Þjóðviljinn - 10.05.1988, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 10.05.1988, Blaðsíða 7
Á alþingi er nú mikill handagangur í öskjunni og menn þurfa að ráða ráðum sínum. En ríkisstjórnin vill ekki ráðgast við stjórnarandstöðuna um yfirvofandi efnahagsráðstafanir. Alþingi Þingmenn laumast burt Hjáseta Borgaraflokks olli titringi. Frásögn af atkvæðagreiðslu mótmœlt _____________ÞJÖÐMAL________________ Efnahagsráðstafanir Ríkisstjómin þögul Utandagskrárumræður: Ekkigefið upp til hvað ráða verðurgripið. Glittir ígengisfellingu. Pingið mun ekki fjalla um ráðstafanir í efnahagsmálum. Enn stefntað þinglausnum á morgun „Ætlar ríkisstjórnin að grípa til einhverra efnahagsaðgerða á næstunni og hverjar eru þær þá? Er ríkisstjórnin tilbúin að ganga til samninga við stjórnarand- stöðuna um að gert verði nokk- urra daga hlé á störfum þingsins meðan ríkisstjórnin undirbýr til- lögur sínar um aðgerðir í efna- hagsmálum?“ Þetta voru þær spurningar sem bornar voru fram í snarpri umræðu sem varð utan dagskrár á fundi sameinaðs þings í gær. Það var Steingrímur J. Sigfús- son sem hóf umræðuna og krafð- ist þess að forsætisráðherra upp- lýsti hver væru áform ríkisstjórn- arinnar um aðgerðir í efna- hagsmálum. Steingrímur hafði fyrr um daginn afhent ráðherran- um bréf frá þingflokki Alþýðu- bandalagsins þar sem segir m.a: „Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins telur það ófremdar- ástand, sem nú ríkir í atvinnulífi og efnahagsmálum landsmanna, sanna svo ekki verði um villst að stjórn þeirra mála hefur gjörsam- lega mistekist og að stjórnar- stefnan er röng. Hvarvetna í þjóðfélaginu er nú krafist breytinga og stjórnarliðar sjálfir tala opinskátt um að grípa eigi til efnahagsaðgerða. Þingflokkur Alþýðubandalagsins fer því fram á að ríkisstjórnin geri Alþingi áður en það lýkur störfum undan- bragðalaust grein fyrir því hvort efnahagsráðstafanir séu í aðsigi og þá hverjar þær séu. í ljósi þessara aðstæðna telur þingflokkur Alþýðubandalagsins einsýnt að Alþingi starfi áfram en geri, ef þurfa þykir, hlé á fundum sínum í nokkra daga. Á Alþingi verði síðan rætt um aðgerðir í efnahags- og atvinnumálum og þær afgreiddar þar eins og eðli- legt er. Þingflokkurinn lýsir sig reiðubúinn til viðræðna um nán- ari tilhögun þinghaldsins svo af þessu megi verða. Einnig er ósk- að svara ríkisstjórnarinnar um þetta efni. Sé það hins vegar ætlun ríkis- stjórnarinnar og stjórnarmeiri- hlutans að slíta þingi næstu daga án þess að svara neinu til um þær aðgerðir, sem í vændum kunna að vera, vill þingflokkur Alþýðu- bandalagsins mótmæla því sér- staklega. Þingflokkurinn mun þá beita sér fyrir því að Alþingi geri áður en það lýkur störfum, ráð- stafanir til að hugsanlegar að- gerðir ríkisstjórnarinnar skerði ekki lífskjör launafólks. Þetta verði m.a. gert með því að verð- tryggja laun ef gengið verður fellt.“ Svör Þorsteins Pálssonar voru ekki afdráttarlaus nema hann ítrekaði fyrri yfirlýsingar sínar um að stefnt væri að þinglausnum á morgun (miðvikudag). Hann taldi að það væri verkefni fram- kvæmdavaldsins að stjórna efna- hagsmálunum. Allmikið gengis- fellingarbragð þótti að eftirfar- andi orðum forsætisráðherra: „Við getum ekki og við munum ekki búa við það til langframa að útflutningsatvinnuvegirnir skuli reknir með halla.“ Guðrúnu Agnarsdóttur þóttu svör forsætisráðherra ekki skýr. „Hvað ætlar ríkisstjórnin að segja við fólk í þeim byggðar- lögum þar sem atvinnulífið er að hrynja?“ spurði Guðrún. Stefán Valgeirsson og Albert Guðmundsson tóku undir spurn- ingar Alþýðubandalagsins og Ragnar Arnalds taldi að það væri lítilsvirðing við þingræðið að senda þingmenn heim og grípa nokkrum dögum síðar til veiga- mikilla aðgerða í efnahagsmálum án þess að þær væru ræddar á samkomu hinna kjörnu fulltrúa. í lokaorðum sínum lagði Steingrímur J. Sigfússon mikla áherslu á þá skoðun Alþýðu- bandalagsmanna að launafólk yrði ekki látið bera bótalaust þær byrðar sem af efnahagsaðgerðum stjórnarinnar hlytust, sama hvort þar væri um að ræða gengisfell- ingu eða einhverjar aðrar að- gerðir. ÓP Alþingi Lýsing í gróðurttúsum Pingsályktunartillaga um lækkun rafmagnsverðs tilgarðyrkjubœnda. Aukin raflýsing dreifir framleiðslunni á lengri tíma. Minnkarþörf á innflutningi. Á jafnt við um grænmeti sem skrautblóm Þingmenn Borgaraflokksins eru ekki ánægðir með frásagnir af atkvæðagreiðslu á þingi á laugar- daginn. Þeir hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem and- mælt er frásögn Ríkisútvarpsins af atburðum. Þeir telja að vítur forseta á þingmenn vegna fjar- veru geti ekki átt við þingmenn Borgarflokksins, þeir hafi verið viðstaddir allar atkvæðagreiðslur En hið sama verði ekki sagt um alla þingmenn, þar á meðal allmarga stjórnarþingmenn. í fréttatilkynningunni segir m.a: „Við atkvæðagreiðslu á fyrstu grein í tillögu um flugmálaáætlun Nú stendur yfir fundur alþjóða hvalveiðiráðsins í Bandaríkjun- um en fimm vísindamenn héðan sitja fundinn. Ekki hefur tekist að ná samkomulagi við Banda- ríkjamenn um vinnubrögðin í vís- indanefnd ráðsins eins og stefnt var að og veldur það íslenskum ráðamönnum töluverðum vand- ræðum. Bandaríkjamenn vilja að greidd verði atkvæði um vísind- aálit nefndarinnar. Samkvæmt því yrði vísindaáætlun okkar kynnt í vísindanefndinni en síðan greidd um það atkvæði hvort mæla ætti með henni eða ekki við alþjóða hvalveiðiráðið. Slíkt var gert í desember s.l. er nafnakall var viðhaft um vísindaáætlun Japana. greiddu 32 þingmenn (af 63, innsk. Þjv.), sem er meiri hluti þingmanna, atkvæði með hand- auppréttingu við þriðju tilraun forseta til að knýja fram lögleg úrslit. Við atkvæðagreiðslu um aðra grein taldist aðeins 31 hönd á lofti og atkvæðagreiðslan því ekki lögleg. Einn stjórnarliða hafði bersýnilega laumast á brott.“ Borgaraflokksmenn telja ekk- ert óeðlilegt við það að þeir hafi setið hjá. „Borgaraflokkurinn er ekki á móti flugmálaáætluninni sem slíkri, en hefði kosið að hafa hana öðruvísi." ÓP íslenskir ráðamenn eru mjög mótfallnir þessu fyrirkomulagi og telja raunar furðulegt að greiða skuli atkvæði um vísindi. Þeir vísindamenn sem nú eru staddir í Bandaríkjunum eru þeir Jóhann Sigurjónsson og Gísli Víkingsson sérfræðingar Haf- rannsóknastofnunnar, Þorvaldur Gunnlaugsson tölfræðingur, Kjartan Ragnarsson frá Reiknist- ofnun bankanna og Alfreð Árna- son erfðafræðingur. Á fundinum vestra mun rann- sóknaáætlun Hafrannsóknarsto- funnar verða kynnt, en hún hefur verið endurskoðuð í vetur auk þess sem greint verður frá niður- stöðum rannsókna. -FRI „Framkvæmdin hlýtur að verða þannig að garðyrkjubænd- ur og Rafmagnsveitur ríkisins hafi um það samvinnu að móta tillögur um það hvernig lækka megi rafmagnsverð til þessara nota,“ sagði Friðrik Sófusson iðnaðarráðherra um tillögu um að unnið verði að lækkun á raf- orkuverði til lýsingar í gróður- húsum. Sagðist ráðherra vonast til að tillagan yrði samþykkt en annarri umræðu um hana er lokið og má búast við atkvæðagreiðslu um hana í dag. Það er Margrét Frímannsdóttir sem flutt hefur þingsályktunartil- lögu um að alþingi skori á ríkis- stjórnina að beita sér fyrir því við stjórnir Landsvirkjunar og Raf- magnsveitna ríkisins að garð- yrkjubændum verði gefinn kost- ur á hagkvæmum kaupum á raf- orku til lýsingar í gróðurhúsum. Tilgangurinn er að styrkja sam- keppnistöðu innlendrar ylræktar gagnvart innflutningi. Átvinnu- málanefnd sameinaðs þings mæl- ir einróma með því að tillagan verði samþykkt. Nú eru um 13 ár síðan garð- yrkjubændur fóru að taka í notk- un yfir vetrarmánuðina sérstaka lýsingu í gróðurhúsum. Sam- kvæmt upplýsingum frá Raf- magnsveitum ríkisins voru á ár- inu 1985 seldar um 358 kílówatts- tundir vegna lýsinga í gróðurhús- um og má búast við að um tölu- verða aukningu sé að ræða frá þeim tíma. Mest er notast við slíka lýsingu frá því í janúarbyrj- un og fram í apríl. Þetta hefur leitt til þess að innlent grænmeti kemur í verslanir mun fyrr en áður. Samkvæmt upplýsingum frá Sölufélagi garðyrkjumanna kom á markað svipað hlutfall af heildaruppskeru af innlendum tómötum í apríl 1984 og í maí 1971 en þá var ekki farið að nota raflýsingu. Uppskeran dreifist því yfir fleiri mánuði en áður eftir að lýsingin kom til. í umræðunni um tillöguna hef- ur komið fram það sjónarmið að því minna sem flutt er inn af grænmeti og afskornum blómum þeim mun minni líkur séu þess að til sýklar og sníkjudýr bersist hingað. ÓP Þriðjudagur 10. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Hvalveiðiráðið Ekkert samkomulag Bandaríkjamenn vilja atkvœðagreiðslu. Fimm vísindamenn áfundi ráðsins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.