Þjóðviljinn - 28.10.1987, Síða 3
_____________________FRETFIR__________________
Stjórnarandstaðan
Meginhugsunin studd
Alþýðubandalag og Kvennalisti styðja meginhugsunina í
húsnœðisfrumvarpinu meðfyrirvara um einstaka efnisþætti.
Steingrímur J. Sigfússon: Nauðsynlegt að fá botn íþetta mál
Borgaraflokkur
Stoppað í
stagbætt
kerfi
,&g i*t svo á að með þessu
frumvarpi sé Jóhanna Sigurðar-
dóttir að stoppa í enn eitt gatið á
stagbættum sokk,“ sagði Júlíus
Sólnes þegar hann var spurður
um afstöðu Borgaraflokksins til
frumvarps félagsmálaráðherra í
húsnæðismálum.
Júlíus sagði að Borgaraflokk-
urinn teldi húsnæðiskerfið slíka
endaleysu að það þarfnist algerr-
ar uppstokkunar.
Við höfum mótað eigin stefnu í
húsnæðismálum og erum nú að
vinna að frumvarpi um þau, sem
lagt verður fram á næstu vikum.“
-Sáf
Við erum jákvæðir gagnvart
meginhugsuninni í húsnæðis-
frumvarpinu en gerum þó fyrir-
vara um einstaka efnisþætti þess.
Það er varla hægt að ætlast til
þess að stjórnarandstaðan komi
með endanlega afstöðu þegar
stjórnarsinnar koma sér ekki
saman um neitt, sagði Steingrím-
ur J. Sigfússon.
Það vakti athygli í umræðunni
um húsnæðisfrumvarpið að full-
trúar stjórnarandstöðunnar,
Kristín Halldórsdóttir og Stein-
grímur J. Sigfússon, voru mun
jákvæðari gagnvart frumvarpinu
en Alexander Stefánsson, sem
fann því allt til foráttu.
í samtali við Þjóðviljann
gagnrýndi Steingrímur það að
stjórnarandstaðan hefði ekki
fengið að fylgjast með undirbún-
ingi frumvarpsins, en undanfarin
ár hefur ætíð verið haft mjög víð-
tækt samband við alla flokka á
þingiíþessum málaflokki. „Núer
þessu frumvarpi slengt fram þrátt
fyrir bullandi ágreining stjórnar-
flokkanna."
Steingrímur sagði nauðsynlegt
að einhver botn fengist í þetta
mál þar sem þúsundir manna
bíða eftir svarbréfum frá Hús-
næðisstofnun, hinsvegar sagði
hann að Alþýðubandalagið hefði
fyrirvara gegn einstökum þáttum
frumvarpsins, einkum varðandi
vextina. Þá taldi hann umdeilan-
legt að takmarka aðgang að kerf-
inu við íbúðaeign en hinsvegar
taki Alþýðubandalagið undir þá
meginhugsun að veita þeim for-
gang sem eru í mestri þörf.
„Þá gagnrýnum við það harð-
lega að ríkissjóður hefur ekki
staðið við sinn hluta samkomu-
lagsins að auka framlög sín í sjóð-
inn. Byggingasjóðurinn þolir það
ekki að framlög ríkisins dragist
saman en þau gera það hlutfalls-
lega núna þar sem skuldabréfa-
kaup lífeyrissjóðanna hafa aukist
að miklum mun og byggingasjóð-
urinn þolir ekki lengi þann mikla
vaxtamun sem er á milli útlána og
innlána."
-Sáf
Húsnœðisstofnun
Sigurður E. Guðmundsson: Okkurfalin
mikilvæg undirbúningsvinna að húsnœðis-
frumvarpinu
Fullt samráð
við okkur
Félagsmálaráðherra hafði fullt
samráð við Húsnæðisstofnun
og fól stofnuninni mikilvæga
undirbúningsvinnu að húsnæðis-
frumvarpinu, sagði Sigurður E.
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Húsnæðisstofnunar.
Sigurður sagði að hugmyndin
að bráðabirgðalögunum hefði
upphaflega komið frá Húsnæðis-
stofnun, þar sem stofnunin taldi
sig ekki geta veitt lánsloforð fyrr
en vitað var hvaða breytingar
yrðu gerðar á húsnæðislánalög-
unum.
„Undirbúningurinn að bráða-
birgðalögunum var nær allur á
vegum Húsnæðisstofnunar. Þeg-
ar þau voru svo lögð til hliðar
setti félagsmálaráðherra fjögurra
manna nefnd á laggirnar til að
vinna að frumvarpinu og í þeirri
nefnd áttu sæti Gunnar S.
Björnsson, úr húsnæðismála-
stjórn og Hilmar Þórisson, skrif-
stofustjóri í Húsnæðisstofnun.
Þá sagði Sigurður að ráðherra
hefði farið fram á ábendingar og
athugasemdir frá húsnæðismála-
stjórn áður en frumvarpið var
Iagt fram og að frumvarpið hefði
verið rætt þó nokkrum sinnum,
bæði á stjómar- og nefndarfund-
um.
„Við höfum því fengið að fylgj-
ast með málinu," sagði Sigurður
að lokum.
-Sáf
Merkisberar íslenskrar framleiðslu á fundi Utflutningsráðs í gær. Kynntar voru niðurstöður könnunar meðal v.-þýskra
neytenda um viðhorf þeirra til íslands og íslenskra sjávarafurða. Mynd E.ÓI.
Útflutningsráð
Lífeyrissjóðirnir
Mótaim ekki
stefnuna
Þýskir hliðhollir íslensku
Markaðskönnun útflutningsráðs meðalþýskra. Tœpurhelm-
ingur álítur íslenskan fisk og fiskafurðir betri en þýskan
Þýskir neytendur eru mjög vil- unar sem ráðið lét gera meðal v,-
hallir íslenskum vörum eink- þýskra neytenda í síðasta mán-
um matvöru jafnvel þótt meiri- uði. Könnunin er liður í sérstöku
markaðsátaki Útflutningsráðs í
V. Þýskalandi.
Pað hefur ekkert samráð verið
haft við okkur við mótun
húsnæðisfrumvarpsins, sagði
Hrafn Magnússon, formaður
Sambands almennra lífeyris-
sjóða.
Hrafn sagðist ekki vilja dæma
um það hvort það væri óeðlilegt
að félagsmálaráðherra ræddi
ekki við lífeyrissjóðina við mótun
húsnæðisfrumvarps. „Ég veit
ekki hvort lífeyrissjóðirnir geta
blandað sér í þessa deilu. Við lán-
um fé í ýmsa aðra atvinnustarf-
semi í landinu án þess að við
blöndum okkur í það hvernig
með það fé er farið.“
Aðild lífeyrissjóðanna í hús-
næðislánakerfinu er til komin
vegna tilmæla aðila vinnumark-
aðarins og ríkissjóðs.
„Það var Alþýðusambandið og
aðrir aðilar vinnumarkaðarins
sem komu þessu kerfi af stað og
áttu meginþátt í að móta það.
Síðan komu tilmæli til lífeyris-
sjóðanna um fjármögnun kerfis-
ins,“ sagði Hrafn. -Sáf
hluti þeirra hafi enga reynslu af
þeim. Þetta álit er grundvallað á
því að varan kemur úr ómenguðu
umhverfi, sem ísland er í hugum
neytenda, sagði Þráinn Þorvalds-
son, framkvæmdastjóri Útflutn-
ingsráðs á fundi ráðsins í gær og
vitnaði þar til niðurstöðu könn-
Menntaðir Þjóðverjar hafa al-
mennt meira álit á landi og þjóð,
en þeir sem hafa skemmri skóla-
göngu að baki. 37% spurðra
töldu sig hafa jákvæð viðhorf til
lands og þjóðar, einkum vegna
sögusagna um ósnortna náttúru.
Þrátt fyrir jákvæð viðhorf.
reyndust nokkru færri álíta ísland
eftirsóknarvert ferðamannaland.
Rúmur helmingur spurðra eru
tortryggnir gagnvart ferða-
mannaparadísinni íslandi og
settu aðallega fyrir sig óblítt
veður.
-rk
Kópavogshælið
Verður hælinu lokað?
Margrét Margeirsdóttir: Dvöl á sambýli samrýmist betur ákvœðum laga um
málefni fatlaðra
arkmið laganna frá 1983 um
málefni fatlaðra er að
tryggja öllum fötluðum jafnrétti
og sambærileg lífskjör við aðra
þjóðfélagsþegna, að skapa þeim
skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi
og hasla sér völl í samfélaginu þar
sem þeim vegnar best, sagði Mar-
grét Margeirsdóttir deildarstjóri í
félagsmálaráðuneytinu þegar
Þjóðviljinn ræddi við hana í gær
um samþykkt sem gerð var á að-
alfundi Þroskahjálpar þess efnis
að stórum hluta íbúa á Kópavogs-
hæli verði boðin vist á sambýli.
Með sambýli er átt við sam-
eiginlegt heimili nokkurra fatl-
aðra einstaklinga. Slíkt heimili er
í venjulegu íbúðahverfi og íbú-
arnir fara á daginn til sinna starfa,
oft á vernduðum vinnustöðum,
eða í þjálfun á sérstökum stofn-
unum. Um kvöld og helgar dvelja
þeir á sambýlinu, þ.e.a.s. heima
hjá sér eins og venjan er hjá ó-
fötluðu fólki.
„Sambýli fyrir fatlaða heyra
undir sérstaka deild fyrir málefni
fatlaðra í félagsmálaráðuneytinu
og hið sama á við um vistheimilin
Sólborg, Skálatún og Sólheima.
En Kópavogshælið heyrir undir
stjómaraefnd ríkisspítalanna og
heilbrigðisráðuneytið.
„Ég var ekki á þingi Þroska-
hjálpar," sagði Margrét, „og hef
því ekki fylgst með umræðum um
þessa samþykkt. En ljóst er að
vist á sambýli er frekar í anda
laganna um málefni fatlaðra en
dvöl á stórri stofnun þar sem vist-
menn dvelja nótt sem nýtan dag,
alla daga ársins. Nokkrir einstak-
lingar hafa reyndar flutt af Kópa-
vogshælinu á undanförnum árum
og farið inn á sambýli. Á sumum
sambýlum dvelja einstaklingar
sem eru verulega fatlaðir. En
mikil fötlun krefst að sjálfsögðu
fleiri stöðugilda hvar sem mjög
fatlaðir einstaklingar búa.“ Qp
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Fram á Seyðisfirði
Sköttum
mótmælt
Verkamannafélagið Fram á
Seyðisfirði mótmælir harð-
lega þeim auknu sköttum sem
lagðir hafa verið á eða eru fyrir-
hugaðir á launafólk.
I ályktun félagsfundar Fram
þann 21. þessa mánaðar segir:
„Fundurinn lýsir furðu sinni á
vinnubrögðum fjármálaráðherra
sem vill versla við verkalýðs-
hreyfinguna um söluskatt á mat-
væli.
Ljóst er að núverandi ríkis-
stjórn hefur svikið loforð sem
gefin voru sem forsenda fyrir síð-
ustu kjarasamningum og því
hlýtur það að vera krafa launþega
að laun verði á einhvern hátt
verðtryggð í næstu samningum".
-rk