Þjóðviljinn - 16.12.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 16.12.1987, Side 3
Jón Helgason Vér íslands börn eftir Jón Helgason Komin er út hjá Iðunni endurút- gáfa á verki Jóns Helgasonar rit- stjóra, Vér íslands börn l-lll. Verk þetta hefur verið uppselt um skeið en er nú aftur fáanlegt, öll þrjú bindin íöskju. í kynningu útgefanda segir: „Jón Helgason kunni öðrum betur að glæða liðna sögu lífi, og gilti þá einu hvort viðfangsefni hans voru æðstu valdsmenn þjóð- arinnar eða umkomulausir kot- ungar. Vér íslands börn flytur efni af sama toga og íslenskt mannlíf: listrænar frásagnir af ís- lenskum örlögum og eftirminni- legum atburðum, sem reistar eru á traustum, sögulegum grunni og ýtarlegri heimildakönnun. Jón Helgason „fer listamanns- höndum um efni sitt, byggir eins og listamaður af þeim efnivið, sem hann dregur saman sem vís- indamaður,“ eins og dr. Kristján Eldjám komst að orði í ritdómi". Smásögur Hrafnhildar Valgarðsdóttur í rangri veröld nefnist bók eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur sem Frjálstframtak hf. hefurgefið út. ( bókinni eru ellefu smásögur eftir Hrafnhildi, en hún er kunnur bama- og unglingabókahöfundur og hlaut nýlegafyrstu verðlaun í samkeppni um slíkarbækur. ( rangri veröld er hins vegarfyrsta bók hennar sem ætlaö er fullorð- num. í bókarkynningu segir m.a.: „Efnistöíc Hrafnhildar eru á margan hátt óvenjuleg svo og val söguefnis. Frásagnarmáti hennar er meitlaður og án orðskrúðs. Hún gefur lesendum næma inn- sýn í hugarheim og líf söguhetja sinna en skilur jafnframt eftir margar spumingar sem lesendum er eftirlátið að svara.“ LÍFSREYNSLA Fólk úr öllum landsfjórðungum segir frá eftirminnilegri og sérstæðri reynslu. Þeir sem rita eigin frásagnir og annarra eru: lilynur Þór Magnússon (safirði, Inga Rósa Þórðardóttir Egilsstöðum, sr. Bernharður Guðmundsson Kópavogi, Erlingur Davíðsson Akureyri, Páll Lýðsson Litlu-Sandvík, Herdís Ólafsdóttir Akranesi, sr. Jón Kr. ísfeld Garðabæ, Sveinbjörn Beinteinsson Dragbálsi, Óskar Þórðarson Reykjavík og Bragi Þórðarson Akranesi. Allar frásagnirnar eru skráðar sérstaklega vegna útgáfu þessarar bókar. Ævintýralegar ferðir og slysfarir breyta oft viðhorfi fólks til lífsins. LÍFSREYNSLA er áhrifamikii bók sem lætur engan ósnortinn. AFLAKÓNGAR OG ATHAFNAMENN Hjörtur Gíslason ræðir við fimm lands- þekkta aflamenn, sem eru fulltrúar allra landshluta og fimm greina útgerðar. Þeir eru: Guðjón A. Kristjánsson, Páli Pálssyni ÍS, Þorsteinn Vilhelmsson, Akureyrinni EA, Magni Kristjánsson, Berki NK, Sigurður Georgsson, Suðurey VE, Ragnar Guðjónsson, Esjari SH. HalldórÁsgrímsson sjávarútvegsráðherra ritar inngangsorð bókarinnar. AFLAKÓNGAR OG ATHAFNAMENN er bók sem gefur raunsanna mynd af lífi sjómanna. Þetta er bók um menn sem skara fram úr á sjónum, menn sem hafa frá miklu að segja. HÖRPUÚTGÁFAN U STEKKJARHOLTI 8-10,300AKRANESI. Björnssonar Emll Björnsson Litríkt fólk. Ævlminnlngar II. örn og Örlygur 1987. í fyrra sagði séra Emil Björns- son frá fyrstu sporum sínum í til- verunni á minningabók sem hlaut einkar lofsamlegar viðtökur. í þessari bók heldur hann áfram frásögninni þar sem hann kemur suður og finnst að húsin í borg- inni séu að hrynja yfir sig. Víða er við komið: sagt frá basli efnalítils pilts sem vill komast til mennta og verða skáld, frá skólabræðrum og kennurum, frá hernámi og hugarfarsbreytingum stríðsár- anna, frá trúardeilum og pólitísk- um átökum, frá jarlastríði á ríkis- útvarpinu og undarlegum prests- kosningum. Og er þá hvergi nærri allt upp talið. Séra Emil stflar margt mjög vel. Honum tekst einatt að koma miklu til skila í stuttu máli og gefa viðfangsefninu um leið lyftingu með vel heppnuðum samlíking- um og tilvísunum í bækur og minni. Eins og þegar hann lýsir hvunndagsleika vinnumanns á Korpúlfsstöðum á kreppuárum, „kæruleysi allsleysisins og glannaskap vonleysisins“ sem honum finnst einkenna skemmtanaiíf þeirra ára, basli efnalítilla menntskælinga og fleiru. Séra Emil er og drjúgur við mannlýsingar. Að vísu fellur hann stundum í þá algengu synd að fara fljótt yfir sögu, nefna menn án þess að leyfa þeim að njóta sín að ráði. Þessa sér til dæmis nokkur merki í annars giska skemmtilegum kafla um þá menn sem settu svip sinn á ríkis- útvarpið á stórveldisdögum þess. En einnig hinar knöppu mannlýs- ingar ná utan um einhvern kjarna og taka krydd úr skemmitlegum uppákomum og tilsvörum. Og ágætar verða þær þegar séra Emil gefur þeim mönnum rúm og tíma ÁRNI BERGMANN sem urðu honum með einum eða öðrum hætti mikilvægir - eins og gert er í þáttum af Sigurði skóla- meistara á Akureyri og Þorsteini skáldi Valdimarssyni, þeim undramanni hrifnæmisins. í undirfyrirsögn bókarinnar Emil Bjömsson. heldur höfundur því fram að hún segi frá „samferðamönnum og at- burðum“ á fjórða og fimmta tug aldarinnar. Hér gengur hann í hógværð sinni framhjá því, að um leið er hann að segja drjúga sögu af ungum manni og leitandi á miklum óvissu- og átakatímum. Stundum verður séra Emil eins og einum um of umtalsfrómur og diplómatískur og „ofar víggirð- ingum“ eins og þegar hann lýsir þingskörungum eins og þeir komu honum fyrir sjónir þegar hann starfaði sem þingritari og fréttamaður á Alþingi. Annað er svo vel fróðlegt og nytsamlegt til upprifjunar. Til dæmis að taka er minnt á tímaritið Straumhvörf sem var fróðlegt framhald draumsins um velviljaða forystu ábyrgra og þjóðernissinnaðra menntamanna fyrir alþýðu, sem kannski væri á villigötum. Draums sem hafði sett mikinn svip á alla umræða áratugarins eftir að ísland varð sjálfstætt ríki og hlaut að koma aftur á dagskrá þegar „þjóðfélagið var að steypa stömpum í stríðsgróðavímunni". Bókin segir og merka sögu af væringum í kirkjunni og guðfræð- ideildinni milli áhanganda rétt- trúnaðar og nýguðfræði. Og svo því hvemig hugmyndir um trú sem sýndi sig í verkum góðum og löngu síðar brutust fram með rót- tækum hætti í frelsunarguðfræð- inni, halda vöku fyrir verðandi presti, sem gjarna vill brúa þá gjá sem myndast hafði að óþörfu milli kristindóms og sósíalisma. Höfundur segir líka frá því ágæt- lega, hvernig honum var á upp- gangstímum kalds stríðs refsað harðlega fyrir vangaveltur í þessa átt: maskína var sett í gang til að sanna að hann væri kommi og lík- lega guðlaus og mætti alls ekki trúa slíkum manni fyrir söfnuði. Þetta varð, eins og mörgum mun kunnugt, aðdragandi þess að Óháði fríkirkjusöfnuðurinn varð til, sem tók Emil Björnsson sér til sálusorgara. Með þessa sögu, sem hlýtur um margt að vera erf- ið í upprifjun, fer séra Emil vel og skynsamlega eins og margt annað í þessari bók. ÁB

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.