Þjóðviljinn - 23.01.1988, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.01.1988, Qupperneq 3
FRETTIR Ráðhúsmálið Ólga í fólki Samtökin Tjörnin lifi efna tilfundar vegna ráhússmálsins á sunnudag. Hörður Erlingsson: ÞátturJóns Ottars hleypti illu blóði í fólk ÞaS er ólga í fókj og hlutdrægur þáttur Jóns Óttar Ragnars- sonar um ráðhúsmálið sem fór fram á Stöð 2 fyrr í vikunni hefur hleypt illu blóði í fólk, sagði Hörður Erlingsson einn af for- svarsmönnum í samtökunum Tjörnin lifi, en samtökin hafa efnt til almenns fundar um ráðhús- málið á sunnudaginn. í fréttatilkynningu frá sam- tökunum segir að hvatamenn að fundinum séu gegn áformum um smíði ráðhúss og þeir haldi fram rökum sem séu í aðalatriðum eftirfarandi: „Tjörnin er mikil- vægasta kennileitið í hjarta Reykjavíkur, þar sem gömlu hús- in, fuglalíf, vatn og gróður hafa hingað til ráðið svipmótinu. Göt- ur anna ekki umferðarþunga í þessum elsta hluta borgarinnar, eins og dæmin sanna, og vegna staðhátta er ekki svigrúm til þeirra breytinga á gatnakerfi sem óhjákvæmilegar væru með til- komu ráðhúss á þessum stað. Bráðabirgðaáætlun um kostn- að við byggingu þessa húss bendir til þess að hann næmi þriðjungi útsvara Reykvíkinga á einu ári. í vaxandi dýrtíð og þenslu er ekki réttlætanlegt að slík bygging hafi forgang, á meðan brýnni verkefni eru látin sitja á hakanum. Lögformlegri kynningu á skip- ulagsdrögum með ráðhúsi hefur verið ábótavant. í þeim drögum Á uppdrættinum má sjá valkost samtakanna Tjömin lifi við ráðhúsi. Garður með miklum gróðri, leiktækjum og bekkjum. Þá er gert ráð fyrir að húsið sem áður var að Tjarnargötu 11, verði áfram á svæðinu, en á öðrum stað. að Kvosarskipulagi sem kynnt voru, er gert ráð fyrir húsi á föstu landi, sem að grunnfleti jafnast á við þriðjung grunnflatar þess húss sem nú er áformað að byggja. Af þessum ástæðum er mælst til þess að beðið verði með frek- ari undirbúningsframkvæmdir við Tjörnina. Fyrirhugaðar fram- kvæmdir verði lögformlega kynntar, á þann hátt að megin- atriði svo sem breytingar á gatn- akerfi og skerðing Tjarnarinnar komi fram, áður en Kvosarskipu- lagið hlýtur endanlega afgreiðslu stjórnvalda". -K.Ól. Sækir í hreint hár Bergljót Líndal: Engin skömm aðfá lús, en skömm að ganga með hana Lúsin er alltaf annað slagið að stinga sér niður, og hún sækir öðru fremur í hreint hár. Það er engin skömm að fá lús, en það er aftur á móti skömm að ganga með hana, sagði Bergljót Líndal, hjúkrunarforstjóri á Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur í sam- tali við Þjóðviljann í gær. Að sögn Bergljótar hefur hún ekki orðið vör við að neitt meira sé um hana nú en oft á tíðum Sókn Rétt er rétt Hafa skal það sem sannara reynist. f frásögn blaðsins í gær af fundi í Sókn um nýjan kjaras- amning, slæddist inn sú leiða villa að starfsmaður með 23 ára starfs- reynslu hefði 36.108 krónur í mánaðarlaun samkvæmt kjara- samningum. Hið rétta er, að byrjunarlaun starfsmanns sem vinnur við ræstingar og er 23 ára nema þessari upphæð á mánuði. Eftir 18 ára starfsreynslu fá Sókn- arfélagar sem vinna við þrif 40.616 krónur. -rk Það sem Bergljót Elíasdóttir, starfsmaður í Apóteki Austurbæjar heldur á, flaskan og kamburinn, fara létt með að hreinsa lús úr hári. Aftur á móti það sem er í hvíta pakkanum, er túbukrem sem kemur að góðum notum gegn flatlúsinni. Mynd: E.ÓI. áður. Hún sagði að það bæri meira á lúsinni á haustin þegar skólarnir byrjuðu og krakkarnir söfnuðust saman. „Öll umræða. um lúsina vekur fólk kannski til umhugsunar um hana, því foreldrum dettur hún síst í hug þegar krakkinn kvartar yfir kláða. En það þarf enginn að vera neitt hræddur vegna lúsar- innar. Það er auðvelt að losa sig við hana með þartilgerðum með- ulum sem fást í apótekum og eru fljótvirk,“ sagði Bergljót Líndal, h j úkrunarforst jóri. -grh Austfirðir Síldarsöltun lokið Igær var verið að slá botninn í sfldarsöltunina fyrir austan á því viðbótarmagni sem leyft var að veiða upp í 30 þúsund tunna viðbótarkaup Sovétmanna á Suð- urlandssfld. Að sögn Kristjáns Jóhannes- sonar, birgða- og söltunarstjóra Sfldarútvegsnefndar, hefur sfldin verið mjög góð allan tímann, frá því veiðar hófust aftur í byrjun mánaðarins og hefur fitumagnið í sfldinni verið þetta 14-16%. En það má minnst vera 12% fyrir So- vétmenn. 10 bátar stunduðu þessar janú- arveiðar og var saltað á 19 stöðv- um, en mest var þó saltað á Fá- skrúðsfirði í 5 þúsund tunnur. Útskipun hefur gengið vel og var Keflavíkin að gera sig klára í gær að leggja í hann til Murm- ansk með 23 þúsund tunnur, full- ar af saltaðri Suðurlandssfld. Þá leggur Fjallfoss á næstunni af stað héðan til Svíþjóðar. -grh Laugardagur 23. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 St. Jósefsspítali Landakoti Skóladagheimiliö Brekkukot Viltu vinna í notalegu umhverfi á góöum stað í bænum? Okkur vantar aöstoðarmann á skóla- dagheimilið Brekkukot. Upplýsingar gefur for- stöðumaður í síma 19600-260 virka daga. Staða hjúkrunarfræðings á vöknun, dagvinna er laus frá 1. febrúar 1988. Upplýsingar gefnar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma 19600-300. Reykjavík 20.1.1988 Læknastofa Höfum opnað læknastofu í Læknastöðinni hf., Álfheimum 74. Tímapantanir í síma 686311 alla virka daga rnilli kl. 9 og 17. Ingibjörg Georgsdóttir Sérgrein: Barnalækningar. Guðmundur Ásgeirsson Sérgrein: Barnalækningar. Sérfræðingur BHMR, Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna, óskar eftir að ráða háskólamenntaðan starfsmann. Starfssvið: Daglegur rekstur skrifstofu BHMR og aðstoð við samningsgerð stéttarfélaga innan BHMR. BHMR leitar að einstakling sem getur tekið að sér krefjandi starf. Nánari upplýsingar veitir Birgir Björn Sigurjóns- son, skrifstofu BHMR, vs.: 82090. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til formanns BHMR, Lágmúla 7,108 Reykjavík, merktar „Sérfræðing- ur“, fyrir 5. febrúar n.k. AUGLÝSING um starfslaun bæjarlistamanns Kópavogs Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um starfslaun til listamanna skv. regl- um, sem samþykktar voru 16.12.1986 í Bæjar- stjórn Kópavogs. Heimilt er að veita starfslaun fyrir 6-12 mánaða tímabil. Launin miðast við 8. þrep 143. launaflokks skv. kjarasamningi Bandalags háskólamanna. Þeir einir listamenn koma til greina við úthlutun starfslauna, sem búsettir eru í Kópavogi. Lista- menn skulu skuldbinda sig til þess að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta starfslauna. Að gefnu tilefni skal tekið fram að listamenn úr öllum listgreinum koma til greina. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar n.k. Listamaður sem starfslauna nýtur, skal að loknu starfstímabili gera grein fyrir starfi sínu. Starfslaun verða veitt frá 1. júní n.k. Umsóknar- frestur er til 1. mars n.k. Umsóknir um starfslaun listamanns skv. framan- skráðu sendist: Lista- og menningarráði Kópavogs Hamraborg 12, 200 Kópavogi Fóstra - uppeldisfræðingur þroskaþjálfi óskast til starfa að barnaheimili Siglufjarðar sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona í síma 96-71359 og eftir kl. 17 í síma 96-71941.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.