Þjóðviljinn - 14.04.1988, Page 10
Vítahringur
verslunar-
innar
Eitt sinn þegar ég skrúfaði frá út-
varpstækinu mínu um daginn var ver-
ið að ræða þar við einhverja verslun-
arstjóra í sambandi við kjarasamn-
ingana, sem þá stóðu yfir við fólkið í
verslunarmannafélögunum.
Ríkisvaldið æsir til samkeppni milli
verslananna þannig að þær neyðast
til þess að lækka vöruverðið, sem aft-
ur leiðir svo til þess, að þær verða að
reyna til hins ýtrasta að halda niðri
launakostnaðinum, sagði einn.
Því miður vantaði alveg skýringar á
því, í hverju þessar æsingar ríkis-
valdsins væru fólgnar. Er hér kannski
átt við verðkannanirnar? Tilgangur-
inn með þeim er að gefa fólki vís-
bendingar um hvar hagkvæmast sé
að versla. Má kannski ekki upplýsa
fólk um það? Ég man ekki betur en
kaupmenn hafi þráfaldlega haldið því
fram, að neytendur væru besta og
öruggasta verðlagseftirlitið. Nokkuð
er til í því. En þá verða þeir að geta
stuðst við verðkannanir. Ekki getur
fólk hlaupið endalaust búð úr búð til
þess að athuga vöruverð. Kaupmenn
segja að hin frjálsa samkeppni tryggi
lágt vöruverð. Hún gerir það ekki
nema fólk viti hvar hagstæðasta
vöruverðið er að finna. Það má vel
vera að samkeppnin setji einhverjar
verslanir á hausinn. En þá hefur bara
þeirra eigið lífs-„mottó“ orðið þeim að
aldurtila.
Við grobbum af því að búa í velferð-
arþjóðfélagi. En í þessu velferðar-
þjóðfélagi er ástandið hinsvegar
þannig, að margir verða að vinna tvö-
faldan vinnudag til þess að geta
skrimt. Mest allur atvinnurekstur í
landinu er á hausnum. Við erum að
kafnaíerlendriskuldasúpu. Hinir
einu, sem „gera það gott“ eru þeir,
sem versla með vörur eða peninga.
Lánastofnanir græða, að ekki sé nú
talað um okurlánafyrirtæki. Verslunin
á höfuðborgarsvæðinu þenst út sem
aldrei fyrr. Ekki ber það vott um að að
henni sé þrengt.
Kaupmenn eru að vissu leyti í víta-
hring, sem þeir hafa sjálfir komið sér
í. Eftir því sem verslunum fjölgar
harðnarsamkeppnin. íburðarmiklar
verslunarskrauthallir kalla á hærra
vöruverð því allt þetta verður við-
skiptamaðurinn að borga. Aðrir gera
það ekki. Liður í lífsbaráttu verslunar-
valdsins er svo að halda launum
starfsfólksins niðri.
-mhg
ídag er
14. apríl, fimmtudagur í 25. viku
vetrar, 24. dagureinmánaðar, Tíburt-
íusmessa. Sólin kemur upp í Reykja-
vík kl. 5.59 en sólsetur er kl. 20.59.
Atburðir:
Flugvélin Hrímfaxi fórst við Osló
1963. - Snjóflóðin á Siglufirði 1919. -
Verkamannafélag Húsavíkurstofnað
1911. - Hin íslenska Vietnam-nefnd
stofnuð 1967.
UM ÚTVARP & SJÓNVARP
7
.... dansið
þið fljóð“
Stöð tvö kl. 22,15
Það mun hafa verið um 1896
sem can-can dansæðið í París stóð
með mestum blóma. Margir
höfðu ákaflega gaman af þessum
Kvenna-
útvarp
Útvarp Rót, kl. 18.00
Okkur gefst kostur á að hlusta
á Kvennaútvarpið á Rótinni í
dag. Umsjón með því hafa
Samtök um kvennaathvarf,
Kvennaráðgjöfin, fslensk/lesb-
iska, Kvennalistinn, Vera, Kven-
réttindafélagið og Menningar- og
friðarsamtök fslenskra kvenna.
Ýmsir fleiri aðilar koma að venju
fram í dagskrá Rótarinnar þótt
hérverði ekki nefndirnú. íþrem-
ur orðum sagt: „sérvitringar og
öfuguggar", eins og Hannes
nokkur Hólmsteinn hefur komist
að orði um Rótarfólkið. -
„Drottinn, ég þakka þér...“, var
víst líka einu sinni sagt.
dansi, bæði þær ágætu stúlkur,
sem í honum tóku þátt, og einnig
þeir sem á horfðu. Ekki voru þó
allir jafn hrifnir, töldu dansinn
djarfan og siðspillandi - þótt ann-
að væri nú trúlega talið nú til dags
- og allt í einu barst svo skipun frá
yfirvöldunum að banna þennan
varhugaverða dans. Ein mektar-
kvinna, og ofan í kaupið eigandi
staðarins Cafe Le Bar Du Paris,
hefur bannið þó að engu og þar er
áfram dansað sem aldrei fyrr í
skjóli lögfræðings og eins aðdá-
anda danskvennanna. Þessi af-
skipti hins ákafa aðdáanda leiða
þó til þess að allt endar þetta í
hálfgerðum vandræðagangi.
Ekki voru þau nú svona skrautleg
höftin, sem maður brá á stygga
hesta í gamla daga.
Þeldökk
skáld
Útvarp, rás 1, kl. 22.20
Þá hefst nú þáttasyrpa um bók-
menntir og nefnist hún „Eitthvað
þar“. Um þættina sjá þau Freyr
Þormóðsson og Kristín Ómars-
dóttir. Tilgangurinn með þessum
þáttum er að kynna erlenda rit-
höfunda, hverra verk hafa ekki
verið þýdd á íslensku og ýmist
lítið eða ekkert verið kynnt hér-
lendis. Þá er og gefið undir fótinn
með það að lítt þekkt íslensk ung-
skáld verði kynnt í þáttunum. - í
þessum fyrsta þætti fjalla þau
Freyr og Kristín um tvö banda-
rísk leikritaskáld, Amiri Baraka
og Ntosake Shange. Þótt þau séu
þekktust fyrir leikritun hafa þau
einnig nokkuð fengist við ljóða-
gerð. Rætt verður um feril skáld-
anna og verk þeirra og lesið upp
úr þeim. Þá verður og spiluð
hljóðupptaka þar sem Amiri Bar-
aka flytur eigið ljóð við undirleik
á klarinettu og trommu.
NUTIMINN
Útvarp, rás 2, kl. 22.07-23.00
í þessum þætti, sem er á dag-
skrá Rásar tvö á hverju
fimmtudagskvöldi, ræður nýmeti
poppsins ríkjum. Eru eingöngu
leikin lög af flunkunýjum og
væntanlegum plötum, sagðar
fréttir úr poppheiminum og
veittar upplýsingar um þá tón-
leika, sem haldnir verða í Evrópu
á næstunni. Meðal efnis í þessum
þætti eru ný lög frá The Madness,
Killing Joke, Tinu Turner, Joni
Mitchell Aswad og nýbylgju-
sveitunum The Fall, Throwing
Muses, Easterhause og Luxuria.
- Þá verða leikin sýnishorn af
væntanlegri plötu íslensku rokk-
sveitarinnar Gildran, en hún gaf
út eina athyglisverðustu plötu
síðasta árs.
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
Þjóðviljinn
fyrir50árum:
Ekkert hitaveitulán. Borgarstjóri til-
kynnti í gær að lán fengist ekki í Eng-
landi um ófyrirsjáanlega tíma. Óv st
um lán í Svíþjóð. Lygar íhaldsins í
hitaveitumálinu afhjúpaðar. - Bana-
tilræði við Steincke
dómsmálaráðherra Danmerkur.
Nasisti skaut á hann tveim skotum.
Ráðherrann sakaði ekki. - Flokkur
Haralds þríklofinn í málinu um hækk-
un atvinnubótafjárins. - Samningum
Breta og ftala lokið. ítalir eiga að taka
fullt tillittil hagsmuna Bretaog lýsa
yfir að „þeir seilist ekki til valda á
Spáni".-Jónas Guðmundsson af-
hjúpar sig sem bandamann Lands-
bankans til að kúga verkalýðinn á
Norðfirði.
-mhg.
FOLDA
Má ég sjá
skjaldbökuna þína?
Hvað heitir hún?
Ósvífni! Ég kom \
hingað bara til að
sjá skjaldbökuna.
Því miður.
Reyndu aftur á
morgun. Orðið
.. of seint í daq
'^V
l
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. apríl 1988