Þjóðviljinn - 29.01.1988, Síða 3
FRETTIR
Kaupleigufrumvarp
Framsóknarmenn efast
Framsókn og íhald lítt hrifin. Alexander Stefánsson: Hefði
þurft að skoðast ístœrra samhengi. Kaupleiguréttindi óháð
efnahag og aðstæðum. Efast um að verkalýðshreyfingin sé
ánœgð með kerfið
Fjármálaráðherra
Útgáfu
lánsloforða
verði hætt
Jón Baldvin Hannibalsson
segir brýnt að draga úr þenslu
m.a. með því að hefja ekki á ný
útgáfu á niðurgreiddum lánslof-
orðum til húsnæðismála í
óbreyttu kerfi. Þetta kemur fram
í viðtali við fjármálaráðherra í
Alþýðublaðinu í gær.
Verði fjármálaráðherra að ósk
sinni þýðir það að frystingu á út-
gáfu lánsloforða verður ekki
aflétt einsog ráð var fyrir gert
með nýju lögunum um Húsnæð-
isstofnun.
Jóhanna Sigurðardóttir er
stödd erlendis en Jón Baldvin
mátti ekki vera að því að svara
blaðamanni Þjóðviljans í gær.
-Sál
Bæði innan Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks eru uppi
miklar efasemdir um ágæti frum-
varps félagsmálaráðherra um
kaupleiguíbúðir. Alexander Stef-
ánsson segir að þurft hefði að
skoða kaupleigufyrirkomulagið í
stærra samhengi en ekki taka eitt
form af félagslegum íbúðum út úr
og veita því þannig forgang að
fjármagni og Halldór Blöndal
hefur lýst yfir andstöðu við frum-
varpið í útvarpinu.
Alexander sagði við Þjóðvilj-
ann að þingflokkur Framsóknar
hefði ekki enn myndað sér
skoðun á frumvarpsdrögunum,
sem Jóhanna Sigurðardóttir hef-
ur sent frá sér til stjórnarflokk-
anna og hagsmunasamtaka til
umsagnar.
„Mitt álit er hinsvegar að það
hefði þurft að skoða þetta í stærra
samhengi við allt félagslega
íbúðakerfið einsog ráð var fyrir
gert í stjórnarsáttmálanum. Það
er ekkert sjálfgefið mál að þetta
form sé eitthvað betra en önnur
form og t.d. er kaupleigufyrir-
komulagið mjög umdeilt á
Norðurlöndunum og hafa Finnar
lagt það niður og í Svíþjóð deila
menn hart um það.“
Alexander sagðist hafa þá trú
að verkalýðshreyfingin hefði sitt
að segja um þetta frumvarp, því
kaupleiguíbúðirnar eiga að fá
fjármagn bæði úr Byggingasjóði
verkamanna og Byggingasjóði
ríkisins, þannig að minna verður
til skiptanna hjá öðrum.
„Mín skoðun er sú að félags-
lega íbúðakerfið eigi fyrst og
fremst að vera fyrir lágtekjuhóp-
ana en kaupleigukerfið gerir ekki
ráð fyrir því, heldur hafa allir
sama rétt innan þess, óháð tekj-
um og aðstæðum.“
Alexander taldi því að frum-
varpið þyrfti að skoða nánar áður
en hann gæti fullyrt um afstöðu
Framsóknarflokksins til þess.
„Ég tel hinsvegar að það hefði átt
að endurskoða allan félagslega
hluta húsnæðiskerfisins í sam-
vinnu við samtök launafólks og
finna lausn sem ekki þurfi að vera
deilur um.“
-Sáf
Slysavarnafélag Islands á 60 ára afmæli [ dag. Á myndinni til hægri er forstjóri félagsins, Hannes Þ. Hafstein, ásamt
ungum félaga um borð í björgunarbátnum Jóni E. Bergsveinssyni, á siglingu um Sundin blá. Mynd: Sig.
Slysavarnafélag íslands
60 ára í dag
HannesP. Hafstein forstjóri:
Afmælisins minnst á landsþingi
Slysavarnafélagsins 27.-29. maí nk.
I dag er Slysavarnafélag ís-
lands 60 ára, en það var stofnað
29. janúar 1928. Á afmælisárinu
verður margt gert til að minnast
þessara merku tímamóta, en
afmælisins verður sérstaklega
minnst á landsþingi Slysavarna-
félagsins 27.-29. maí nk.
Að sögn Hannesar Þ. Haf-
steins, forstjóra Slysavarnafé-
lagsins, er efst á baugi hjá fé-
laginu, á þessum merku tíma-
mótum, að tölvuvæða tilkynning-
askylduna, og að Slysavarna-
skólinn verði lögboðinn. En
starfsemi hans fer að mestu leyti
fram um borð í Sæbjörgu, skipi
skólans. Einnig að auka fræðslu-
og útbreiðslustarf félagsins.
Árið 1988 er ekki aðeins tíma-
mótaár í sögu Slysavarnafélags
íslands. Tilkynningaskyldan
verður 20 ára í maí nk., sjó-
mannadagurinn 50 ára, Björgun-
arfélag Vestmannaeyja 70 ára og
síðast en ekki síst minnast lands-
menn þess í maí nk. að 20 ár eru
liðin frá því hægri umferð var
tekin upp hér á landi.
-grh
Kjarasamningar
Fólk lifi af laununum
Sigurður Óskarsson, Alþýðusambandi Suðurlands: Krefjumst
rúmlega 40.000 króna lágmarkslauna. Ekki verjandi að semja um
lægri laun en þau semfólkfœr lifað af. Hlutaskiptum verður ekki
komið á í sláturhúsum
Siðferðilega er verkalýðsfor-
ystunni ekki stætt á því að
semja um laun sem eru lægri en
það sem fólk fær lifað af. Þá
skiptir engu hvort samið er til
lengri eða skcmmri tíma, sagði
Sigurður Óskarsson, formaður
Alþýðusambands Suðurlands, í
samtali við Þjóðviljann. En stjórn
ASS og formenn verkalýðsfélaga
á Suðurlandi munu í dag taka af-
stöðu til þess hvort Alþýðusamb-
andi Suðurlands verður falið að
fara með samninganmál félag-
anna, eða hvort Verkamannas-
ambandinu verður fylgt eftir.
- Ég hef aldrei fengið nægjan-
iega skýringu á því að skamm-
tímasamningar séu vænlegri en
samningar til lengri tíma. Menn
skulu gera sér fulla grein fyrir því
að það verður ekki komið við
neinum hlutaskiptum í sláturhús-
um og á traktorsgröfum. Verka-
fólk á Suðurlandi getur ekki
gengið að neinum auka-
greiðslum, fái það ekki framfleytt
sér á töxtunum, sagði Sigurður.
Sigurður sagði að kröfugerð
Sunnlendinga væri skýr. Við
gerðum kröfu um að laun hækk-
uðu um 22.2% miðað við 1. októ-
ber, sem þýðir að lágmarkslaun
yrðu 36.030 krónur á mánuði.
- Eftir kjaraskerðinguna síðan
Bygginganefnd Reykjavíkur-
borgar afgreiddi á fundi sínum í
gær kæru Öryrkjabandalagsins
sem send var ncfndinni vcgna
þeirrar málsmeðferðar scm
breytt notkun hússins að Tjarn-
argötu 20 hefur hlotið. Taldi
meirihluti bygginganefndar mál-
ið nefndinni óviðkomandi og hef-
ur þvi verið vísað þaðan.
Óryrkjabandalagið telur að
samkvæmt lögum beri Reykja-
víkurborg að sækja um leyfi til
nefndarinnar um breytta notkun
hússins, en það gerðu borgaryfir-
1. október er þessi krafa fram-
reiknuð komin uppí rúmlega
40.000 króna lágmarkslaun, -
laun sem enginn getur talist of-
sæll af.
völd ekki. Húsið hefur nýlega
verið tekið undir ellimáladeild
Félagsmálastofunar og skrifstofu
heimilishjálpar, en Öryrkja-
bandalagið hefur gert athuga-
semdir við það að aðgangur og
almenn aðstaða fyrir fatlaða er
ekki fyrir hendi í húsinu eins og
lög gera ráð fyrir þegar um opin-
berar byggingar er að ræða.
Tveir fulltrúar minnihlutans í
bygginganefnd, þeir Gunnar H.
Gunnarsson og Guðmundur
Haraldsson, greiddu atkvæði
gegn niðurstöðum nefndarinnar,
en þær eru byggðar á álitsgerð
fjórgang innan Verkamannasam-
bandsins, en það er alltaf eins og
formaðurinn og varaformaður-
inn gleymi henni jafnóðum, sagði
Sigurður.
Ágústs Jónssonar skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings. Með
atkvæðum sínum sendu Gunnar
og Guðmundur frá sér bókun þar
sem segir m.a.: „Við teljum að
borgaryfirvöldum beri að sækja
um breytta notkun hússins Tjam-
argötu 20 til bygginganefndar
Reykjavíkur og einnig erum við
sammála því sem segir orðrétt í
bréfi Öryrkjabandalags íslands
frá 13. janúar 1988: „verður
húsnæði þetta að teljast allsendis
ófullnægjandi vegna þeirra nota
sem því em fyrirhuguð“.
Við höfum kynnt þessa kröfu í
-rk
Bygginganefnd
Vísar kæm öryrkja frá
Föstudagur 29. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Akureyri/fóstrur
Lágmarkslaun
50 þúsund
Fóstrur áAkureyri semja
við bæjarfélagið um að
allarfóstrur verði á
deildarfóstrulaunum.
A ðeins 1 Ofóstrur
starfandi. Pörf fyrir 40
Við erum ánægðar með okkar
hlut því við höfum fengið það sem
kröfur okkar hljóðuðu uppá i
upphafi, sagði Hugrún Sig-
mundsdóttir ein af forsvarsmönn-
um fóstra á Akureyri, en samn-
ingar náðust með bæjarfélaginu
og fóstrum fyrr í vikunni um að
fóstrur verði ekki á lægri launum
en deildarfóstrulaunum. Lág-
markslaun fóstra verða því rúm-
ar 50 þúsund krónur á mánuði en
hæst komast fóstrulaun í tæpar 70
þúsund krónur, séu fóstrur for-
stöðukonur á stórum dagheimil-
um.
Hugrún sagði að fóstrur hefðu
fengið deildarfóstrulaunin sam-
þykkt á þeim forsendum að dag-
heimilin væru injög undir-
mönnuð, er i,i eru aðeins 10
fóstrur starí.: :! í bænum. 40
fóstrur þarl , vegar til þess að
heimilin séu iullmönnuð.
Fóstrur á Akureyri höfðu sagt
upp störfum frá og með 1. apríl
og 1. mars og hafa þær nú allflest-
ar dregið uppsagnir sínar til baka,
að sögn Hugrúnar.
-K.ÓI.