Þjóðviljinn - 16.10.1987, Qupperneq 15
Körfubolti
Urvalsdeildin hefst í kvöld
Það er engu líkara en tvær aukahendur hafi vaxið á Birgi Mikalesson er hann
skorar fyrir KR gegn Val í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. KR-ingar mæta
Grindvíkingum í fyrstu umferð, en Valsmenn taka á móti UBK. Mynd:E.ÓI.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik
hefst í kvöld með leik ÍR og
UMFN í Njarðvík. Fyrirkomu-
laginu hefur verið breytt töluvert
síðan í fyrra. Níu lið taka nú þátt í
deildinni og fjögur þeirra fara í
úrslitakeppnina.
Fjölgun liða í Úrvaldsdeildinni
fækkaði leikjum liðanna úr 20 í
16. Á móti kemur að hver leikur
hefur meira vægi og þannig ætti
spennan að vera meiri í deildinni.
Með fleiri liðum fá áhorfendur
meiri fjölbreytni og þurfa ekki að
horfa á sömu liðin leika 4-8 sinn-
um á ári. Loks kemur þetta til
með að auka breiddina í íslensk-
um körfuknattleik, en flestir vita
að hún hefur ekki verið sérlega
mikil.
Með fjölgun liðanna hefur
breiddin aukist í deildinni, en þó
má reikna með að slagurinn
standi milli sömu liða og í fyrra.
Njarðvíkingar verða að teljast
sigurstranglegastir. Þeir eru með
sama lið og í fyrra, auk Sturlu
Örlygssonar sem hefur að nýju
gengið til liðs við íslandsmeistar-
ana. Þeir unnu alla titlana í fyrra
nokkuð örugglega og hljóta að
teljast líklegastir til sigurs.
Valsmenn koma til með að
veita þeim harða keppni eins og í
fyrra. Þeir hafa fengið Þorvald
Geirsson úr Fram og hann kemur
til með að styrkja liðið. Þeir hafa
Staðan
1. deild karla:
FH 129-83 8
Valur 85-63 7
Víkingur 107-93 6
Stjarnan 96-105 4
UBK 82-78 4
KR 97-97 4
IR 82-97 2
KA 74-88 2
Fram 84-97 1
Þór 77-112 0
1. deild kvenna:
Valur................3 2 0 1 51-42 4
Fram.................2 2 0 0 43-36 4
Haukar...............2 1 0 1 46-35 2
FH...................2 1 0 1 31-28 2
Víkingur.............3 1 0 2 59-58 2
Stjarnan.............2 1 0 1 44-47 2
KR...................2 1 0 1 30-38 2
Þróttur..............2 0 0 2 27-45 0
Kvennahandbolti
Öruggur
Valssigur
Valsstúlkur unnu öruggan sigur
yfir Víkinguin í 1. deild kvenna í
handknattlcik, 24-16. Leikurinn var
jafn framan af og í hálfleik var staðan
10-9, Valsstúlkum í vil.
Það var ekki fyrr en í upphafi síðari
hálfleiks að Valsstúlkurnar náðu
undirtökunum. Þær léku vel í síðari
hálfleik og sigurinn öruggur.
Guðrún Kristjánsdóttir átti góðan
leik í liði Vals og Erna Lúðvíksdóttir
lék einnig vel. Hjá Víkingum var
Valdís Birgisdóttir mest áberandi.
Mörk Vals: Erna Lúðvíksdóttir 6, Guðrún
Kristjánsdóttir 6, Magnea Friðriksdóttir 4,
Katrín Friðriksen 4, Ásta Sveinsdóttir 2,
Björg Guðmundsdóttir 1 og Ragnhildur
Skúladóttir 1.
Mörk Víkings: Eiríka Ásgrímsdóttir 5,
Inga Lára Þórisdóttir 4, Valdís Birgisdóttir
3, Jóna Bjarnadóttir 2, Svava Baldvinsdótt-
ir 1 og Heiða Erlingsdóttir.
-BG
Körfubolti
Fimm nýir þjálfarar
Sex lið í Úrvalsdeildinni í
körfuknattleik hafa skipt um
þjálfara. Það eru því aðeins þrjú
lið sem mæta til leiks með sömu
þjáifara og í fyrra.
Nágrannarnir í Keflavík og
Njarðvík eru með sömu þjálfara
og í fyrra. Valur Ingimundarson
þjálfar Njarðvíkinga, auk þess að
leika með liðinu og Gunnar Þor-
varðarson þjálfar lið ÍBK. Þá
mun Einar Bollason þjálfa ÍR-
inga áfram.
Tveir Bandaríkjamenn munu
þjálfa lið í Úrvaldsdeildinni. Ste-
ve Bergman leysir landa sinn,
John West, af hjá Valsmönnum
og Brad Casy kemur í stað Ric-
hard Ross sem þjálfari Grindvík-
inga.
Pálmar Sigurðsson mun þjálfa
og leika með liði Hauka. Hann
kemur í stað Jóns Sigurðssonar.
Birgir Guðbjörnsson kemur í
stað Gunnars Gunnarssonar og
þjálfar lið KR. Birgir þjálfaði
Framara í fyrra.
Þröstur Guðjónsson þjálfar lið
Þórs, en Ivar Webster sem þjálf-
aði liðið í fyrra hefur gengið til
liðs við Hauka að nýju. Sigurður
Hjörleifsson þjálfar lið UBK í
stað Stefáns Árnarsonar.
-Ibe
England
Bremner vill Quinn
Billy Bremner, framkvæmda-
stjóri Leeds er ekki ánægður með
gengi liðsins, frekar en aðrir
innan félagsins. Hann segir að
hressa þurfi uppá framlínu liðsins
og vill kaupa helsta marka-
skorara Portsmouth, Mick Qu-
inn.
Bremner reyndi að fá Adrian
Heath frá Everton, en hafði ekki
8. vika
a-SQl-QircQWCO
Charlton-Derby...............................2 x 2 2 1 1 2 x x
Chelsea-Coventry.............................1 11111111
Liverpool-Q.P.R...............................1 1 1 1 1 1 1 1 x
Luton-Wimbledon...............................1 2 1 x 1 1 1 1 x
Manchester United-Norwich.....................x 11111111
Newcastle-Everton.............................2 2 2 2 2 1 2 x2
Nott.Forest-Sheff.Wed.........................1 1 1 1 1 1 1 1 1
Oxford-West Ham...............................2 111x1112
Southampton-Watford...........................1 x 1 2 1 1 1 1 2
Barnsley-Hull.................................1 1 1 x 1 1 1 1 x
Plymouth-Leeds................................1 2 2 1x21x2
Sheff.United-Leicester........................2 x 2 x 1 1x1 1
Það var enginn með 12 rétta í síðustu viku og vinningspotturinn kr.
473.098 leggst því við vinninginn um helgina. Fjórir voru með 11 rétta oq
fékk hver 50.689.
þó misst Sturlu, en hann lék mjög
vel í fyrra.
Keflvíkingar komu einnig til
með að blanda sér í toppbarátt-
una. Þeir hafa fengið tvo sterka
leikmenn frá Bandaríkjunum,
Axel Nikulásson og Magnús
Guðfinnsson, en einn af lykil-
mönnum þeirra, Gylfi Þorkels-
son er meiddur.
Lið KR hefur styrkst töluvert
frá því í fyrra. Birgir Mikaelsson
er genginn til liðs við KR-inga,
eftir eins árs dvöl í Bandaríkjun-
um. Þá gekk Símon Ólafsson til
liðs við KR-inga, úr Fram.
Haukar eru einnig líklegir til
að blanda sér f toppbaráttuna.
Þeir hafa fengið ívar Webster aft-
ur frá Þórsurum, en að öðru leyti
er lið þeirra óbreytt. Lykilmaður
þeirra, Pálmar Sigurðsson, á erf-
itt verkefni fyrir höndum, því auk
þess að leika með liðinu þjálfar
hann einnig.
ÍR-ingar sigruðu í 1. deildinni í
fyrra og gætu blandað sér í
slaginn um sæti í úrslitakeppn-
inni. Lið þeirra hefur ekki tekið
neinum breytingum frá því í
fyrra.
Grindvíkingar eru með mjög
ungt lið og eiga erfiðan vetur fyrir
höndum. Lykilmaður þeirra er
landsliðsmaðurinn sterki Guð-
mundur Bragason, en liðið hefur
ekki tekið miklum breytingum
frá því í fyrra.
Þórsarar hafa misst nokkra
leikmenn frá því í fyrra og munar
þar mestu um ívar Webster. Þeir
koma til með að berjast fyrir sæti
sínu í deildinni.
Breiðablik er það lið sem síðast
kom inn. Þeir höfnuðu í 4. sæti í
1. deild og stökkið því mikið. Þeir
verða án efa í botnbaráttunni, en
munu án efa ekki gefa neitt eftir.
Fyrsti leikurinn er UMFN-ÍR í
kvöld kl. 20 í íþróttahúsinu í
Njarðvík. Á morgun leika
Haukar og Þór í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði kl. 14. Síðustu leikir
fyrstu umferðar verða svo á
sunnudagskvöld kl. 20. Þá leika
Valur og UBK í Valshúsinu og
UMFG tekur á móti KR-ingum í
Grindavík. -Ibe
ráð á honum frekar en Duncan
Shearer frá Huddersfield. Báðir
kostuðu þeir um hálfa milljón
punda og það var of mikið fyrir
Bremner.
Mick Quinn var markahæsti
leikmaður 2. deildarinnar í fyrra,
en hefur þurft að sitja á vara-
mannabekknum hjá Portsmouth
í mörgum leikjum liðsins. -Ibe
Föstudagur 16. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 1{
MANNVIST
í ÞÉTTBÝLI
VERÐLAUNA-
SAMKEPPNI
í tilefni 75 ára afmælis Læknablaðsins hafa
læknafélögin ákveðið að efna til
hugmyndasamkeppni er fjalli um
viðfangsefnið
„MANNVIST í ÞÉTTBÝLI11.
Samkeppninni er ætlað að hvetja fólk til
umhugsunar um húsakost okkar og umhverfi
og leiða fram nýjar hugmyndir að umbótum í
húsnæðis-, skipulags- og umhverfismálum, er
geti stuðlað að betra mannlífi og bættu
andlegu og líkamlegu atgervi komandi
kynslóða.
Eins og nafn keppninnar „mannvist í þéttbýli"
ber með sér, er viðfangsefnið víðfeðmt og
efnisval innan ramma þess nokkuð frjálst.
Keppendum er frjálst að taka fyrir
skipulagsmál, húsnæðismál, umhverfismál
eða einhverja þætti þessara málaflokka, svo
sem uppeldismál, skólamál, íþrótta- og
útivistarmál, húsnæðismál og félagslega
þjónustu, heilbrigðisþjónustu, tómstunda- og
menningarmál svo fátt eitt sé nefnt.
Frjálst er að taka á þessu viðfangsefni á
fjölbreytilegan hátt og koma til greina
ritgerðir, uppdrættir, myndbönd, myndir, ljóð
og hvaðeina sem mönnum er tiltækt sem
tjáningarform.
Þátttaka er öllum heimil. Verðlaunafé er
samtals kr. 500.000.
Skilafrestur er til 29. febrúar 1988.
Samkeppnisskilmála er hægt að fá á
skrifstofu læknafélaganna í Domus Medica,
Egilsgötu 3, Reykjavík, sími 91-18331.
Dómnefndin.