Þjóðviljinn - 28.10.1987, Side 11
ERLENDAR FRÉTTIR
IndlandlSri Lanka
Ökyrrð í
Tamíl Nadu
Indverskir tamílar mótmæla hernaði stjórnar sinnar á Sri
Lanka. Jaffnaborg á valdi Indverja
Lögreglan á Suður-Indlandi
handtók í gær ijölda manna er
þátt tóku í mótmælaaðgcrðum
tamfla gegn hernaði indverska
friðargæsluliðsins á hendur tam-
flskum skæruliðum á Sri Lanka.
Að sögn indverskra frétta-
manna voru að minnsta kosti 3
þúsund manns teknir höndum í
Tamíl Nadu fylki á Suður-
Indlandi en þar búa um 50 milj-
ónir tamíla. Fólki þessu er borið á
brýn að hafa reynt að vinna
skemmdir á opinberum skrifstof-
ubyggingum.
Fréttir af óeirðum þessum bár-
ust í sömu mund og indverskir
ráðamenn fullyrtu að vera mætti
að hluti skæruliðafylkingar tam-
fla íhugaði að hætta vopnaðri
andstöðu á Sri Lanka. Rajiv
Gandhi forsætisráðherra ítrekaði
í gær að uppreisnarmönnum yrðu
grið gefin ef þeir legðu niður
vopn og féllust á stjómmálalega
lausn á vanda landsins. „Geri
þeir það þá munu þeir fá að taka
þátt í viðræðum um framtíðar-
skipan mála á Sri Lanka,“ sagði
hann í gær.
Indverskur embættismaður
sagði að hleranir á fjarskipta-
sendingum Tamfltígranna hefðu
leitt í ljós að þeir ræddu nú ákaft
hvort þeir ættu að ganga að frið-
artilboði Indverja eða endur-
skipuleggja sveitir sínar og halda
bardögum áfram.
Indverskir hermenn náðu loks
Indverskir hermenn með fanginn Tígur við Jaffnaborg.
Jaffnaborg á sitt vald á sunnudag
eftir mjög harða bardaga við
Tígrana um tveggja vikna skeið.
En embættismenn í Nýju-Delhi
fullyrða að um tólfhundruð
skæruliðar hafi náð að laumast á
brott úr borginni áður en hún féll
í hendur umsátursmönnum og að
auki sé enn eftir urmull af leyni-
skyttum í Jaffna sem hugsi Ind-
verjum þegjandi þörfina.
-ks.
El Salvador
Amnesty
krefst
rannsóknar
Amnesty International krafðist
þess í gær að ríkisstjórn El Salva-
dor léti fara fram ítarlega rann-
sókn á morði mannréttindafröm-
uðarins Herberts Ernesto Anaya.
Tveir karlmenn skutu Anaya
til bana í fyrradag er hann var á
leið með fimm börn sín í skóla.
Hann var 33 ára gamall og hafði
um alllangt skeið verið formaður
hinnar óháðu
Mannréttindanefndar E1 Salva-
dor.
„Morðið á Anaya siglir í kjöl-
far ítrekaðra hótana í garð bar.-
áttumanna fyrir almennum
mannréttindum á umliðnum
mánuðum,“ segir í yfirlýsingu frá
aðalstöðvum Amnesty Internat-
ional í Lundúnum.
Anaya hafði verið ötull
gagnrýnandi ríkisstjórnar Joses
Napóleons Duartes. Hann full-
yrti á blaðamannafundi í síðustu
viku að stjórnin hefði aukið kúg-
unaraðgerðir gegn alþýðu manna
frá því forsetinn undirritaði
samning urn friðaráætlun fyrir
Mið-Ameríku í ágústmánuði
ásamt fjórum kollegum úr ná-
grannaríkjum. Það er kunnara en
frá þurfi að segja að í þeim samn-
ingi eru skýr ákvæði um að
mannréttindi skuli aukin í að-
ildarlöndunum.
í yfirlýsingunni frá Amnesty
International kemur fram að
samtökin sendu Duarte skeyti í
ágústmánuði og létu í ljós áhyggj-
ur vegna síendurtekinna hótana
öryggissveita E1 Salvador um að
myrða Anaya en forsetinn lét
ekki svo lítið að svara. -ks.
England
Ekkert má!
40 benediktínamunkar í Buc-
kfastklaustrinu á Suður-Eng-
landi hafa fengið áminningu frá
héraðsyfirvöldum um að hætta
þegar í stað öllum lögbrotum því
annars verði farið í hart.
Samkvæmt breskum verslun-
arrétti er talið óforsvaranlegt að
menn standi í braski á sjálfum
hvfldardeginum en það hafa
munkarnir gert biygðunarlaust!
Sunnudag eftir sunnudag hefur
sést til þeirra á baðströnd einni
þar sem þeir hafa boðið gestum
Heilaga ritningu til kaups. Slíka
ósvinnu ætla yfirvöld að uppræta.
-ks.
Zimbabwe
Mugabe verður forseti
Núverandi embœttiforseta og forsœtisráðherra verða samein-
uð í eitt valdamikið forsetaembætti
Rfldsstjórn Zimbabwe lét það
boð út ganga á þingi landsins í
gær að fyrirhugað væri að stofna
valdamikið embætti forseta en
lagði jafnframt ríka áherslu á að
stofnun þess væri ekki liður í að
koma á einræðisstjórn.
Dómsmálaráðherra Zimba-
bwe, Eddison Zvobgo, mælti
fyrir frumvarpi til stjórn-
skipunarlaga um þessi nýmæli í
gær. Hann sagði að hið nýja emb-
ætti myndi sameina núverandi
forsetaembætti og embætti for-
sætisráðherra. Núverandi forsæt-
isráðherra, Róbert Mugabe, mun
verða forseti.
Zvobgo sagði að þessi breyting
væri til batnaðar því ýmsir gallar
væru í stjórnarskránni frá árinu
1980 um skipan framkvæmda-
valdsins. Hann kvað stjórnskipan
Zimbabwe verða einskonar „afr-
íska útgáfu" af því besta úr
bandarísku stjórnarskránni, með
skýrum aðskilnaði löggjafarvalds
og framkvæmdavalds, og bresku
stjórnskipaninni sem gerði ráð
fyrir þingbundinni stjórn hverrar
oddviti væri forsætisráðherra.
„Bandaríska stjórnarskráin
hentar prýðilega í Bandaríkjun-
um. Annarsstaðar, svo sem í Afr-
íku, hefur hún ekki reynst jafn
vel,“ sagði Zvobgo og vísaði til
Nígeríu en stjórnarskráin þar er
sniðin eftir þeirri bandarísku.
Hann kvað hið sama gilda um
bresku stjórnskipanina. Hún
væri ágæt fyrir Breta sjálfa en
gæti ekki með góðu móti gilt í
Afríku þar eð þar væri engin
aldagömul hefð fyrir þingbund-
inni konungsstjórn.
Zvobgo sagði að þótt forseti
yrði valdamikill myndi þingið
ekki verða áhrifalaus af-
greiðslustofnun. Til að mynda
yrði það á valdi þess að setja for-
seta af ef tveir þriðju hlutar þing-
manna væru þess fýsandi og enn-
fremur gæti það sniðgengið
neitunarvald forseta með sama
atkvæðahlutfalli.
Zanu-PF flokkur Mugabes jók
meirihluta sinn á þingi Zimba-
bwe fyrir skemmstu þegar hann
fyllti í eyður sem 20 hvítir þing-
menn skildu eftir sig er forrétt-
indi hvíta minnihlutans voru af-
numin. Afnýliðunumeru 11 hvít-
ir, 8 þeldökkir og einn af kín-
versku bergi brotinn.
-ks.
Alkirkjuráðið
Fundað um fátækt þróunaníkja
Aðalritari Alkirkjuráðsins segir brýna nauðsyn bera til að vekja al menning til vitundar um
hryllilegar afleiðingar bágrar skuldastöðu fátœkra ríkja
Alkirkjuráðið, sem í eiga sæti
fulltrúar 400 miljóna krist-
inna manna annarra en
kaþólskra, skoraði i fyrradag á
auðug ríki að hætta þrýstingi á
skuldum hlaðnar þjóðir í þriðja
heiminum og liðsinna þeim þess í
stað í fátækt sinni. Aðild að Alk-
irkjuráðinu eiga 307 söfnuðir
mótmælenda og grísk-
rétttrúaðra í 150 löndum.
Á laugardag hófst í E1 Escori-
al, smábæ skammt frá Madrid á
Spáni, vikulangur fundur ráðsins
um það á hvern hátt kirkjan geti
stuðlað að því að auðæfum
heimsins sé skipt á nýjan og rétt-
látari hátt milli manna. Reiknað
er með því að fundurinn ljúki
störfum á laugardag og álykti þá
útfrá þemanu „skipting auð-
linda“.
Aðalritari Alkirkjuráðsins,
Emilio Castro frá Uruguay, efndi
á dögunum til fundar með frétta-
mönnum um þessi mál. „Það
verður að virkja almenningsálitið
í þágu þeirrar siðferðilegu skyldu
auðugra ríkja að draga stórlega
úr þrýstingi á fátækar þjóðir. Hér
er ekki einvörðungu um efnisleg
gæði að tefla heldur snertir þetta
ekki síður andleg og menningar-
leg verðmæti."
Castro sagði að fundurinn
myndi fjalla um það hvað ríkar
kirkjur gætu gert fleira en að
veita fátækum skuldaþjóðum
fjárhagslegan stuðning.
„Þegar við sjáum að barna-
dauði vex í fátækum löndum í
beinu hlutfalli við erlendar
skuldir þeirra þá þarf ekki frekari
vitna við um að þau greiða lánar-
drottnunum með blóði og lífi
barna sinna," sagði hann. Hann
sagði ennfremur að verkefni
fundarins væri að ræða á hvern
hátt stöndugar kirkjur og ríkar
þjóðir gætu deilt auði sínum án
þess að viðtakendur þyrftu að líta
á sig sem þiggjendur ölmusu.
Að endingu kvað hann Al-
kirkjuráðið ekki aðhyllast vald-
beitingu til að ná fram réttlæti í
samfélaginu en bætti við: „Hvaða
siðferðilegan rétt höfum við til að
segja fátæklingum fyrir verkum í
heimi þar sem hershöfðingjar fá
kirkjulega greftrun og margar
herdeildir hafa presta til að blessa
athafnir sínar?"
-ks.
Miðvlkudagur 28. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 11
Aðalritari Alkirkjuráðsins segir fátækar þjóðir neyddar til að greiða auðugum
lánardrottnum skuldir sínar mjög dýru verði eða með lífi barna sinna.
Vopn
Shevardnadze
í gær greindu bandarískir
heimildamenn frá því að Edvard
Shevardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, myndi taka sér
ferð á hendur til Washington á
föstudag og eiga á ný viðræður
til Washington
við bandaríska valdsherra um af-
vopnunarmál. Formlegrar yfir-
lýsingar ráðamanna risaveldanna
um þetta mál kvað vera að vænta
í dag.
-ks.