Þjóðviljinn - 23.01.1988, Síða 9
1987
MENNING
1
vanvirða er nú orðin þjóðarsjúk-
dómur íslendinga. Alls staðar
músik. Hvergi komandi né ver-
andi fyrir músik. Ekki einu sinni í
bókabúðum. Hvílíkur grundvall-
armisskilningur á aðstæðum!
Hver hefur gaman af að glugga í
bækur nema í kyrrð og friði?
Bókabúðir og hljómlist eru ó-
samrýmanlegar andstæður.
Svona smekkleysi dettur engum
þjóðum í hug nema bókaþjóðinni
miklu á sögueyjunni. Og eftir
þessu er allt annað í virðingar-
leysi þjóðarinnar við tónlistina og
að valda því, að fyrir alla muni
þurfi að neyða útvarpi ofan í far-
þega. En stjórn SVR er þögul og
köld eins og hinn dularfulli sfinx.
Einstakir vagnstjórar hafa hins
vegar verið að senda mér tóninn
út af skrifum mínum um þessi
efni, sem hingað til hafa ekki far-
ið fram í þessu blaði. Þær greinar
hafa verið óvenju málefnalegar
og rökrænar. Og til fyrirmyndar
um hógvært og kurteislegt orða-
lag. (Ég get líka skrifað svo-
leiðis!) En strætisvagnastjórar
hafa ekki virt rök mín og annarra
viðlits. Þeir blanda saman á
barnalegan hátt starfi mínu hér á
Þjóðviljanum og óyilja mínum
sem prívatmanns að vera kúgað-
ur í strætó. Og gera lítið úr mér
sem manni í bréfum sínum til
mín. Það er yndislegur vitnis-
■burður um menningarstig þjóð-
arinnar, að einstaklingar sem á
opinberum vettvangi hafa í
frammi efnislega og röklega
gagnrýni á samfélagslega um-
gengnishætti eða jafnvel
mannréttindi, skuli fyrir það
þurfa að standa í því að verja per-
sónu sína. Hvers konar þjóðfélag
erum við að poppast inn í?
En það er sami andlegi subbu-
skapurinn sem ræður virðingar-
leysi íslendinga fyrir tónlistinni,
með því að nota hana sem vímul-
yf, og veldur vanhæfni þorra
þjóðarinnar til að greina aðalatr-
iði frá aukaatriðum og stunda
málefnalegar umræður í þjóðfé-
laginu.
Sigurður Þór Guðjónsson
SIGURÐUR ÞÓR
GUÐJÓNSSON
sjálfa sig. Varla er vært í strætis-
vögnum fyrir þessum ósköpum.
Og svo sýnist sem SVR og borg-
aryfirvöld leggi blessun sína yfir
ofbeldið. Fyrir nokkru kvartaði
ég um ónæði af völdum músikur í
strætó. Þá var mér umsvifalaust
vísað út úr vagninum. Gaman
væri ef stjórn SVR gerði nú opin-'
berlega grein fyrir þeim feikna
mikilvægu ástæðum, sem hljóta
Gestur og Rúna hafa bæst í hóp þeirra listamanna sem standa að Gallerí Grjót.
Mynd - Sig.
Gallerí
Grjót
Gestur og Rúna bætast í
hópinn
í forgrunni á samsýningu
þeirra listamanna sem standa að
Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4 A,
eru nú verk tveggja nýrra með-
lima, þeirra Gests og Rúnu. Þau
hafa lengi unnið saman að
leirmunagerð, og sér Gestur um
form og glerung, en Rúna um
skreytingu. Gesturog Rúna nota
einnig önnur efni en leirinn til
listsköpunar, Gestur heggur í
stein, Rúnateiknarog málarogá
sýningunni má sjá hvernig þau
vinna með ýmiss konar efni og
tækni.
Rúna og Gestur hafa haldið
einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga bæði innan
lands og utan. í sameiningu hafa
þau unnið að skreytingu opin-
berra bygginga, svo sem áhorf-
endastúku íþróttavallarins í
Laugardal, nýbygginga við Hass-
elbyhöll í Svíþjóð og íþróttahúss í
Ólafsvík. Sem stendur vinna þau
að skreytingu fiskmarkaðarins í
Hafnarfirði.
Samsýning þeirra níu lista-
manna sem standa að Gallerí
Grjót er opin alla virka daga frá
kl. 12:00 til 18:00.
LG
BESTA NAUTAKJÖTSVERÐIÐ
Nautaroastbeef............................. 690 kr./kg
Nautaschnitzel ............................ 765 kr./kg
Nautagúllas ............................... 670 kr./kg
Nautalundir.............................. 1.290 kr./kg
Nautafillet ............................... 980 kr./kg
Nautabuff.................................. 720 kr./kg
Nauta T-bonesteik.......................... 475 kr./kg
Bógsteik .................................. 375 kr./kg
Osso Bucco................................. 250 kr./kg
Rifjasteik............................... 150kr./kg
Nautahamborgari m/brauði.................... 40 kr./stk
Nautahakk 10 kg............................ 355 kr./kg
Nautahakk 1 kg............................. 435 kr./kg
Nýr lundi .............................. 63 kr./stk
Hangiframpartur m/beini................. 370 kr./kg
Soðið hangilæri úrbeinað................ 988 kr./kg
Emmess-skafís 2 lítrar.................. 299,50 kr.
Emmess-skafis 1 lítri................... 163,40 kr.
ísblóm — 4 í pakka...................... 111 kr.
m 9ertír
KJOTMIOSTOOIN
LAUGALÆK, SÍMI 686511
Virka daga kl. 8-19
Föstudaga kl. 8-20
Laugardaga kl. 8-16
GARÐATORGI, GARÐABÆ, SÍMI: 656400
Virka daga kl. 8-19
Föstudaga kl. 8-20
Laugardaga kl. 8-18
HAMRABORG, KÓPAVOGI, SÍMI: 41640
Alla daga frá kl. 8-20