Þjóðviljinn - 11.05.1988, Síða 16
—SPURNINGIN—
Er þriggja daga sængur-
lega fullnægjandi?
(Spurt á ráðstefnu HFÍ um ör-
yggi á meðgöngu)
Sólveig Þórðardóttir
deildarstjóri:
Nei, alls ekki. í dag búum við yfir
víðtækri þekkingu sem sýnir okk-
ur að við þurfum 5-7 daga
sængurlegu. Ef sú leið að senda
konur heim eftir þrjá daga er valin
þá þarf að koma til móts við kon-
urnar með heimaþjónustu.
Guðrún Guðmundsdóttir
Ijósmóðurnemi:
Mér finnst það nú alveg á mörk-
unum. Eiginlega ekki nóg, satt að
segja.
Elínborg Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur/
Ijósmóðir:
Við núverandi aðstæður nægir
hún yfirleitt ekki. Við þurfum að
geta boðið upp á meiri þjónustu
þegar heim er komið, bæði fyrir
móður og barn, ef svo á að vera.
Marga Thome
dósent í hjúkrunarfræðum:
Það fer nú eftir því hvaða þjón-
usta er. veitt í framhaldinu. Ég
held að konur þurfi oftast lítillega
lengri tíma.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
starfsmaður Hjúkrunarfélags-
ins:
Ég mundi halda að það væri of
lítið. 5 dagar væru nær lagi.
Yfirdráttur
á tékkareikninga
launafólks
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF
Fœðingar
Omgga meðgöngu
A morgun er alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga og ígœr hélt Hjúkrunarf élag Islands ráðstefnu
um öryggi mœðra á meðgöngutíma. Ljósmœður uggandi um afdrif sængurkvenna í sumar
legutíminn hefur verið styttur
verulega, án nokkurrar þjónustu
í tilefni Alþjóðadags hjúkrun-
arfræðinga, sem verður á morg-
un, 12. maí, á afmælisdegi Flor-
ence Nightingale, gekkst Ljós-
mæðradeild Hjúkrunarfélags ís-
lands fyrir ráðstefnu um barns-
fæðingar í gær. Alþjóðasambönd
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra
starfa í ár undir kjörorðunum;
„Öryggi á meðgöngu".
I flestum tilfellum skilur fólk
þau kjörorð máski á þann veg að
markmiðið sé fyrst og fremst að
eða aðstoðar eftir heimkomuna.
Ljósmæður telj a það vera skref
aftur á við þegar stjórnvöld taka
þá stefnu að loka Fæðingarheim-
ili Reykjavíkur á sumarleyfistíma
og beina með því öllum fæðandi
konum á Reykjavíkursvæðinu á
Kvennadeild Landspítalans. Þær
skora á stjórn Borgarspítalans að
hverfa frá þeim fyrirætlunum að
loka Fæðingarheimilinu í 6 vikur
á sumri komanda því fyrirsjáan-
leg aukning verði á fæðingum
verði um allt land. Því sé ljóst að
því fleiri fæðingar sem verða á
Kvennadeild Landspítalans verði
styttri sængurlegur og minni
þjónustu við sængurkonur.
-tt
Orsök og afleiðing. Myndir E.ÓI.
Ljósmóðurmenntaðir hjúkrunar-
fræðingar í þungum þönkum
vegna fyrirsjáanlegra vandræða
á fæðingardeildunum.
tryggja einvörðungu öryggi
barnsins á meðgöngutímanum en
þegar dýpra er skoðað rekst mað-
ur á óþægilegar staðreyndir að
baki þessum kjörorðum.
Á hverju ári deyja að meðaltali
500 þúsund konur vegna erfið-
leika á meðgöngu og er það
eitthvert mest krefjandi vanda-
mál sem hjúkrunarfræðingar og
ljósmæður telja sig þurfa að
leysa. Þetta jafngildir því að rúm-
lega 13 þúsund konur deyja dag-
lega í heiminum af ýmsum orsök-
um sem tengjast meðgöngunni.
Á ráðstefnunni var rætt um
ljósmæðrastörf í þróunar-
löndum, mæðravernd á íslandi,
öryggi móður og barns í fæðingu,
ungbarnaeftirlit og fleira og
fleira. í lokin var svo rætt vítt og
breitt um ljósmæðrastörf.
Á sambærilegri ráðstefnu
Ljósmæðrafélags íslands um
sængurlegu sem haldin var í lok
apríl var samþykkt yfirlýsing þar
sem félagið lýsti yfir áhyggjum
sínum á þeirri þróun sem er að
verða á umönnun fæðandi
kvenna og sængurkvenna yfir
sumartímann, þar sem sængur-
Virðisaukaskatturinn
Fjandsamlegur menningunni
Leiklistarfólk mótmælir fyrir-
huguðu frumvarpi um virðis-
aukaskatt því í því er gert ráð
fyrir að álögur verði lagðar á að-
göngumiðaverð að öllum óperu-
og leiksýningum í landinu.
Leikarar fjölmenntu á þing-
palla í gær til að hlýða á umræður
um virðisaukann en allar þær
breytingartillögur sem fram
komu voru felldar en frumvarpið
í heild sinni samþykkt.
Félag íslenskra leikara lýsir því
yfir að það sé hneisa að ríkis-
stjórnin skuli með þessum hætti
stuðla að menningarlegri stétt-
askiptingu. Fyrirséð sé að af-
leiðingin verði hækkun aðgöngu-
miðaverðs.
Listamenn hafa nú af því þung-j
ar áhyggjur að vegna hins ónóga
fjárstuðnings opinberra aðila við
þessa starfsemi sé aðgöngumiða-
verð þegar farið að útiloka hina
efnaminni frá þeim sjálfsögðu
mannréttindum að njóta lista. -tt