Þjóðviljinn - 10.05.1988, Blaðsíða 6
REYKJNJÍKURBORG ffl
---------------- -V*.
Aautein StíMÚci
Hitaveita Reykjavíkur
Óska eftir að ráða:
Járniðnaðarmann vanan pípusuðu
Vinnan felst í almennu viðhaldi dreifikerfis. Kraf-
ist er hæfnisvottorðs í pípusuðu, rafsuðu og log-
suðu, frá Rannsóknarstofu Iðnaðarins.
Starfsmann í notendaþjónustu
Pípulagningarmann, eða laghentan mann vanan
pípulögnum.
Upplýsingar um störfin veitir Örn Jensson, hjá
Hitaveitu Reykjavíkur, Grensásvegi 1, sími
82400.
Lausar stöður
Lausar eru lil umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður við Raunvís-
indastofnun Háskólans sem veittar eru til 1-3 ára.
■.V
a) Ein staða sérfræðings við Eðlisfræðistofu.
b) Tvær stöður við Jarðfræðistofu.
Öðrum sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa að rannsókn-
um í setlagafræði.
Hinum sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa að rannsókn-
um í ísaldarjarðfræði.
c) Þrjár stöður sérfræðinga við Stærðfræðistofu.
Stöðurnar verða veittar frá 1. september nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur
skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvarandi háskólanámi og starf-
að minnst eitt ár við rannsóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra
við Háskóla Islands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvís-
indadeildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans, og skal
þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu við-
komandi starfsmanna.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og
vísindaleg störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 3. júní nk.
Æskilegt er að umsókn fylgi umsagnir frá 1 -3 dómbærum mönnum
á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindaleg störf.
Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og
má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Auglýsing þessi kemur í stað fyrrí auglýsingar dags. 27. aþríl si.
Menntamálaráðuneytið,
6. maí 1988.
Vinningstölurnar 7. maí 1988.
Heildarvinningsupphæð: kr. 5.270.555,-
1. vinningur var kr. 2.639.968,-
og skiptist hann á milli 4ra vinningshafa, kr. 659.992,- á
mann.
2. vinningur var kr. 790.875,- og skiptist hann á 225 vinn-
ingshafa, kr. 3.515,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.839.712,- og skiptist á 6.112 vinn-
ingshafa, sem fá 301 krónu hver.
Upplýsingasími: 685111
VIÐHORFjfc
naut flokkurinn góðs af almennri
róttæknisveiflu, einkum meðal
ungs fólks. Að vísu átti flokkur-
inn lítinn hlut að máli að koma
þeirri sveiflu af stað eða halda
henni við, en lét sér nægja að
uppskera ávexti hennar úr kjör-
kössunum. Síðan kom að því að
ekki var hægt að færa landhelgina
öllu lengra út, skuttogararnir
voru orðnir fleiri en þörf var á og
iðnvæðing íslands reyndist flókn-
ara mál en Magnús og Hjölli
höfðu haldið. Á sama tíma var
kominn afturkippur í vinstri
sveifluna. Þá komu þverbrestir
Alþýðubandalagsins upp á yfir-
borðið. Þar hafði aldrei farið
fram frjó stefnuumræða, heldur
hafði klofningshræðsla og tráma-
tísk reynsla kaldastríðsins valdið
því að í flokknum áttu menn helst
ekki að gera annað en að klappa
fyrir foringjum. Kannski tók
Svavar Gestsson ekki eftir neinu
sundurlyndi í flokknum, enda var
því ýmist sópað undir gólfteppin
eða út fyrir dyr, og framan af var
klappað jafn sterkt fyrir Svavari
og fyrri leiðtogum. Hann hefði
þó átt að taka eftir því, að
eitthvað var bogið við endurný-
junina í flokknum; á sama tíma
og hann naut mikils fylgis meðal
æskunnar, var fátt ungt fólk í
flokknum og stóð yfirleitt stutt
við. Menn vildu ekki sóa tíma sín-
um sem klapplið í flokki, sem
bauð hvorki upp á lýðræðisleg
vinnubrögð né frjóa umræðu um
markmið og leiðir sósíalismans.
Þótt flokkar staðni, getur rót-
tækni lifað meðal fólksins. Það
kom líka í ljós hér á landi, þegar
Kvennaframboð og Kvennalisti
komu fram á sjónarsviðið og
buðu upp á nýja og róttæka póli-
tík, sem fólst ekki síst í traustu
grasrótarlýðræði og fráhvarfi frá
fámennisstjórn eins og einkennt
hafði Alþýðubandalagið. Fylgi
Kvennalistans hefur vaxið sam-
hliða því sem hann hefur orðið
róttækari og markvissari í mál-
flutningi sínum, og sýnir þetta
hversu sterk róttæknin er meðal
fólksins í landinu; það þarf bara
að finna henni farveg.
Um áratuga skeið hefur sósíal-
ísk fjöldahreyfing ekki getað
boðið upp á aðrar leiðir að mark-
inu en gamlar formúlur kommún-
ista og krata, en báðar þessar
formúlur hafa verið reyndar til
þrautar og takmarkanir þeirra
leiddar í ljós. Til þess að brjóta
nýjar leiðir þarf hreyfingin að
virkja hugarflug liðsmanna sinna
til pólitískra tilrauna og um-
ræðna. Slík gerjun hefur hingað
til fundið sér farvegi utan stjórn-
armálaflokka í hreyfingum um-
hverfisverndunarsinna, náms-
manna, gegn kjarnorkuvá
o.s.frv., en hefur á síðustu árum
skapað pólitísk samtök af nýrri
gerð, og þar ber hæst Græningja í
Vestur-Þýskalandi og Kvennali-
stann á íslandi. Sósíalistar verða
að tileinka sér þær félagslegu ný-
jungar sem felast í starfsháttum,
baráttuaðferðum og stefnumið-
um nýrra grasrótarsamtaka, en
leggja um leið af mörkum þann
arf sinn, sem felst í innsæi í gerð
auðvaldsþjóðfélagsins og skiln-
ing á nauðsyn þess að berjast
gegn stéttarlegu misrétti ekki
síður en kynbundnu.
Engin pólitísk hreyfing getur
lengur gert kröfu um einkaleyfi á
leiðum til réttlátara samfélags. í
þessu ástandi er þörf á vissu sund-
urlyndi; ólíkar hugmyndir þurfa
að takast á, til þess að það mótist
nýjar leiðir til að þoka samfé-
laginu í átt til aukins jafnréttis.
Það er í rauninni jafn slæmt, þeg-
ar Svavar kvartar undan sundur-
lyndinu og þegar Ólafur Ragnar
lætur í veðri vaka að Alþýðu-
bandlagið sé á ný sameinaður
flokkur, sem sé kominn langt á
leið með að móta sér heilsteypta
stefnu. Að réttu lagi á flokkurinn
nú að vera að ganga í gegnum
tímabil gerjunar, sem engan veg-
inn er séð fyrir endann á.
Gcstur Guðmundsson er félagsfræð-
ingur og vinnur við ritstörf. Hann er
um þessar mundir fastur þriðjudags-
penni í Þjóðviljanum.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
FLÓAMARKAÐURINN
Nýlegt IKEA-rúm
með krómgöflum til sölu. Breidd
160 sm. Selst á hálfvirði. Upplýs-
ingar í síma 19127.
Til sölu vegna flutnings
Ignis ísskápur með sér frystihólfi.
Selst ódýrt. Upplýsingar í síma
41639.
Athugið - komið og skoðið
Til sölu hjónarúm með dýnum,
snyrtiborð, vönduð smíði, unglinga-
rúm (fyrir 6-14 ára), barnarimlarúm
með dýnu og barnavagga á hjólum.
Ennfremur fæst gefins stórt snyrti-
borð með hillum. Upplýsingar í
síma 33094.
Til sölu
hálfslitin sumardekk á felgum fyrir
Skoda, ásamt fleiru í Skoda. Á
sama stað eru til sölu gamlir mið-
stöðvarofnar (pottofnar). Upplýs-
ingar í síma 51994 eftir kl. 19.00
Til sölu lítil trilla
eða vatnabátur
ca. 11/2 tonn með Brigg og Strattan
mótor. Nýyfirfarin og endurbyggð.
Er á dráttarvagni sem fylgir. Til sýn-
is að Kársnesbraut 74. Sími 40060.
Húsnæði óskast
Þið sem kannski eigið húsnæði
sem myndi henta fyrir ungt par, at-
hugið að hér er um að ræða fólk
sem er mjög gott í umgengni og
algjört reglufólk á vín og tóbak. Sem
sagt heiðursfólk sem óhætt er að
mæla með. Allar upplýsingar í síma
681333 eða 31197.
Tökum að okkur
ræstingar og þrif, heimilishjálp og
hreingerningar. Upplýsingar í síma
667296 eða 611686.
Sendibíll til sölu
Suzuki ST 90 bitabox árg. ’82. Ek-
inn 67.000 km. Á góðum dekkjum,
lítur vel út. Upplýsingar í síma
611686 á kvöldin.
Til sölu
Ford Cortina 1600 station árg. '76,
skoðaður '88. Útvarp, segulband,
gott útlit. Verð kr. 70.000. Einnig á
sama stað til sölu drifskaft í Lödu
1500. Sími 45196.
Hjálp,
ég sit á gólfinu staurblönk
Óska eftir þvottavél, sófasetti og
fataskápum á flóarprís. Sími 92-
27919.
Til sölu
Lada Safir, árgerð '82. Gott verð.
Upplýsingar í síma 43686 eftir kl.
19.
Kattavinir
Fallegur og vel vaninn kettlingur
fæst gefins. Upplýsingar í síma
78512.
Nýlegt XENON
myndbandstæki til sölu. Upplýsing-
ar í sfma 617931 eftir kl. 15.
Ókeypis ísskápur
fsskápur fæst gefins. Upplýsingar
gefur Ingólfur í síma 18339 heima,
vinnusími 12546.
Hæ, hæ, stelpur
Ég heiti Dagur Kári og er eins árs
kvennagull í Fossvogi. Mig langar
að kynnast 12-14 ára stelpu sem
væri til í að passa mig kvöld og
kvöld í sumar. Upplýsingar gefa
pabbi og mamma í síma 688701.
Barnaburðarrúm til sölu
úr dökkbláu flaueli. Upplýsingar í
síma 14148.
Til sölu
lítill, gamall ísskápur. Á sama stað
óskast lítill klæðaskápur. Má líta illa
út. Upplýsingar í síma 17466.
Trabant-eigendur athugið!
4 sumardekk á felgum til sölu,
ódýrt. Einnig er óskað eftir sauma-
skap á kvenfatnað fyrir eina konu.
Upplýsingar í síma 18648.
Gyllingaletur
Gyllingaletur, vel með farið óskast.
Uppl. í síma 21471.
Kettlingar
fást gefins. Sími 83694.
Bílar til sölu
Toyota Corolla árg. '75 og Volks-
wagen 1303 árg. '74 til sölu og sýn-
is að Birkigrund 43. Upplýsingar í
síma 41005.
Óska eftir
ísskáp og þvottavél. Helst gefins.
Upplýsingar í síma 45196.
Til sölu
nýr rúskinnsjakki frá Kjallaranum,
ódýr hljómtæki og Mazda 323 árg.
'78. Simi 21387.
Til sölu
2 stk. Austin Mini árg. '78. Annar
gangfær. Seljast til niðurrifs, eða
uppgerðar. Einnig Mazda 616 árg.
'78. Selst til niðurrifs. Góð vél. Á
sama stað er til sölu sófasett 3+2
og borð. Selst mjög ódýrt. Upplýs-
ingar í síma 45196.
Eldhúsborð
til sölu ásamt 3 stólum. Sími 31715.
Felgur á BMW
4 stk. 13" felgur á BMW 316, 4 stk.
14" felgur á BMW 3181 S. Seljast
ódýrt. Upplýsingar í síma 77247
eftir kl. 18.00.
Til sölu
mjög ódýrt eða eftir samkomulagi,
efri skápar í eldhús, ásamt viftu.
Upplýsingar í síma 40790.
Vantar þig vinnumann?
Ég heiti Jón Yngvi og er að verða 15
ára. Vantar þig vinnumann á bæinn
þinn? Ef svo er hringdu til min í síma
91-78363.
Húsnæði óskast
Þýðandi og háskólanemi óska eftir
3ja herbergja íbúð. Erum reglusöm
og skilvís. Upplýsingar í síma
611274 eða 21985.
Ýmislegt til sölu
Góður svefnsófi með skúffum, 3
bastgardínur og myndlykill. Einnig
Toyota Cressida árg. '78. Fallegur
bíll. Verð kr. 160.000. Uppl. eftirkl.
17 í síma 688204.
Til sölu
Svefnbekkur, borð og 2 stólar. Sími
84922.
Kaupið kaffið
sem berst gegn Apartheid. Tanz-
aníukaffi frá Ideele Import. Upplýs-
ingar í síma 621083.
Selfoss - Reykjavík
húsnæðisskiptí
Óskum eftir góði 4-5 herbergjá ibúð
í Reykjavík í leiguskiptum fyrir stórt
og gott einbýlishús á fallegum stað
á Selfossi. Tilboð sendist auglýs-
ingadeild Þjóðviljans.
Ódýrt-ódýrt
Það er raunverulega ódýrt að
versla hja okkur. Mikið úrval af alls-
konarvörum. Flóamarkaður Sam-
bands dýraverndunarfélaga ís-
lands, Hafnarstræti 17, kjallara.
Opið mánudaga, þriðjudaga og
miövikudaga kl. 14-18.
Húsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu íbúð í
Reykjavík frá 1. júní. Uppl. í síma
623605, Anna Hildur og Gísli Þór.
Til sölu ódýrt
stór sólarlampi á hjólastatívi á kr.
8.000.-, hvítur baðvaskur m/
blöndunartækjum á kr. 2.000, WC
skol hvítt m/blöndunartæki á kr.
2.000. Uppl.ísíma 611711 e. kl. 17.
Ford Escort ‘83
til sölu. Ekinn 64 þús. km,
gullsanseraður, í góðu lagi og lítur
vel út. Skipti á nýlegum bíl koma til
greina, milligjöf staðgreidd. Uppl. í
síma 681310 kl. 9 til 17.
íbúð
Ungt par sem á von á barni vantar
tilfinnanlega íbúð. Eru algert reglu-
fólk á vínog tóbak, þrifin og sóma-
kær. Þið sem e.t.v. hafið húsnæði
aflögu vinsamlega hafið samband í
síma 681333 næstu daga.
\
Laus staða
Við lagadeild Háskóla íslands er laus til umsóknar tímabundin
lektorsstaða í lögfræði. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna til
þriggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 6. júní
n.k.
Menntamálaráðuneytið,
6. maí 1988.