Þjóðviljinn - 13.01.1988, Page 9
MENNING
Ponni mætir á planið og kvenþjóðin fær í hnén. mynd-sig.
Leiklist
„ Voða gaman og vandræðalítið“
Leikfélag Reykjavíkur sýnir Síldin er komin
Það ertil teiknimynd um litla
bláa kalla sem heita Strump-
ar, eða eitthvað í þá áttina.
Þeir búa í Strumpalandi þar
sem þeir syngja og dansa all-
an guðslangan daginn, - við
vinnu sína, því þeir eru með
afbrigðum vinnusamir. Þeir
lenda að vísu oft í hinum ýmsu
erfiðleikum og verstu málum,
en öll vandræði leysa þeir
með léttum leik og: - þeir eru
alltaf hamingjusamir.
Sfldarplan þeirra Iðunnar og
Kristínar Steinsdætra minnir svo
ekki verður um villst á Strumpa-
land. Þar eru allir glaðir og syngja
og dansa, og þó að eitthvað bjáti
kannski á um stund leysast öll
vandamál með léttum leik,
dansspori og trillu, hvað minnir
okkur á þennan óbærilega létt-
leika tilverunnar sem Kundera
og fleiri hafa skrifað um. Um
eiginlegan söguþráð er ekki að
ræða, enda mun tilgangur höf-
undanna hafa verið að ná fram
andrúmslofti á sfldarplani og
þeim týpum sem þar geta komið
við sögu, „draga upp trúverðuga
mynd af sfldarplani og sýna sem
flesta karaktera". Hvort myndin
er trúverðug verða aðrir að dæma
um, en víst koma þarna karakter-
ar við sögu, söltunarpíur og sjó-
arar, verkstjóri og síldarspekúl-
ant, sprúttsali og símadama, svo
einhverjir séu nefndir. Og leikrit-
ið er skemmtilegt, því verður
ekki neitað. Kannski dæmigert
fyrir tíma matarskatts og kreppu
þegar „fólk“ þarf að geta farið í
leikhúsið og til að láta sig dreyma
um þessa líka dásamlegu tíma
þegar allir gátu orðið ríkir, bara
ef þeir þræluðu nógu djöfull
mikið og lengi.
Leikmynd Sigurjóns Jóhanns-
sonar nýtur sín vel í skemmunni
við Meistaravelli sem virðist snið-
in fyrir leiksýningar af þessu tagi.
Fjöldi manns hefur unnið gott
starf við undirbúning sýningar-
innar og frammistaða leikaranna
er með mestu ágætum. Ber þá
sérstaklega að nefna þær Hönnu
Maríu Karlsdóttur og Sigrúnu
Eddu Björnsdóttur í hlutverkum
Hullu og Villu, gellanna að sunn-
an sem göslast í síld og slori, sjó-
urum og genever, vopnaðar
háum hælum og sjiffonslæðum.
Einnig tókst þeim Ólafíu Hrönn
Jónsdóttur og Valdimar Erni
Flygenring vel upp sem Jöklu
sveitapíu og Ponna aflaskip-
stjóra, og ekki má gleyma Mál-
fríði símadömu, sem Guðrún
Ásmundsdóttir leikur. Tónlist og
söngtextar Valgeirs Guðjóns-
sonar eru létt og skemmtileg og
undirstrika boðskap leikritsins, -
ef einhver er. Um leikstjórn Þór-
unnar Sigurðardóttur er gott eitt
að segja, hún segir um undirbún-
ing sýningarinnar að allt hafi ver-
ið „voða gaman og vandræða-
lítið“ og er víst óhætt að nota þau
orð um útkomuna.
Ef marka má viðtökur frum-
sýningargesta á Síldin langt líf
fyrir höndum í skemmunni við
Meistaravelli,og víst er að engum
þarf að leiðast né heldur reyna
neitt á sig til að njóta sýningar-
innar. Þetta er allt voða, voða
gaman. LG
Leikhús
Pinter áfram
í Hlaðvarpanum
Alþýðuleikhúsið heldur áfram sýningum á
Eins konar Alaska og Kveðjuskál
Alþýðuleikhúsið hefur ákveð-
ið að taka aftur upp sýningar á
Kveðjuskál og Eins konar Alaska
og verður fyrsta sýning í Hlað-
varpanum sunnudagskvöld
klukkan 20:30. Þær breytingar
verða á hlutverkaskipan að Arn-
ar Jónsson tekur við hlutverki
Þrastar Guðbjartssonar í Eins
konar Alaska, og Viðar Eggerts-
son tekur við hlutverki Þórs Tul-
inius í Kveðjuskál. Að öðru leyti
verður hlutverkaskipan óbreytt.
Sem fyrr sagði verður fyrsta sýn-
ingin sunnudaginn 17. janúar, en
næsta sýning verður þriðjudaginn
19. janúar.
Ingólfur Sveinsson:
Barnagœla frá Madeira
bráðum kemur nóttin á mjúkum þófum
um rauðan sjó
lúllu bía lúllu bía
bráðum hverfa skýjahallir í björtum logum
um rauðan sjó
lúllu bía í kvöldsins ró
bráðum kemur nóttin á mjúkum þófum
um rauðan sjó
Meinleg prentvilla slæddist inn í þetta kvæði Ingólfs Sveinssonar í jólablaði Þjv.
- og er það því birt á nýjan leik. Höfundur er beðinn velvirðingar á mistökunum.
Miðvikudagur 13. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Kópavogsbúar -
Nágrannar!
Nú þurta allir aö laga línurnar eftir jólamatinn.
Við hjá RÖSKVU bjóöum aðstoð.
Ný námskeið hefjast 18. janúar n.k.
Tímar: mánudag, miðvikudag, föstudag.
Skráning í íþróttahúsinu Digranesi í síma 42230.
A
íþróttaráð