Þjóðviljinn - 25.03.1988, Síða 14
Narfastöðum í Viðvíkursveit hjá
þeim góðu hjónum, Birni og Sig-
ríði, sem þar bjuggu. Þar var ég
eins og í foreldrahúsum.
Við munum hafa verið 12,
fermingarbörnin sem þarna
mættum, 4 stelpur og 8 strákar.
Ég hafði ekkert þeirra séð áður
en með okkur tókst kunnings-
skapur, sem reynst hefur býsna
endingargóður. Sr. Guðbrandur
spurði okkur auðvitað úti í
kirkju. Ég segi „spurði", því í þá
daga var þetta kallað að „ganga
til spurninga". Viðvíkurkirkja
var hlýlegt hús og fallegt. Loftið
var blámáluð hvelfing með
gylltum stjörnum. Það minnti
mig á heiðstirnt himinhvolf.
Sr. Guðbrandur var góður
uppfræðari, vingjarnlegur og
hlýr. Hann var ekkert að spyrja
okkur út úr öllu kverinu en lagði
áherslu á að við kynnum vel vissa
kafla og skildum það sem þar var
boðað. Mér þótti vænt um sr.
Guðbrand og þeir voru fljótir að
líða þessir fjórir dagar.
Eintalið
Seinasta daginn kallaði sr.
Guðbrandur mig á eintal. Ég vissi
TIL FERMINGARGJAFA
Skrifborð
fjölbreytt úrval
Ódýrirskrifborðs-
stólaráhjólum
Svefnbekkir
Svefnsófar
Ódýrar bókahillur
íeik, tekk, furu
og hvítar með beykiköntum
HÚSGÖGN OG *
INNRÉTTINGAR CQ cq f\f\
SUÐURLANDSBRAUT 32 UO XSXJ
ÁðurSUÐURLANDSBRAUT 18