Þjóðviljinn - 28.10.1987, Side 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Miðvikudagur 28. október 1987 240. tölublað 52. órgangur
Þjónusta
íþínaþágu
0
MBBBB
SAMVINNUBANKl
ÍSLANDS HF.
Suðurnes
Upprætum kvótamismun
Pingmenn Reykjaneskjördœmis funduðu með forvígis mönnum útgerðarfélagsins Eldeyjar ígœr
Við þingmenn Reykjaneskjör-
dæmisins funduðum í gær
með forsvarsmönnum útgerðar-
fyrirtækisins Eldeyjar þar sem
þeir lýstu yfir áhyggjum sínum
yfir sífellt vaxandi fækkun skipa
og báta, sérstaklega frá Suður-
nesjum til annarra landshluta,
ásamt þeirri kvótaskerðingu sem
því fylgir á svæðinu. Við lýstum
yfír stuðningi okkar við framtak
þeirra um stofnun útgerðarfé-
lagsins og hvöttum þá til frekari
dáða, jafnframt því sem við
reynum að fínna ráð til að upp-
ræta þennan mismun sem verður
á verðmæti kvótans þegar hann
er seldur til dæmis norður í iand,
segir Geir Gurtnarsson alþingis-
maður í samtali við Þjóðviljann.
Salan á togaranum Dagstjörn-
unni KE norður á Akureyri um
helgina og þeirri aukningu á
kvóta sem kaupandinn fær við
kaupin, hafa opnað augu al-
mennings fyrir þeim mismun sem
gerður er á kvótanum eftir því
hvar viðkomandi skip er staðsett
á landinu. En við kaupin á Dag-
stjörnunni KE til Útgerðarfélags
Akureyringa h/f á Akureyri fékk
útgerðarfélagið 600 tonna viðbót
í kvóta sem þýðir, ef miðað er við
þorsksölu á fiskmörkuðum um 24
milljónir króna. Það hefur í för
með sér að samkeppnisaðstaða til
dæmis útgerðarfélagsins Eldeyj-
ar við Ú.A. er mjög ójöfn og
norðanmenn geta spennt
kaupverðið fram yfir það sem
kallast getur sanngjarnt.
Að sögn Þórðar Eyþórssonar
deildarstjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu er þessi mismunur á
kvóta tilkominn vegna viðmiðun-
aráranna sem haft var til hlið-
sjónar þegar lögin um fiskveiði-
stjórnun voru sett 1984. „En
þessi mál sem og önnur sem
varða fiskveiðistjórnunina eru til
endurskoðunar í ráðuneytinu,"
sagði Þórður Eyþórsson deildar-
stjóri. grh
Reykjanesbraut
Verði Ijós!
Á rliðiðfrá lokum höfuðborgarkafla
Reykjanesbrautar, lýsingþar loksins
eftir þrjár vikur
Þessa daga er verið að drífa í að
setja upp staura við austasta
hluta Reykjanesbrautar og setja
Háhyrningar
Geymdir í
sfldarþró
Háhyrningarnir, sem gcymdir
voru í flotkvíum á Seyðisfírði,
hafa nú verið fluttir í gamla
steinsteypta síldarþró hjá gamalli
verksmiðju Fjarðarsfldar við
Hánefsstaðaeyri. Reiknað er með
að þeir verði fluttir með bfl til
Egilsstaða og síðan með flugvél til
Reykjavíkur. Þaðan verða þeir
fluttir flugleiðis til kaupenda í
Kanada.
Hér er um að ræða fjögur dýr á
aldrinum 2 til 5 ára, tvær kvígur
og tvo tarfa. í gær var talið að
háhyrningarnir væru farnir að
venjast vistinni því að þeir voru
þá farnir að éta.
Sérhannaðir gámar undir dýrin
á ieið til Reykjavíkur eru komnir
austur. Ekki hefur tekist að fá
upplýsingar um hvenær flutning-
ar eru ráðgerðir en búist er við
þeim á fimmtudag eða föstudag.
Helgi Jónasson fræðslustjóri á
Reykjanesi og framkvæmdastjóri
félagsins Fauna, sem stendur að
háhyrningsveiðunum, er væntan-
legur til Seyðisfjarðar í dag.
Sérhæfðir starfsmenn, sem
hafa reynslu af háhyrningum
m.a. vegna starfa í Sædýrasafn-
inu, gæta dýranna dag og nótt og
fá til þess aðstoð félaga í björgun-
arsveitinni ísólfi. Gæslumennirn-
ir vilja helst koma dýrunum af
höndum sér sem fyrst og hafa
áhyggjur af hugsanlegum aðgerð-
um hvalavina sem hafa látið í
veðri vaka að mótmælaaðgerðir á
Seyðisfirði séu hugsanlegar.
ÓP
Ijós í staurana. Verkinu á að vera
lokið eftir um þrjár vikur, og er
víst að bílstjórar anda léttar, -
vegarkaflinn var opnaður Ijós-
laus fyrir ári, og í fyrravetur
keyrðu menn þar „eftir minni“
svo vitnað sé í einn ökumanninn.
Þeir hjá Vegagerðinni segjast
sjálfir hafa haft af þessu áhyggj-
ur, en fé hefur skort og fram-
kvæmdir að auki tafist vegna
seinlætis franskra staurafram-
Ieiðenda. Brautin er þjóðvegur á
þessum kafla, „en er í raun og
veru innanbæjarvegur“ einsog
einn Vegagerðarmanna sagði og
minnti á nýju Sambandslóðina og
væntanlegan Kópavogsmiðbæ.
Það er dansk-íslenska fyrirtæk-
ið Hlaðbær-Colas sem sér um
framkvæmdir, og kostar verkið
allt háifa sautjándu milljón.
-m
Staurar gróðursettir á Reykjanesbrautinni við Garðabæinn, í baksýn suðausturbyggð í Kópavogi. (Mynd: EÓI)
Landsbankinn
Starfsmann í stólinn
Eyjólfur K. Sigurjónsson: Ekki rétt hjá Pétri að bankaráð hafi lýstskoðun sinni.
Lúðvík Jósepsson: Greiði atkvœði gegn ráðningu Sverris Hermannssonar.
Sigurjón Gunnarsson: Höfum jafn hæfa, efekki hœfari menn innan bankans
Pétur Sigurðsson er bara að
lýsa sínum vilja, en ekki vilja
bankaráðs. Við höfum rætt þessi
mál á einum fundi og það voru
engin nöfn færð í fundargerð.
Jónas Haralz er ekki enn búinn að
segja bankastjórastöðunni lausri
og á meðan er ekki ástæða til að
taka neinar ákvarðanir um eftir-
mann hans. Það koma margir
hæfír menn til greina, sagði Eyj-
ólfur K. Sigurjónsson, fulltrúi Al-
þýðuflokksins í bankaráði Lands-
bankans, en Pétur Sigurðsson,
formaður bankaráðs, hefur lýst
því yfir að full eining ríki innan
bankaráðs um ráðningu Sverris
Hermannssonar til starfans.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins mun Sverrir eiga vísan stuðn-
ing allra bankaráðsmanna stjórn-
arflokkanna, þó með semingi sé,
en bankastjórastóllinn mun losna
um mitt næsta ár, er Jónas Haralz
fer til starfa á vegum Alþjóða-
bankans.
- Ég hef gert bankaráðinu
grein fyrir því að ég muni ekki
geta greitt atkvæði með Sverri
Hermannssyni. Ríkisstjórnin
hefur komið sér saman um Sverri
sem eftirmann Jónasar Haralz.
Því er ég að mótmæla og ég tek
ekki þátt í þessu, sagði Lúðvík
Jósepsson, fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í bankaráði Lands-
bankans.
- Það er ekki rétt sem komið
hefur fram að Helgi Bergs hyggist
einnig hætta störfum. Það væri
áfali fyrir bankann ef við misstum
hann líka, sagði Eyjólfur, en talið
er að Valur Arnþórsson eigi þá
stöðu svo gott sem vísa, sam-
kvæmt samkomulagi ríkisstjórn-
arflokkanna.
- Að okkar mati er eðlilegra
að til starfans verði valinn ein-
hver úr hópi starfsmanna bank-
ans. Við teljum að í starfsliði
bankans séu menn sem eru jafn
hæfir ef ekki hæfari en einhverjir
utanaðkomandi, sagði Sigurjón
Gunnarsson, varaformaður
Starfsmannafélags Landsbank-
ans, en á áttunda hundrað starfs-
manna bankans hafa skrifað
undir áskorun til bankaráðs um
að næsti aðalbankastjóri Lands-
bankans verði valinn úr hópi nú-
verandi starfsmanna.
-rk