Þjóðviljinn - 29.03.1988, Blaðsíða 2
Fomleifar á ráðhúsióðinni
Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi lagði í gær fram tillögu þess efnis
að Skipulagsnefnd beini því til borgarráðs að það bjóði yfirvöldum
fornminja að rannsaka með tilliti til mannvistarleifa fyrirhugaða ráð-
húslóð. Hún vakti athygli á að mýmörg dæmi væru til um að borgaryfir-
völd frestuðu framkvæmdum á þeim lóðum þar sem grunur léki á að
mannvistarleifar væri að finna og mætti þar nefna Aðalstræti 8. Af-
greiðslu tillögunnar var frestað til 11. apríl nk.
Fjármálaráðherra með dylgjur
Albert Guðmundsson formaður Borgaraflokksins hefur lýst yfir
furðu sinni á ummælum Jóns Baldvins Hannibalssonar um málefni
Landakotsspítala. Hann lítur svo á að dylgjur fjármálaráðherra um að
stjórn spítalans hafi bruðlað með fjármuni og ekki sýnt nauðsynlegt
aðhald séu alvarlegar og móðgandi í garð stjórnarinnar enda óskiljan-
legar með öllu.
Ríkið traðkar
á lögreglumönnum
Lögreglufélag Gullbringusýslu mótmælir harðlega aðför ríkisvalds-
ins á hendur lögreglumönnum með grófum vanefndum á kjarasamn-
ingum þeirra. Það minnir á að 1986 létu lögreglumenn verkfallsréttinn
í skiptum fyrir loforð um kjaraviðmiðun við fjóra stóra launþegahópa
en að ekki hafi tekist nógu vel til og því krefjist þeir verkfallsréttarins
til baka.
Munaði aðeins
tveimur atkvæðum
Kennarar í HÍK samþykktu í atkvæðagreiðslu með aðeins tveggja
atkvæða mun að boða til verkfalls hafi ekki náðst samkomulag um nýja
kjarasamninga fyrir 13. apríl n.k. 464 kennarar voru fylgjandi ver-
kfallsboðun en 462 á móti. 60 skiluðu auðu en kjörsókn var um 85%.
Sérkosning fór fram í Verslunarskólanum og þar var verkfallsboðun
samþykkt á afgerandi hátt. 37 voru samþykkir en 12 á móti. Enn hefur
enginn fundur verið boðaður í kjaradeilunni.
Ríkisstjomin málar
skrattann á vegginn
Borgaraflokkurinn furðar sig á aðgerðum ríkisstjórnarinnar upp á
síðkastið og þá sérstaklega því að ríkisstjórnin reyni að draga dul á
áframhaldandi góðæri með því að birta þjóðhagsspár sem mála hlutma
dökkum litum. Stjórnin virðist hafa gefist upp við að stjórna landinu
og að ekki bóli á þeim fjölmörgu frumvörpum sem boðað var að skyldu
verða lögð fram fyrir lok þessa þings.
Fannst látinn
í gær fannst maðurinn sem lýst hafði verið eftir í fjölmiðlum. Björg-
unarsveitarmenn fundu hann látinn við Dysjar í Garðabæ. Nafn hins
látna er Steinþór Stefánsson og var hann til heimilis að Vatnsenda-
bletti 90, Kópavogi. Hann var 27 ára gamall. Steinþór var þekktur sem
bassaleikari í Fræbbblunum.
Islands-
meistaramótið
í vaxtarrækt
Jón Páll Sigmarsson varð ís-
landsmeistari í vaxtarrækt á móti
sem haldið var á Hótel íslandi á
sunnudagskvöld. Mikil keppni
var milli Jóns og Sigurðar Gests-
sonar og fór svo eftir að þeir
höfðu komið þrisvar fram til sam-
anburðar að Jón Páll vann titilinn
af Sigurði sem hefur haldið hon-
um undanfarin 2 ár.
FRÉTTIR
Utanríkisráðherra ásamt starfsmönnum ráðuneytisins á fundi með fréttamönnum í gær.
Afstaðan er óbreytt
Steingrímur Hermannsson: Fundurinn með Þorsteini breytti ekki af-
stöðu minni. Þorsteinn einnig með óbreytta afstöðu. Hjörleifur Gutt-
ormsson: Formlegar viðrœður við PLO hafnar. Ragnhildur Helga-
dóttir: Hefurskaðað ríkisstjórnina og rýrttraustið á Steingrími. SUS:
Viðrœðurnar við „hryðjuverkasamtökin“ PLO
sýna utanríkismálasérvisku Steingríms
Fundurinn með forsætisráð-
herra breytti í engu afstöðu
minni til þessara mála, sagði
Steingrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra, við Þjóðviljann í
gær, en þeir Þorsteinn Pálsson
hittust eftir hádegi í gær og ræddu
fund Steingríms og fulltrúa PLO í
Stokkhólmi í síðustu viku.
Steingrímur sagði að hér á
landi væri fjölskipað stjórnvald
og því gæti Þorsteinn Pálsson
ekki bannað honum að hitta full-
trúa PLO. Á fundinum gerði for-
sætisráðherra Steingrími grein
fyrir hversvegna hann telur við-
ræður við PLO varhugaverðar,
en að sögn Steingríms breytti það
engu afstöðu hans.
Á blaðamannafundi í gær-
morgun gerði Steingrímur grein
fyrir yfirlýsingu utanríkisráðherr-
afundarins, m.a. í málefnum
Mið-Austurlanda. Þar segir
m.a.: „Ráðherrarnir ítrekuðu
áskorun sína til allra deiluaðila
um að vinna að friðsamlegri lausn
deilunnar og hefja hið fyrsta
samningaviðræður á grundvelli
stofnsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, ályktun Öryggisráðsins nr.
242 og 338 og sjálfsákvörðunar-
rétti Palestínuþjóðarinnar, með
öllu því sem þetta felur í sér.“
Að sögn Steingríms þýðir þetta
í raun að Palestínumenn munu
velja PLO sem fulltrúa sína og
stofna sjálfstætt ríki á herteknu
svæðunum og var það skilningur
allra utanríkisráðherranna þó
þeir vildu ekki segja það berum
orðum.
Steingrímur var inntur að því
hvort ekki mætti líta á það svo að
Áburðarverksmiðjan
Miklir möguleikar á fiskeldi
Verksmiðjustjórinn: Verið að kannaþetta
fyrirokkur. Höfum allar aðstœður fyrir fisk-
eldi: Volgt vatn, súrefni og húsnœði
að er verið að kanna fyrir
okkur hvað við höfum í hönd-
unum til að fara út í fiskeldi og
þegar það liggur fyrir verður
framhaldið ákveðið. En það er
margt sem bendir til þess að hér
hagkvæmt sé að ráðast í fiskeldi
og ef til þess kæmi yrði það vafa-
laust mikill búhnykkur fyrir
verksmiðjuna, sagði Runólfur
Þórðarsson, verksmiðjustjóri hjá
Áburðarverksmiðju ríkisins í
Gufunesi, við Þjóðviljann.
Að sögn Runólfs fellur til tals-
vert af volgu vatni frá verksmiðj-
unni og einnig hefur hún yfir að
ráða súrefni sem hægt er að nota
við fiskeldið ásamt því sem á
verksmiðjulóðinni er ónotað
húsnæði sem hægt væri að nota
fyrir stórseiðaeldi. Ef af verður
mætti í kjölfarið af stórseiðaeld-
inu framleiða umtalsvert magn af
eldisfiski í sjókvíum úti fyrir.
Runólfur sagði að hugmyndin
að fiskeldinu hefði kviknað í
frosthörkunum í vetur þegar allt
var að frjósa fast í sjókvíunum úti
á Sundunum og þá mundu menn
allt í einu eftir volga vatninu sem
til félli frá verksmiðjunni og sem
kappnóg væri af.
Sem dæmi um hvað þarna er í
húfi ef allt gengur samkvæmt
áætlun og stjórnendur Áburðar-
verksmiðjunnar ákveða að nýta
möguleikana sem fyrir hendi eru í
fiskeldi, sagði Össur Skarphéð-
insson, fiskeldisfræðingur, að
hægt væri að framleiða um 300
þúsund geld stórseiði á ári sem
væru um hálft kfló að meðal-
þyngd. Þá væri í sumareldi hægt
að búa til úr þeim um 600 tonn af
sláturfíski. Áftur á móti ef fisk-
eldið stæði yfir allt árið væri hægt
að tvöfalda þetta magn og fram-
leiða um 1200 tonn af sláturfiski á
ársgrundvelli.
Ef hugmyndin um fiskeldið
nær fram að ganga hjá stjórn
Áburðarverksmiðjunnar mundi
það auka að mun fjölbreytnina í
framleiðslu verksmiðjunnar og
bæta að miklu leyti upp þann
samdrátt sem orðið hefur hjá
verksmiðjunni vegna slæmrar
stöðu í landbúnaðinum á undan-
förnum árum.
-grh
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. mars 1988
formlegar viðræður milli Islands
og PLO hefðu hafist með fundi
hans og Makluf í Stokkhólmi.
„Það má segja að á þessum fundi
hafi verið formlega rætt við
PLO,“ svaraði Steingrímur. Þá
sagði Steingrímur að viðbrögð
Þorsteins hefðu komið sér veru-
lega á óvart.
Mál þetta var á dagskrá utan-
ríkismálanefndar alþingis í gær.
Hjörleifur Guttormsson sagðist
telja aðgerðir utanríkisráðherra
jákvæðar og að það hefði komið
fram á fundinum. Þá sagði hann
að með fundi utanríkisráðherra
og fulltrúa PLO í Stokkhólmi og
yfirlýsingu um að Steingrímur
væri reiðubúinn í frekari fundi,
hefðu formlegar viðræður milli
PLO og íslenskra stjórnvalda
komist á. „Mér sýnist þetta í sam-
ræmi við ákvarðanir annarra
utanríkisráðherra Norðurland-
anna og ég vil að þeir hafi frum-
kvæði að því að ýta á eftir ráð-
stefnu um málefni Palestínu á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Aðfinnslur frá samstarfsmönnum
utanríkisráðherra í ríkisstjórn
eru að mínu mati tímaskekkja og
byggðar á röngu mati á stöðu
mála,“ sagði Hjörleifur.
Ragnhildur Helgadóttir, sem
einnig á sæti í utanríkismálanefnd
sagði að þetta tiltæki Steingríms
hefði þegar skaðað ríkisstjórn-
arsamstarfið og að Steingrímur
hefði misst traust við þetta. Þá
sagðist hún andvíg því að ein-
staka ráðherrar taki upp form-
legar viðræður fyrir hönd ís-
lenkra stjórnvalda án þess að
ræða það í ríkisstjórninni áður,
auk þess sem varhugavert væri að
lenda í tvíhliða viðræðum við
PLO einsog dæmin sanna, en
tvennum sögum fer af fundi utan-
ríkisráðherra og fulltrúa PLO.
Samband ungra Sjálfstæðis-
manna hélt aukaþing um helgina
og ályktaði m.a. um þetta mál. í
ályktuninni er utanríkisráðherra
harðlega gagnrýndur fyrir að
taka upp „viðræður við hryðju-
verkasamtökin PLO án þess að
ráðfæra sig við ríkisstjórn íslands
og án hennar vitundar, sem lýsir
best utanríkismálasérvisku ráð-
herrans og lítilsvirðingu á núver-
andi stjórnarsamstarfi,“ einsog
segir orðrétt í ályktuninni.
Ríkisstjórnin mun funda um
málið í dag.
-Sáf