Þjóðviljinn - 16.10.1987, Side 6
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Framboðsfrestur
Ákveðiö hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur um kjör fulltrúa á 16. þing Landssambands
íslenskra verslunarmanna.
Kjörnir verða 88 fulltrúar og jafn margir til vara.
Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu
Verslunarmannafélags Reykjavíkur, Húsi versl-
unarinnar, fyrir kl. 12 mánudaginn 19. október
n.k.
Kjörstjórnin
Sigkifjarðarkaupstaður
Lausar stöður
1. Staða félagsmálafulltrúa. Viðkomandi mun
hafa með æskulýðs- íþrótta- og félagsmál að
gera, þ.m.t. sjúkrasamlag. Æskilegt er að við-
komandi hafi menntun á félagsmálasviði eða
reynslu í sambærifegum störfum. Staðan er
laus frá 1. jan. nk.
2. Staða bókara er laus frá 1. des. n.k. Krafist er
góðrar þekkingar á bókhaldi og notkun á
tölvu.
3. Staða skrifstofumanns er laus frá 1. des. n.k.
Starfssvið: Launaútreikningar, skrifstofuað-
stoð við tæknideild o.fl. Æskilegt er að við-
komandi hafi reynslu af skrifstofustörfum.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf send-
ist undirrituðum fyrir 25. okt. nk.
Bæjarstjórinn Siglufirði
NAGLARNIR EYÐA GÖTUM BORGARINNAR
Bifreiðar með afturdrifi á ónegldum snjó-
hjólbörðum hafa betri aksturshæfiieika
með farg yfir afturöxli.
Sandpokar afhentir í bækistöðvum gatn-
amálastjóra við Meistaravelli, Sigtún,
Grensásveg og Sævarhöfða.
Gatnamálastjóri
Eiginmaður minn
Guðmundur Björnsson
veggfóðrari
sem lést 7nda þessa mánaðar, verður jarðsettur frá
Kópavogskirkju í dag, föstudaginn 16. október kl. 15.
Blóm og kransar afbeðln, en þeim sem vildu minnast
hans er bent á að láta Sunnuhlíð í Kópavogi njóta þess.
Þórheiður Sumarliðadóttir
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐAFERÐ!
mIumfhroar
Uráð
HEIMURINN
Reykjavíkurfundurinn
Undanfari raunvenilegrar
kjamorkuafvopnunar
Um þessar mundir minnumst
við þess að ár er liðið frá
Reykjavíkur-fundinum. Þetta
hugtak „Reykjavík“ er þegar
komið í hina alþjóðlegu alfræði-
orðabók sem tákn um upphafið
að kjarnorkuvopnalausum
heimi, og þegar ég segi „við“ hef
ég í huga allt góðviljað fólk, sem
nú er rúmlega finim milljarðar.
Og náttúran sjálf hefur komið
því svo fyrir að þessi gífurlegi
fjöldi, sem er mannkynið allt, að
undanskildum brjálæðingum, vill
einfaldan hlut: Búa við frið og í
góðri sambúð við grannann, við
ánægju og allsnægtir. Vill ekki
styrjöLd, sem lýkur með því að
ekkert verður eftir, eins og vís-
indamenn hafa sýnt og sannað.
Vill ekki að barn deyi úr hungri
eða sjúkdómum á tveggja mfn-
útna fresti. Vill að allir geti lært
að lesa og skrifa, fái að vita meira
og meira.
Og það eru bara „smámunir“
sem þarf til jjess - heimur án
vopna. Það er besta og í raun eina
raunverulega tryggingin fyrir
traustum friði í hinum litla sam-
eiginlega heimi okkar, sem satt
að segja er varnarlaus gagnvart
tugum þúsunda kjarnorku-
sprengja.
Einhver segir vafalaust að
þetta sé tálvon. f allri sögu
mannkynsins hafi ekki verið 200
ár, þegar hefur ríkt friður, en það
hafa verið háðar stórar og smáar
styrjaldir og í þeim hafa fallið
jafnmargir og byggja heiminn í
dag. Svona er það nú. Ég hef
meira að segja lesið einhvers
staðar að þegar bandaríski
hönnuðurinn og iðnjöfurinn, H.
Maxim, fann upp hinar kunnu
vélbyssu, og herlið undir forystu
hins unga breska liðsforingja,
Winstons Churchills, tók hana í
notkun í Búastríðinu í upphafi
aldarinnar, hafi sérfræðingar
komist að eftirfarandi niður-
stöðu: Það væri enginn tilgangur í
því að berjast lengur, þar sem
fram á sjónarsviðið hefði komið
hræðilegt gereyðingarvopn. En
Vladimír Verbenko, yfirmaður APN á
ísiandi.
engu að síður voru háðar tvær
heimsstyrjaldir, svo að ekki sé
talað um svæðisbundnar styrjald-
ir, þar sem þetta vopn var notað
með „góðum árangri“ og aftur
voru færðar stórar mannfórnir.
Við ættum að vita þetta: í síðustu
styrjöld féllu 20 miiljónir sov-
éskra þegna.
En í dag er því miður um að
ræða nýjan möguleika: Útrým-
ingu alls lífs á jörðinni ef til kjarn-
orkustyrjaldar kemur. Getur
mannkynið Ieyft slíkt sjálfsmorð?
Svarið er einfalt: Auðvitað ekki.
En samt eru margir sem telja, að
svo eðlilegt ástand sem heimur án
vopna, sé bara draumur.
Fyrir einu ári var sannað í
Reykjavík að þetta væri ekki
hugarórar, ekki fjarstæða og ekki
einu sinni erfitt framkvæmdar.
Hefði ekki verið um þetta fræga
„en“ að ræða, að vísu hættulegt
„en“, hefðu leiðtogarnir tveir
getað náð stórkostlegum árangri.
Það var leitt, já afar leitt, að það
skyldi ekki takast þá. En þó hefur
Reykjavíkur-fundurinn orðið
sögulegur vendipunktur á leið til
langþráðs, raunverulegs friðar,
„undanfari, raunverulegrar
kjarnorkuafvopnunar“ eins og
oft hefur komið fram í máli Mik-
hails Gorbatsjovs, sem má með
sanni kalla boðbera „Reykjavík-
ur-andans“ og baráttumann fyrir
framkvæmd hans.
Við bíðum nú öll eftir næsta
leiðtogafundi, sem haldinn verð-
ur í Washington, þar sem leiðtog-
arnir tveir undirrita vonandi sam-
komulag um útrýmingu meðal-
drægra og skammdrægra eld-
flauga. Þessi sigur er bein af-
leiðing Reykj avíkur-fundarins,
sem sumir vildu endilega láta líta
út sem „fjarstæðu“ og „tálvon“
áður en fúndurinn var haídinn og
eftir hann.
En málin gengu málefnalega
og örugglega fyrir sig. Bæði hvað
varðar allan heiminn og einstök
svæði hans - það má rifja upp
tillögur þær sem sovéski leiðtog-
inn kom fram með nýlega í
Múrmansk, „Friðaráætlun fyrir
norðurslóðir“, sem er í sex liðum.
Og hvað er það fleira sem Gor-
batsjov tekur með sér til Was-
hington? Ég gerist svo djarfur að
halda því fram að það verði sömu
grundvallarreglur Sovétríkjanna
í aðalatriðum og komu fram í
Reykjavík.:
- I kjarnorkustyrjöld verður
ekki um sigurvegara að ræða;
- Slík styrjöld verður ekki
réttlætt með pólitískum eða hug-
myndafræðilegum markmiðum;
- Ekki verður dregið úr hætt-
unni á alheimskjarnorkuhörm-
ungum með einhliða ráðstöfun-
um á sviði hernaðar og tækni, þar
á meðal á varnarsviðinu;
- Kjarnorkustyrjöld getur
ekki takmarkast við visst svæði;
- Það er aðeins hægt að koma í
veg fyrir hana með því að koma á
fót allsherjaröryggiskerfi, ekki
bara á hinu hernaðarlega sviði,
heldur einnig á sviði efnahags-
mála, stjórnmála .og mannrétt-
indamála og að því tilskildu að
tekið sé tillit til hagsmuna allra
rikja, stórra og smárra.
Peking
Kötturinn í sekknum
Falsað og hœttulegt drasl á nýstárlegri sýningu í Peking.
Framleiðendur brýndir til vöruvöndunar
Mýstárleg vörusýning stendur
nú yfir í Peking. Til sýnis er
hið fjölbreyttasta samsafn af
hvers kyns drasli; illa gerðum og
jafnvel eitruðum vörum, og ólög-
legum eftirlíkingum af frægum
vörumerkjum.
Til að munda gefur á að lfta
eftirlíkingu af hinu fræga „eilífð-
ar“ reiðhjóli, en ekkert er lík-
legra en að fölsunin leysist upp í
frumparta sína eftir vegferð upp á
fáeina kílómetra. Þá eru þarna
eftirlíkingar af hrísgrjónabrenni-
víni sem geta reynst banvænar,
vita gagnslaus jurtalyf og lélegar
stælingar á tískufatnaði.
Með þessu vonast kínversk
yfirvöld til að stemma stigu við
hinu umfangsmikla svindilbraski
með því að láta framleiðendurna
verða sér til skammar á sýning-
unni.
Yfir 500 vörutegundir eru til
sýnis, en vettvangur þessarar
óvenjulegu sýningar er Hernað-
arsafn Kínverska alþýðulýðveld-
isins, en á þeim stað eru menn
vanari því að sjá trausta og end-
Á leið á markað. Margskonar neyslu-
varningur er á góðri leið með að
verða almenningseign í Kína, en lé-
legar eftirlíkingar valda stjórnvöldum
jafnt sem neytendum höfuðverk.
ingargóða skriðdreka og flugvél-
ar en svonalagaðan samtíning.
Tóbaksruddi í sígarettulíki er
þarna í fjallháum stöflum, og er
ekki að sjá að starfsfólkið geri sér
mikla rellu útaf hugsanlegu
hnupli. Dagblöð í landinu segja
að vöxtur og viðgangur eftirlík-
ingaiðnaðarins eigi rót að rekja
til viðvarandi skorts á gæðavarn-
ingi.
Svikahrapparnir nota falsaða
stimpla, vörumerki eða erlendar
áletranir til að villa um fyrir við-
skiptavinum sínum og fá þá til að
trúa því að þeir séu að kaupa
góða og gilda vöru.
Léttiðnaðarráðuneytið kínver-
ska fyrirhugar að halda svipaða
sýningu í desember, og draga þá
fram í dagsljósið fleiri tegundir
neysluvarnings sem er hvort
tveggja í senn illa gerður og
hættulegur heilsu manna, en þess
má geta að sýningin sem nú
stendur yfir hefur mælst afar vel
fyrir hjá langþreyttum almenn-
ingi.
HS
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. október 1987