Þjóðviljinn - 01.05.1988, Síða 3

Þjóðviljinn - 01.05.1988, Síða 3
1. maí ávarp Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga 1988 ALÞJÓÐLEG SAMSTAÐA Um allan heim er litið á 1. maísem baráttudag fyrir alþjóðlegri samstöðu verkafólks. Þann dag lítum við stoltá baráttu frjálsrar verkalýðshreyfingar fyrir félagslegu réttlœti, frelsi og lýðrœði. Tákn þeirrar baráttu eru einkunnarorð Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga Brauð - Friður- Frelsi Hundruð fulltrúa á 14. þingi Alþjóðasambands frjálsra verka- lýðsfélaga, sem haldið var í Mel- bourne í síðastliðnum marsmán- uði lögðu áherslu á að við verðum að treysta aiþjóðlega samstöðu þannig að öllum sé ljóst að hún sé ekki aðeins samansafn slagorða heldur áþreifanleg staðreynd í starfi verkalýðssamtakanna. Al- þjóðleg samstaða verður að vera annað og meira en dagskrárliður á fundum samtakanna. Alþjóð- leg samstaða verður að vera annað og meira en dagskrár- liður á fundum samtakanna. Að vera viðbúin breytingum Verkamenn og samtök þeirra um víða veröld standa frammi fyrir nýjum vanda: hröðum breytingum á eðli þjóðfélagsins og störfum, og vaxandi alþjóða- hyggju í efnahagslífinu. Um víða veröld ráðast ríkisstjórnir og vinnuveitendur að samtökum verkafólks og þeim réttindum sem þau hafa náð fram með ára- langri baráttu. Grafið er undan ráðningarskilyrðum. Reglubund- in heilsdags vinna er sífellt að víkja fyrir hlutastarfi, tímabund- inni vinnu og annarri ótraustari vinnutilhögun. Aukið vald fjöl- þjóðlegra fyrirtækja ógnar lýð- ræðislegri ábyrgð á vinnumark- aði og félagslegri ábyrgð í heild. Alþjóðlegar fjármálastofnanir axla oft enga ábyrgð á félags- legum afleiðingum ákvarðana sinna. Einræðisstjórnir, hvaða stefnu sem þær fylgja, halda áfram að veitast að samtökum verkafólks. Alþjóðleg frjáls verkalýðshreyfing, heildar- samtök verkafólks í einstökum löndum og alþjóðleg samtök ein- stakra atvinnugreina mega ekki láta nægja að bregðast við orð- num hlut. Við verðum að vera viðbúin breytingum og hafa áhrif á það hvernig breyting- arnar verða þannig að þær verði til hagsbóta fyrir alla! Endurnýjandi afl í starfi okkar Við verðum að leitast við að ná til milljóna ófélagsbundinna verkamanna, og þá einkum land- búnaðarverkamanna í þróunar- löndunum, og þeirra milljóna sem neyðast til að vinna fyrir sér og sínum utan skipulagðs vinnu- markaðar. Við verðum að taka tillit til sérstakra þarfa útivinn- andi kvenna, en konur eru sífellt að verða þýðingarmeiri á vinnu- markaðinum og í starfi verka- lýðshreyfingarinnar. Við verðum að tryggja að við höfðum til unga fólksins sem er að koma inn á vinnumarkaðinn. Þaðhefuralltaf verið meginviðfangsefni verka- lýðshreyfingarinnar að tryggja al- menna þátttöku í starfi verka- lýðsfélaganna og það er brýnna nú en nokkru sinni. Almenn þátt- taka í starfi verkalýðsfélaganna er nauðsyn því verkafólki sem þarf aðstöðu til þess að koma skoðunum sínum á framfæri og taka þátt í mótun nýrrar framtíð- ar, betri framtíðar. Alþjóðleg yfirsýn Verkalýðsfélögin standa nú frammi fyrir ógnvekjandi verk- efni, en ekki óviðráðanlegu. Eitt mikilvægasta verkefnið er að efla alþjóðahyggju, að temja sér al- þjóðlega yfirsýn í öllu starfi verkalýðssamtakanna. í starfi verkalýðssamtakanna verður að bregðast við þeirri staðreynd, að lönd heimsins eru hvort öðru háð efnahagslega og ákvarðanir á al- þjóðavettvangi ráða stöðugt meiru um þróun atvinnulífs og af- komu verkafólks. Við þessu verð- ur að bregðast með sterkri al- þjóðlegri samstöðu! Þetta forgangsverkefni Al- þjóðasambands frjálsra verka- lýðsfélaga árið 1988 og á kom- andi árum. í tilefni alþjóðlegs baráttudags verkafólks hvetjum við alla félagsmenn okkar, félaga í alþjóðasamtökum einstakra atvinnugreina og hliðholl samtök að leggja hönd á plóginn með okkur við þetta brýna verkefni. Lengi lifí alþjóðleg samstaða verkafólks!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.