Þjóðviljinn - 05.05.1988, Qupperneq 13
HÖRFRÉTTIRH
Kosningauppgrip
er orö bandaríska stjörnuspek-
ingsins Joyce Jillson um atvinnu-
horfur sínar sem stendur, og
segir hún stjórnmálamenn flykkj-
ast til sín núna á kosningaárinu.
„Þeir spyrja grannt um mögu-
leika sína gegn tilteknum and-
stæöingum," segir hún. Jillson
komst í heimsfréttirnar í gær er
hún kvaðst hafa ráöiö hæstráð-
endum í Hvíta húsinu heilt þegar
þeim hefur legiö lítið við, og gaf
meðal annars í skyn aö hún hafi
öðrum fremur útsirklaö George
Bush í framboð meö Reagan áriö
1980.
Mannskæð leikföng
eiga að vonum ekki upp á pall-
borðið, en nú ætlar Evrópu-
bandalagið að gera eitthvað í
málinu fyrir sína parta; leikföng
sem hætta er talin stafa af veröa
bönnuð frá og með árinu 1990,
en rafmagn og ýmsar efnablönd-
ur eru hér í aðalhlutverki. Með
reglugerðum á að sjá til þess að
frágangur allur verði tryggilegri
en hingað til, og ennfremur eiga
leikföng með hvössum brúnum
að hverfa úr umferð. Ákvörðun í
þessa veru-var tekin á fundi við-
skiptaráðherra bandalagsins í
gær, en talið er að allt að 20 þús-
und börn í aðildarlöndunum týni
tölunni á ári hverju í heimahúsum
og við leik.
Stórfínansmenn
í Svíþjóð eru því sem næst á einu
máli um að réttast væri að ganga
í Evrópubandalagið. Blaðið Dag-
ens industri gerði nýskeð könnun
í þessa veru og þá var nú ekki
verið að spyrja nein blávötn;
menn urðu að vera forstjórar,
framkvæmdastjórar eða gegna
öðrum toppstöðum í fyrirtækjum
með að minnsta kosti 200 starfs-
menn til að ná máli. 91% að-
spurðra vildu að Svíþjóð gengi í
bandalagið. Fyrir nokkrum mán-
uðum var athugað hvernig
sauðsvartur almúginn væri
stemmdur í þessu máli: 38%
voru þá með aðild, 25% á móti og
37% á báðum áttum.
ERLENDAR FRETTIR
ísraelsher
Til föðurhúsanna
Hart baristíSuður-Líbanon ígœr, en ísraelsmenn segjastnú hafa kvatther sinn heim
Að sögn hæstráðenda í ísrael innrás í Suður-Líbanon. Ekki ber ástunda ísraelsmenn tryggilega
hefur herinn nú verið kvadd- fréttum af þessum ótíðindum ritskoðun á fréttum þeim sem frá
ur til síns heima eftir fólskulega saman í öllum greinum, enda landinu berast.
Angóla
Gagnlegar vioræður
Tveggja dagafundi Angóla, Kúbu, Suður-Afríku og Bandaríkjanna lauk í
Viðræðurnar fóru fram í já-
kvæðum anda og nokkur ár-
angur náðist, segir í sameiginlegri
yfirlýsingu Angóla, Kúbu,
Suður-Afriku og Bandaríkjanna
að loknum fundahöldum þeirra i
milli í London í gær um hernaðar-
ástandið í suðurhluta Afríku.
Hernaðurinn í Angóla hefur
nú staðið í þrettán ár, og það eitt
út af fyrir sig að fá málsaðila að
samningaborðinu þykir marka
tímamót. Apartheiddólgar
Londonígær
Suður-Afríku hafa ráð Namibíu í
hendi sér, og beindust viðræð-
urnar fyrst og fremst að því
hvernig sjálfstæði landsins yrði
tryggt, sem og brottkvaðning er-
lendra herja frá Angóla.
Viðræðurnar stóðu í tvo daga,
og að þeim loknum sagði formað-
ur kúbönsku sendinefndarinnar,
Jorge Risquet, að vel hefði tekist
til, en vildi ekki úttala sig nánar
um gang mála. Talið er að um 40
þúsund Kúbanir séu Angóla-
mönnum til halds og trausts viö
að reka úlf frá durum þar sem eru
herir Suður-Afríku, en Angóla-
stjórn býðst til að ganga að
brottkvaðningu Kúbananna gegn
því að sjálfstæði Namibíu verði
tryggt; Pretoríustjórn kveðji sína
menn heim til föðurhúsanna og
að stjórnir Bandaríkjanna og
Suður-Afríku láti af stuðningi
sínum við hin hægrisinnuðu
Unita-samtök í Angóla.
HS/Reuter
Herför ísraelsmanna gegn ná-
grönnum sínum stóð yfir í tvo sól-
arhringa, og voru 1500 dátar hið
fæsta gerðir út til að fínkemba
svæðið í leit að palestínskum
skæruliðum, en tilgangurinn virt-
ist ekki síður sá að hræða íbúa
þorpa í Suður-Líbanon frá öllum
stuðningi við þá. Alltént varð
fjöldi smáþorpa fyrir grimmileg-
um árásum ísraelshers.
Bardagar geisuðu klukku-
stundum saman í þorpinu Maido-
un í gær. Að minnsta kosti 40
skæruliðar Líbana féllu í átökun-
um auk nokkurra ísraelskra her-
manna. Hersveitir hinna síðar-
nefndu réðust gegn þorpinu af
þvílíku offorsi að þar stóð ekki
steinn yfir steini um það er lauk.
Að minnsta kosti 17 ísraelsher-
menn særðust í götubardögum í
Maidoun, en þaðan er ekki nema
um 5 kflómetra vegalengd til Sýr-
lands.
Líbanir hafa harðlega fordæmt
innrás ísraelsmanna, og áskilja
stjórnvöld sér allan rétt til að
krefjast fundar í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna vegna þess
arna. Er innrásin kölluð ósvífin
árás á öryggi Líbana, auk þess
sem fullveldi landsins sé fótum
troðið.
Hersveitir Sýrlendinga höfðust
ekki að, en Israelsmenn beittu
byssum um borð í þyrlum til að
eyðileggja skotvopn Líbana sem
þeir beittu til að reyna að hefta
framsókn innrásarhersins.
Viðbrögð umheimsins við
innrásinni mega heita á eina
lund; Egyptar eru einu Araba-
þjóðin sem friðmælst hafa við
Israelsmenn, en í gær fordæmdu
þeir verknaðinn, og sögðu hann
vera ljón í vegi friðar í Austur-
löndum nær. Pá má nefna að
bæði Tyrkir og Kýpurbúar hafa
fordæmt innrásina.
Reuter/HS
Bandaríkin
Farið að spá í varaforsetaefnin
Dukakis nær gulltryggður íframboð eftirsigra í Ohio og Indiana
Michael Dukakis vann
traustan sigur í prófkjöri
demókrata í Ohio og Indiana í
fyrradag og eftir þau úrslit er tal-
ið öruggt að hann verði forseta-
efni demókrata þótt hann hafi enn
ekki náð tilskildum fjölda kjör-
manna á flokksþinginu. Þarsem
Bush hefur fyrir nokkru rutt úr
vegi keppinautum í eigin flokks-
röðum beinist athygli æ meir að
undirbúningi þeirra tveggja fyrir
lokahríðina, - og þá ekki síst að
hugsanlegum varaforsetaefnum.
Dukakis vann Jesse Jackson
með nokkrum yfirburðum bæði í
Ohio (64%-26%) og Indiana
(68%-24%), en Jackson vann
góðan sigur í höfuðborginni Was-
hington (77%-21%) þar sem sjö
tíundu íbúa eru svartir. í fylkjun-
um tveimur eru valdir samtals
238 kjörmenn en hinsvegar að-
eins 16 frá Washington, og er
kjörmannastaðan nú þannig sam-
kvæmt NBC-sjónvarpinu að
Dukakis hefur 1483, Jackson
946. Meirihluti á flokksþinginu er
2081 maður.
Dukakis var fremur hógvær
eftir úrslitin, sagði lokaúrslit ekki
örugg enn þótt Jackson mundi
reynast þrautin þyngri að vinna
upp forskotið. Jackson ætlar að
halda áfram baráttu þartil yfir
lýkur og bindur vonir við óvænt-
an sigur í síðasta kjörinu í Kalif-
orníu.
Enn eru eftir prófkjör í sjö
fylkjum sem samtals senda 573
menn á þing demókrata: 10. maí í
Nebraska og Vestur-Virginíu,
17. maí í Oregon, 7. júní í Mont-
ana, Nýju Mexíkó, New Jersey
og Kaliforníou sem mest munar
um (314 kjörmenn). Möguleikar
Jacksons á að klekkja á Dukakis
á þessum stöðum eru taldir hverf-
andi, en þó verður að taka með í
reikning að Jackson hefur áður
komið á óvart.
Bush vann auðveldan sigur í
prófkjörum repúblikana enda
þegar öruggur um útnefningu.
Hann er farinn að beita sér gegn
Dukakis af öllu afli og sakar hann
um svartagallsraus, Bush ætli
hinsvegar sjálfur að vera fulltrúi
vonar og tækifæra og framtaks,
enda taki bandaríska þjóðin
öllum öðrum fram á jörðunni,
sagði hann eftir sigurinn. Dukak-
is segir aftur um Bush að hann sé
eitt stórt núll sem skorti gjörsam-
lega eigin pólitík, og vísar þar til
fylgispektar varaforsetans við
Reagan í átta ár.
Nunn?
Eða geimfarinn?
Samuel Nunn er talinn æskileg-
asti fylgisveinn Dukakis í kosn-
ingunum í nóvember. Nunn er
suðurríkjamaður en Dukakis frá
Massachusetts, Nunn er talinn
íhaldssamur og vægi upp á móti
meintu frjálslyndi Dukakis, og
Nunn hefur mikla reynslu af
utanríkismálum en Dukakis
enga. Nunn segist hinsvegar ekki
langa mikið, og þarsem Jackson
er ekki talinn koma til greina
beinast augu manna að Bruce
Babbitt fyrrum keppinaut Duk-
akis um útnefninguna, og nú
uppá síðkastið hefur alltíeinu
verið talað um John Glenn,
geimfara og misheppnaðan for-
setaframbjóðanda fyrir fjórum
árum. Getum er að því leitt að því
umtali hafi verið stjórnað úr her-
búðum Dukakis í tengslum við
prófkjörið í Ohio, - sem Glenn er
fulltrúi fyrir í öldungadeildinni.
Meðal repúblikana er meðal
annars rætt um Deukmejian fylk-
isstjóra Kaliforníu, kollega hans í
Illinois, Thompson, og dóma-
rann O'Connor sem Reagan
skipaði í Hæstarétt fyrsta
kvenna.
Ef til vill sýna bollaleggingar
bandarískia fjölmiðla um vara-
forsetaefnin þó fyrst og fremst að
öll spenna er úr útnefningar-
slagnum og langt í raunveruleg
átök Dukakis og Bush, - en fjöl-
miðlafyrirtækin festa sem kunn-
ugt er gífurlegt fé í kosningabar-
áttunni og reyna að halda þar
uppi dampi einsog hægt er.
Fyrstu teikn benda til að loka-
hrinan í nóvember verði jöfn og
spennandi. Varaforsetinn hefur
nokkra hríð verið talinn sigur-
stranglegri í könnunum, en Duk-
akis hefur haft betur síðustu vik-
ur. Kannanir síðustu daga benda
til að þeir demókratar sem síðast
og þaráður svermuðu fyrir Reag-
an séu á leið til föðurhúsa, sem
eru góð tíðindi fyrir Dukakis og
félaga því mun fleiri Bandaríkja-
menn telja sig demókrata en rep-
úblikana.
Á næstunni ætti svo hug-
myndafræðilegur og pólitískur
munur frambjóðendanna að
skýrast aðeins þegar stefnuskrár
flokkanna verða undirbúnar, -
og kynnu þá sigrar Jesse Jackson
að segja til sín demókratamegin.
-m/reuter
Fimmtudagur 5. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13