Þjóðviljinn - 29.01.1988, Page 7
Bandaríkin
Fær ekki
orða bundist
Æfleiri bandarískir gyðingar og stuðningsmenn Ísraelsríkis
andmœla gerræði ísraelskra ráðamanna á herteknu
svœðunum. ígœr kvaddi einn þeirra sér hljóðs ístórblaðinu
New York Times
Bandaríski leikarinn og kvik-
myndaframleiðandinn Allen
Stewart Königsberg, þekktari
undir heitinu Woody Allen, reit á
dögunum grein sem birtist í
bandaríska stórblaðinu New
York Times í gær. í henni veitist
hann harkalega að ísraelskum
stjórnvöldum fyrir fantaskap
þeirra í skiptum við palestínska
mótmælendur á herteknu svæð-
unum uppá síðkastið og kallar at-
hafnir dáta þeirra „fúlmennsku
að frumkvæði stjórnvalda.“
„Ég meina, strákar, eruð þið
að grínast? Að berja fólk öðrum
til viðvörunar? Að handleggs-
brjóta karla og konur svo þau geti
ekki kastað grjóti? Að draga al-
menna borgara út af heimilum
sínum til þess að misþyrma þeim
og halda að það geti hrætt heila
þjóð til undirgefni?“
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að rúmlega 200 Palestínu-
menn hafa orðið að leita læknis-
hjálpar vegna beinbrota frá því
að Yitzak Rabín varnarmálaráð-
herra gaf dátum sínum skipanir
um að spara ekki kylfur sínar og
barefli á herteknu svæðunum.
Áður höfðu þeir nær eingöngu
notast við vélbyssur og hafa til
þessa myrt að minnsta kosti 39
palestínsk ungmenni.
í grein sinni kveðst Allen, sem
sjálfur er gyðingur, ætíð hafa ver-
ið hlynntur Ísraelsríki og oft
blöskrað yfirgangur nágrannar-
íkja í skiptum við það. En „ég er
engu að síður furðu lostinn og
mjög reiður vegna þess hvernig
gyðingar hafa komið fram
gagnvart palestínskum mótmæ-
lendum.
Eg tek það skýrt fram að ég hef
enga samúð með framkomu ara-
baríkja í skiptum við ísrael.
Sumum aröbum langar mann
beinlínis til að lumbra á, en, ég
ítreka, aðeins sumum og aðeins
þeim sem hafa svo sannarlega til
þess unnið.
Hér sjást þeir glaðir á góðri stundu félagarnir Baturinsky og Karpov. Sá fyrrnefndi veittist að Kasparov heimsmeistara í
dagblaðsgrein í gær.
Sovétríkin
Kasparov snupraður
/
I gœr var veist að heimsmeistaranum í sovésku dagblaði vegna
staðhœfinga hans í sjálfsævisögunni „Barn breytinganna“
r
Igrein sem birtist í sovéska dag-
blaðinu „Sovietsky sport“ í gær
veitist fyrrum háttsettur embætti-
smaður í sovéska skáksamband-
inu að Garry Kasparov
heimsmeistara og ber hann ýms-
um sökum, segir hann meðal ann-
ars leika tveim skjöldum í afstöðu
sinni til erkifjandans Anatólís
Karpovs, fyrrum heimsmeistara.
Viktor Baturinsky er fyrsti
maðurinn sem gengur fram fyrir
skjöldu og veitist að Kasparov á
opinberum vettvangi eystra frá
því hann varð heimsmeistari árið
1985. Baturinsky þessi er fyrrum
varaformaður sovéska skáks-
ambandsins og mikill vildarvinur
Karpovs. Hann var í forsvari fyrir
sendinefnd Karpovs þegar hann
tefldi heimsmeistaraeinvígi við
Viktor Kortchnoi árin 1978 og
1981. Fullyrðir Kortchnoi í bók
sinni „Fjandskák" að Baturinsky
þessi sé háttsettur í leyniþjónust-
unni KGB og hafi sitthvað á
samviskunni.
En hvað um það, Baturinsky er
ekki hrifinn af sjálfsævisögu
heimsmeistarans, „Barni
breytinganna.“ „í bókinni gerir
hann því skóna að stjórnvöld í
landinu sem ól og fóstraði hann, í
landinu þar sem menn komu
auga á hæfiieika hans og veittu
honum tækifæri til að rækta þá,
hafi gert allt sem í þeirra valdi
stóð til að leggja stein í götu hans.
Samkvæmt frásögn hans á
hann að hafa orðið að eyða miklu
púðri í baráttuna við sovésku
„skákmafíuna“ (en til hennar tel-
ur hann mig) og páfa hennar,
Karpov.“
Baturinsky bendir á þá þver-
sögn að á sama tíma og bókin sé
gefin út á Vesturlöndum með
þessum vafasömu staðhæfingum
öllum „ræði heimsmeistarinn við
sovéska fjölmiðlamenn og kveði
þar við allt annan tón.“
Til að mynda reyni Kasparov í
bók sinni að gera lítið úr Karpov
og segi hann skorta „sköpunar-
hæfni“ en í viðtölum við pressuna
á heimaslóðum hafi hann hrósað
Karpov í hástert fyrir margar
„mjög fallegar skákir“ og fyrir að
hafa aukið veg og virðingu skákl-
istarinnar.
Inní þetta karp blandast vita-
skuld pólitík því Baturinsky og
Karpov eru gamlir brésnefistar
en Kasparov hefur ítrekað borið
lof á glasnost og perestrojku Gor-
batsjovs. Hingaðtil hefur
heimsmeistarinn sloppið við of-
anígjafir í sovéskum fjölmiðlum
en þó fór ekki á milli mála að
þorri þeirra var á bandi Karpovs í
einvíginu í Sevillu sem lauk fyrir
rúmum mánuði.
Baturinsky lauk máli sínu með
því að benda Kasparov á að árásir
hans á Karpov og sovésk skákyf-
irvöld væru ekki í anda nýsköpu-
nar Gorbatsjovs. „Það má deila
og rökræða um allt mögulegt, þar
á meðal skákstíl manna, en menn
eiga að forðast móðganir og sví-
virðingar." Reuter/-ks.
(sraelskir kylfusveinar draga ungan Palestínumann með sér til
„yfirheyrslna." Woody Allen blöskrar fantaskapur ísraelskra stjórnvalda
á herteknu svæðunum.
En les ég dagblöðin rétt? Var
komið í veg fyrir að matur og lyf
bærust til flóttamannabúða í því
augnamiði að auka „vanlíðan"
íbúanna? Voru blýkúlur notaðar
gegn fólki þangað til Bandaríkja-
stjórn hreyfði andmælum og þá
fyrst farið að reyna gúmmíkúlur?
Ér þessi fúlmennska og jafnvel
pyntingar ástunduð að frum-'
kvæði stjórnvalda?“
Allen klykkir út með því að
skora á aðra bandaríska stuðn-
ingsmenn Ísraelsríkis að láta í sér
heyra og taka þátt í að reyna að
binda enda á gerræði ráðamanna
í Jerúsalem."
Reuter/-ks.
Forsetakosningar í Finnlandi
Koivisto ömggur
Kosningaumræðan snýst um tvennt: Hreppir
forsetinn 50 afhundraði atkvæða í fyrstu lotu?
Og: Hver skyldi lenda í öðru sœti?
Asunnudag og mánudag i
næstu viku munu Finnar
kjósa sér forseta. Þetta er fyrsta
sinni að Finnlandsforseti er kjör-
inn beint og bendir allt til þess að
Mauno Koivisto forseti verði
endurkjörinn með elegans. Skoð-
anakannanir hafa ítrekað gert því
skóna að hinn 64 ára gamli Koi-
visto geti gert sér vonir um að
hreppa um fimmtíu af hundraði
atkvæða, rúmlega helmingi
meira en „skæðasti“ keppinautur
hans um tignina, Harri Holkeri
forsætisráðherra.
Áður fyrr var sá háttur hafður á
að finnskir kjósendur kusu kjör-
menn er síðan völdu forseta.
Forsetakjörið var með öðrum
orðum óbeint. Þótt reglunum
hafi nú verið breitt hefur kjör-
ráðinu ekki verið vikið til hliðar
fyrir fullt og fast. Frambjóðandi
er því aðeins réttkjörinn til for-
setaembættis að hann hljóti rúm-
an helming atkvæða. Að öðrum
kosti kemur til kasta kjörmann-
anna og munu þeir þá kjósa for-
seta þann 15.febrúar næstkom-
andi. Finnskir kjósendur verða
því bæði að velja sér forseta og
kjörmenn um helgina.
Að mati fréttaritara Reuters í
Finnlandi er Koivisto maður ráð-
vandur og réttlátur, guðhræddur
og grandvar auk þess að vera
„ómarxískur“. Hann var lengst af
mikilsháttar maður og mörgum
velviljaður í Jafnaðarmannaflok-
knum en sagði sig úr flokknum er
hann var kjörinn forseti Finn-
lands árið 1982.
Koivisto sagði fyrir skömmu að
klaufaskapur starfsmanna
finnsku póstþjónustunnar hefði
hugsanlega komið í veg fyrir að
hann yrði kjörinn beinni kosn-
ingu um helgina. Þannig er mál
með vexti að þeir gleymdu að
senda póstatkvæðaseðla til þeirra
34 þúsund Finna sem búsettir eru
í Svíþjóð. í kosningunum árið
1982 hreppti Koivisto 64 af
hundraði atkvæða þaðan.
En póstfíaskóið kvað vera nán-
ast hið eina sem valdið hefur
fjaðrafoki fyrir þessar kosningar
enda kjósendur í megnustu vand-
ræðum með að átta sig á því um
hvað frambjóðendur eru ósam-
mála, einkum í utanríkismálum
en í þeim málaflokki einum hefur
forseti umtalsverð völd. Þeir eru
allir fimm hlynntir hlutleysi Finn-
lands og góðu samstarfi við
grannann í austri.
Forsetinn ber ægishjálm yfir
aðra frambjóðendur og þeir virð-
ast fyrir löngu hafa sætt sig við þá
staðreynd að keppnin standi að-
eins um annað sætið. Sá sem fær
það í sinn hlut mun án efa gera sér
miklar vonir um að ná kjöri í for-
setakosningum árið 1994.
Einsog sakir standa virðist
hinn íhaldssami forsætisráð-
herra, Holkeri, standa næstur
forsetanum að vinsældum. Hann
kvað hafa þrásinnis fullyrt að
flokkur hans sé ekki flokkur kap-
ítalista heldur þeirra sem þéna.
Hvort þessar yfirlýsingar hafa
orðið honum til framdráttar í
kosningabaráttunni er óvíst en
hitt er á allra vitorði að 18 af
hundraði spurðra hafa veðjað á
hann í skoðanakönnunum. í
þriðja sæti er Paavo Vaeyrynen,
fyrrum utanríkisráðherra og for-
maður Miðflokksins, með 15 af
hundraði. Jafnir í fjórða og
fimmta sæti eru sósíalistinn Kale-
vi Kivisto og kommúnistinn Jo-
uko Kajangja með um 7,5 af
hundraði finnskra atkvæða.
Reuter/-ks.
Föstudagur 29. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7