Þjóðviljinn - 29.01.1988, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 29.01.1988, Blaðsíða 5
VIÐHORF Að marggefnu tilefni Aldrei síður úrelt en einmitt um þessar mundir Svavar Gestsson skrifar 29. desember síðastliðinn birti Þjóðviljinn við mig viðtal um utanríkismál undir fyrirsögninni „Breyttir tímar kalla á breytt við- horf“. Þetta viðtal hefur orðið til- efni nokkurrar umræðu. Vissu- lega þykir mér vænt um það að fólk skuli fjalla um utanríkismál- in í greinum, ræðum og samtölum sín á milli. Vonandi heldur sú umræða áfram með heiðarlegum hætti innan flokks okkar og utan því fá mál eru brýnni en einmitt sá þáttur sem ég vík að í viðtal- inu: Að íslendingar geri sér ljósa stöðu þjóðarinnar á breyttum tímum þar sem allt hreyfist svo að segja á hverjum degi og nú í seinni tíð í rétta átt. í lok viðtalsins segi ég: „Enginn lesi orð mín svo að ég láti mér detta í hug að slá á nokk- urn hátt af kröfum okkar um brottför hersins og úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu. Þessar kröfur hafa verið og eru enn i fullu gildi, en nú eru þœr auk þess í betra samrœmi við þróunina en nokkrar aðrar tillögur sem uppi eru í alþjóðamálum. “ Þetta er kjarni málsins: Að að- stæðurnar í alþjóðamálum eru okkur herstöðvaandstœðingum hagstœðar, hagstæðari nú en um langt skeið og þess vegna tala ég um að breyttir tímar kalli á breytt viðhorf. Þar á ég við breytt við- horf okkar sjálfra því mögu- leikarnir eru meiri en um langt skeið. Ekki aðra stefnu, ekki önnur markmið, heldur breytt viðhorf vegna þess að svipting- arnar í alþjóðamálum skapa okk- ur nýja möguleika til þess að stefnumál okkar, markmið og slagorð verði að veruleika. Það er kjarni málsins. Þess vegna eru ,jlagorðin“ ísland úr NATÓ/ Herinn burt aldrei síður úrelt en einmitt um þessar mundir. í þeim felast dagskrármál friðar og af- vopnunar í alþjóðastjórnmálum eins og þau eiga að horfa við ís- lendingum. Hins vegar er stefna herstöðva- og NATO-sinna í „Ekki aðra stefnu, ekki önnur mark- mið, heldur breytt viðhorfvegna þess að sviptingarnar í alþjóðamálum skapa okkur nýja möguleika tilþess að stefn- umál okkar, markmið ogslagorð verði að veruleika. Það er kjarni málsins. “ senn úrelt og háskaleg. Gjörsam- lega úr takt við tímann þegar þíð- vindar leika um þróun alþjóða- mála. Ég tók eftir því er viðtalið hafði birst við mig í Þjóðviljanum að Morgunblaðið kaus að leggja þannig út af viðtalinu að í því fæl- ist undanslátur af minni hálfu. Rök Morgunblaðsins eru þau að í viðtalinu set ég markmið okkar um brottför hersins og úrsögn úr NATO í víðtækara samhengi. Það er vissulega undarleg niður- staða Morgunblaðsins, því það hefur alltaf legið fyrir að auðvitað litum við á utanríkisstefnu okkar í alþjóðlegu samhengi. Auðvit- að! Hvað annað? En eftir að viðtalið birtist við mig í Þjóðviljanum hefur fleira gerst sem veldur því að ég tel mig verða að skrifa þessa grein til þess að bera hönd fyrir höfuð mér. Fulltrúi Alþýðubandalagsins í utanríkismálanefnd fékk boð um það hvort hann vildi taka þátt í ráðstefnu í Newport á vegum Na- val War College. Á ráðstefnunni átti hann að gera grein fyrir okkar sjónarmiðum og stefnu í utan- ríkismálum. Hjörleifur Gutt- ormsson fékk þessi boð og það var samþykkt í framkvœmda- stjórn fyrir landsfund að flokkur- inn hefði ekkert við slíka þátt- töku að athuga. Eftir landsfund þegar ég var kominn til New York hafði Hjör- leifur samband við mig og kvaðst ekki hafa aðstæður til að sækja ráðstefnuna og spurði mig hvort ég gæti farið í hans stað. Svo stóð á að það var kleift og þess vegna mætti ég á ráðstefnunni. Reyndar óskaði ég eftir því við Hjörleif að málið yrði rœtt í þingflokki og þar var samþykkt samhljóða að þessi þátttaka mín í ráðstefnunni vœri í alla staði eðlileg. Þar gerði ég grein fyrir stefnu Alþýðubandalagsins í utanríkis- málum algerlega undanbragða- laust eins og ég reyndar skýrði frá í áðurnefndu viðtali við Þjóðvilj- ann. Ekki datt mér því í hug að ráð- stefna þessi yrði tilefni allra þeirra umræðna sem fram hafa farið. Það sem er undarlegast við þá umræðu er það að menn virð- ast viljandi misskilja þátttöku mína þar. Þess vegna verð ég að svara fyrir mig. 1. Ráðstefnan var ekki boðsferð á vegum NATO, en slíkar heila- þvottaferðir eru algengar. Ráð- stefnan var á vegum Naval War College og þar var ég til þess að túlka sjónarmið Alþýðubanda- lagsins. 2. Ráðstefnan var ekki í Norfolk heldur í Newport. 3. Ráðstefnuna sótti ég eftir að framkvœmdastjórn og þingflokk- ur höfðu fjallað um málið. Að vísu ekki framkvœmdastjórn sú sem kosin var á landsfundi sem mœtli ekki til leiks fyrr en mánuði eftir landsfund af einhverjum óskiljanlegum ástœðum. En framkvœmdastjórn var það engu að síður. 4. Ég mótmæli því í eittskipti fyrir öll að nafn mitt sé notað sem skjól fyrir flótta frá stefnu flokksirts í utanríkismálum eins og Morgun- blaðið hefur reynt að undan- förnu. Ég mun ekki taka þátt í þeim flótta. Vegna þess að ég er í Alþýðubandalaginu svo fremi að það haldi fast við grundvallar- stefnu sína ekki síst í utanríkis- málum. Ef slegið yrði af þeirri stefnu yrði Alþýðubandalagið ekki lengur það Álþýðubandalag sem ég gekk til liðs við sem ung- lingur fyrir margt löngu. Hitt skal svo vera ljóst að lok- um og endurtekið hér: Ég tel að við eigum að fylgjast betur með alþjóðamálum en ver- ið hefur um langt skeið. Við eigum ekki að hika við að taka þátt í alþjóðlegum samskiptum á jafnréttisgrundvelli og af fullri reisn. Og við eigum nú að herða róðurinn í utanríkismálum. Því nú er lag til þess að nálgast mark- mið okkar um friðlýst ísland. Alþýðubandalagið hefur alltaf fagnað áföngum sem náðst hafa á þeirri leið að losa okkur við áhrif bandaríska hersins samanber lokun Keflavíkursjónvarpsins á sínum tíma. Við munum auðvitað fagna hverjum nýjum áfanga. En við náum engum nýjum áföngum nema við höfum sjónir okkar á markmiðinu sjálfu. Annars vill- umst við af leið. Og það er nóg fyrir af ruglingslegu miðjumoði í íslenskum stjórnmálum um þess- ar mundir. Vissulega hefur margt áunnist á undanförnum áratugum. Okk- ur hefur að vísu ekki tekist að koma hernum úr landi og heldur ekki að komast út úr NATO. En krafan hefur verið vakandi með þjóðinni vegna þessarar stefnu okkar. Og sú krafa hefur verið hernaðarsinnum aðhald. Við höfum til dæmis ekki gert NATO aðild að skilyrði við myndun rík- isstjórna en aðiid NATO- andstæðinga að ríkisstjórnum hefur truflað hersetuöflin hér á landi. Þó við höfum ekki gert NATO-úrsögn að skilyrði fyrir stjórnarmyndun segir það ekki að við höfum lagt stefnu okkar fyrir róða. Við höfum heldur ekki gert kröfuna um sósíalisma á ís- landi að úrslitaatriði við stjórn- armyndanir þó við höfum viljað stíga skref í áttina. Þrátt fyrir það dettur engum í hug að við teljum sósíalismann úrelt lífsviðhorf. Reykjavík 25. janúar 1988 Svavar Gestsson Er undansláttur það sem koma skal? Ég er mjög fegin að nú skuli vera komin upp á yfirborðið raunveru- leg stefna forystumanna Alþýðu- bandalagsins í viðtali við for- mann þess í Vikunni nýverið. Þriðjudaginn 26. janúar hefur síð- an guðfaðir nýrrar forystu og rit- stjóri lýðræðiskynslóðarinnar tekið sig til og lagað til viðtal Ólafs Ragnars svo að ásýnd þess líti betur út í málgagninu, til að blekkja herstöðvaandstæðinga. En lýðræðiskynslóðin bíður betri tíma enda búin á undanförnum árum að koma sjálfri sér á valda- stólana í flokknum án þess að ég hafi séð fyrr en nú hvað hún ætl- aði sér, sem sé að lina á kröfunni um herinn úr landi en hún hefur verið sá grundvöllur sem Samtök herstöðvaandstæöinga byggja á og ýmsir kosið Alþýðubandalag- ið vegna þess að í stef nuskrá flokksins er skýlaus krafa um þetta málefni. Fyrir mitt leyti sé ég ekki neina nýja tóna með því að slá af kröf- unni „ísland úr Nató, herinn Sigríður Kristinsdóttir skrifar burt“. Fyrir tæpum 40 árum voru til flokkar sem voru sammála þeirri utanríkisstefnu að herinn væri hér og eru enn. Því tel ég að þeir kjósendur sem vilja hafa her hafi það gott úrval af ágætum for- ystumönnum að varla verði á bætt. Þó að auðvitað geti orðið keppni á milli þeirra friðarsinn- anna, Steingríms Hermanns- sonar og Olafs Ragnars, í Reykjaneskjördæmi, þá höfum við ekki öll atkvæðisrétt þar. Stefna okkar þessara hreinlífu samkvæmt skilgreiningu blaða- manns Þjóðviljans og jafnframt einföldu, sem höldum fram stöðugri baráttu gegn hernum og erum í þeirri barnalegu trú að vilja halda tryggð við hugsjónir okkar í þessu máli, á ekki upp á pallborðið hjá málgagni sósíal- isma, þjóðfrelsis og verkalýðs- hreyfingar. f dag eigum við að vera „in“, grípa ferðatöskuna og Fyrir mitt leyti sé ég ekki neina nýja tóna með því að slá afkröfunni „ísland úrNató, herinn burt“. Fyrir tœpum 40 árum voru til flokkar sem voru sammála þeirri utanríkis- stefnu að herinn vœri hér og eru enn. Því tel ég að þeir kjósendur sem vilja hafa her hafi það gott úrval afágœtumforystu- mönnum að varla verði á bœtt storma til Brussel, New York eða Bonn að ræða við þá pótentáta sem eiga helstu hernaðarverk- smiðjur í hinum vestræna heimi. Við eigum ekki að láta okkur detta í hug í hraða nútímans, þar sem tölvur og fjölmiðlar ráða, að múgurinn geti haft áhrif. Væri nær að við snerum okkur af fullum krafti að því að koma hernum úr landi og segja okkur úr Nató. Það þarf að vinna með ungu fólki og segja því frá baráttu þeirra sem mest og best hafa lagt á sig vinnu í þessu efni. Muna að segja frá því að fólk hefur misst mannréttindi við að sporna gegn því að her kæmi hingað til lands. Aldrei hef ég heyrt að neinum hafi fundist það sjálfsagt að fólk missti kosningarétt og kjörgengi við að mótmæla þeim óskapnaði sem Atlantshafsbandalagið er. En það eru svo sárafáir sem vita það. Við eigum að halda merkinu uppi og styðja frekar þær þjóðir sem standa í frelsisbaráttu og mótmæla óréttlæti hvar sem er í heiminum, t.d. með því að axla bakpokann og heimsækja Nikar- agua, Suður-Afríku eða Palest- ínu og kynna viðhorf þeirra þjóða þegar heim er komið. ísland úr Nató, herinn burt. Stgríður Kristinsdóttir Föstudagur 29. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.