Þjóðviljinn - 16.12.1987, Page 2

Þjóðviljinn - 16.12.1987, Page 2
◄ Ævisögur - hvort sem menn halda sjáífir á penna en fá sér viö- mælanda - eru líklega í svipuðu horfi og verið hefur. Og það er þessi flokkur bóka sem er kann- ski einna rækilegast „hannaður" fyrir ýmsa markhópa: bók fyrir sjómenn, flugfólk, heilbrigðis- stéttir, gamalt fólk osfrv. Ljóðabækur eru ekki margar á lista bókaútgefenda, en það gefur ekki margt til kynna um stöðu ljóðsins. Meðal þeirra ellefu sem á skrá komast eru að minnsta kosti sex stórmerkar. Annað er það, að obbinn af ljóðaútgáfum er utan þess hrings sem forlög draga um sín umsvif, náttúrlega af ástæðum sem raktar verða til markaðslögmála. Það er meira um það en oft áður að forlög ráðist í dýrar út- gáfur, rækilega myndskreyttar, eða stórbækur svonefndar. Dul- fræði allskonar, miðlabók- menntir og fleira, sýnast á undan- haldi, en aftur á móti færist það í vöxt að settar séu saman og þýdd- ar handbækur um mannleg vandamál. Rit sem tengjast vís- indum og sögu þeirra, handbæk- ur um náttúru landsins, eru í sókn og fyrsta frumsamda ritið um fjölmiðla hefur séð dagsins ljós. Æ fleiri íslenskir höfundar freistast til að skrifa fyrir börn og unglinga - í ár koma meira en tuttugu nýjar bækur frá þeirra hendi. Þetta yfirlit segir svosem ekki margt annað en að það er enginn vandi fyrir hvern og einn að finna bækur við sitt hæfi og annarra. Fjölbreytnin er mikil - ekki auðvelt reyndar að benda á til- tekinn bókaflokk og segja: hér er um alltof fátt að velja. í haust var fundað um sam- skipti bókaútgáfunnar og fjöl- miðla. Höfundar og útgefendur hafa vitanlega tilhneigingu til að halda því fram að þeim sé ekki nægilegur sómi sýndur í fjölmiðl- um. Og víst er það, að nokkurt rutl hefur verið á Ijósvakamiðlum í umgengni við bókina. Dagblöð- in eru líklega skárri þótt svo þau fremji óteljandi syndir í van- rækslu eða fljótaskrift. Að minnsta kosti væri erfitt að benda á dagblöð í öðrum löndum sem eru jafn reiðubúin til að birta fréttir, viðtöl og fá menn til að fjalla um nýjar bækur og íslensk blöð flest eru. Að minnsta kosti Morgunblaðið, Þjóðviljinn og DV. Aftur á móti hleypur stundum í fjölmiðlamenn einhver hunds- haus í garð „bókaflóðsins" sem er kannski talað um á þeim nótum að þar fari einhverskonar synd- aflóð. Einn pistlahöfundur í DV var t.d. að nöldra eitthvað út í orðalag bókaauglýsinga, sem hann taldi verða æ skrumfengn- ara og æsilegra. Það er svosem eins og það hefur lengst af verið: auglýsingaheimur lýtur sínum lögmálum - það sem máli skiptir er að ánetjast honum ekki. Verra er það þegar menn eru að kvarta um hátt verð bóka. Auðvitað mætti það vera lægra og gæti verið lægra ef önnur menningarpólitík væri rekin. En á hitt er að líta, að ef bók sem einhvers virði er kostar eins og ein og hálf brennivínsflaska, þá er hún vissulega ódýr. Hinsvegar er bók sem er viðtakanda hennar einskis virði alltaf „dýr“ hvað sem verðmiðinn segir. Og nóg um það. Bókaflóðið er ekki syndaflóð. „Bækur, segir Þórbergur Þórðar- son, „eru saklausir hlutir, en rit- höfundar eru ægilegar verur“. (Sumir hafa reyndar miklu meiri áhuga á skáldum en bókum þeirra, kannski einmitt vegna hrollvekjunnar). Við getum haldið áfram og sagt: bækur eru meira en saklausir hlutir - þær eru merkileg fjörefni í þjóðar- skrokknum, sem hann þarf á að halda til að farast ekki úr þyngs- lum og leti og leiðindum og áhugaleysi. Gleðileg bókajól. GAGNRYNI - til hvers, fyrir hvem? Hugsanlega er verið að bera í bakkafullan lækinn að ætla að svara spurningunum sem felast í fyrirsögn þessa greinarkorns. Samt er það knýjandi því hlutverk allra hluta breytist hratt. Hvaða hlutverki skal þá bók- menntagagnrýni sinna? Þeim sem hér heldur á penna sýnist svarið í einföldustu mynd blasa svona við: Gagnrýni skal segja „sannleikann" um tiltekið bók- menntaverk og leiðin að honum liggurum sanngirnina. Flóknara er það ekki. En nógu flókið samt. Fyrst má spyrja hvort gagnrýni eigi yfirleitt einhvern rétt á sér. Er ekki bara verið að færa fólki, sem hvort sem er nennir ekki að lesa, skoðanir um bækur? Er bókmenntagagnrýni kannski bara hluti af yfirborðsmennsk- unni sem segir að menn skuli hnusa af sem flestu án þess að skilja? Má vera - og ef svo er þá er það aukaatriði ef einhver slys- ast til þess að muna að einhver bók hlýtur eina eða fleiri stjörn- ur, eða að ein bók er sögð góð eða slæm. En það er erfitt að sætta sig við slíka niðurstöðu, ekki má gleyma hinum sem hafa lifandi áhuga á bókum og vilja kynnast þeim í dagblöðum með það í huga að lesa þær síðar. Síðan má stilla upp lesendum og rithöfundum og spyrja: Er bókmenntagagnrýni fyrir rithöf- unda eða lesendur? Er hún ein- hver kompás sem bókmennta- fræðingar halda að rithöfundum svo þeir villist ekki af leið eða er hún leiðbeining fyrir neytendur í leit að lesefni við hæfi? Ég hallast að því seinna. Ef einhvern tíma hefur verið hlutverk fyrir faglega bókarýni þá er það á þessum tím- um offramboðs. Lesendur eiga að mínum dómi fyllsta rétt til að fá hlutlæga umfjöllun um þær bækur sem á boðstólum eru. Svarið við hinum hluta spurning- arinnar, hvort bókmenntafræð- ingar skuli með gagnrýni sinni vera einhvers konar stýrimenn, er einfalt en þvert nei. Ritdómar- inn er enginn kennari og það er tilgangslaust fyrir rithöfund að ætla að skrifa bók eftir gefinni formúlu eða „isma“ sem er í tísku í bókmenntafræðunum hverju sinni. Með því stefnir hann ferli sínum rakleitt til glötunar, hann drepur það guðlega í sjálfum sér og listin verður engin list. Á hinn bóginn tel ég að rithöfundur beri engan skaða af því að hlusta á og lesa gagnrýni um eigin verk, þeg- ar best lætur lærir hann jafnvel eitthvað af því. Líkast til veltur þetta þó mest á dómgreind og skynsemi rithöfundarins - hann verður að leyfa sér að taka mark á því, sem hann telur mark takandi á, og svo sveia hinu. Þá skal borin fram sú klassíska spurning: Hvað er sannleikúr? Hvernig skal ritdómurinn fara að því að draga fram það sem hon- um sýnist vera „satt“ og „rétt“ í hverri bók? Hér, eins og í annarri sannleiksleit, verður að gæta fyllstu hlutlægni. Þetta tekst rit- dómaranum því betur sem hann er víðlesnari, menntaðri og rit- færari. En óskeikull verður hann aldrei. Tveir ritdómarar munu aldrei dæma sömu bókina eins þótt færni þeirra og kunnátta sé svipuð því engir tveir menn lesa eina bók á sama hátt. Fyrir utan færni og kunnáttu skipta hér máli þættir eins og lífsafstaða, uppeldi og áhugi. Ekki þar með sagt að gagnrýnin sé í lausu lofti og hverj- um leyfilegt að dæma eftir sínu nefi, því auk alls annars hlýtur ritdómarinn að meta bók- menntaverk með hliðsjón af sam- visku sinni og sanngirni. Hann á að segja þann sannleika sem hann les úr verkinu, þögn er sama og yfirvarp, annað væri ósann- gjarnt gagnvart höfundinum og ekki síður gagnvart ritdómaran- um sjálfum. Ólafur Jónsson segir í einni grein sinni eitthvað á þá leið að líkast til verði gagnrýni að vera hörð hér á landi, kannski harðari en víða annars staðar vegna fá- mennisins. Ég þykist sjá mikinn sannleika í þessum orðum. Hér í fámenninu, þar sem allir þekkja alla, er erfiðara fyrir ritdómara að sýna sjálfum sér og öðrum heiðarleika og segja fullum fetum þegar honum þykir eitthvað mið- ur við eitthvert tiltekið verk. Hætt er við að mannlegu sam- skiptin gangi öðruvísi fyrir sig eftir það en áður. Þess vegna held ég að sé of sterk tilhneigingin hjá íslenskum ritdómurum (sem og öðrum listgagnrýnendum) að sigla lygnan sjó - áhættuminna er að kalla bærilega bók góða og forða þannig hugsanlegum á- rekstrum. Slík afstaða veldur sinnuleysi og ritverkin tapa með- an rithöfundar og ritdómarar þykjast mega vel við una. En áfram heldur umræðan um góða og lélega gagnrýni, jafn- lengi og menn nenna að tala um góðar og lélegar bækur. Ingi Bogi íslensk Þjóömenning Fyrsta blndi af 9 í ítarlegu rltsafni um íslenska þjóðmenningu frá landnámstíð er komið út hjá bóka- útgáfunni Þjóðsögu Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur ráðist í það stórvirki að gefa út 9 binda bókaflokk um íslenska þjóðmenningu frá landnámi til upphafs þessarar aldar. Fyrsta bindið, sem ber yfirskriftina Uppruni og umhverfi, fjallar um líffræðilegan uppruna íslendinga og íslenskra húsdýra, upphaf Is- landsbyggðar og íslenska og norska samfélagsskipan á land- námsöld, mótunarsögu landsins og þróun lífríkisins, veðurfar á ís- landi og þá eru sérstakir kaflar um íslenska torfbæinn og um ljós- færi og lýsingu frá landnámi fram á 20. öldina. Höfundar fyrsta bindisins eru átta sérfræðingar, allt þjóðkunnir fræðimenn hver á sínu sviði. Þeir eru Guðmundur Ólafsson forn- leifafræðingur, Haraldur Ólafs- son mannfræðingur, Hörður Ág- ústsson listmálari, Páll Bergþórs- son veðurfræðingur, Stefán Að- alsteinsson búfjárfræðingur, Sturla Friðriksson erfðafræðing- ur, Þorleifur Einarsson jarðfræð- ingur og Þór Magnússon þjóðm- injavörður. Eins og fram kemur á þessu er hér ekki um hefðbundið sagn- fræðirit að ræða, heldur er mark- mið verksins að skapa sem heildstæðasta mynd af menning- armynstri hins forna íslenska Hafsteinn Guðmundsson útgefandi með 6 af 8 höfundum fyrsta bindis rit- safnsins íslensk þjóðmenning. bændasamfélags frá upphafi byggðar þar til sjálfsþurftarbú- skapurinn leið undir lok, og að varpa ljósi á stöðugleika og þró- un þessa mynsturs í aldanna rás og þær félagslegu og sögulegu ástæður sem að baki liggja, eins og ritstjóri verksins, Frosti F. Jó- hannsson, segir í formála. Á blaðamannafundi sem hald- inn var í síðustu viku í tilefni út- komu fyrsta bindisins sagði Frosti að búið væri að skipuleggja rit- röðina í öllum aðalatriðum, og búið væri að fá höfunda að vel- flestum köflum bókaflokksins, um 40 kunna fræðimenn með sér- þekkingu hver á sínu sviði. Er áætlað að út komi eitt til tvö bindi á ári, næstu árin, og verður efni þeirra sem hér segir: I. Uppruni og umhverfi, II. Jarðyrkja og kvikfjárrækt, III. Veiðiskapur, IV. Heimilisstörf, V. Trúarlíf og alþýðuvísindi, VI. Kvæða- og sagnaskemmtun, VII Sjón- menntir, VIII Samgöngur og fé- lagslíf, IX. Fólkið í bændasamfé- Iaginu. Haraldur Ólafsson, sem á sæti í ritnefnd ásamt þeim Jóni Hnefli Aðalsteinssyni og Þór Magnús- syni, sagði á blaðamannafundin- um að við útgáfu þessa verks væri ekki hægt annað en að minnast þess brautryðjendastarfs á sviði þjóðháttafræða sem Jónas Jónas- son frá Hrafnagili hefði unnið með verki sínu íslenskir þjóð- hættir. Verk á borð við það sem nú er verið að vinna væri óhugs- andi án þess brautryðjendastarfs. Hafsteinn Guðmundsson framkvæmdastjóri bókaútgáf- unnar Þjóðsögu minntist einnig á blaðamannafundinum þriggja manna sem unnu að undirbúningi þessa verks, en féllu frá verki sínu ófullgerðu. það voru þeir Krist- ján Eldjárn fyrrverandi forseti, Sigurður Þórarinsson jarðfræð- ingur og Óskar Halldórsson dós- ent. Varð fráfall þeirra til þess að tefja útkomu fyrsta bindis verks- ins, en undirbúningur þess hófst þegar 1982. Þáttaskil urðu hins vegar í vinnslu ritsafnsins þegar Frosti F. Jóhannsson þjóðhátta- fræðingur tók við ritstjórn þess haustið 1986. Fyrsta bindi ritsafnsins íslensk þjóðmenning er 431 bls. og hið vandaðasta að allri gerð. Fjöldi ljósmynda og teikninga prýða verkið, og eru margar myndir prentaðar í lit. Aftast í bókinni er ítarleg atriðisorðaskrá og nafna- skrá. Hafsteinn Guðmundsson sá um útlitshönnun bókarinnar, en prentun fór fram í Prentsmiðj- unni Odda. ‘2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.