Þjóðviljinn - 11.05.1988, Page 15
IÞROTTIR
Miðvikudagur 11. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
England
Liverpool tókst
ekki að bæta metiö
Brian McClair rauf30 marka múrinn
Þrátt fyrir mikla yfirburði í 1.
deildinni í vetur tókst Liverpool
ekki að setja nýtt stigamet.
Everton fékk 90 stig fyrir þremur
árum og á mánudagskvöldið jafn-
aði Liverpool það met með því að
gera jafntefli við Luton, 1-1. Að
vísu lék Everton 42 leiki í
deildinni á sínum tíma en nú eru
leiknir aðeins 40 leikir, þannig að
árangur Liverpool er ívið betri.
Það var John Aldridge sem
kom sínum mönnum yfir á 17.
mínútu leiksins með fallegri hjól-
hestarspyrnu. Var þetta jafn-
framt 29. mark þessa skemmti-
lega leikmanns í vetur. David
Oldfield jafnaði leikinn á 28.
pýskaland
Tap hjá
Stuttgart
Einn leikur var í Bundeslig-
unni í gærkvöldi. Bayer Leverk-
usen lék gegn Stuttgart og unnu
þeir fyrrnefndu með tveimur
mörkum gegn einu.
Ingó hinn fundvísi afhendir Hermanni hinum tannfáa tönnina sem hann fann í skónum sínum.
Tapað-fundið
Tönnin komin í Ijós
Ekki um grófan leik að ræða
Það endaði farsællega tann-
hvarfið hjá Hermanni í
4.deildarliði Skotfélags Reykja-
víkur en hann var svo óheppinn
að týna tönn fyrir leik gegn
Leikni á sunnudaginn. Tönnin
hafði dottið ofan í skó Ingólfs,
eins af leikmönnum Víkverja
sem léku við ÍR strax á eftir leik
Skotfélagsmanna. Sá fékk slæma
bakþanka og reyndi að muna
eftir alvarlegum „tæklingum“
síðast þegar hann hafði verið í
skónum en mundi ekki eftir
neinu slíku. Hann fór því á fund
íþróttafréttamanna Þjóðviljans
sem auglýsti fundinn í þriðju-
dagsblaðinu. Hermann las blaðið
og skundaði á fund íþróttafrétta-
manna sem höfðu samband við
Ingólf og málið leystist. Þess má
geta að hvarfið kom ekki við Her-
mann því hann skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Skotfélagið á ferlinum
og það glæsilegt.
-fáni
Fram spáð sigri
Á fundinum voru SL-deildar-
liðin látin spá um úrslit sumarsins
eins og venja er. Þessi spádómur
vekur athygli fyrir þær sakir að
hann hefur aldrei brugðist hvað
toppsætið varðar en aldrei staðist
með botnliðin. Hvert félag fékk
til umráða þrj á atkvæðaseðla og á
hverjum seðli voru liðunum gefin
atkvæði eftir því í hvaða sæti
þeim er ætlað að lenda, 10 stig
fyrir 1. sæti og þannig koll af
kolli. Fram er það lið sem ands-
tæðingarnir óttast mest því það
varð efst í kjörinu með 269 stig af
300 mögulegum. Næst urðu
Reykjavíkurliðin KR og Valur en
úrslit urðu á þennan veg:
1. Fram...................269
————— r
2. KR........................250
3. Valur.....................221
4. lA........................209
5. ÍBK.......................176
6. Þór.......................159
7. Víkingur..................147
8. KA.........................99
9. Leiftur.....................69
10. Völsungur..................51
-þóm
mínútu en Liverpool tókst ekki
að skora að nýju og setja þannig
nýtt stigamet.
Brian McClair rauf 30 marka
múrinn með því að skora tvívegis
gegn Wimbledon og hefur hann
þá gert 31 mark í vetur. Mörkin
tvö dugðu Manchester United til
sigurs þar sem andstæðingarnir
komu boltanum aðeins einu sinni
í netið. Það var Terry Gibson sem
var þar að verki.
Leikir á næstunni:
Flestir leikmenn í Englandi eru
nú komnir í frí. Þó er enn ólokið
aukakeppni sem efstu og neðstu
lið deildanna þurfa að taka þátt í
og hefst keppnin á sunnudag.
Einnig eru úrslitaleikir bikar-
keppninnar á næstunni.
í keppni um sæti í 1. deild leika
Blackburn og Chelsea annars
vegar og Bradford og Middles-
brough hins vegar. í aukakeppni
um veru í 2. deild eru það Bristol
City og Sheffield United sem
eigast við ásamt Notts County og
Walsall. Og loks um sæti í 3. deild
verða það Swansea og Rother-
ham annars vegar og Torquay og
Scunthorpe hins vegar sem eigast
við.
Á laugardag verða úrslitaleikir
í ensku og skosku bikarkepp-
ninni. Á Wembley mætir Davíð
Golíat, en það er spúttnikliðið
Wimbledon sem reynir að leggja
Liverpool að velli. Á sama tíma
leiða Celtic og Dundee United
saman hesta sína á Hampden
Park í Glasgow. Liverpool og
Celtic eru tvímælalaust sigur-
stranglegri liðin í leikjunum en
bæði unnu þau deildarkeppnina
með yfirburðum. Þá verður úr-
slitaleikurinn í welska bikarnum
á sunnudag og eru það Wrexham
og Cardiff sem eigast við.
-þóm
Samtök 1. deildarliða héldu í
gær sinn árlega blaðamannafund
fyrir íslandsmótið og var fundar-
staður heldur óvenjulegur. Eins
og í fyrra þá styrkir Samvinnu-
ferðir-Landsýn mótið og gerði
ferðaskrifstofan sér lítið fyrir og
bauð blaðamönnum og forráða-
mönnum félaganna í flugferð í
spánnýrri Boeing-þotu Arnar-
flugs. Þar var fundurinn haldinn
og í leiðinni voru vallarsvæði lið-
anna skoðuð úr lofti.
Mótið kallast nú íslandsmótið
SL-deild og brydda Samvinnu-
ferðir upp á tveimur nýjungum
frá fyrra ári. Fyrst skal nefna SL-
leikinn svokallaða sem byggist á
því að áhorfendur leikjanna spá
um úrslit og hljóta vinning ef spá-
in reynist rétt. Spáseðlar verða
seldir á 100 kr. fyrir leikina og
mun helmingur af sölutekjum
renna til heimaliðsins en hinn
helmingurinn í vinninga.
Auk SL-leiksins verður í
leikhléi haldinn Bráðabani SL-
deildar. Hann fer þannig fram að
leikmenn 6. flokks sömu liða og
eigast við í deildinni heyja bráða-
bana líkt og menn kannast við. Þá
reyna tveir leikmenn heimaliðs-'
ins að skora hjá tveimur mönnum
aðkomuliðs og hafa eina mínútu í
verkið. Fimm slík pör reyna að
skora þannig að mest er hægt að
vinna 5-0. Síðan snýst dæmið við í
seinni leik liðanna og ræður
samanlögð markatala úrslitum.
Til að einfalda framkvæmd
Bráðabanans verður 6. flokkslið-
unum skipt í tvo riðla: norður og
suður riðil. Sigurvegarar úr hvor-
um riðli leika síðan til úrslita í lok
sumars.
0g þetta
líka...
Chelsea
hefur ráðið Bobby Campbell sem
þjálfara til tveggja ára í viðbót þó að
þeir séu í bullandi fallhættu. Camp-
bell tók við af John Hollins sem fór
fyrir 8 leikjum en Chelsea hefur að-
eins tapað tveimur leikjum á meðan.
En það er fyrst og fremst mórallinn
sem hefur tekið stakkaskiptum og
leikmenn hrósa Campbell í hástert.
Rétt er að benda á að kappinn er alin
upp í herbúðum Liverpool.
Smolarek
Pólverjinn Wlodimierz Smolarek sem
lék með Eintracht Frankfurt í Þýska-
landi hefur gert samning við Feyeno-
ord í Hollandi um að leika með þeim
næstu þrjú ár. Þetta er viðleitni hins
nýja þjálfara liðsins Hans Kraay til að
koma Feyenoord á toppinn.
Gordon Strachan
er kominn á ný í skoska landsliðið
eftir að hafa verið úti í kuldanum í 8
mánuði. Hann mun leika gegn Kol-
ombíu 17. maí og Englandi fjórum
dögum síðar en hann er eina
breytingin í liðinu frá leiknum við
Spán í síðasta mánuði. Liðið er nú
skipað: Leighton, Goram, Gunn
Smith, Gillespie, Gough, McLeish,
Malpas, Miller, Narey, Nicol, Aitken,
D.Ferguson, Mclnally, Macleod,
McStay, Simpson, Strachan, Johns-
ton, McClair, McCoist, Sharp.
Endurgreitt
Hollendingurinn John Bosman varð
að endurgreiða franska fótboltafé-
laginu Toulon 500.000 krónur í hol-
lenskum gyllinum. Það er til komið
vegna svika í samningi við Frakkana
sem Bosman var búinn að skrifa
undir en venti sínu kvæði í kross og
fór til Ajax í Hollandi. Sögusagnir
ganga um að lögfræðingurinn sem sá
um samningana hafi fengið 4 miljónir
fyrir sína vinnu.
Jafntefli
Danir og Ungverjar léku vináttulands-
leik í gær og lyktaði honum með jafn-
tefli 2-2 eftir að Ungverjar voru yfir í
leikhléi, 1-0. Danir voru heppnir því
þeir náðu að jafna leikinn þegar ein
mínúta var til leiksloka en þeir léku án
margra stjarna svo sem Sören Lerby,
Ivan Nilsen, Preben Elkjer cg Frank
Arnesen. Það voru Kiprich og Bognar
sem gerðu mörk Ungverja en Fri-
mann og Eriksen Dana.
Fyrirliðar í SL-deildarinni ásamt flugfreyjum að koma af blaðamannafundinum sem haldinn var um borð í
þotu Arnarflugs. Flogið var yfir velli þeirra liða sem leika í SL-deildinni en svo heitir fyrsta deildin nú.
Fótbolti-SL deild
Blaðamannafundur
í sviptivindi
Árlegur blaðamannfundur 1. deildarliða var haldinn um
borð í Boeing-þotu Arnarflugs