Þjóðviljinn - 16.10.1987, Qupperneq 7
VanoaLevu
VALETHI
%>Qvatei
Víti Levu
.SINGAÍTOX'A,
horizontW&Tí&
■hÖRFRÉTTIR mmm
Persónudýrkunin
á hinum ástsæla leiötoga og
föðurlega marskálki þeirra
Noröur-Kóreumanna, Kim II
Sung, stendur með blóma víðar
en á heimavígstöðvunum. Sér-
stakur háskóli er starfræktur í
Tókíó þar sem nemendur leggja
sig eftir „Hugsunum Kim II
Sungs.“ Hverskólastofaerprýdd
mynd af leiðtoganum, og er
sonur hans og arftaki, Kim John II
oftar en ekki í félagsskap föður
síns á skiliríum þessum. Nem-
endurnir eru af kóreönsku bergi
brotnir, en Kóreufólk í Jaþan hef-
ur jafnan átt erfitt uppdráttar, og
vantar talsvert á að það njóti
jafnréttis á við aðra landsmenn.
Loch Ness
skrímslið
slapp með skrekkinn. Hættuleg-
asta atlagan að tilvist þess var
gerð fyrir skemmstu, og var nýj-
ustu hljóðsjártækni beitt við
leitina. Leiðangursmenn hafa nú
athugað sín gögn og treystast
ekki til að fullyrða að þeim hafi
tekist að afsanna tilvist Nessíar.
Ferðamannaiðnaður stendur
með blóma í nágrenni Loch
Ness, og eru menn á þeim slóð-
um ekki ýkja hrifnir af síendur-
teknu brambolti ákafra leitar-
manna. Enda skiljanlegt; hætt
við að salan í ótölulegum fjölda
minjagripa um Nessí bíði óbæt-
anlegan skaða ef hægt yrði að
lýsa dýrið útdautt.
Titanic
farþegaskipið risastóra heldur
áfram að heilla, þremur aldar-
fjórðungum eftir að það sökk í
sæ. Kafari nokkur, Ballard að
nafni, varð þó fyrir heldur
óskemmtilegri reynslu á dögun-
um við skipsflakið er hann sá
glitta í hvítt, draugslegt andlit og
hélt að vonum að hann hefði rek-
ist á lík. Sem betur fer fyrir Ballard
reyndist fyrirburðurinn vera haus
af stórri keramíkdúkku.
Vísindamenn
í Sovétríkjunum hafa löngum
fengist við að rannsaka áhrif
kulda og óblíðs loftslags á
mannskepnuna sem og önnur
kvikindi, og til þess arna hefur
Síbería verið kjörinn vettvangur.
Þeir hafa nú fengið liðsauka sem
eru bandarískir vísindamenn.
Bæði í Bandaríkjunum og Sovétr-
íkjunum er mikill áhugi á að nýta
betur þau köldu landflæmi sem
eru til staðar; Síberíu og Alaska,
og er þetta kveikjan að
rannsóknunum.
Mitterrand
Frakklandsforseti nýtur vinsælda
meðal landsmanna langt umfram
helsta andskota sinn í
stjórnmálum, Jacques Chirac
forsætisráðherra, ef marka má
nýlegar skoðanakannanir. For-
setinn nýtur hylli meðal 60%
kjósenda, en Chirac verður að
láta sér nægja 46%. Líklegt þykir
að þessir tveir muni keppa um
forsetaembættið næst þegar
kosið verður í Frakklandi, en það
er í vor.
íranskt flugskeyti
hæfði í gær risastórt olíuskip í
bandarískri eigu sem það lá fyrir
akkerum úti fyrir helstu olíuhöfn-
inni í Kúvæt. Miklir eldar loguðu
stafna á milli, og máttu slökkvi-
liðsmenn berjast við eldinn í fimm
klukkustundur áður en þeir gátu
ráðið niðurlögum hans. Skammt
er nú stórra högga á milli í Persa-
flóastríðinu. Skip þetta varð fyrir
árás innan tólf stunda frá því síð-
ast var ráðist gegn risaolíuskipi á
þessum slóðum.
Föstudagur 16. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Fijieyjar eru alls 844, þar af eru um hundrað byggðar. Höfuðborgin er Suva á eynni Viti Levu. Héðan er flutt út Rabuka: minnihlutinn á að ráða.
sykur, hnetuolfa, gull, bananar.
Valdaránin á Fijieyjum
Hver kúgar hvem?
Melanesar vilja halda völdum þótt Indverjar séu
komnir ímeirihluta. - Hver kúgar hvern?
m.a. það höfðingjaveldi sem Siti-
veni Rabuka vill helst að skipi
meirhluta á þingi. En um leið
urðu Melanesar einnig fórnar-
lömb nýlendustefnunnar bresku
með því að innflutningur Ind-
verja (sem þeir réðu engu um)
breytti þeim í minnihluta í eigin
landi.
Melanesar óttast því margir að
sjálf framtíð þjóðarinnar sé í
hættu. í skálkaskjóli þeirrar
hættu hefur Rabuka afnumið
lýðræðislegar leikreglur og ætlar
að tryggja Melanesum meirihluta
á þingi, hvað sem líður stærð
þjóða og þjóðabrota á eyjunum.
Þau áform kallar aðalritari
breska samveldisins, Sridath
Rampal, „kynþáttakúgun".
Spurt er um
lýðræði
Það er kannski ekki nema von.
Rabuka virðist ætla að reyna að
búa svo um hnúta að Indverjar á
Fijieyjum verði um aldur og ævi
annars flokks þegnar í ríkinu - og
því verður vitanlega ekki haldið
til streitu nema með aðferðum
lögregluríkisins. Kannski verður
reynt að flæma þetta fólk á brott.
Og herforinginn á þá ekki aðeins
í höggi við Indverjana sjálfa.
Timoci Badavra hafði tekist að
mynda pólitíska hreyfingu sem
naut þó nokkurs stuðnings „hóf-
samari" Melanesa, reyndi að
brúa bilið milli þjóða og virti
stjórnarskrá sem geymir ýmsar
tryggingar fyrir því að hefðir Mel-
anesa fái áfram iifað. Dómstól-
arnir og verkalýðsfélögin eru á
móti valdaránsmönnum - og svo
obbinn af Breska samveldinu eða
því sem eftir er af því.
áb tók saman.
Pað komu fréttir um það í vik-
unni að fyrrverandi ráðherr-
ar í stjórn Fijieyja, sem Rabuka
herforingi hefur steypt frá völd-
um, hafi beðið leiðtoga ríkja í
Breska samveldinu að senda her
til eyjanna, væntanlega til að
koma í veg fyrir að herinn þar í
landi komi á varanlegu forræði
heimamanna, Melanesa, sem
gengi þá þvert á þá lýðræðisreglu
að hver maður hafi eitt atkvæði.
Sitiveni Rabuka, sjálfskipaður
örlagavaldur eyjaskegga, hefur
nú í tvígang hrifsað völdin í sínar
hendur með stuttu millibili.
Ástæðan er sú, að í maí féll í
kosningum íhaldsstjórn Melan-
esa undir forsæti Ratu Mara sem
verið hafði við völd frá því að
eyjarnar fengu sjálfstæði árið
1970. Nýja stjórnin byggði á sam-
steypu vinstri- og miðjuafla undir
forystu Timoci Badavra. Hann er
sjálfur Melanesi, en flestallir
stuðningsmenn hans eru Indverj-
ar, sem þar með höfðu í fyrsta
skipti fengið veruleg pólitísk
áhrif á Fijieyjum. Við þetta vildu
sterk öfl meðal Melanesa ekki
una - hvort sem væri vegna þess
að þeir óttuðust um fríðindi höfð-
ingja þeirra sem m.a. hafa haft
stjórnarskrárbundinn rétt til að
skipa átta menn í öldungadeild
þingsins - eða sjálft þjóðernið.
Tvær þjóðir
Fijieyjar, tæplega 20 þúsund
ferkilómetrar, eru hinummegin á
hnettinum, langt úti á Kyrrahafi,
austur af Ástralíu, norður af
Nýja-Sjálandi. íbúar þessara fög-
ru og frjósömu eyja eru um 690
þúsundir. Heimamenn, Melanes-
ar eru 312 þúsundir samkvæmt
nýlegu manntali, og eru þá orðnir
færri en afkomendur plantekru-
Timoci Bavadra: Melanesi sem naut einkum stuðnings Indverja.
verkafólks frá Indiandi sem flutt
var til eyjanna á valdatíma Breta
- þeir eru nú um 345 þúsundir.
Ágreiningur um lýðræði,
stjórnarskrá og framtíð eyjanna
stendur milli þessara tveggja
þjóða einkum, þótt ofsagt sé að
flokkaskipting og þjóðerni fari
saman. Og þeir sem láta sig
mannréttindi jafnt sem tilveru
smárra þjóða nokkur varða, geta
spurt sig sígildrar spurningar:
með hverjum heldur þú?
Erfiður hnútur
Það kann að vefjast fyrir
mönnum að svara því. Stundum
setja menn sér þá reglu í svona
dæmum að halda með þeim sem
eru með Amríkönum eða á móti
þeim, en ekki er vitað til að sú
hlið málsins snúi upp núna.
Skárri regla er að spyrja: hver
kúgar hvern? - en við henni fást
ekki alltof greið svör heldur.
Innbornir Melanesar eru sem-
sagt komnir í minnihluta í sínu
landi, afkomendur aðfluttra eru
fleiri. 80 prósent af málaflutn-
ingsmönnum á Fiji eru Indverjar
en herinn er svotil allur Melanes-
ar. Kaupskapur er mest í höndum
Indverja en Melanesar eiga mest-
allt landið, þar sem sykur er rækt-
aður, kókoshnetur, bananar og
önnur útflutningsvara.
Allir fórnarlömb
Forfeður Indverja á Fijieyjum
voru fórnarlömb breskra nýlend-
uherra, sem fluttu þá sem hálf-
gildings þræla til þessarar Kyrra-
hafsparadísar. Staða Melanesa
sem landeigenda var hinsvegar
vernduð með því að Bretar
bönnuðu svo til alla sölu lands.
Bretar gerðu sitt til að vernda
ýmsa siði og hefðir Melanesa,
HEIMURINN
•4
: . . ■ . t. - J* >,í
U eisen
r
gold
giSILBER
Wmangan