Þjóðviljinn - 07.01.1988, Blaðsíða 3
Suðurnes
Mengun
í gnmn-
vatni
Utanríkisráðuneytið:
Viðamikil úttektá
grunnvatni svœðisins
í bígerð
- Niðurstöður þessara kann-
ana benda til þess að vatnsbói
okkar séu ekki í mjög mikilli
hættu; annað þeirra er reyndar í
600 metra fjarlægð frá þeim stað
er olíulekinn varð, en í láréttri
stefnu miðað við straumstefnu
vatnsins, og því er mengunar-
hætta ekki talin mikil, sagði Vil-
hjálmur Ketilsson, bæjarstjóri í
Keflavík: Hluti af svæðinu í
Njarðvík er aftur á móti í þessari
straumstefnu, og því er hættan
meiri þar.
Við athuganir á borstað og
rannsóknir á borkjarna kom í ljós
að olía hefur seytlað niður í
grunnvatn.
í fréttatilkynningu frá utan-
rfkisráðuneytinu vegna þessa
máls segir að Jón Jónsson jarð-
fræðingur hafi verið viðstaddur
rannsóknaborunina sem fulltrúi
sérstaks vinnuhóps sem varnarm-
álaskrifstofa ráðuneytisins setti á
laggirnar í nóvember til að sam-
ræma aðgerðir vegna olíulekans.
Jón skilaði lokaskýrslu um bor-
unina 30. desember og tekur
fram að ólíklegt sé að vatnsból
Keflvíkinga og Njarðvíkinga séu
„í yfirvofandi hættu“.
Þá var Orkustofnun fengin til
að gera skýrslu byggða á fyrirlig-
gjandi upplýsingum. Þessi
skýrsla lá fyrir hinn 5. janúar, og
eru niðurstöður hennar sam-
hljóða áliti Jóns; hvorki straumur
né stefna grunnvatns gefí tilefni
til að óttast að neysluvatn „meng-
ist skyndilega".
Á Þorláksmessu komu fulltrú-
ar hersins og sveitarfélaganna
tveggja saman til fundar og lögðu
grunninn að neyðaráætlun um
samtengingu vatnsveitna. í gær
funduðu bæjarstjórar Keflavíkur
og Njarðvíkur svo með starfs-
mönnum varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins um olíul-
ekann. í kjölfar þess fundar var
fréttatilkynning ráðuneytisins
gefin út.
Niðurlag hennar er svofellt:
„Vegna þeirrar mengunarhættu
sem fylgir mikilli starfsemi á
varnarsvæðinu á vegum varnarl-
iðsins, flugfélaga o.fl., er nú í
undirbúningi viðamikil úttekt á
grunnvatni á svæðinu."
HS
FRETT1R
Fiskveiðistefnan
Leikf léttan gengur upp
Sjávarútvegsráðherra tryggirsér meirihluta með því að gefa
eftir 10 banndaga. Annarri umrœðu lauk ígær. Atkvœða-
greiðsla í dag. Möguleiki á að tillögurfrá Matthíasi Bjarna-
syni fari í gegn. Þriðja umræða í dag
L sonar, sjávarútvegsráðherra, í
kvótamálinu, virðist vera að
ganga upp. Umræðan um fisk-
veiðistefnuna hefur mest öll snú-
ist um smábátaeigendur en aðrir
þættir kvótafrumvarpsins
gleymst. Með því að gefa eftir 10
banndaga í gær, þannig að þeir
verða 70 í stað 80, einsog meiri-
hluti sjávarútvegsnefndar neðri
deildar hafði lagt til, virðist Hall-
dór hafa tryggt frumvarpinu
meirihluta í neðri deild.
Það mun hafa verið Árni
Gunnarsson sem var höfundur
þessarar málamiðlunar, en hann
hafði lýst yfír andstöðu við frum-
varpið ef ekki væri komið til móts
við kröftir smábátaeigenda. Til-
laga Árna sem meirihluti sjávar-
útvegsnefndar deildarinnar skrif-
ar einnig upp á auk Matthíasar
Bjarnasonar, Jóns Sæmundar
Sigurjónssonar, Kristins Péturs-
sonar, sem er varamaður Sverris
Hermannssonar og framsóknar-
mannanna Ólafs Þ. Þórðarsonar
og Guðmundar G. Þórarins-
sonar, fækkar banndögum í des-
ember um 10 daga, en auk þess
liggur fyrir samkomulag við sjáv-
arútvegsráðherra um að aflavið-
miðun fyrir nýja smábáta aukist
úr 55 tonnum í 60 tonn, en sú
viðmiðun er ákvörðuð í reglu-
gerð.
Önnur umræða um kvótafrum-
varpið hófst klukkan tíu í gær-
morgun og stóð fram undir
kvöldmat, að henni lauk, en at-
kvæðagreiðslu um frumvarpið
Reiknistofu bankanna. Móðurtölvan var tekin í gagnið í nóvember 1986, en hún verður fljótlega stækkuð um
helming. Mynd: Sig.
Reiknistofa bankanna
Annir eftir áramót
Eiríkur Guðjónsson, Búnaðarbanka: Man vart eftir öðru eins álagi.
Þórður B. Sigurðsson, forstjóri Reiknistofu: Móðurtölvan stœkkuð
um páska
Eg man ekki eftir öðru eins álagi
í bankakerfinu síðan mynt-
breytingin átti sér stað og eins að
bankamannaverkfallinu loknu
árið 1981, sagði Eiríkur Guðjóns-
son, starfsmaður Búnaðarbank-
ans, um fyrsta opnunardaginn á
nýju ári. En það er athyglisvert
að þrátt fyrir þennan mikla álags-
dag skiluðu allir listar sér á hár-
réttum tíma daginn eftir.
- Búnaður Reiknistofu bank-
anna hefur stækkað jafnt og þétt,
en það geta alltaf komið fyrir
smáslys þegar álagið er mest. Við
stöndum þó alls ekki illa þegar
tillit er tekið til þess að við höfum
Félagsheimilið í Hnífsdal
Fór undir hamarinn
ísafjarðarbœr keyptihúsið á 5,1 milljón króna. Ríkissjóður
óskaði eftir uppboðinu
Bæjarsjóður ísafjarðar keypti
Félagsheimilið í Hnífsdal á
nauðungaruppboði fyrir
skömmu á 5,1 milljón króna. Það
var ríkissjóður sem óskaði og
gekk eftir að uppboðið var haldið
vegna gjaldfallinnar skuldar upp
á 1 milljón króna af 2,5 milljón
króna skuldabréfi hans.
Að sögn Haraldar L. Haralds-
sonar bæjarstjóra á ísafirði,
finnst mörgum fsfírðingnum
þessi harka alveg furðuleg í Ijósi
þess hve skuldin við hann var lítil.
Að vísu skuldar Félagsheimilið
ríkinu vangoldinn söluskatt frá
árinu 1986 upp á 120 þúsund
krónur, en sú skuld kom upp-
boðskröfunni ekkert við og hafði
engin áhrif á hörku ríkissjóðs að
láta húsið undir hamarinn.
Haraldur sagði að ekkert væri
ákveðið hvað gert yrði við húsið í
framtíðinni, nema hvað tryggt
væri að þeir aðilar sem hefðu haft
afnot af því, héldu þeim áfram.
Þó væri ljóst að húsið verður ekki
rekið undir ákvæðum laga um fé-
lagsheimili, eins og gert hefur
verið frá því það var tekið í notk-
un fyrir tæpum tuttugu árum eða
svo.
Áður en uppboðið fór fram átti
bæjarsjóður 50% af húsinu en
hinn helminginn áttu Kvenfé-
lagið Hvöt, Verkalýðsfélagið
Baldur, íþróttafélagið Reynir og
Slysavarnadeildin í Hnífsdal.
„Með því að kaupa húsið vild-
um við tryggja að hér á ísafirði
væri þó eitt hús sem getur tekið
allt að 400 manns, enda ekkert
annað sambærilegt hús hér að
finna,“ sagði Haraldur L. Har-
aldsson. grh
var frestað þar til í dag. Flestir
ræðumenn deildu hart á smábát-
aákvæðin, þeirra á meðal Krist-
inn Pétursson, en með því að ger-
ast meðflutningsmaður á
breytingartillögunni mun hann
sáttur við frumvarpið. Sömu sögu
er að segja um Árna Gunnarsson
og Jón Sæmund. Sighvatur
Björgvinsson hefur hinsvegar
enn ýmislegt við frumvarpið að
athuga.
Við atkvæðagreiðsluna í dag
kemur í ljós hvort einhverjar af
breytingartillögum Matthíasar
Bjarnasonar fari í gegn, en ljóst
er að breytingartillögur stjórnar-
andstöðunnar munu ekki fá
hljómgrunn hjá stjórnarsinnum.
í gær lýstu ýmsir stjórnarsinnar
yfir stuðningi sínum við tillögur
Matthíasar, þar á meðal Sighvat-
ur Björgvinsson og Pálmi Jóns-
son. Kristinn Pétursson tók einn-
ig undir ýmsar af tillögum Matt-
híasar.
Einna mestan hljómgrunn
virðist tillaga Matthíasar um að
Alþingi kjósi þrjá menn í sér-
staka samráðsnefnd sem fylgist
með framkvæmd löggjafarinnar
fá. Þá er talinn möguleiki á að
tillaga Matthíasar um að skip sem
komi í stað fiskiskipa sem fórust á
árunum 1983 og 1984 fái kvóta,
fari einnig í gegn.
Þriðja umræða hefst strax að
lokinni atkvæðagreiðslu í dag.
-Sáf
gengið í gegnum mun styttra þró-
unarskeið í þessum efnum en
nágrannaþjóðirnar, sagði Eirík-
ur: Afgreiðslukerfið, það sem
snýr að viðskiptavinunum, er
niðri langt innan við 5% af opn-
unartíma bankanna, en þegar
þannig verður sambandslaust við
Reiknistofuna taka við önnur
prógrömm. Eins eru gjaldkera-
vélarnar sjálfar með eigið minni
og vinnslugetu, sagði Eiríkur.
Að sögn Þórðar B. Sigurðs-
sonar, forstjóra Reiknistofu
bankanna, var móðurtölva stofn-
unarinnar tekin í gagnið í nóvem-
ber 1986, og hefur ekki verið
stækkuð síðan. Um páskaleytið á
þessu ári er von á helmingsstækk-
un; minnið vex um helming en
hraðinn um 60%.
Mánudagar og mánaðamót eru
álagstopparnir í bankakerfinu.
Sægur gíróseðla er jafnan
greiddur um mánaðamót og eins
eru laun lögð inn á reikninga. Að
sögn Eiríks er álagið 50% til 60%
meira fyrstu tvo til þrjá dagana
eftir mánaðamót en ella.
- Hvergi í heiminum er notað
minna af seðlum en hérna, sagði
Eiríkur, og tók sem dæmi um um-
fang tékkaviðskipta að 145 þús-
und slíkir fóru í gegnum kerfið
einn annadaginn í desember. HS
Kjarvalssafn
Úthlutun
verkefnisins
gagnrýnd
Arkitektar óánægðir með
að ekki hafi verið efnt til
samkeppni um hönnun
Kjarvalssafns
Félögum í arktektafélaginu
þykir almennt mjög miður eð
ekki skuli hafa verið efnt til sam-
keppni um húsið, sagði Guð-
laugur Gauti Jónsson formaður
Arkitektaféiagsins um ákvörðun
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
Menningarmálanefnd Reykjavík-
urborgar og borgarráðs þess efnis
að fela Guðmundi Jónssyni arki-
tekt að hanna Kjarvalssafn sem
fyrirhugað er að reisa á Mikla-
túni, í stað þess að efna til sam-
keppni um hönnunina eins og
minnihlutinn hafði gert tillögu
um.
Guðlaugur Gauti sagði að
þessi yfirlýsing væri ekki van-
traust á Guðmund en það væri
mikill munur á því að fá eina til-
lögu eða geta valið úr 30.
Kristín Á. Ólafsdóttir fulltrúi
Alþýðubandalagsins í Menning-
armálanefnd lagði fram tillögu
um að efnt yrði til samkeppni um
hönnun hússins, en í bókun með
tillögunni segir m.a.:
„Opin samkeppni eykur líkur á
á því að fram komi góðar hug-
myndir auk þess sem tilefnið er
kjörið til þess að ýta undir húsa-
gerðarlistina.“
Kristín sagði að samkeppni
hefði kostað borgina öðru hvoru
megin við 2 miljónir. Stærð húss-
ins verður á bilinu 600-700 ferm-
etrar að grunnfleti. _ K_ól.
Fimmtudagur 7. janúar 1988jÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3