Þjóðviljinn - 30.01.1988, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
Laugardagur 30. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
Slavko Bamblr, þjálfari kvenna-
landsliðsins í handknattleik.
Leikir
kvennaliðsins
í keppnisferð A-landsliðs
kvenna til Svíþjóðar og Finn-
iands verða leiknir 5 landsleikir.
31eikjanna verða við Finna, 1.,
2. og 3. febrúar. Tveir leikir
verða leiknir við Svía 5. og 6. fe-
brúar.
Liðið heldur utan í dag og kem-
ur aftur 7. febrúar. _ih
Kvennalandsliðlð í handknattlelk. Sem leikur þrjá leiki gegn Finnum og tvo leiki gegn Svíum í næstu viku. (Mynd E.ÓI.)
Kvennalandsliðið
Þegar blaðamaður Þjóðviljans
leit inn á æfingu íslenska kvenna-
landsliðsins í handknattleik á
fímmtudagskvöldið voru stelp-
urnar á fullri ferð í upphitun.
Oðru hvoru heyrðust flaut og
hróp: „You are so handsome“.
Þegar nánar var að gáð kom í ljós
að stelpurnar voru að dást að
nýja landsliðsþjálfaranum sín-
um, Slavko Bambir, þar sem
hann var að spóka sig í nýjum
æfíngagalla.
Þó Bambir hafi látið þetta sér
vel lynda í upphituninni þá er
hann að mörgu leyti öðruvísi en
stelpurnar hafa áður vanist.
Hann krefst mjög mikils af þeim
og heimtar að þær gefi sig allar í
handboltann. Stelpurnar eru
fljótar að læra og voru hundfúlar
að þurfa að stilla sér upp í mynda-
töku.
Slavko Bambir er Júgóslavi og
er allþekktur handknattleiks-
Knattspyrna
ísland lenti í góðum ríðli
Igær var dregið í riðlafyrir
Evrópukepprti landsliða undir21 árs
Knattspymusamband Evrópu,
UEFA, tilkynnti um niðurröðun
í riðla fyrir Evrópukeppni lands-
liða U-21 árs 1990.
íslendingar lentu í óvenju
skemmtilegum riðli. Við leikum
með Finnum, Hollendingum og
V-Þjóðverjum. Er það óneitan-
lega skemmtilegt að lenda ekki
með austantjaldsþjóð eins og
löngum hefur viljað loða við okk-
ur.
Niðurröðun í riðlana er sem
hér segir:
1. riðill: Búlgaría, Danmörk,
Grikkland og Rúmenía.
2. riðill: Albanía, England, Pól-
land og Svíþjóð.
3. riðill: Austurríki, A-
Þýskaland, Sovétríkin og Tyrk-
land
4. riðill: Finnland, ísland, Hol-
land og V-Þýskaland.
5. riðill: Frakkland, Noregur,
Skotland og Júgóslavía.
ó.riðill: Kýpur, Ungverjaland og
Spánn
7. riðill: Belgía, Tékkóslóvakía,
Lúxemborg, Portúgal.
8. riðill: Ítalía, San Marínó og
Sviss.
Leikdagar verða að vera
ákveðnir fyrir 15. mars 1988.
Riðlakeppninni verður að vera
lokið fyrir 30. nóvember 1989.
Sigurvegarar riðlanna komast
áfram í 8 liða úrslit.
-ih/reuter
þjálfari þar. 1 samtali við blaða-
mann fyrir æfinguna sagði hann
að honum litist vel á margar af
eldri stelpunum, þær væru mjög
góðar og byggju yfir mikilli
reynslu sem kæmi sér vel í
leikjum eins og þeim sem eru
framundan í Svíþjóð og Finn-
landi. „Leikirnir við Svía og
Finna verða einskonar prufu-
leikir fyrir mig og liðið. Stelpurn-
ar hafa ekki átt þess kost að leika
mikið saman þannig að ég veit í
raun ekki hvernig þær koma til
með að vinna saman,“ sagði
Bambir. „Ég hef áður þjálfað
kvennalið í Júgóslavíu. R.K.
Tresnjevka varð m.a. IHF
meistari undir minni stjórn
1982.“
„Það sem þarf að gera er að
byggja upp yngri liðin. Við þurf-
um að breyta landsliðinu mjög
hægt. Það er ekki hægt að skipta
út öllum eldri spilurunum í einu,
yngri stelpurnar þurfa að koma
inní dæmið smátt og smátt. Ég
hef fylgst með leikjum í yngri
flokkunum og líst mjög vel á
margar stelpur þar. Sérstaklega
er mikill efniviður hjá Gróttu og
FH. Eftir ferðina núna er vel
hugsanlegt að ég bæti 5-6 stelpum
við í hópinn. En það hlýtur að
vera stefna að vera með 25-30
manna hóp af stelpum á aldrinum
14-18 ára og geta byggt þar upp
12-15 manna kjarna sem tekur
við af þessum stelpum sem eru
núna í landsliðinu.“
Margar af þessum stelpum sem
eru núna í hópnum spila knatt-
spyrnu á sumrin, samræmist það
þínum hugmyndum?
„Ef stelpurnar spila fótbolta þá
mega þær það mín vegna. En ef
þær ætla að spila handbolta þá
verða þær að gefa sig allar í það.
Ég skil þær mjög vel að vilja spila
fótbolta á sumrin þar sem þær æfa
ekki handbolta þá. En ef við
eigum að geta náð árangri í C-
keppninni í október þá er það
ljóst að við verðum að æfa í allt
sumar. Þess vegna verða þær að
velja,“ sagði Bambir að lokum.
ogþetb
líka...
Geirlaug
Geirlaugsdóttir hefur verið ráðin til
starfa á skrifstofu FRÍ.
Geirlaug er fyrrum spretthlaupari
úr Ármanni. Mun hún sjá um bréfa-
skriftir og aðra ritvinnslu á vegum
sambandsins. Þá mun hún verða hin-
um ýmsu nefndum FRÍ innan handar
um það sem skrifstofan getur hjálpað
þeim með, t.d. útgáfustarfsemi.
Coventry
núverandi deildarbikarmeistarar í
Englandi vonast til að geta sýnt
áhorfendum eitthvað af því sem þeir
lærðu af v-þýska liðinu Hamburg.
Leikmenn Coventry og Hamburg
voru í æfingabúðum nálægt Malaga á
Spáni í nokkra daga í síðustu viku.
Framkvæmdastjóri Coventry, John
Silett sagði að liðin hefðu lært nokkuð
hvort af öðru. „Leikmenn Hamburg
horfðu á æfingar hjá okkur og við hjá
þeim", sagði hann.
Coventry mætir Watford í ensku
deildarbikarkeppninni á laugardag-
inn.
Nær uppselt
er á alla leikina í úrslitakeppninni í
knattspyrnu í V-Þýskalandi í júní n.k.
Að sögn Horst Schmidt, fram-
kvæmdastjóra keppninnar, er mjög
líklegt að það verði uppselt á alla
leikina 15. Frá Danmörku hafa borist
óskir um 39.000 miða á hvern hinna
þriggja leikja danska liðsins. Þau sjö
ríki sem taka þátt í úrslitakeppninni fá
úthlutað 20% af þeim miðum sem
seldir verða. Þannig eiga Danir að-
eins rótt á 12-13.000 miðum á hvern
leik.
Schmidt sagði að það væri von á
svipuðum óskum frá Ítalíu og Hol-
landi áður en frestur til að festa sér
miða rennur út á mánudaginn. Hann
taldi líklegt að það yrði uppselt á alla
leikina, að leik Sovétmanna og íra
undanskildum.
Margar af eldri stelpunum góðar
En við verðum að byggja upp
Islenska kvennalandsliðið áförum til Svíþjóðar og Finn-
lands. Slavko Bambir landsliðsþjálfara líst vel á íslenskan
kvennahandknattleik
Þær stúlkur sem Bambir valdi \
ferðina eru
Markverðir:
Kolbrún Jóhannesdóttir Fram
Halla Geirsdóttir............FH
Fjóla Þórisdóttir...Stjörnunni
Aðrir leikmenn:
GuðríðurGuðjónsdóttir... Fram
Arna Steinsen..............Fram
Ósk Víðisdóttir............Fram
Eva Baldursdóttir.............FH
Kristín Pétursdóttir..........FH
Erna Lúðvíksdóttir...........Val
Katrín Fridriksen............Val
Guðný Gunnsteinsdóttir
Stjörnunni
Inga Einarsdóttir.............FH
HeiðaEinarsdóttir.............FH
Inga Lára Þórisdóttir ...Víking
Margrét Theódórsdóttir Haukum
Þjáfari er Slavko Bambir,
sjúkraþjálfari Oddný Sig-
steinsdóttir og fararstjórar Helga
Magnúsdóttir og Björg Guð-
mundsdóttir.
-íh