Þjóðviljinn - 14.02.1988, Blaðsíða 11
I
rósa-
garðinum
APRÍLGABB
ÁRSINS
Mjólk plötuð ofan í fólkið í
gegnum ost.
Fyrirsögn í Tímanum.
TILVISTARVANDI
Um þessar mundir eins og oft
áður berst Tíminn fyrir lífi sínu
og þolir því ekki nema tak-
markaða vinsemd þeirra sem
halda að blaðið eigi að vera
einhvernveginn öðruvísi.
IGÞ í Tímanum.
HIÐ FULLKOMNA
SAMRÆMI
Mörg ung listaspíran hlýtur að
fagna sýningu sem þessari og
sömuleiðis er það alveg víst
að fulltrúar sígildra og skipu-
legra vinnubragða hafna
henni. Og þá mun tilgangin-
um trúlega náð.
Morgunblaðið.
ÆÐRI
HAGFRÆÐI
Borðum ekkert meira þótt
fleiri verslanir selji okkur mat-
inn.
Fyrirsögn í Morgunblaðinu.
ÖFGAR
ERU KARLKYNS
En ég er engin öfgamannes-
kja og ætla fyrst og fremst á
Nordisk Forum til að hitta aðr-
ar konur.
Helgarpósturinn.
KANNSKI
SANNFÆRAST
ÞEIR
í NÆSTA LÍFI?
Ráðgert er að bjóða öllum
fyrrverandi formönnum Sam-
bands ungra framsóknar-
mannatil þingsins, en þeireru
nú orðnir fimmtán talsins og
raunar ekki allir framsóknar-
menn ennþá.
Tíminn
AUMINGJA
RÍKA FÓLKIÐ
Sumir halda því fram að þeir
ríku fái allt sem þeir vilja. Það
á þó alls ekki alltaf við. Til
dæmis hafa veðurguðirnir alls
ekki viljað þóknast spænsku
konungsfjölskyldunni.
DV.
Sm I
x h.~ Q\a'd'
ffl-fflBaaaSSS-sB-..
1 «
I ...
Frumrll
B'iiðthtkjti
EINDAGI
. SKILA .
A STAÐGREBSLUFE
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reiknuðu
endurgjaldi mánaðarlega. Skilin skulu
gerð eigi síðar en 15. hvers mánaðar.
Ekki skiptir máli í þessu
sambandi hversu oft í mánuði laun eru
greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram
eðaeftirá.
Með skilunum skal fylgja greinargerð á
sérstökum eyðublöðum „skilagreinum",
blátt eyðublað fyrir greidd laun og rautt
fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber
ávallt að skila einnig þó svo að engin
staðgreiðsla hafi verið dregin af
(mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í
heilum krónum.
Allir launagreiðendur og sjálfstæðir
rekstraraðilar eiga að hafa fengið send
eyðublöð fyrir skilagrein. Þeirsem
einhverra hluta vegna hafa ekki fengið
þau snúi sér til skattstjóra, gjaldheimtna
eða innheimtumanna ríkissjóðs.
gerið skil fýrir fímmtánda.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI