyrir launahækk-
anir og verðstöðvun sett á.jjjg
Föstudagur 16. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Filipseyjar
Allsherjar-
verkfall
Stærsta verkalýðssamband Fil-
ipseyja beitir sér fyrir dag-
sverkfalli í dag, föstudag, til að
leggja áherslu á kröfuna um
hækkun lægstu launa.
Verkalýðssambandið TUCP
fylgir hófsamri stefnu, en í gær
sögðu forvígismenn þess að verk-
fallið í dag yrði til að stöðva sam-
göngur í lofti og á landi, starfsemi
banka og verksmiðja, og auk þess
myndi hafnarvinna leggjast nið-
ur.
Róttæk verkalýðsfélög hafa
lýst yfir stuðningi við aðgerðir
TUCP, en þær koma í kjölfar
misheppnaðra verkfallsaðgerða
ýmissa verkalýðsfélaga að und-
anfömu, og pólitísks óróa í
landinu.
Skæruliðar kommúnista í
norðurhluta landsins hafa að
sögn lýst því yfir að þeir muni
ráðast gegn bandarískum her-
stöðvum sem og diplómötum ef
bandarísk stjórnvöld sýni lit á því
að styðja setningu herlaga, eða
geri sig líkleg til að stuðla að því
að Aquino forseta verði steypt af
stóli. Tvær stærstu herstöðvar
Bandaríkjamanna á erlendri
grund eru á Filipseyjum.
Stjórnvöld á Filipseyjum halda
því fram að hluti hersins hafi nýja
valdaránstilraun á prjónunum.
Bandarískir ráðamenn hafa hvað
eftir annað borið af sér allar ásak-
anir um að eiga hlutdeild í valda-
ránstilraununum fimm sem
reyndar hafa verið að undan-
förnu.
Forseti verkalýðssambandsins
TUCP hefur hvatt verkamenn til
að vera heima í dag en mæla ekki
götur höfuðborgarinnar, og
stuðla þar með að því fyrir sitt
leyti að pólitísk spenna aukist
enn frekar.
Til verkfallsins var boðað þrátt
fyrir fyrirheit Aquino að flýta af-
greiðslu þingsins á frumvarpi um
lágmarkslaun. Verkfallsmenn
telja að frumvarpið gangi of
skammt: „Við getum ekki beðið
lengur, verkamenn svelta nú þeg-
ar,“ sagði forseti TUCP.