Þjóðviljinn - 12.03.1988, Side 1

Þjóðviljinn - 12.03.1988, Side 1
Laugardagur 12. mars 1988 59. tölublað 53. árgangur Ár liðiðfráþvíað útgáfu lánsloforða var hœtt. 12.000 umsóknir íárslok. Grétar Þorsteinsson: Munar um 1,6 miljarða sem ríkið hefur ekki greitt afþvísem lofað var. Sigurður E.: 35 miljónir á dagfrá Húsnœðisstofnun Idag er liðið nákvæmlega eitt ár síðan lokað var á veitingu láns- loforða frá Byggingarsjóði ríkis- ins. Það var 12. mars á síðasta ári sem ákveðið var að hætta útgáfu lánsloforða. Síðan hafa Húsnæð- isstofnun borist hátt í átta þúsund umsóknir og reiknað er með að þær verði um 12 þúsund í árslok. Grétar Þorsteinsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, sagði að þetta stopp á útgáfu láns- loforða hefði haft mjög slæm áhrif vegna þess óvissuástands sem skapast hefur fyrir það fólk sem sótt hefur um á þessu tíma- bili. Grétar sagði að ríkisvaldið ætti sinn þátt í lokun kerfisins þar sem það hefur ekki staðið við sinn hlut, en svo hefur verið allar göt- ur síðan samkomulagið var gert milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins um nýtt húsnæðis- kerfi. Samkomulagið gekk út á að framlög ríkisins til húsnæðiskerf- isins héldi verðgildi sínu. Nú er talið að um 1,6 miljarða vanti til að svo hafi verið. 500 miljónir vegna þess áð framlögin hafa ekki haldið Verðgildi sínu, 500 miljónir sem ákveðið var að frysta inni í byggingarsjóðunum með síðustu fjárlögum og 100 miljónir sem ríkisstjórnin ákvað að skera niður af framlögum sín- um vegna síðustu efna- hagsráðstafana stjórnarinnar. „Það hefði haft umtalsverð áhrif til hins betra ef Húsnæðis- stofnun hefði haft þessa peninga til ráðstöfunar,“ sagði Grétar. Annað sem átti þátt í lokun kerfisins var eftirspurnin eftir lánum, en hún varð miklu meiri en menn bjuggust við. Grétar sagði þó of stutt síðan kerfinu var komið á til þess að dæma um árangurinn. Það yrði að fá þriggja til fimm ára reynslutíma áður en nokkuð yrði ályktað um það. „Það er langt því frá að hér sé lokað,“ sagði Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar. „í ár er reiknað með að Húsnæðisstofn- un láni úr byggingarsjóðunum um 8,3 miljarða króna, sem þýðir að meðaltali 35 miljónir hvern virkan dag ársins. Af þessum 8,3 miljörðum eru 2,3 miljarðar úr Byggingarsjóði verkamanna og 6 miljarðar úr Byggingarsjóði ríkisins. Það væri því nær að segja 'að'við mokum út peningum og ég stórefa að húsnæðismarkaðurinn sé í stakk búinn til að taka við meira fjármagni." Sigurður sagði að Húsnæðis- stofnun hefði undanfarnar vikur verið í startholunum með að hefja aftur útgáfu lánsloforða, en það hefði dregist m.a. vegna tregðu nokkurra lífeyrissjóða við að undirrita samninga um skulda- bréfakaup við byggingarsjóðina. Sigurður sagði að nú ættu um 10 lífeyrissjóðir eftir að ganga frá skuldabréfakaupunum en meðal þeirra eru Lífeyrissjóður bænda og Lífeyrissjóður Málm- og skipasmiða. Sagðist hann vonast til þess að hægt yrði að hefja út- gáfu lánsloforða á næstu vikum. -Sáf „Langt frá því að hér sé lokað. segir Sigurður E. GuðmundS' son framkvæmdastjóri HúS' næðisstofnunar sem segist moka út miljonum dag hvern. Þeir sem biða kynnu hinsvegar að minnast þess að ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið, - eða þannig. (Mynd: Sig.) tiusnædisstojnun Engin loforð ' heilt ár Snótarverkfallið Löndunarbann á Eyjabáta Dagsbrún setur löndunarbann á Eyjabáta. Hlífhefurbanntil athugunar. Elías Björnsson, Sjómannafélaginu Jötni: Ekki komið til tals að grípa til stuðningsaðgerða. Enn streymirfé í verkfallssjóð Snótar Loðna Alltaf sama mokið Ekkert lát er á moki loðnu- veiðiskipa á miðunum út af Vestmannaeyjum og Hroll- augseyjum og tilkynntu 22 bátar 15,860 tonn síðasta sólarhring. Aðeins er eftir að veiða um 65 þúsund tonn af loðnu á þessari vertíð. Að sögn Ástráðar Ingvars- sonar hjá Loðnunefnd hafa 16 skip nú þegar lokið veiðum að sinni og ef fram fer sem horfir verða skipin orðin 25 um miðja næstu viku sem klárað hafa kvót- ann sinn á þessari vertíð en hún hefur gengið vonum framar frá áramótum eftir lélega byrjun í haust. Um 10 skip eru við hrogna- töku og eru hrognin fryst og seld á Japansmarkað. Skipin sigla með loðnuna á hafnir út um alla ströndina og sum hver sigla með hana til Fær- eyja, Skotlands og Danmerkur svo dæmi séu nefnd. -grh Verkamannafélagið Dagsbrún hefur sett löndunarbann á báta frá Vestmannaeyjum, sem ætla að landa afla í Reykjavík. Verkamannafélagið Hlíf í Hafn- arfirði hefur til athugunar að grípa til löndunarbanns og sam- kvæmt heimildum blaðsins eru fleiri verkalýðsfélög með svipað- ar aðgerðir á prjónunum. - Stuðningur í verki er mjög mik- ils virði fyrir okkur og þá er ég ekki að gera lítið úr þeim fjár- stuðningi sem enn streymir inn til okkar, sagði Elsa Valgeirsdóttir, varaformaður Snótar. Þegar hafa tveir Eyjabátar landað afla uppá landi eftir að verkfall Snótar hófst. Útgerðar- menn í Eyjum munu hafa ráðgert frekari landanir Eyjabáta í höfnum suðvestanlands. Fyrir- hugað var að að Breki VE landaði í Reykjavík á sunnudag. Sigurður T. Sigurðsson, for- maður verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði, sagði að Hlíf hefði til athugunar að grípa til stuðningsaðgerða. - Það er frumskilyrði að við styðjum við bakið á Snótarkonum og öðrum verkalýðsfélögum sem kunna að standa í aðgerðum. Við erum alls ekki stikkfrí þó að við höfum samþykkt samningana, sagði Sig- urður. Elías Björnsson, formaður sjómannafélagsins Jötuns í Vest- mannaeyjum, sagði í samtali við Þjóðviljann í gær, að ekki hefði enn komið til tals innan félagsins að sjómenn í Eyjum grípi til stuðningsaðgerða við Snótarkon- ur. - Þetta verkfall er nú svo til nýhafið. Við sjáum bara til hvað tíminn leiðir í ljós, sagði Elías. Að sögn Elsu Valgeirsdóttur, berast enn fjárframlög í verkfalls- sjóð Snótar. Síðast létu Félag járniðnaðarmanna 50.000 af hendi rakna í verkfallssjóðinn og Hið íslenska kennarafélag og Bókagerðarmenn gáfu sínar 50.000 krónurnar hvort. Elsa sagði að þegar hefðu bor- ist um 900.000 krónur í verkfalls- sjóðinn. - Þetta kemur sér ekki síst vel fyrir þær konur sem hafa einar að sjá fyrir heimili og ferm- ingar standa fyrir dyrum, sagði Elsa. Reikningsnúmer Snótar hjá Sparisjóði Vestmannaeyja er 3811, hafi menn áhuga á að veita Snót fjárhagsstuðning. -rk

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.