Þjóðviljinn - 09.03.1988, Page 8
MENNING
Leikhús
Lýsistrata á Egilsstöðum
Leikhópur Menntaskólans á Egilsstöðum sýnir Lýsiströtu eftir Aristofanes
í kvöld frumsýnir leikhópur
Menntaskólans á Egilsstöð-
um Lýsiströtu eftir Aristofan-
es, í leikstjórn Ingunnar
Ásdísardóttur.
Petta er stærsta verkefni
leiklistarsviðs menntaskólans til
þessa, en síðan það var stofnað
fyrir 9 árum hefur draumurinn
verið að takast á við stór verkefni
sem máli skipta í leikbók-
menntunum.
- Þetta er fjörug og litrík sýning
eins og leikritið gefur tilefni til,
segir Ingunn Ásdísardóttir leik-
stjóri, - við höfum ekki farið út í
að búa til einhvern gamlan
grískan stíl á sýninguna, heldur er
hún í skrautlegum nútímastíl.
En hvernig stendur á því að
Lýsistrata varð fyrir valinu?
- Þetta er leikrit sem hefur skír-
skotun til nútímans þó það sé yfir
2000 ára gamalt, það fjallar um
stríð og frið, sem er nokkuð sem
er mikið til umræðu enn þann dag
í dag og mikil þörf á að ræða.
Semja þeir frið?
Leikritið fjallar um þetta vanda-
mál á gamansaman hátt, og ég
legg áherslu á glensið og gamanið
í uppfærslunni, án þess að missa
sjónar á hinum alvarlega undir-
tóni.
Reyndar kemur meginádeila
verksins fram í samræðum
kvennanna sín á milli, þegar þær
tala um að þær missi menn sína,
feður, frændur og syni í stríði.
Þess vegna fara þær í hjásofels-
isverkfall þangað til þeir eru bún-
ir að semja frið.
Að sýningunni stendur 20
manna hópur sem hefur unnið
hörðum höndum að undirbúningi
hennar undanfarnar sex vikur,
með dyggilegri aðstoð skólayfir-
valda. Lýsingu annast Vilhjálmur
Hjálmarsson, leikmynd og bún-
ingar hafa orðið til í samvinnu
Ingunnar og krakkanna.
LG
Ingunn Ásdísardóttir. Mynd -Sig.
Tímarit Máls
og menningar
Tíma-
þjófurinn,
smásögur,
Ijóð og
margt fleira
Fyrsta Tímarit Máls og menn-
ingar á árinu er komið út, en
það er jafnframt fyrsta tímarit-
ið undir stjórn nýs ritstjóra, en
Guðmundur Andri Thorsson
tók við af Silju Aðalsteinsdótt-
urnú umáramótin.
Meðal efnis í tímaritinu eru ný
smásaga eftir Þórarin Eldjárn,
ljóð eftir Sigurð Pálsson og Gyrði
Elíasson og smásaga eftir frönsku
skáldkonuna Daniéle Sallenave.
Einnig er í tímaritinu viðtal við
Sallenave, þar sem hún gagnrýnir
meðal annars feminískar rann-
sóknaraðferðir í bókmenntum,
en dæmi um þær er að finna í
langri grein sem Helga Kress
skrifar í tímaritið, um Tímaþjóf-
inn eftir Steinunni Sigurðardótt-
ur.
Auk þess má nefna grein Árna
Óskarssonar og Arnar D. Jóns-
sonar um William Morris, enska
19. aldar sósíalistann sem tor-
tryggði Iðnbyltinguna og umbylti
allri hönnun í Englandi á sínum
tíma, ádrepu Einars Más Guð-
mundssonar: Tossabandalagið,
og fyrirlestur Alains Robbe-
Grillet: Að skrifa gegn lesend-
um. Enn fremur er í tímaritinu
fjöldi ritdóma um íslensk skáld-
verk og fræðirit.
LG
1
y Leikhús
Alfar og tröll í Lindarbæ
3. bekkur Leiklistarskóla íslands sýnir barnaleikrit eftir Staffan Vestberg
Þessa dagana standa yfir í
Lindarbæ sýningar 3. bekkjar
Leiklistarskóla (slands á
barnaleikritinu Með álfum og
tröllum, eftir sænska höfund-
inn Staffan Vestberg, sem er
einn af helstu höfundum barn-
aleikrita í Svíþjóð.
Leikritið segir frá drengnum
Jóakim sem er alls ekki á því að
álfar og tröll séu til, hann er að
minnsta kosti ekki tilbúinn að
trúa því án sannana. Sönnunina
fær hann svo þegar honum er gef-
in stór og mikil ævintýrabók.
Hann situr í herberginu sínu og.
flettir henni, og þá fara ævintýrin
að gerast. Leikföngin hans lifna
við og loksins lendir Jóakim í
ævintýraskógi, þar sem eru bæði
álfar og tröll. Þar upplifir Jóakim
raunverulegt ævintýri sem
auðvitað endar óskaplega vel,
eins og vera ber, þegar Jóakim
tekst að bjarga prinsessunni úr
tröllahöndum.
Leikstjóri sýningarinnar er
Kári Halldór, leikmynd og bún-
ingar eru eftir Messíönu Tómas-
dóttur, og lýsingin eftir Ólaf Örn
Thoroddsen. Þýðandi er Úlfur
Hjörvar. LeikendureruþauBára
Magnúsdóttir, Christine Carr,
Elva Ósk Ólafsdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Ólafur Guð-
mundsson, Sigurþór Albert
Heimisson, Steinn Ármann
Magnússon og Steinunn Ólafs-
dóttir. LG
Háskólatónleikar
Tvö einleiksverk fyrir fiðlu
Hlíf Sigurjónsdóttir leikur verk eftir Alfred Felder og Jónas
Tómasson
Einleikari á Háskólatón-
leikunum í Norræna húsinu í
dag er Hlíf Sigurjónsdóttir
fiðluleikari.
Hlíf lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Hún stundaði framhaldsnám við
háskólana í Indiana og Toronto,
og var styrkþegi við Listaskólann
íBanffíKanada 1979-1981.1981-
1983 kenndi hún við Tónlistar-
skóla ísafjarðar, og starfaði síðan
í Reykjavík, meðal annars sem
konsertmeistari íslensku hljóm-
sveitarinnar. Síðastliðið ár var
hún fastráðin hjá Kammerhljóm-
sveitinni í Zúrich.
Á tónleikunum í dag flytur Hlíf
tvö einleiksverk fyrir fiðlu. Það
fyrra samdi Svisslendingurinn
Alfred Felder fyrir Hlíf árið 1987.
Þetta er frumflutningur verksins,
sem er tilbrigði við stef páska-
sálmsins Victimae paschali
laudes, frá 13. öld. Seinna verkið
er einnig samið sérstaklega fyrir
Hlíf, það er Vetrartré sem Jónas
Tómasson tónskáld á ísafirði
samdi árið 1983.
Tónleikarnir eru sem fyrr sagði
í Norræna húsinu og hefjast kl.
12:30. LG
Hlíf Sigurjónsdóttir
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 9. mars 1988