Þjóðviljinn - 05.01.1988, Side 2
SPURNINGINn
Hvernig leggst nýja áriö í
Þig?
Halldór Guðmundsson raf-
virkjameistari:
Mjög vel, enn sem komið er að
minnsta kosti, þótt það sé kann-
ski fullsnemmt að segja til um
slíkt.
Árný Árnadóttir nemi:
Bara Ijómandi vel.
Hafliði Maggason sendill:
Mér líst vel á nýja árið. Ég sé
ekkert sem bendir til annars en
að þetta verði gott ár.
Linda Sverrisdóttir altmulig-
manneskja:
Bara vel. Byrjunin lofar að
minnsta kosti góðu.
Magnús Arnarson skrif-
stofumaður:
Ljómandi vel hvað sjálfan mig
snertir, en almennt talað er erfitt
um það að segja. Sjálfsagt fer
það mest eftir framvindunni
næstu daga, hvernig til tekst með
samningsmálin og fleira slíkt.
FRETTIR
Áburðarverksmiðjan
Eldur kæfður
í fæöingu
Rúnar Bjarnason, slökkviliðsstjóri:
Ávallt alvara áferðum þegar eldur
verður laus í Gufunesi. Starfsmenn
brugðust vel og rétt við
Það er alltaf alvara á ferðum
þegar eldur verður laus við
Aburðarverksmiðjuna í Gufu-
nesi. Til allrar hamingju var ekki
um að ræða neinan stóreldsvoða
og starfsmenn verksmiðjunnar
brugðust rétt og vel við og slökktu
eldinn í fæðingu, sagði Rúnar
Bjarnason, slökkviliðsstjóri í
Reykjavík, en um helgina varð
eldur laus í loftstokk í stjórnstöð
sýruhúss I Áburðarverksmiðj-
unni. Allt tiltækt lið var kallað til,
en starfsmenn verksmiðjunnar
höfðu ráðið niðurlögum eldsins
þegar siökkviliðið bar að.
Þetta er í annaö sinn á
skömmum tíma, sem eldur verð-
ur laus í Áburðarverksmiðjunni,
en fyrir skömmu varð skamm-
hlaup í rafmagnstöflu og hlaut
rafvirki sem var að störfum við
töfluna allnokkur brunasár af.
Það er ekki ástæða til að herða
eftirlit við verksmiðjuna vegna
þessara óhappa. Vericsmiðjan er
búin að starfa í um 35 ár og það er
með ólíkindum hve starfsemin
hefur gengið áfallalaust fyrir sig.
í svona starfsemi má alltaf búast
við minniháttar óhöppum, sagði
Rúnar.
-rk
Með ólíkindum hve starfsemin hefur
gengið áfallalaust, segir slökkviliðs-
stjóri um Áburðarverksmiðjuna.
Fiskmarkaður Norðurlands
Farinn að rúlla
Sigurður P. Sigmundsson framkvœmdastjóri: Höfum selt310 tonn
fyrir 10,1 milljón króna. Aðalseljendur eru línubátar á Eyjafjarðar-
svæði. Mest þorskur og óslægður. Meðalverðið um 35 krónur kílóið
Það er óhætt að segja að nú sé
ísinn brotinn fyrir alvöru og
markaðurinn farinn að rúlla. Frá
því í haust og til dagsins í dag
höfum við selt 310 tonn af fiski
fyrir 10,1 milljón króna, segir
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs
Norðurlands í samtali við Þjóð-
viljann.
Að sögn Sigurðar hefur mark-
aðurinn svo til eingöngu haft
þorsk til sölu, og kemur það til af
því að helstu seljendur á mark-
Útivist
Landnám Ingólfs
lagt undir fót
Með þessari ferðasyrpu viljum
við brjóta dálítið upp þetta
hefðbundna form á styttri ferð-
unum okkar, sagði Kristján M.
Baldursson, framkvæmdastjóri
Útivistar, en á árinu gengst fé-
lagið fyrir strandgöngu í land-
námi Ingólfs, og verða ferðirnar
alls 22.
Fyrsta ferðin var farin á sunnu-
daginn var, og gengið eftir Hlíð-
arhúsastíg - Vesturgötunni
gömlu - út í Örfirisey, og þaðan
út á Seltjarnarnes. Að sögn Krist-
jáns var þátttakan geysigóð þrátt
fyrir kuldann, en hátt í 80 manns
hófu strandgönguna.
í gærkvöldi var síðan gengið
um Suðurnes á Seltjarnarnesi og
með ströndinni inn í Skerjafjörð.
Þriðja ferðin er á dagskrá'17.
þessa mánaðar, og verður gengið
fyrir Kársnes, inn Arnarnesvog
og inn að Gálgahrauni.
Strandgöngusyrpu Útivistar
lýkur í október austur við Ölfus-
árósa. Gestir verða jafnan með í
för og fræða um það sem fyrir
augu ber. Brottför er frá bensín-
sölu BSÍ eins og jafnan þegar Úti-
vist á í hlut.
HS
aðnum eru línubátar á Eyjafjarð-
arsvæðinu. Af þessum 310 tonn-
um er þorskurinn 270 tonn og 21
tonn hefur verið selt af ufsa. Aðr-
ar fisktegundir hafa lítið sem ekk-
ert komið í sölu. Meðalverðið á
óslægðum þorski er um 35 krónur
hvert kfló og það litla sem verið
hefur af slægðum þorski hefur
hlaupið á 40 krónum meðalverð-
ið.
Hingað til hefur línufiskurinn
fyrir norðan verið stór en orma-
mikill og því tafsamur í vinnslu.
Vegna lítils afla hjá togurum
stærstu útgerðarfyrirtækjanna á
Norðurlandi hafa þau í æ ríkari
mæli keypt fisk af fiskmarkaðin-
um til þess að geta haldið uppi
dagvinnu í fiskvinnslunni. Þá hef-
ur hin eindæma góða tíð í allan
vetur gert það að verkum að hægt
hefur verið að keyra fisk út um
allt Norðurland.
„Eftir heldur dapra byrjun í
haust hefur dæmið heldur betur
snúist við og nú um þessi áramót
er mikill hugur í okkur hér fyrir
norðan. Það má því búast við enn
meiri umsvifum hjá okkur þegar
hávertíðin gengur í garð með
nýju ári og hækkandi sól,“ sagði
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri á Akureyri.
grh
Húsnœðislánakerfið
66% innan
við þrítugt
Stór hópur sœkir um
vegna greiðsluerfiðleika
í nýlegri tölfræðilegri úttekt
upplýsingavinnslu Húsnæðis-
stofnunar, hvað varðar aldurs-
skiptingu og eignarstöðu um-
sækjenda í „nýja lánakerfinu“,
kemur m.a. fram að 63-66%
þeirra sem eru að sækja um lán
vegna síns fyrsta húsnæðis er
innan við þrítugt. Um fjórðungur
umsækjenda á þessum aldri á
húsnæði fyrir. Hins vegar er um
helmingur þeirra sem húsnæði
eiga fyrir orðnir 35 ára eða eldri.
f úttektinni kemur einnig fram
að 42% umsækjenda er yngri en
30 ára, önnur 42% eru 30-44 ára,
en aðeins 16% umsækjenda eru
45 ára eða eldri. Úttektin varðar
12201 umsókn frá tímabilinu 1.
september 1986 til 15. nóvember
1987. Áberandi er í þessari úttekt
hversu stór hluti þeirra sem sækja
um lán vegna greiðsluerfiðleika
er á aldrinum 30-39 ára, eða 45%
þeirra.
Athyglisvert er í þessari úttekt,
að flestir umsækjendur óska eftir
láni til bygginga í Reykjavík eða
47.9%. Til dæmis búa 5.6% um-
sækjenda á Vesturlandi, en að-
eins 4.3% þeirra óska eftir að
byggja þar.
-ns.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. janúar 1988