Þjóðviljinn - 16.12.1987, Qupperneq 11
Ólöf Pétursdóttir skrifar um unglingabækur
Afsporum og sparískóm
Nú um stundir hafa menn
nokkrar áhyggjur af lestrarvenj-
um barna og unglinga. Þeir böl-
sýnustu eru jafnvel á því að ung-
lingar séu upp til hópa hættir að
lesa. Einkum er myndbanda- og
ljósvakavæðingu kennt um en
einhvern veginn gleymist alltaf
að tala um ábyrgð þeirra höfunda
sem hyggjast skrifa fyrir þessa
aldurshópa. Ég tel víst að komist
unglingar í bækur Eðvarðs Ing-
ólfssonar á fastandi maga hvað
andlegt fóður varðar sé stutt í
iestrarklígjuna. Ofneysla slíkra
fræða getur líka orðið leiður
ávani sem útilokar allt annað.
Eðvarð er hér aðeins nefndur
sem dæmi um framleiðanda letj-
andi lesefnis en hann er síst barn-
anna verstur. Þetta á ekki síður
við bækur annarra höfunda, hef-
ur raunar tíðkast í stórum stíl ára-
tugum saman, en þetta eina víti
til vamaðar verður látið nægja.
Leðurjakkar, spariskór
og nýju fötin keisarans
Hér verður fjallað ofurlítið um
tvær nýútkomnar bækur sem ætl-
aðar eru unglingum. Þær eru
Spor í rétta átt eftir Gunnhildi
Hrólfsdóttur (ísafold) og Leður-
jakkar og spariskór eftir Hrafn-
hildi Valgarðsdóttur (Æskan).
Bókakápurnar em afar svipaðar
að gerð (hönnun?) og sýna ljós-
mynd af krakkahópi að koma úr
sundi eða annarri íþróttaiðkan.
Munurinn á þeim felst einkum í
gylltu verðlaunamerki sem trónir
ofar bókartitli á Leðurjökkum og
spariskóm. Bókin fékk nefnilega
fyrstu verðlaun í samkeppni um
unglingaskáldsögu sem efnt var
til í tilefni barnaárs 1985. Hvað
skyldu hafa borist margar sögur í
þá samkeppni? Frómt frá sagt, sé
þessi saga verðug fyrstu verð-
launa er mikil mildi að hinar skuli
ekki vera birtar. Þarna er einmitt
fetað í fótspor hins ólseiga Eð-
varðs og reynt að dylja mesta
óbragðið með gassagangi að
hætti Auðar Haralds sem er höf-
undur afbragðsgóðrar unglinga-
bókar, Baneitrað samband á
Njálsgötunni. Sú bók var bara svo
miklu meira en glens, þar bjó al-
vara að baki og kom einmitt að
kjarna þess sem getur fyllt ung-
linga lífsfirringu. Nei, í Leður-
jökkum og spariskóm er fjallað
um uppa á unglingsaldri, þ.e.
unglinga eins og foreldra í uppa-
hópi dreymir um. Lýsingar á for-
eldrum eru aftur greinilega
byggðar á hugmyndum foreldra
um sjálfa sig. Svona í alvöru,
hvað er verið að verðlauna?
Spor í rétta átt:
enn er von...
Þó að þessi lesandi væri kom-
inn með stein í lestrarmagann
eftir Leðurjakka og spariskó var
nú lagt til atlögu við næstu bók,
Spor í rétta átt eftir Gunnhildi
Hrólfsdóttur. Minnug ferskrar
reynslu af bókum með unglinga-
ljósmyndum utan á gerði ég mér
ekki háar vonir. Þessi bók hefur
ekki einu sinni verið verðlaunuð!
En viti menn! Ólíkari bækur er
vart hægt að hugsa sér. Þessi bók
ber nafn með rentu. Þetta er ekki
tímamótaverk í heimsbók-
menntunum, en þarna er sögð
þroskasaga unglings sem er meira
en glansmyndin galtóm. Aðrir
sem koma við sögu eru einnig
nokkuð sannferðugir. Foreldr-
arnir eru ekki fulltrúar „sæta liðs-
ins“ sem tröllríður glanstímarit-
unum, unglingarnir eru misjafn-
lega þroskaðir, sumir ráðvilltir,
aðrir sjálfstæðir, rétt eins og
gengur. Þarna er hvorki verið að
plata né predika. Að sönnu spor í
átt til betra horfs í unglingabók-
menntunum. Einna helst mætti
finna að því hvað stelpan sem er í
upphafi bókar óttalegur óviti og
ódó verður á ótrúlega skömmum
tíma meðvituð um vanda foreldra
sinna og lygilega fljót að ráða bót
á honum. Móðirin fékk eiginlega
mestu samúð mína. Mér fannst
höfundur skilja hana eftir nánast
í lausu lofti.
Að lokum: Látið ekki bóka-
kápur plata ykkur. Það er sitt-
hvað, spor og spariskór, þótt á-
sjónan sé svipuð. Ef ég man rétt
var fyrrnefnd bók Auðar Haralds
líka prýdd svona unglingaljós-
mynd en reyndist afbragð ann-
arra bóka um unglinga og for-
eldra þeirra. Ennfremur að bók
getur verið prýðileg þótt hún beri
ekki gullslegið verðlaunamerki
(og öfugt!) Einnig mætti minna
oftar á það að margir unglingar
eru (enn sem komið er) fullfærir
um að lesa „alvöru“bækur og
mörg bókmenntaverk eiga fullt
erindi við þá. Ég held að t.d. Of-
vitinn eftir Þórberg Þórðarson sé
kjörin bók fyrir unglinga og geti
aukið þeim löngun til þess að lesa
góðar bækur.
Ólöf Pétursdóttir
„Bókaverslun Snæbjarnar í Haf narstrætinu
sem góð bókabúð hefur:
- Allar íslenskar jólabækur, notalegt umhverfi og
persónulega þjónustu.“
Stórorð, en sönn. Við í bókaverslun Snæbjarnarerum til þjónustu reiðubúin.
Við vitum hvernig á að velja góða bók
- í næði og notalegu umhverfi - en erum ávallt nærri þegar á þarf að halda með
góð ráð og upplýsingar.
Hjá okkur í Hafnarstrætinu er viðamikið úrval íslenskra bóka, auk þess sem
þær erlendu eru enn á sínum stað.
Félagsmönnum Máls og Menningar er boðinn afsláttur áfélagsbókum.
Við erum þeirrar skoðunar að hlýlegt viðmót
og persónuleg þjónusta geri gæfumuninn í jólaamstrinu.
Hvað meira getur góð bókabúð boðið?
B
Bókaverslun Snæbjamar
Hafnarstræti 4. Sími: 14281 l
Á atburðaríku
strákasumri
Guðmundur Ólafsson
Klukkuþjófurlnn klóki
Vaka Helgafell 1987
Klukkuþjófurinn klóki er
önnur barnabók Guömundar Ól-
afssonar, sem í fyrra hlaut verð-
laun fyrir sögu sína af Emli og
Skunda.
Sögusviðið er lítið pláss við sjó
í nokkurri fortíð: feðurnir eru
oftar en ekki að heiman og mæð-
urnar ráða rikjum og börn eru við
þær kenndar. Ýmsar uppákomur
miður góðar geta orðið á slíkum
stað, en samt erum við stödd ein-
hversstaðar fyrir syndafall í sak-
lausum leik og græskulausu
gamni. Skólanum er slitið með
óvæntri uppákomu og strákarnir
eru frelsi fegnir. Þeir bregða á
ýmsar framkvæmdir og
skemmtun og gengi það allt vel,
ef ekki væri höggormur í Paradís.
Þrjóturinn sem kveikti í kofa-
byggð strákanna og stal klukk-
unni og rændi kópnum frá sér
betri strákum. Er hann náttúr-
iega tekinn í karphúsið með góðri
samstillingu kraftanna. Svo er
haldið misheppnað afmæli og
misheppnuð skemmtun með
braki og brestum. Og svo er kom-
ið haust.
Guðmundur Ólafsson hefur
góða tilfinningu fyrir samtölum
og umhverfi: heimur sögunnar
hefur lit og lögun og lykt. Ein-
hver mundi nú kvarta yfir því að
hér færi reynsluheimur karla,
strákar og þeirra artir yfirgnæfðu
fréttir af kvenstelpum. Ekki dett-
ur okkur í hug að kvarta yfir því:
einhversstaðar verða vondir að
vera.
Tvennt er helst að þessari
sögu: hún verður helst til kyrr-
stæð framantil, og strákar sög-
unnar eru full líkir hver öðrum,
eins þótt höfundur geri sitt til að
sérkenna þá með föstum töktum í
tungutaki. En þegar á heildina er
litið er þetta fjörlega skrifuð bók.
Höfundur sýnir allt að því
leikræna útsjónarsemi þegar
hann þarf að hlaða loftið spennu
eins og í næturkaflanum, þegar
hrekkjusvínið er í gildru veitt og
upp fest. Eða í þeim ærslum sem
skapast í afmælisveislunni góðu
og eftir hana. Það er og geðfellt
að strákamir í plássinu vilja láta
gott af sér leiða í náttúrunnar ríki
(bjarga litlum kópi úr tröllahönd-
um) og er farið með það stef al-
veg væmnislaust.
Grétar Reynisson hefur
teiknað skemmtilega bæði inn í
söguna og utan um hana, og það
er vel til fundið að prenta næt-
urkaflann æsilega með hvítu á
svartan grunn.
ÁB
ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11