Þjóðviljinn - 11.05.1988, Page 9
MENNING
Leiklist
Fagurt
mannlíf
Leikfélag Akureyrar sýnir
FIÐLARANN Á ÞAKINU
eflir Joseph Stein og Jerry Bock
Leikstjóri: Stefán Baldursson
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson
Tónlistarstjóri: Magnús Blöndal Jó-
hannsson
Þýðing: Egill Bjarnason og Þórarinn
Hjartarson
Fiðlarinn á þakinu er um margt
nokkuð geðþekkt verk. Þessi
leikur um Tevje mjólkurpóst og
lífið í gyðingaþorpinu í Rússlandi
fyrir hundrað árum er mann-
eskjulegur og hlýr án þess að vera
tiltakanlega væminn. Hann býr
yfir notalegri kímni og lýsir gyð-
inglegum hefðum skemmtilega.
Og Tevje sjálfur er glúrin mann-
lýsing, einfaldur og hjartagóður
maður sem ævinlega rambar á
rétta leið, þótt hann stígi ekki sér-
staklega í vitið, vegna þess að
hjartað er á réttum stað. Hins
vegar skortir þetta verk nokkuð
dramatíska stígandi í seinni hlut-
anum og hann verður helsti dauf-
legur, eða þannig verkaði hann
að minnsta kosti á undirritaðan á
Akureyri.
Góðir eiginleikar verksins
komast hins vegar ágætlega til
skila í þessari sýningu sem Stefán
Baldursson hefur stýrt og lagt
höfuðáherslu á hlýju hennar og
tilfinningar. Hann hefði hins veg-
ar að ósekju mátt leggja meiri
snerpu í atburðarásina og keyra
upp hraðara og ákveðnara
tempó. En óneitanlega hefur
hann komið sýningunni hagan-
lega fyrir á þessu Iitla sviði og
notið þar góðrar aðstoðar Sigurj-
óns Jóhannssonar sem hefur gert
leikmynd sem er í senn einföld og
flókin - flekar með hlerum og
dyrum og á þá máluð mótíf úr
Vitebskmyndum meistara Chag-
alls sem lýsa lífinu í samskonar
þorpi á svipuðum tíma. Þetta er
snjöll leikmynd sem gefur mögu-
leika á hröðum og einföldum
skiptingum og Ingvar Björnsson
hefur lýst hana mjög skemmti-
lega.
, SVERRIR
1 HÓLMARSSON
Tevje mjólkurpóstur er
skemmtilegt og þakklátt hlutverk
þótt það geri ekki miklar kröfur
til blæbrigða eða dýptar í leik.
Theodór Júlíusson fer mjög fal-
lega með það, gefur því breidd og
hlýju sem af ber. Theodór hefur
mikla og fallega rödd sem hann
Hólmfríður Þóroddsdóttir óbóleikari.
Tónleikar
Einleikarapróf
á óbó
í kvöld heldur Hólmfríður Þór-
oddsdóttir óbóleikari tónleika í
Norræna húsinu, og eru síðari
hluti einleikaraprófs hennar frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Hólmfríður lærði á píanó frá 7
ára aldri, en fór að læra á óbó
þegar hún var fimmtán ára.
- Ég er frá Akureyri, og þar
vantaði alltaf óbóleikara, - segir
hún. - Mér var bara fengið hljóð-
færið einn daginn og sagt að fara
heim og æfa mig. Svo jókst áhug-
inn smám saman eftir því sem ég
kynntist hljóðfærinu betur.
Spilarðu í hljómsveit jafnhliða
náminu?
- Ég spila í óperunni, og ein-
staka sinnum með Sinfóníunni ef
það vantar óbóleikara.
Hvað er framundan?
- Næstu 4 árin verð ég í
London, við Guildhall School of
Music, en eftir það er allt óráðið.
Ég vonast til að geta komið heim
aftur og fengið eitthvað að gera
hér sem óbóleikari.
Hvað ertu helst að hugsa um
sem framtíðarstarf? Stefnirðu að
því að vera einleikari, kenna, eða
spila í hljómsveit?
- Ég er mest að hugsa um
hljómsveitina, frekar en kennsl-
una, og það er alls ekki raunhæft
að hugsa um að vera einleikari á
óbó. Það er reyndar mikið til af
verkum fyrir óbó frá 16. og 17.
öld, og jafnvel þeirri 18., því þá
var hljóðfærið í tísku, en það hef-
ur lítið verið skrifað fyrir óbó síð-
an þá.
A efnisskrá tónleikanna sem
hefjast kl. 20:30, eru verk eftir J.
S. Bach, Saint-Saens, Hindemith
og Mozart. Undirleik annast
Krystyna Cortes píanóleikari og
Elín Guðmundsdóttir sembal-
leikari, með aðstoð nemenda í
strengjadeild skólans. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill. LG
Theodór Júlíusson syngur alveg prýðilega í hlutverki Tevjes.
beitir af góðri tækni í þessu hlut-
verki - þó að raddbeitingin minni
að vísu stundum óþægilega mikið
á annan Tevje. Theodór hefur
vaxið af þessu hlutverki, leikur af
myndugleik sem ég hef ekki séð
til hans fyrr og nær sterkum
tökum á salnum. Honum tekst að
bera þessa sýningu uppi með
styrk sínum og útgeislun, auk
þess sem hann syngur alveg
prýðilega.
Mikill fjöldi leikara kemur
fram í sýningunni og yrði of
langur listi upp að telja, en nokk-
urra ber að geta. Anna S. Einars-
dóttir er geðþekk og hógvær í
hlutverki Goldu og sýnir sterka
skapsmuni þar sem það á við.
Dætumar fimm vom allar í góð-
um höndum en einkum þótti mér
Erla Ruth Harðardóttir stafa frá
sér miklum þokka í hlutverki
Chava. í>á voru þær gamalreyndu
kempur, Þráinn Karlsson og
Sunna Borg, til mikillar prýði og
skemmtunar og drógu upp kostu-
legar myndir af slátraranum og
hj úskaparmiðlaranum.
Stefán Baldursson hefur
greinilega lagt mikla alúð við
leikinn og hann er áberandi jafn
og góður hjá þessu fjölbreytilega
liði. Hins vegar er söngurinn ekki
eins jafn eins og vonlegt er. Flest-
ir leikaranna þurfa að reyna veru-
lega á röddina og fæstir þeirra
hafa rödd eða þjálfun til þess,
þannig að sum söngatriðin verða
dálítið vandræðaleg. Við þessu er
auðvitað ekkert að gera ef menn
ætla sér að setja upp söngleik af
þessu tagi á stað eins og Akureyri
en þetta er óneitanlega töluverð-
ur ljóður á sýningunni. Það bætti
þó nokkuð úr skák að kórsöngur-
inn var með miklum ágætum og
hljómsveitin lék prýðilega undir
stjórn Magnúsar Blöndals. Þá er
að geta þess að Juliet Naylor hef-
ur gert þokkafulla dansa sem
voru ágætlega útfærðir.
Þó að þessa sýningu skorti
snerpu og átök, einkum í seinni-
hlutanum, er hún um margt af-
skaplega fallegt og vandað verk -
og umtalsverður sigur fyrir Theo-
dór Júlíusson. Hún sýnir þó einn-
ig ljóslega þá annmarka sem
hljóta að fylgja þeirri stefnu sem
nú virðist orðin föst í sessi á Ak-
ureyri, að sýna einn söngleik á
ári. Sverrir Hólmarsson
Mörgum kann að virðast þetta
sérkennilegt nafn á jasshljóm-
sveit, en það eru fleiri en íslend-
ingar sem kunna norræna goða-
fræði.
Kristian Blak er jóskur maður
sem býr í Færeyjum. Hann leikur
á píanó og semur tónlist, auk þess
sem hann gefur út hljómplötur og
stjórnar Yggdrasil. Sú hljómsveit
hefur starfað í sjö ár og ferðast
víða um Evrópu. Þekktastur
þeirra félaga mun vera danski
saxafónleikarinn John Tchicai.
Hann er af afrískum ættum og var
einn af frumkvöðlum hins nýja
djass í Bandaríkjunum á árunum
uppúr 1960. Hann stofnaði Fram-
sækna New York kvintettinn
ásamt Archie Shepp og Don
Cherry og hljóðritaði m.a. Upps-
tigninguna með John Coltrane.
Eftir að hann flutti aftur heim til
Danmerkur hefur hann m.a.
leikið með Cecil Taylor, Albert
Mangelsdorf, Pierre Dprge og
Yggdrasil auk eigin hljómsveitar.
Hann kom til íslands ásamt Krist-
ian Blak 1982 og lék þá frægan
dúett með Áskeli Mássyni í
Djúpinu.
Þrír Svíar eru í Yggdrasil,
flautu- og saxafónleikarinn And-
reas Hagberg, gítaristinn Lelle
Kullgren, er hér lék með Sala-
möndrunum 1983 og trommarinn
Christian Jormin. Hann er bróðir
bassaleikarans Andreas Jormin,
sem leikið hefur með Yggdrasil,
en er nú í hljómsveit Gary Burt-
ons. Japaninn Yasuhito Mori
slær í stað hans bassann með
hljómsveitinni.
Þeir félagar eru nú í mikilli
reisu um Norðurlönd og er ísland
fyrsti áfangastaðurinn. Halda
þeir hér ferna tónleika. Þá fyrstu
á föstudagskvöld á Hótel Sel-
fossi, aðrir tónleikarnir verða á
laugardag klukkan 16 í Norræna
húsinu og munu þeir þar leika
nýtt verk eftir Kristian Blak:
Breytingar. Klukkan þrjú á sunn-
udag verða þeir í Alþýðuhúsinu á
Akureyri í boði Jassklúbbs Akur-
eyrar og íslandsferð þeirra lýkur í
Heita pottinum í Duus-húsi á
Tónlist
Yggdrasil
Norrœn jasshljómsveit í íslandsreisu
Andreas Hagberg og John Tchicai.
sunnudagskvöld þar sem John auk þess sem fleiri ópusar verða á
Tchicai ætlar að trylla verk sín dagskrá.
Mlðvlkudagur 11. maí 1988 ÞJÓOVILJINN - SÍÐA 9