Þjóðviljinn - 29.01.1988, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 29.01.1988, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓÐVIUINN Föstudagur 29. janúar 1988 22. tölublað 53. örgangur Sparisjóösvextir á téKKareiKninga meö hávaxtaKjörum SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF Margrét Jónsdóttir látin Látin er Margrét Jónsdóttir ekkja Þórbergs Þórðarsonar rit- höfundar. Margrét var fædd 30. september 1899. Hún hafði síðustu árin búið að Dropiaugarstöðum við Snorra- braut í Reykjavík. Fyrir nokkr- um vikum þurfti hún að fara á spítala vegna lungnabólgu. í fyrrinótt elnaði henni sóttin og lést hún snemma í gærmorgun. Verkaskipting Vinnubrögðin fordæmd Bcendafundurí A.-Skaftafellssýslu vill að frestað verði áformum ríkisstjórnarinnar Stjórnarfrumvarp um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- iaga, bandormurinn svokallaði sem bíður afgrciðslu alþingis, var eitt helsta umræðuefnið á bænda- fundi Austur-Skaftfellinga sem haldinn var í Hofgarði í fyrra- kvöld. Var gerð samhljóða sam- þykkt um að fordæma þau vinnu- brögð sem viðhöfð hefðu verið við málatilbúnað og eindregið lagt til að alþingi frestaði að gera frumvarpið að lögum. í samtali, sem Þjóðviljinn átti í gær við Þorstein Jóhannsson á Svínafelli í Öræfum, kom fram að slíkir bændafundir hefðu verið haldnir árlega frá 1944. Á fund- ina kæmu fimm fulltrúar frá hverju búnaðarfélagi sýslunnar og fimm frá Hafnarhreppi. Auk þess tilnefndu kvenfélögin tvo fulltrúa hvert. Oftast væru þing- menn gestir á þessum fundum og svo hefði verið nú. Þorsteinn sagði að menn teldu mikið ójafnvægi ríkja í frumvarp- inu. Sveitarfélögin ættu að taka^ við verkefnum frá ríkinu, en ríkið' fengi engin verkefni á sína könnu í staðinn. Loforð um að minnka skyldi skerðingu á framlögum í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga væri lítils virði í þessu sambandi. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans sagðist Jón Kristjánsson þingmaður Framsóknar hafa skipt um skoðun og vildi nú að málinu yrði frestað á þingi. Egill Jónsson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins sagðist vera á móti í hjarta sínu en engu að síður styddi hann frumvarpið. BANKABÓK M Landsbanki íslands Banki allra landsmanna KJORBOK m JH JB , L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Nýtt útlit á fjárhirslum Landsbankans Landsbankí 2314576*'/ Það er mikið um að vera í Landsbankanum þessa dagana. Samfara hagræðingu og breytingum við vinnslu ýmissa verkefna, sem koma jafnt starfsfólki og viðskiptavinum tilgóða, eru nú settar í umferð nýjar Banka- og Kjörbækur, tékkhefti með nýju útliti, ásamt ER-tékkheftinu sem nýlega var tekið í notkun. Bankabókin nýja leysir af hólmi gömlu sparisjóðsbókina og Kjörbók með nýju útliti kemur í stað þeirrar eldri. Reyndar tekur Kjörbókin stöðugum breytingum, - að innihaldi - til þess að tryggja eigendum sinum sem besta ávöxtun. ER-tékkheftin eru fyrir Einkareikninginn, sem ber mun hærri vexti en venjulegir tékkareikningar, auk þess að gefa kost á yfirdrætti og láni. Viðskipti í Landsbankanum tryggja einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum aðgang að fullkominni bankaþjónustu á öllum sviðum. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.