Þjóðviljinn - 12.03.1988, Qupperneq 2
Reynir Loftsson
ver kamaður:
Mér finnst að það eigi að færa
hana. Enga aðra skoðun.
Freyja Guðlaugsdóttir
fóstra:
Ekki hugsað út í það. Ef það er
eins slæmt og látið er af finnst
mér sjálfsagt að loka henni.
Theodór Guðnason, starfs-
maður Hard Rock Café:
Af hverju ekki? Það mætti kann-
ski auka varúðarráðstafanir.
Þetta er búið að vera svona í
mörg ár, afhverju að gera mál úr
þessu núna?
Unnur Vestmann,
starfsmaður í Hagkaup:
Ails ekki. Að minnsta kosti færa
hana burt af höfuðborgarsvæð-
inu.
Kjartan Kjartansson
offsetprentari:
Nei. Leggja hana niður eins og
hún er í dag. Of mikil sprengi-
hætta.
—SPURNINGIN—
Telur þú aö það eigi aö
halda áfram rekstri
Áburðarverksmiðjunnar
í Gufunesi?
FRETTIR
Norðurlandaráð
Atakalitlu þingi lokið
Tillaga Guðrúnar Helgadóttur um átakgegn mengun samþykkt
Efnahagsbandalag Evrópu og
umhverflsmál voru ofarlega á
baugi á átakalitlu þingi Norður-
landaráðs sem slitið var í Stór-
þinginu í Osló í gær. Umræðan
um Efnahagsbandalagið spratt
fyrst og fremst af áætlunum
bandalagsins um stofnun svo-
nefnds innri markaðar og Ijóst er
að umræðum um það efni lauk
ekki við þingsiit í gær.
Þetta 36. þing Norðurlanda-
ráðs lætur ekki eftir sig neina
handbæra niðurstöðu varðandi
Efnahagsbandalagið aðra en þá,
að Norðurlöndin verða með ein-
hverjum hætti að bregðast við
auknu samstarfi landa bandalags-
ins. Rætt var um að Norðurlönd
ykju viðskipti sín á milli, kæmu
jafnvel á einhvers konar innri
markaði eða heimamarkaði á
Norðurlöndum.
Sem stendur er Danmörk eitt
Norðurlanda aðili að Efnahags-
bandalaginu. Hins vegar er ljóst
að umræðan um aðild að banda-
laginu hefur fengið byr undir
báða vængi í Noregi, en hún hef-
ur að mestu legið niðri síðan
Norðmenn höfnuðu aðild árið
1972.
íslenskir stjórnmálamenn hafa
þvertekið fyrir möguleika á aðild
Islands að bandalaginu og Páll
Pétursson komst svo að orði að
aðild íslendinga væri ekki til um-
ræðu næstu áratugina.
Forysta
í umhverfismalum
Enda þótt Norðurlöndin, eink-
um skandinavísku löndin, eigi við
ýmsan mengunarvanda að stríða,
teljast þau þó skömminni skárri
en flést önnur ríki og hafa á-
kveðna forystu á sviði umhverfis-
verndar.
Guðrún Helgadóttir alþingismaður.
Búist var við að ráðherranefnd
ráðsins myndi leggja fram verk-
efnaáætlun í umhverfismálum á
þessu þingi, en svo varð ekki.
Hins vegar voru samþykktar ein-
staka tillögur á þessu sviði m.a.
tillaga Guðrúnar Helgadóttur um
átak gegn mengun í höfum og við
strendur. Gert er ráð fyrir að ráð-
herranefndin skili af sér áætlun
um það á næsta þingi ráðsins.
Norðurlöndin hafa með sér
víðtækt samstarf í menningar-
málum og á þinginu í Osló var
samþykkt ný menningarmálaá-
ætlun. Meðal helstu atriða í áætl-
uninni má nefna aukin framlög til
norræna menningarsjóðsins og
áætlun um námsmanna-og kenn-
araskipti milli landanna.
Agreiningur um
menningaráætlun
Áætlunin var samþykkt gegn
atkvæðum tveggja fulltrúa og var
Guðrún Helgadóttir annar
Borgarráð
Reksturinn kannaður
Þjóðhagsleg hagkvæmni Áburðarverksmiðjunnar
Aaukafundi borgarráðs í gær
var samþykkt að beina þeim
tilmælum til ríkisstjórnarinnar
að fram fari úttekt á þjóðhags-
legri hagkvæmni á rekstri Áburð-
arverksmiðjunnar í Gufunesi.
Að sögn Kristínar Á. Ólafs-
dóttur, borgarfulltrúa var á fundi
ÚtvarpRót
Konur í kjarabaráttu
IRótarútvarpinu í dag koma
saman konur í kjarabaráttu og
ræða stöðuna í þættinum Á vett-
vangi baráttunnar sem hefst
klukkan tvö.
Fyrir framan hljóðnemann
verða þær Elínbjörg Magnús-
dóttir, varaformaður Verka-
lýðsfélags Akraness, Ragna
Bergmann formaður Framsókn-
ar í Reykjavík, Guðríður Elías-
dóttir, formaður Framtíðarinnar
íHafnarfirði, og Arndfs Pálsdótt-
ir verkakona úr Snót í
Vestmannaeyjum.
í síðari hluta þáttarins bætast
við konur af öðrum vettvangi, en
umsjónarmenn þáttarins eru
Ragnar Stefánsson og Stella
Hauksdóttir.
þeirra. Guðrún lagðist gegn
breytingum á tónlistarverð-
launum ráðsins, sem felast í því
að ekki einungis núlifandi tón-
skáld geti hlotið verðlaunin,
heldur munu þau einnig veitast til
flytjenda verka og fleiri tónlistar-
greina en áður.
Thor Vilhjálmsson, Herbjörg
Wassmo og fleiri listamenn mót-
mæltu þessum breytingum einnig
og birtu yfirlýsingu þess efnis í
Dagbladet á fímmtudaginn.
Guðrún og Valgerður Sverris-
dóttir lýstu sig einnig andvígar
þeirri ákvörðun að leggja niður
m.a. dómnefndir ráðsins og fela
öðrum stærri nefndum hlutverk
þeirra. Einnig voru nefndir um
atvinnuleikhús og áhugamanna-
leikhús sameinaðar í eina og telja
andstæðingar þess, að áhuga-
leikhúsin verði undir í þeirri
nefnd.
Sameiginlegar
líftæknirannsóknir
Þingið samþykkti tillögu um að
leggja fé til sameiginlegra
rannsókna Norðurlandanna á
sviði líftækni. Áætlað er að kom-
ið verið á fót sameiginlegum
rannsóknarverkefnum á næstu
árum. íslendingar munu njóta
góðs af bæði fjárhagslega og
vegna samráðs við vísindamenn
hinna landanna.
Á fyrri stigum málsins lögðu
íslendingar fram hugmynd um
sérstaka líftæknistofnun á ís-
landi, en hún fékk ekki nægan
stuðning hinna landanna. Hins
vegar var ákveðið á nýloknu
þingi að hefja rekstur líftækni-
stofnunar í Ósló innan skamms
og er henni m.a. ætlað að hafa
umsjón með sameiginlegum
rannsóknum landanna.
GG/Osló
borgarráðs frestað að taka
ákvörðun um hvort leyfa ætti að
geyma ammoníak í gamla
geyminum á meðan nýr væri
byggður og má vænta ákvörðunar
um það á næsta borgarráðsfundi
sem verður haldinn nk. þriðju-
dag.
Mörgum borgarbúum óar við
þeirri tilhugsun að ammoníak sé
geymt og framleitt í Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi með
tilliti til þeirrar siysahættu sem af
ammoníakinu stafar ef það kynni
að sleppa út í andrúmsloftið að
einhverju marki. Ef það gerðist
verða ekki margir íbúar Reykja-
víkur til frásagnar um afleiðing-
arnar.
-grh
Kjaramál
Blaðamenn
semja
Blaðamannafélagið undirrit-
aði í fyrrakvöld nýjan kjara-
samning við útgefendur Morgun-
blaðsins og DV en sambærilegur
samningur við Blaðaprentsblöðin
verður trúlega undirritaður á
mánudag.
Aðalatriði samningsins snúa
að leiðréttingum á taxtakerfi, og
hækka taxtatölur talsvert, en erf-
itt er að meta raunhækkun vegna
tíðra yfirborgana í stéttinni. Það
nýmæli er í samningunum að gef-
inn er kostur á vetrarfríi, sem
áður tíðkaðist ekki nema á Þjóð-
viljanum. Grunnlaunshækkanir á
samningstímanum, til loka mars
á næsta ári, eru þær sömu og í
samningi VMSÍ auk
kauptryggingar- og endurskoð-
unarákvæða.
Nýi samningurinn verður bor-
inn undir atkvæði á félagsfundi
BÍ á Hótel Borg í hádeginu á
mánudag. -sáf.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. mars 1988