Þjóðviljinn - 29.01.1988, Page 10
DJÓÐVILJINN
blaðið
sem
vitnaö .4
eri v'f&'
Barnabílstóll
- bílpúði - belti!
Notar barnið þitt
öryggisbúnað í bílnum?
mIUMFERÐAR
Uráð
Þjöðviuinn
Tímiiin
0 68 13 33
i j [ » ]
0 68 18 66
Blaðburóur er ál
BESTA TRIMMIÐ
og borgar sigL
BLAÐBERAR ÓSKAST Vdlltar
blaðbera
víðs
vegar
um
bæinn
Hafðu samband við okkur
þlÓÐVILJINN
Síðumúla 6
0 68 13 33
Móðir mín
Margrét Jónsdóttir
lést að Droplaugarstöðum að morgni 28. janúar.
Jón Þór Einarsson
Eiginmaður minn og faðir okkar
Willý Frederiksen
lést í Danmörku 9. þ.m.
Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Sigrún Guðgeirsdóttir Frederiksen og dætur
; UM HELGINA
Meðal þátttakenda á einleikstónleikum Guðna Franzsonar klarinettuleikara í
Norræna húsinu á sunnudaginn, verða einhver hinna margumræddu sjávar-
spendýra. Ekki er vitað hvort hnúfubakurinn er á meðal þeirra, en víst er að
hann myndar fjölbreytileg hljóð og syngur langtímum saman um fengitímann.
MYNDLISTIN
Ásgrímssafn, Bergstaða-
|stræti 74, opnarsunnudaginn
131. janúar. I vinnustofu Ás-
gríms verða til sýnis lands-
lagsmyndir (vatnslitir) og í
íbúðinni þjóðasagnamyndir
(teikningar og vatnslitamynd-
ir). Safnið er opið sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga á milli kl. 13:00 og
16:00.
Barnaheimili Siglufjarðar.
Tveir síðustu dagar sölusýn-
ingar barnaheimilisins á
myndum sem börnin hafa
unnið í vetur. Sýningin er opin
í dag og á morgun frá kl. 15:00
til 19:00.
Bókasafn Kópavogs. Mál-
verkasýning Þórhalls Filipp-
ussonar. Þórhallurerfæddurí
Reykjavík 21. júlí 1930. Hann
stundaöi nám viðMyndlista-
og handíðaskóla íslands árið
1949-1950. Hann hefur hald-
iðfjöldaeinkasýninga, ásamt
einni samsýningu með dóttur
sinni Kristínu. Þórhallur býr á
Sauðárkróki og stundar nú
eingöngu myndlist, málarfyrir
sýningar eða eftir pöntun.
Sýningineropinfrákl. 9:00 til
21:00 virka daga, 11:00 -
14:00 á laugardögum, og
stendurtil16.febrúar.
Gallerí Grjót, Skólavörðustíg
4 A. Gestur og Rúna hafa
bæst í hópinn og eru í for-
grunni samsýningarinnar
sem er opin alla virka daga á
milli kl.12:00 og 18:00.
Gallerí Svart á hvítu opnar
12. febrúar í nýjum húsakynn-
um, Laufásvegi 17 (bakvið
Listasafnið).
Kjarvalsstaðir. Sunnudag-
inn 31. janúar kl. 14:00 verður
opnuð sýning sjálfsmynda
eftir íslenska myndlistar-
menn. Ásýningunni erstiklað
í gegnum íslenska myndlistar-
sögu frá 19. öld fram á okkar
dag. Sýningin er opin daglega
á milli kl.14:00 og 22:00 og
stendurtil 14. febrúar.
Listasafn ASÍ, Grensásvegi
16. Á morgun opnar sýningin
Vinnaog mannlíf. Sýnd verða
listaverk frá ýmsum tímum,
sem öll eiga það sameiginlegt
að fjalla um mannlegar at-
hafnir, leikog störf. Meðsýn-
ingunni vill Listasafn ASÍ
kynna nokkur af þeim verkum
sem safnið hefur eignast
gegnum tíðina, en með efn-
isvalinu er ætlunin að minna á
það að eitt meginhlutverk
Listasafnsins hlýtur að vera
að skapa tengsl milli myndlist-
ar og daglegs lífs alls þorra
manna. Sýningin eropin dag- _
lega kl. 16:00-20:00 virka
daga, og kl. 14:00-20:00 um
helgar. Aðgangurerókeypis
og heitt verður á könnunni.
Sýningin stendurtil 28. febrú-
ar.
Listasafn íslands, Fríkirkju-
vegi7. Safniðopnarsunnu-
daginn 31. janúar með sýn-
ingunni Aldarspegill, þarsem
sýnd verður íslensk myndlist í
eigusafnsins. Myndirnareru
f rá tímabilinu 1900 til 1987.
Listasafnið er opið alla daga
nema mánudaga á milli kl.
11:30 og 16:30 og er kaffi-
stofa hússins opin á sama
tíma. Aðgangurerókeypis.
Mokka. Christoph von
Thungen sýnirolíumálverk.
Myndirnar eru málaðar undir
áhrifum dvalar hans á íslandi
síðast liðið sumar. Von
Thungen stundaði nám við
Fachhochschule fúr Kunst
und DesigníKölnfrá1971 til
1978. Sýningin sem er hans
fyrsta sýning utan Þýskalands
stendurtiM.febrúar.
Norræna húsið. Á morgun kl.
16:00 opnarTumi Magnús-
son sýningu olíumálverka í
kjallara Norræna hússins.
Myndirnar eru málaðar á síð-
ustu átján mánuðum. Tumi
hefur haldið margar einka-
sýningar og tekið þátt í sam-
sýningum á íslandi og er-
lendis f rá 1978. Sýningin er
opindaglegafrákl. 14:00-
19:00ogstendurtil 14.febrú-
ar.
Nýlistasafnið vA/atnsstíg.
Ingólfur Arnarsson opnarsýn-
ingu á morgun kl. 14:00. Ing-
ólfurstundaði nám við Nýlist-
adeild Myndlista- og handíða-
skóla (slands og var við fram-
haldsnám íHollandi. Síðustu
ár hefur hann lagt stund á
myndlist.sýnt hérlendis og er-
lendis, aukþesssem hanner
kennari við M.H.l'. Sýningin er
gerð á síðastliðnum tveimur
árum, til sýnis eru lágmyndir
og teikningar og eins og í fyrri
sýningum Ingólfs eru það ekki
síst heildaráhrifin sem sóst er
eftir. Einnig verðurtilsýnis
bókin „tvær bækur“ sem gerð
er í samvinnu við Eggert Pét-
ursson og gefin er út af Hong
Kong Press í Gautaborg. Sýn-
ingin er opin virka daga frá kl.
16:00-20:00 og 14:00-20:00
um helgar. Henni lýkur 14. fe-
brúar.
Á efri hæð Nýlistasafnsins
opnar sýning fjögurra er-
lendra listamanna á morgun
kl. 14:00. Alan Johnston,
Franz Graf, Jussi Kivi og
Wolfgang Stengl sýna mál-
verk, teikningarog rýmisverk.
Sýningin er upphaflega fjórar
einkasýningar listamannanna
áGanginum, Rekagranda8.
Tværþeirrasérstaklega unn-
Jass-sýningin Moving Men verður frumsýnd í Lækjartungli á sunnudagskvöldið.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. janúar 1988