Þjóðviljinn - 05.01.1988, Qupperneq 3
FRETTIR
Borgaryfirvöld
Framkvæmdaleysi og
seinagangur
Borgarráð forðast að fjalla um tillögu Sigurjóns Péturssonar.
Sigurjón: Verið er að hlífa ákveðnum aðila. Borgaryfirvöld
áhugalaus umframkvœmdir á tillögum sem lagðar hafa verið
fram afminnihlutanum og samþykktar í borgarstjórn
Eg sé ekki aðra skýringu á þess-
um seinagangi en þá að verið
sé að hlífa þessum ákveðna aðila,
sagði Sigurjón Pétursson borg-
arfulltrúi Alþýðubandalagsins,
en í júlí síðasta sumar lagði Sigur-
jón fram tillögu þess efnis að
byggingaraðili við Síðumúla í
Reykjavík yrði iátinn skiia aftur
lóð sem hann tók í sína notkun
undir bflastæði þrátt fyrir að
skipulagsnefnd hefði hafnað
beiðni hans um lóðina. Tillaga
Sigurjóns hefur enn ekki verið
tekin til afgreiðslu þrátt fyrir að 6
mánuðir séu liðnir frá því að hún
var lögð fram.
í tillögu Sigurjóns er farið fram
á það að byggingaraðilinn skili
lóðinni aftur í því ástandi sem
hann fékk hana og geri kjallara
húss síns að bílastæðum eins og
hann hafði upphaflega ráðgert.
Sigurjón sagði að hann hefði ítr-
ekað rekið á eftir því í borgarráði
að tillagan yrði tekin til umfjöll-
unar, en enn sem komið er hafi
hún ekki náð lengra en inná borð
til borgarverkfræðings til um-
sagnar.
Sigurjón sagði jafnframt að
mikil bið hafi orðið á því að tvær
af samþykktum tillögum hans í
borgarstjórn hafi komið til fram-
kvæmda, en önnur þeirra hafi
verið samþykkt í júlí og hin í sept-
ember sl. Sú fyrri hljóðaði uppá
það að settar yrðu umferðar-
grindur við enda göngu- og hjól-
astíga þar sem akbrautir tækju
við til þess að börn og unglingar
færu sér síður að voða. Hin síðari
var þess efnis að öll undirgöng í
borginni yrðu upplýst og þrifin
reglulega, en að sögn Sigurjóns
var enn ekkert farið að gera í
þeim efnum í borginni. „Þarna er
hreinlega um áhugaleysi borgar-
yfirvalda á þessum málum að
ræða,“ sagði Sigurjón.
-K. ÓI.
Erna Guðlaug Ólafsdóttir
Holtavörðuheiði
Kona beið
bana
Rúmlega þrítug kona, Erna
Guðlaug Ólafsdóttir til heimilis
að Langholtsvegi 100 beið bana í
umferðarslysi á Hoitavörðuheiði
daginn fyrir gamlársdag.
Slysið varð um kvöldmatar-
leytið rétt hjá Brú í Hrútafirði.
Það varð með þeim hætti að Vol-
vobíll sem í voru hin látna ásamt
eiginmanni sínum og tveim börn-
um, rann til í mikilli hálku sem
var á veginum, með þeim afleið-
ingum að pallbíll sem kom aðvíf-
andi á leið suður, skall á Volvo-
bílnum. Engin teljandi meiðsl
urðu á ökumanni pallbílsins né
öðrum farþegum Volvobílsins.
grh
Umferðin
Banaslys
Banaslys varð í umferðinni í
gærmorgun um áttaleytið, þegar
bifreið var ekið á ljósastaur á
Suðurlandsbraut. Fernt var í
bflnum en farþegi sem sat í fram-
sæti, lést áður en komið var með
hann í sjúkrahús. Ökumaður
hlaut höfuðáverka, auk innvortis
meiðsla. Farþegar í aftursætum
slösuðust einnig, með höfuð-
áverka og handleggsbrots.
Ekki er vitað um orsök slyss-
ins, en lögreglan telur að bifreið-
inni hafi ekki verið ekið hratt á
staurinn en hitt hann aftur á móti
mjög illa, með fyrrgreindum af-
leiðingum. Sá sem lést var á
sjötugsaldri. grh
ÞÓtt margir kvarti undan því að nýja árið taki kuldalega á móti landsmönnum, þá kunni þessi frú gott svar við kuldanum þegar hún brá sér í
heita lækinn í Nauthólsvíkinni í gær. Mynd - Sig.
Vestfirðir
Veður aftrar viðræðum
Pétur Sigurðsson: Veðrið seturstrik í reikninginn. Viðrœður undirnefnda á miðvikudag.
Skera úr um samningsvilja atvinnurekenda
Samningaviðræður Alþýðu- vinnurekendur vestra hefjast á taka til starfa. -Veðriðogsvohitt slaginn enn, hefur valdið því að
sambands Vestfjarða við at- miðvikudag, er undirnefndir að menn eru ekki alveg tilbúnir í viðræður um nýja kjarasamn-
inga hafa dregist, sagði Pétur Sig-
urðsson, formaður Alþýðusam-
bands Vestfjarða.
Pétur sagði að viðræður undir-
nefndanna myndu skera úr um
hvort áframhald yrði á samninga-
virðræðum og hvort samkomul-
agsvilji væri fyrir hendi. - Ef svo
reynist ekki vera þurfum við að
endurskoða baráttuaðferðirnar.
- Ég trúi ekki öðru en að at-
vinnurekendur hér vestra séu
einlægir í afstöðu sinni og umhug-
að um að ganga til samninga við
okkur. Þeir gera sér grein fyrir að
laun fiskvinnslufólks verður að
leiðrétta og ekki verður lengur
gengið á rétt þessa fólks eins og
gert hefur verið í síðustu samn-
ingum, sagði Pétur, er hann var
spurður hvort hann væri trúaður
á að vestfirskir atvinnurekendur
væru reiðubúnir að sýna þá
dirfsku að semja í blóra við Vinn-
uveitendasambandið. -rk
A ustur-Skaftafellssýsla
Fyrsta héraðsnefndin
Sex sveitarfélög ísýslunni standa að héraðsnefndinni. Tekur til starfa um mánaða-
mótin og mun þá heita Sýslunefnd A-Skaftafellssýslu.
Fyrsta héraðsnefndin, svo vitað
sé, var stofnuð 11. þessa mán-
aðar af sex sveitarfélögum í
Austur-Skaftafellssýslu sam-
kvæmt nýju sveitarstjórnarlög-
unum sem samþykkt voru sem lög
frá Alþingi í fyrra. Héraðsnefn-
din tekur til starfa frá og með
næstu mánaðamótum og mun yf-
irtaka flest mál Sýslunefndar
Austur-Skaftafellssýslu.
Að sögn Hallgríms Guð-
mundssonar, sveitarstjóra
Hafnahrepps og verðandi fram-
kvæmdastjóra héraðsnefndar-
innar, verður nefndin skipuð ein-
um fulltrúa frá hverju sveitarfé-
lagi nema Hafnahreppi, sem mun
eiga tvo fulltrúa. Hallgrímur
sagði að samvinnan milli sveitar-
félaganna hefði verið mjög góð
um stofnsamning héraðsnefndar-
innar, en samkvæmt honum skal
héraðsnefndin heita Sýslunefnd
Austur-Skaftafellssýslu.
Verkefni hinnar nýju sýslu-
nefndar verður að taka yfir verk-
efni þau sem eldri sýslunefnd
hafði með höndum, svo sem
sýsluskjalasafn, byggðasafn,
Skjólgarð og útgáfu
Skaftfellings. Jafnframt mun
sýslunefndin taka við yfirstjórn
sameiginlegra verkefna sveitarf-
élaganna. Þau eru meðal annars
Brunavarnafélag sýslunnar,
byggingar- og heilbrigðisfulltrúa,
Tónskóla sýslunnar og heilsu-
gæslustöð. _ grh
Kópasker
Beið bana
í eldsvoða
Rétt eftir hádegi á nýársdag
kviknaði í íbúðarhúsinu Bakka á
Kópaskeri. Varð þar mikill eldur
og stóð slökkvistarf fram á kvöld.
Einn maður bjó í húsinu og lést
hann af völdum brunans. Hann
hét Árni Jónsson og var á sjötugs-
aldri, ókvæntur og barnlaus. Um
eldsupptök er ekki vitað en málið
er í rannsókn. - grh
Bláfjöll
Árskort
lækka
Ný gjaldskrá Bláfjalla er komin
og vekur athygli að árskortin
lækka í verði, kosta nú 5.000
krónur, en kostuðu áður 5.700
krónur.
Það er Bláfjallanefnd og skíða-
deildir Ármanns, Breiðabliks og
Fram sem ákveða gjaldskrána og
eflaust má kenna snjóleysinu í
vetur um lækkunina á árskortun-
um að einhverju leyti. -ns.
Þriðjudagur 5. janúar 1988 |ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3