Þjóðviljinn - 30.01.1988, Page 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Suður-Afríka
Fjandinn hittir
ömmu sína
Franz JósefStrauss eftirferð um Suður-Afríku:
Refsiaðgerðir eru hin argasta firra. Gerhart Baum: Strauss
hefur gengist upp í smjaðri suður-afrískra ráðamanna
Strauss í fullum skrúða. Enginn aufúsugestur hinna kúguðu svertingja í Suður-
Afríku - en stórvel fór hins vegar á með honum og Botha.
Franz Jósef Strauss, hinn um-
deildi leiðtogi Kristilegra
demókrata í Vestur-Þýskalandi,
var djúpt snortinn eftir heimsókn
sína til Suður-Afríku sem lauk nú
í vikunni: „Margt hefur breyst til
batnaðar,“ sagði Strauss glaður í
bragði við fréttamenn.
Strauss hefur gert víðreist upp
á síðkastið, nýlega heimsótti
hann Gorbatsjov sovétbónda og
kom öllum á óvart með því að
lofa og prísa stjórnkænsku hans
og nýsköpun. Svo virðist sem
Strauss hafi þó hrifist enn meira
af gangi mála í Suður-Afríku; og
mest um vert þótti honum að
hitta „þá svertingja sem eru al-
gerlega andvígir öllu ofbeldi og
eru reiðubúnir að Ieggja sín lóð á
vogarskálar friðsamlegrar upp-
byggingar.“
Ferðalag Strauss, sem farið var
að tilmælum Kohls kanslara,
gerði litla lukku hjá öllum þorra
svertingja í Suður-Afríku sem
fannst hann enginn aufúsugestur;
og Gerhart Baum, leiðtogi
frjálsra demókrata, fordæmdi
ferðina harðlega. „Hann er ger-
samlega gagnrýnislaus og hefur
gengist upp í smjaðri ráðamanna
suður þar.“ Strauss blés á öll mót-
mæli og viðraði þá skoðun sína að
brýnt væri að halda ráðstefnu um
málefni Suður-Afríku. „Það er
hin argasta firra að beita
stjórnvöld refsiaðgerðum og lýsir
engu nema þekkingarleysi á
ástandi mála hér um slóðir,"
sagði hann og stakk upp á Vestur-
Þýskalandi sem fundarstað.
„Ég hef nú molað úr grjótvegg
forheimskunar,“ sagði Strauss ví-
greifur, „og vonandi fara mál nú
að snúast til betri vegar.“
Franz Jósef hefur nú kvatt vin
sinn Botha og mun væntaniega
einbeita sér að því á næstunni að
stjórna Bæheimi eftir langa fjar-
veru. Hann hefur ekki gefíð upp
hvert leiðin liggur næst að þiggja
ráð og gefa.
Reuter/- hj
Vatíkan
Jóhannes Páll hittir Ortega
Foringi kaþólikka sá ástœðu til þess að sýnaforseta Nicaragua meiri
kulda en öðrum þjóðarleiðtogum ersœkja hann heim
Tveiraf riddurum
hans í efra. Jó-
hannesog Ronald
eruáeinumáli um
að víðasé pottur
brotinn í Nicarag-
uaogaðDaníel
Ortegaverðskuldi
ekki kurteisi og
seremónlur.
Daníel Ortega, forseti Nicarag-
ua, og Jóhannes Páll II, hitt-
ust að máli í Vatíkaninu i gær.
Jóhannes lýsti yfir stuðningi við
friðaráætlun forsetanna fímm í
Mið-Ameriku en sá einhverra
hluta vegna ástæðu til að setja
Ortega skör lægra en aðra gesti
þessa smáríkis í miðri hinni sögu-
frægu Rómaborg og flutti langt
mál og orðþrútið um nauðsyn
lýðræðis i Nicaragua.
Ortega og Jóhannes ræddust
við í hálftíma í einkaskrifstofu
kirkjuleiðtogans. Þetta var fyrsti
fundur þeirra frá því sambúð Nic-
aragua og Vatíkansins snögg-
kólnaði árið 1983. Þá gerðist það
við messu í Managua að stuðn-
ingsmönnum stjórnvalda ofbauð
Kontraáróður klerks nokkurs og
svöruðu þeir honum á staðnum
með því að hrópa slagorð gegn
hernaði Bandaríkjamanna og
málaliða þeirra á hendur lands-
mönnum. Jóhannes móðgaðist
og síðan hefur andað köldu milli
stjórnvalda í Nicaragua og Vat-
íkani.
Fréttamenn er fylgdust með
þvi er Jóhannes tók á móti Or-
tega í gær sögðu hann hafa séð
ástæðu til þess að sýna forseta
Nicaragua meiri kulda og ókurt-
eisi en öðrum gestum sem skolar
að dyrum hans. Yfirleitt kvað
foringi kaþólikka brosa út að
eyrum þegar menn sækja hann
heim og bjóða þeim að stíga inní
vistarverur sínar á undan sér. í
gær tók hann hinsvegar stuttara-
lega og grafalvarlegur í útrétta
hönd gestsins og æddi á undan
honum inní skrifkompu sína.
Blaðafulltrúi Jóhannesar, Jo-
aquin Navarro-Valls, sagði eftir
fundinn að húsbóndi sinn hefði
útskýrt fyrir Ortega nauðsyn þess
að friðaráætluninni yrði hrundið í
framkvæmd og brýnt fyrir honum
að fólk ætti rétt á því að búa í
þjóðskipulagi þar sem lýðræði
væri í hávegum haft.
Reuter/-ks.
Laugardagur 30. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Hver fékk Súbarúinn?
Vinningsnúmerin f Þjóðvilja-
happdrættinu birt
Vinningar í happdrætti Þjóðviljans komu á þessi
númer;
1. Subaru Justy bifreið frá Ingvari Helgasyni hf., að
verðmæti 370 þús. kr. kom á miða nr. 26410.
2. -4. Island PC tölvur frá Aco hf., að verðmæti 65
þús. kr. hver, komu á miða nr 5138, nr. 23415 og
29928.
5.-6. Ferðavinningar frá Samvinnuferðum Landsýn
hf., að verðmæti 50 þús. kr. hvor, komu á miða nr.
6705 og nr. 10896.
7.-8. Húsbúnaður frá Borgarhúsgögnum hf., að
verðmæti 30 þús. kr. hvor, kom á miða nr. 12225 og
nr. 22477.
9.-10. Vöruúttekt frá Japis, að verðmæti 40 þús. kr.
hvor, kom á miða nr. 15596 og nr. 25764.
11. Sjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni hf., að verð-
mæti 50 þús. kr. kom á miða nr. 19201.
12-14. Ritvélar frá Borgarfelli hf., að verðmæti 25
þús. kr. hver, komu á miða nr. 13063, nr. 15385 og nr.
16924.
15.-24. Bókaúttekt frá bókaforiagi Máls og menn-
ingar, að verðmæti 7 þús. kr. hver, kom á miða nr.
2150, nr. 3264, nr. 5185, nr. 10588, nr. 18990, nr.
23819, nr. 24083, nr. 27245, nr. 28560 og nr. 28884.
25.-29. Bókaúttekt frá bókaforlaginu Svart á hvítu,
að verðmæti 5 þús. kr. hver, kom á miða nr. 9780, nr.
14956, nr. 16671, nr. 19020 og nr. 30124.
30.-34. Vöruúttekt frá Nýjabæ, að verðmæti 5 þús.
kr. hver, kom á miða nr. nr. 3699, nr. 8364, nr. 24557,
nr. 25219 og nr. 27175.
Vinningshafar geta snúið sér til skrifstofu Þjóð-
viljans, Síðumúla 6, til að vitja vinninga sinna.
Þjóðviljinn þakkar stuðningsmönnum sínum fyrir góð
viðbrögð við sölu happdrættismiðanna og umboðs-
mönnum happdrættisins um land allt fyrir þeirra fram-
lag.
IJl Sérverkefni
í uppeldismálum
( undirbúningi er samstarfsverkefni Fél-
agsmálastofnunar Kópavogs, Fræðsluskrifstofu
Reykjaness og Hjallaskóla í Kópavogi, sem lýtur
að nemendum er þarfnast hjálpar og stuðnings.
Um tilraunaverkefni er að ræða sem ætlað er að
þróa áfram.
Óskað er eftir starfsmanni með uppeldisfræði-
menntun, helst sálfræðingi. Félagsráðgjafi, upp-
eldisfræðingur og sérkennari koma jafnframt til
greina.
Nánri upplýsingar veita skólastjóri Hjallaskóla í
síma 42033, fræðslustjóri Reykjaness í síma
54011 og félagsmálatjóri Kópavogs í síma
45700.
Félagsmálastóri Kópavogs
Fræðslustjóri Reykjaness
Skólastjori Hjailaskóla
Verkamannafélagið
Hlíf Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs
verkamannafélagsins Hlífar um stjórn og aðra
trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1988 liggja
frammi á skrifstofu félagsins frá og með mánu-
deginum 1. febrúar.
öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hlífar,
Reykjavíkurvegi 64 fyrir kl. 17 fimmtudaginn 4.
febrúar og er þá framboðsfrestur útrunninn.
Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlífar