Þjóðviljinn - 14.02.1988, Blaðsíða 13
boraarinnar
elliheimilinu hér í New York og
hýsir samskonar lífeyri, nenni ég
ekki að svekkja hlustendur frek-
ar á upptalningu úr þeim rusla-
haugi. Pulsan fyrir utan var þó
óvenju góð og nú var haldið að
Hvíta húsinu sem ber nafn með
rentu, því hvítara hús hef ég vart
augum litið á minni beislituðu
ævi. Gríðarlega myndarleg og
heimilisleg bygging. Sannast hér
líka sú stalínska kenning að það
sem er manni verst þykir manni
hve fegurst. Því innan dyra þessa
húss eru undirrituð öll þau skjöl
sem færa Contra-mönnum vopn í
hendur til viðhalds á stríðinu í
Nikaragúa sem nú þegar hefur
drepið 25.000 manns.
Og einmitt þegar okkur ber hér
að garði erum við stöðvuð við
garðshliðið, nær dýrðinni kom-
umst við ekki í dag, því nú kemur
í þyrlunni sinni svífandi forsetinn
sjálfur, Ronald Reagan. Vélin
lendir á flötinni fyrir aftan höllina
og út stígur „hin fyrsta kona“
(The first lady) með stóra höfuð-
ið og síðan eiginmaður hennar,
hátt að áttræðu. En þau fara
röngu megin út úr þyrlunni sem
við kíkjum undir og sjáum Reag-
an aðeins upp að ökkla, sem að
vísu ætti að vera nóg þar sem
hann er um þessar mundir kallað-
ur af pressunni „Lame-duck-
president" vegna fylgisleysis í
þinginu. Hann er bara lömuð
önd. Og við sáum sem sagt þegar
hún bröltir niður úr vélinni á litla
hjólastólnum sínum.
Þegar hér var komið sögu var
fátt eftir óskoðað hér á þessum
sunnudegi í höfuðborg
heimsveldisins, sem má að vísu
ekki segja nú á dögum, en aðeins
nota það orð í nostalgískri hrifn-
ingarvímu um hið rómverska til
forna. Og að loknu innliti í
122ggja-búða-Mall í Tyson’s
Corner (að kröfu konunnar,
hinnar miklu Moll-konu) var
brunað heim á leið eftir þjóðvegi
númer 95 sem skartaði sínu feg-
ursta í kvöldsólinni, sem einnig
skein á vesturhlið Pentagon-
báknsins; ein tilkomumesta sýn
seinni ára.
Heimferðina tókum við þó ró-
lega og notuðum hana vel til að
kynna okkur borgirnar á leiðinni.
Litið var inn á nektardansbar í
Baltimore, (fæðingarborg John
Waters og Divine) þar sem fer-
tugur fflsungi dansaði uppi á
borðum. Þar var þó aðeins einn
maður inni og var okkur því ekki
til setu boðið en héldum skjótt
aftur út á hæ-veginn. Útvarpið
höfðum við jafnan opið og rásirn-
ar breyttust með réttum ferða-
hraða, nýjar komu og aðrar dóu
út. Fátt fréttnæmt heyrðum við
þó utan skemmtilegar auglýsing-
ar um aðbúnað í flughernum og
nýtt ógalið lag með Boy George.
Var gaman að heyra aftur í því
gamla goði og gott að vita hve vel
hann hefur náð sér upp úr lyfjun-
um. Já það var ekki að heyra ann-
að en hann væri aftur orðinn sæll
og feitur. „I’ve learned my les-
son, no matter wrong or right.“
Líkt og í réttu framhaldi af því
áðum við á nýrri tegund skyndi-
bitastaða, sem heita Big Boy og
eru í raun stórkostleg framför í
þeirri menningu. Þar var manni
boðið uppá „Éti hér hver sem
betur getur“, („all you can eat“)
fyrir svosem ekki neitt og þáðum
við það. í minjabúðinni við hlið-
ina tókst mér að hnupla skemmti-
legum minjabolla með mynd af
flamíngóa og áletrun fylkisins
Delaware, sem hljómar á
óskyldan hátt eins og Húnaver
(Delaver). Á ég þetta mál enn
þann dag í dag og drekk úr hon-
um morgunkaffið.
Ffladelfía er ekki síður tignar-
leg borg en Baltimore og gaman
að aka þar innan um upplýst há-
l.ýsi og mannlausar götur líkt og í
miðju útgöngubanni. Af tilviljun
varð okkur ekið framhjá kvik-
myndahúsi þar sem akkúrat í
þann mund var að hefjast sýning
á vinsælustu kvikmynd landsins,
dramagrínmyndinni „Good
Morning Víetnam" með fyndn-
asta manni heimsins, Robin Wil-
liams, í aðalhlutverki.
Skemmtum við okkur konung-
lega yfir leik hans og furðulátum.
Á endanum fór þó svo að það
voru tárin sem söltuðu poppið
okkar. Williams þessi er hreinn
snillingur sem hingað til hefur
ekki notið sannmælis. En nú eru
hjólin á honum farin að snúast og
er von að þau snúist honum þó
ekki til höfuðins, því á dögunum
las ég að til stæði að hann léki
brátt í nýrri uppfærslu á „Beðið
eftir Godot", því mikla nútímab-
löffi Becketts sem maður vonar
þó að reynist ekki rétt, því hvað á
slík reipitunga að gera við svo
galtóman texta? Jæja, aftur er
maður kominn í stólinn og bið ég
hlustendur enn að fyrirgefa út-
úrdúrinn.
Heim í heitan faðm heima-
borgarinnar N.Y.C. vorum við
síðan komin laust fyrir þrjú þá
um nóttina. Að uppgjöri loknu
kvöddumst við með virktum,
ánægð með vel heppnaða helgar-
ferð til höfuðborgarinnar og hélt
síðan hver til síns heima. Á kodd-
anum þar hlóðust svo upp minn-
isvarðar um Washington í huga
manns og maður sofnaði sæll og
minnugur.
N.Y.C. 28. jan. ’88
Hallgrfmur
Sunnudagur 14. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Alþýdubankinn hf
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubankans hf. verður hald-
inn í Átthagasal Hótel Sögu, Reykjavík,
laugardaginn 20. febrúar 1988 og hefst kl.
13.30.
Dagskrá:
a) Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við
ákvæði 32. greinar samþykkta bankans.
b) Tillaga um breytingar á samþykktum bank-
ans.
c) Tillaga um heimild til bankaráðs umútgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
d) Tillaga um heimild til bankaráðs um nýtt hlut-
afjárútboð.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar
verða afhentir í aðalbankanum, Laugavegi 31,
dagana 17., 18. 19. febrúar næstkomandi.
Fh. bankaráðs Alþýðubankans hf.
Ásmundur Stefánsson, formaður
Borgarverkfræðingur
í Reykjavík
óskar eftir skrifstofufólki fyrir deildir og stofnanir.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri borgar-
verkfræðings, Skúlatúni 2, í síma 18000.
fl*fl REYKJNJÍKURBORG l*fl
** m m ____ ____ K ^ ^
»H H
JLautein. Stödxvi 'I*
Gatnamálastjórinn
í Reykjavík
Auglýsir til umsóknar störf stöðuvarða. í starfinu
felst eftirlit með stöðumælum borgarinnarog um-
ferðarlagabrotum sem varða stöðu bifreiða. Þeir
umsækjendur, sem ráðnir verða, munu sækja
námskeið hjá lögreglunni í Reykjavík.
Bent skal á að starfið hentar jafnt konum sem
körlum.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi St.Rv. og
Reykjavíkurborgar.
Umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum skal
skila til starfsmannastjóra borgarverkfræðings
Skúlatúni 2, sem jafnframt veitir upplýsingar um
starfið.
Ræstingastjóri
Starf ræstingastjóra hjá Sambandinu er laust til
umsóknar.
Starfið felur í sér m.a. umsjón með ræstingu á
hinum ýmsu vinnustöðum Sambandsins, upp-
mælingu og gerð verklýsinga, innkaupum og
ráðningu starfsfólks.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannahaldi sem veitir nánari upplýsingar.
$
SAMBANDÍSL.SAMVIHNUFÍIAGA
STARFSMANNAHALD