Þjóðviljinn - 07.01.1988, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
Amór Guðjohnsen
íþróttamaður ársins 1987
„Vel að titlinum kominn“
segja íþróttafréttamenn
„Þetta er stærsta viðurkenning
sem mér hefur hlotnast því ís-
lendingar eiga marga snjalla
íþróttamenn. Vonast ég tii að
standa undir þessari nafnbót“
sagði Arnór Guðjohnsen þegar
hann var kjörinn íþróttamaður
ársins af íþróttafréttamönnum á
Hótel Loftleiðum í gærkveldi.
Flestir helstu áhrifamenn í íþrótt-
ahreyfingunni á íslandi voru þar
saman komnir ásamt mörgum af
okkar snjöllustu íþróttagörpum.
Fjölmargir voru tilnefndir og
mjög erfitt að velja enda árangur
íslendinga á árinu ákaflega góð-
ur.
Útnefningin
Það mátti sjá hvern kappann af
öðrum stíga upp á sviðið í gær
þegar taldir voru upp þeir ellefu
efstu er komu til greina. Tíunduð
voru helstu afrek hvers og eins og
var það greinilegt að erfitt gæti
orðið að velja aðeins einn. Þegar
nafn Arnórs var nefnt urðu þó
flestir sammála um að hann ætti
þennan titil fyllilega skilinn. Af-
henti Skúli Unnar Sveinsson, for-
maður Samtaka íþróttafrétta-
manna, honum hinn glæsilega
bikar og Veltir hf. afhenti einnig
bikar og bauð honum til keppni
um titilinn íþróttamaður Norður-
landa sem fram fer í Svíþjóð,
honum að kostnaðarlausu.
Með einkaþotu
Það var í mörgu að snúast hjá
samtökum íþróttafréttamanna í
gær. Þegar úrslitin loksins komu í
ljós var skammur tími til stefnu.
Reyndist þá Verslunarmiðstöðin
Kringlan og Almenna Bókafé-
lagið, sem gaf leikmönnum einn-
ig bækur, vel. Erfitt reyndist að fá
Arnór lausan frá liði sínu, Ander-
lect, en hafðist á síðustu stundu
því hann kom ásamt konu sinni
Ólöfu Einarsdóttur með síðasta
flugi til landsins í gær í boði Flug-
leiða. Eftir athöfnina fór Arnór
síðan með einkaþotu Höldar sf. á
Akureyri, sem beið á flugvellin-
um eftir þeim.
Góður árangur
Arnór hefur staðið sig frábær-
lega á árinu og er vel að þessu
kjöri kominn. Hann var aðeins 16
ára gamall þegar hann skrifaði
undir samning við Lokeren í
Belgíu og fór síðan þaðan til stór-
liðsins Anderlect þar sem hann
hefur verið síðan. í fyrra var hann
kosinn Knattspyrnumaður ársins
í Belgíu og varð einnig marka-
hæstur í Belgíu með 19 mörk
ásamt því að verða belgískur
meistari með liði sínu. Einnig var
hann kosinn besti leikmaður í
Belgíu af virtu knattspyrnublaði
þar. Hann hefur sýnt og sannað í
landsleikjum hér heima og er-
lendis í sumar að hann er einn af
okkar albestu knattspyrnu-
mönnum og driffjöðurin í liðinu.
Eins og sjá má af þessari upptaln-
ingu er ljóst að gengi Arnórs á
síðasta ári er mjög gott enda var
hann vel að kjörinu kominn.
Stigafjöldi
Kjörið fer þannig fram að hver
fjölmiðill skilar inn miða með
nöfnum 10 íþróttamanna og gef-
ur hverjum stig. Þeim besta eru
gefin 10 stig, þeim næstbesta 9 og
síðan koll af kolli. Síðan eru stig-
in lögð saman og sá stigahæsti
hlýtur titilinn íþróttamaður árs-
ins.
Samtök íþrótta-
fréttamanna
Það var 14. febrúar 1956 að
samtök íþróttafréttamanna voru
stofnuð af þeim Atla Steinarsyni,
Frímanni Helgasyni, Halli Sím-
onarsyni og Sigurði Sigurðssyni.
Aðalmarkið samtakanna var að
standa að þessu kjöri og var bik-
arinn hafður allveglegur eins og
sjá má. Óhætt er að fullyrða að
íþróttamenn landsins telja þetta
einn mesta heiður sem þeir hljóta
því það er úr mjög fræknum hópi
að velja.
„Stefni suður
á bóginn“
„Ég hef það mjög gott í Belgíu
enda búinn að vera í landinu í tíu
ár,“ sagði Arnór í stuttu spjalli
eftir afhendinguna. „Þó hefði ég
ekkert á móti því að breyta til
síðar og vildi helst komast
eitthvað suður á bóginn. Annars
förum við til Frakklands fljótlega
til æfinga og síðan byrja leikimir
alveg á fullu 24. janúar," sagði
Arnór að lokum áður en hann
lagði af stað út í þotuna sem beið
hans. Það má því gera ráð fýrir
því, að frá þeim tíma byrji frétt-
irnar að streyma og Arnór auki
hróður sinn enn meir.
-ste
íþróttamenn ársins
fró upphafi
1956 ....VilhjálmurEinarsson
1957 ....VilhjálmurEinarsson
1958 ....VilhjálmurEinarsson
1959 .....Valbjörn Þorláksson
1960 ....VilhjálmurEinarsson
1961 ....VilhjálmurEinarsson
1962 ....Guðmundur Gíslason
1963 .........Jón Þ.Ólafsson
1964 .Sigríður Sigurðardóttir
1965 .....Valbjörn Þorláksson
1966 ........Kolbeinn Pálsson
1967 Guðmundur Hermannsson
1968 ....................Geir Hallsteinsson
1969 ....Guðmundur Gíslason
1970 ...Erlendur Valdimarsson
1971 .........Hjalti Einarsson
1972 ...GuðjónGuðmundsson
1973 ....................Guðni Kjartansson
1974 ..................Ásgeir Sigurvinsson
1975 .....Jóhannes Eðvaldsson
1976 ..................Hreinn Halldórsson
1977 ..................Hreinn Halldórsson
1978 ....................Skúli Óskarsson
1979 ..................Hreinn Halldórsson
1980 ...................Skúli Óskarsson
1981 ......Jón Páll Sigmarsson
1982 ..........Óskar Jakobsson
1983 ...................Einar Vilhjálmsson
1984 ..................Ásgeir Sigurvinsson
1985 ...................Einar Vilhjálmsson
1986 ..Eðvarð Þór Eðvarðsson
1987 ...................Arnór Guðjohnsen
Arnór Guðjohnsen hampar verðlaunagripnum eftirsótta. Mynd: E.ÓI.
Erfitt að velja
í kjörinu í gærkvöldi voru
margir kallaðir en aðeins einn út-
nefndur. Arnór Guðjohnsen var
kallaður upp ásamt tíu öðrum
íþróttamönnum sem allir hefðu
verið vel að því komnir að vera
útnefndir íþróttamaður ársins.
Hinir tíu voru:
Alfreð Gíslason handknatt-
leiksmaður. Alfreð er nú
atvinnumaður með Essen í
Vestur-Þýskalandi. Hann hefur
verið það um nokkurt skeið og
tvisvar orðið þýskur meistari með
félaginu. Alfreð hefur einnig
leikið með íslenska landsliðinu.
Bjarni Friðriksson júdómað-
ur. Bjarni er tvímælalaust okkar
allra fremsti júdómaður. Bjarni
stóð sig frábærlega vel á síðasta
ári þrátt fyrir að hafa verið frá
æfingum og keppni í um þrjá
mánuði.
Eðvarð Þór Eðvarðsson sund-
maður. Eðvarð Þór var kjörinn
íþróttamaður ársins 1986. Hann
þakkaði fyrir sig á þann hátt sem
við hefðum helst kosið og bætti
árangur sinn verulega þann tíma
sem hann bar sæmdarheitið
íþróttamaður ársins.
Einar Vilhjálmsson spjótkast-
ari. Einar þarf ekki að kynna.
Hann hefur um nokkurt skeið
verið í röð fremstu spjótkastara
heims. Hann vann það eftir-
minnilega afrek á árinu að setja
Norðurlandamet á Landsmótinu
á Húsavík er hann þeytti spjótinu
82.96 metra.
Haukur Gunnarsson hlaupari.
Haukur, sem er fatlaður, er með-
al fremstu spretthlaupara í sínum
flokki í heiminum. Hann vann
það afrek á árinu að setja heims-
met í 100 metra hlaupi er hann
hljóp vegalengdina á 12.8 sek-
úndum.
Kristján Arason handknatt-
leiksmaður. Hann leikur nú með
vestur-þýska stórliðinu Gum-
mersbach. Kristján er einnig einn
af máttarstólpum íslenska lands-
liðsins í handknattleik og árangur
þess þarf vart að tíunda hér.
Kristján Sigmundsson hand-
knattleiksmaður. Kristján er
markvörður á heimsmælikvarða.
Hann átti stóran þátt í því að lið
hans, Víkingur, komst í 8 liða úr-
slit Évrópukeppninnar á síðasta
ári.
Pétur Ormslev knattspyrnu-
maður. Pétur var í haust kjörinn
besti leikmaður íslandsmótsins í
knattspyrnu. Hann hefur leikið
mjög vel á síðasta ári og leiddi lið
sitt, Fram, til margra glæstra
sigra. Pétur var markahæsti leik-
maður íslandsmótsins f knatt-
spyrnu 1987.
Úlfar Jónsson golfleikari. Úlfar
er einn af okkar efnilegustu
fþróttamönnum. Hann er fyrsti
Islendingurinn til þess að ná +1 í
forgjöf í golfi. Hann náði þeim
árangri í sumar að verja íslands-
meistaratitil sinn með miklum
yfirburðum.
Þorgils Óttar Mathiesen hand-
knattleiksmaður. Þorgils Óttar er
fyrirliði landsliðsins okkar sem
náð hefur frábærum árangri eins
og allir vita. Hann er einnig fyrir-
liði FH-liðsins sem nú trónir á
toppi 1. deildarinnar í handknatt-
leik.
-ih
Fimmtudagur 7. janúar 1988 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15