Þjóðviljinn - 16.12.1987, Blaðsíða 7
Það hlýtur að vera
eitthvað eftir
Silja Aðalsteinsdóttir
f aðalhlutverki Inga Laxness
Endurminningar
Ingibjargar Einarsdóttur
Mál og menning 1987
Pað er um margt skynsamlega
að þessari viðtalsbók staðið.
Skrásetjarinn, Silja Aðalsteins-
dóttir, gerir sér far um að láta
rödd sögukonu heyrast með sérk-
ennum málfars og öðru, en
skýtur svo inn tengingum til að
gera söguna samfelldari. Þær
tengingar eru nauðsyn og þær
gerast ekki frekar um of til fjörs-
ins - þótt það komi reyndar fyrir
að Silja leggi óþarfa lykkju á leið
bókarinnar með persónulegum
túlkunum á nokkrum verkum
Halldórs Laxness.
Vel á minnst: Halldór. Nú þarf
ekki að efa að bók þessi vekur
forvitni fyrst og fremst vegna þess
að Ingibjörg Einarsdóttir var gift
Halldóri Laxness í um það bil
áratug. En með þann þátt ævisög-
unnar er farið með stillingu, von-
andi finnst hinum hnýsnu að ver-
ið sé að snúa á þá með hófsemi.
Ekki þar fyrir: þetta hjónaband
Stefán Aðalsteinssón
Villtu spendýrin
íslensku
Bókaútgáfan Bjalian sendir
frá sér bókina Villtu spendýrin
okkar eftir Stefán Aðalsteinsson.
í bókinni er sagt frá þeim
spendýrum sem lifa villt á íslandi
og í hafinu við landið. Glöggar
lýsingar eru á lífsferli og lifnaðar-
háttum dýranna og jafnframt
brugðið upp sögum um dýrin,
ýmist sannsögulegum frásögnum
eða þjóðsögum.
í bókinni er fjallað um sjö
spendýr sem lifa á landi. Það eru
refur, tvær músategundir, tvær
rottutegundir, hreindýr og mink-
ar. Því næst er gerð grein fyrir
tveimur selategundum og tólf
hvalategundum.
í þessari bók er dýrunum að
mörgu leyti lýst á nýjan hátt.
Refurinn er ekki eingöngu
rándýr sem drepur sauðfé á
grimmilegan hátt heldur líka
harðskeytt og slungið dýr sem
kann að bjarga sér við erfið skil-
yrði og hugsar vel um börn og bú.
Hvalirnir eru tilkomumikil og
vitur dýr en hafa einnig verið ís-
lendingum mikill matarforði á
liðnum öldum.
í bókinni eru rúmlega 40 sjald-
gæfar litmyndir sem sýna dýrin á
öllum árstímum.
Villtu spendýrin okkar er
þriðja alíslenska fræðibókin sem
Stefán Aðalsteinsson er textahöf-
undur að og Bjallan gefur út í
þessum flokki.
Húsdýrin okkar eftir Stefán
Aðalsteinsson og Kristján Inga
Einarsson og Fuglarnir okkar
eftir Stefán Aðalsteinsson og
Grétar Eiríksson hafa komið
áður út í sama flokki.
ÁRNI
BERGMANN
er vitanlega veigamikill þáttur
sögunnar. Sitthvað fær lesandinn
að vita sem hann ekki vissi eða
gerði sér grein fyrir áður. Hér eru
nokkur tilsvör eftirminnileg eins
og þegar skáld hitti unga stúlku á
Þingvöllum og biður hana að
kveikja í sígarettu sinni „með
augunum". Hér eru líka brot úr
bréfum Halldórs sem manni
verður náttúrlega starsýnt á -
ekki síst þau sem berast til Ingu
vestan úr Ameríku um það bil
sem Alþýðubókin verður til og
varða afdrifaríkar ákvarðanir
Halldórs: í hverja heima skal
| halda. En Inga Laxness fær einn-
ig að njóta sín í öðrum hlutverk-
um, sem ung stúlka í heldrimann-
ahúsi í Reykjavík löngu liðins
tíma, sem leikkona hér heima og
erlendis og svo má áfram telja.
Myndakostur í bókinni er mikill
og góður.
Að öllu samanlögðu mun þessi
bók lenda réttum megin við strik-
ið í gæðaflokkun viðtalsbóka,
þetta er ein þeirra sem menn vilja
gjarna kynna sér og þeir leggja
ekki fúsir frá sér. En hún er ekki
laus við helstu og algengustu
galla þeirra bóka og eru fólgnir í
þessu hér: einhvernveginn fer svo
(og lesandinn getur aldrei verið
viss um það hvort hann eigi að
kenna skrásetjara eða sögumanni
um) að margt verður of ágrips-
kennt. Sá eða sú sem frá segir
nefnir margt fólk, gefur því al-
menna einkunn, en svo vantar að
sú einkunn sé negld niður með
dæmum eða með áleitinni um-
hugsun um persónuna. Og því
verður of mikið af dæmum eins
og þessu hér:
„Hann (Erlendur í Unuhúsi)
var dásamlegur maður, fullur af
góðsemi. Fólk var alltaf að líkja
honum við Jesú Krist út af and-
litsfallinu og skegginu, en hann
var ekki heilagur maður, þvert á
móti var hann mjög mannlegur.
Hann var gáfaðasti maður sem ég
hef kynnst, þekkti allt, vissi allt
og skildi allt. En hann var líka
skemmtilegasti maður sem ég
hefi kynnst, kímnigáfan var jafn-
mikil öðrum gáfum hans. En ekki
gerði hann grín að öðrum og
aldrei man ég að neinn eða neitt
hafi hneykslað hann...
Þessi mannlýsing (og Erlendur
fær reyndar ítarlegri umfjöllun en
flestir aðrir) er vitanlega í lagi -
svo langt sem hún nær. En les-
anda finnst hálfgerð synd að ekki
sé notað tækifærið til að bæta ein-
hverju við það sem við vissum um
góðsemi, kímni og umburðar-
lyndi Erlendar með því að láta
þessa kosti fá rækilega að njóta
sín í upprifjun á uppákomum, til-
svörum eða með öðru móti.
Lesanda finnst líka það gerist
of sjaldan að sögukona pæli ræki-
lega í sjálfri sér og tímanum. Sú
tilætlunarsemi þarf alls ekki að
vera krafa um einhver bersögl-
ismál, hún er blátt áfram sprotin
af söknuði eftir áleitnari, virkari
afstöðu til efniviðarins. Oftar
hefðu þær Inga Laxness og Silja
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 7
mátt nema staðar við fyrirbæri
eins og sjálfsblekkinguna, sem
hver og einn kemur sér upp til að
lifa af og frá greinir í lok bókar-
innar. Eða þá þessa lífsafstöðu
hér sem frá er greint einkar
skemmtilega í einum af upphafs-
köflum bókarinnar:
„Ég hefi aldrei leitað að neinu,
ég hefi alltaf verið leituð uppi!
Nei annars, þetta meina ég ekki.
Ég hef þvert á móti alltaf verið að
leita, mér hefur alltaf fundist
eitthvað bíða mín handan við
næsta horn - just around the
corner- Það kalla ég að leita. Að
hætta aldrei að vonast eftir ein-
hverju óvæntu. Þó maður hafi
upplifað margt er það samt ekki
nóg, það vantar ennþá punktinn
yfir i-ið. Um leið og maður hættir
að bíða er eins og maður deyi.
Við verðum að hanga í því hálm-
strái að við eigum eitthvað eftir,
það hljóti að vera eitthvað eftir.“
ÁB
Inga í hlutverki Nerissu í Kaupmanninum í Feneyjum.
Pórbergur Pórðarson:
Mítt rómantíska æðí
Þetta eru dagbækur, bréf og önnur óbirt
rit Þórbergs frá árunum 1918-1929, eins
konar framhald af Ljóra sálar minnar sem
út kom í fyrra. Hér er kfmni og strákskapur
Þórbergs upp á sitt besta, Hann var einstakur
bréfritari og í bókinni er að finna mörg
skemmtileg sendibréf sem hann skrifaði
vinum sínum á þriðja áratugnum, flest til
Vílmundar Jónssonar landlæknis. Þá eru birt
dagbókarbrot úr hinum frægu orðasöfnunar-
ieiðöngrum Þórbergs og frásögn af fyrstu
utanlandsferð hans þar sem hann dvaldi
fyrst í Englandi en sótti svo alþjóðaþing
guðspekinga í París, Hér eru líka birtir
fyrirlestrar um guðspeki, jafnaðarstefnu,
esperanto og önnur hugðarefní Þórbergs.
Mesta forvitni munu þó eflaust vekja bréf
sem varpa Ijósi á tilurð Bréfs til Láru og þá
ekki síður á hin sterku viðbrögð sem bókin
vakti.
Helgi M. Sigurðsson tók safnið saman,
það er 213 bls., prýtt 50 gömlum Ijósmynd-
um sem margar hverjar hafa ekki birst áður.
Verð: 2.490,-
Mál og menning Ea