Þjóðviljinn - 21.05.1988, Blaðsíða 1
Efnahagsráðstafanir
Vandamálin sett í nefndir
Hótað að afnema rauðu strikin. Erlend lán til endurskipulagningaráfjárhagfyrirtœkja. Hœkkun
skattleysismarka. Lánskjaravísitalan ínefnd. Fjárlög ekki hœkkuð umfram launahœkkanir. ÓlafurRagnar
Grímsson: Nýtt hrœðslubandalag í stjórnarráðinu. Ásmundur Stefánsson: Búið að banna kjarasamninga
1980
1981
1982
1983
1984
1985 1986 1987 1988
Efnahagskreppa Þorsteins Pálssonar. Línuritið sýnir raungildi Þjóðhagsstofnunar um 3,5% samdrátt þjóðartekna á þessu ári er
ajóðartekna á mann ogermiðaðviðað þærhafi verið 100% árið 1979. reiknað með að það verði annað mesta góðæri sem þjóðin hefur um
Þrátt fyrir nokkurt verðfall á erlendum mörkuðum og spá langa hríð upplifað.
Ráðhúsið
Blekkingar hjá
borgaryfirvöldum
Ríkislögmaðurfékk rangar upplýsingar
Sjónvarp og börn
Einræðisherra
Oll háttsemi sjónvarpsstjórnenda miðast við
smekk og stundaskrá ráðsettra miðaldra karla.
Börnin útundan
Laust fyrir klukkan sjö í gær-
kvöldi efndi ríkisstjórnin til
blaðamannafundar þar sem hún
kynnti áform sín um aðgerðir í
efnahagsmálum, þ.e.a.s. síðbún-
ar hliðarráðstafanir sínar með
gengisfellingunni frá því um síð-
ustu helgi. Ákvarðanir á þessu
sviði hafa verið til umræðu á tíð-
um ríkisstjórnarfundum í heila
viku og þótti ýmsum að eftirtekj-
an væri heldur rýr og býsna stór-
um málum væri vísað til frekari
yinnu í nefndum.
Sett verða bráðabirgðalög um
þá kjarasamninga sem nú eru
lausir. Hefur vitneskja manna
um þessa fyrirætlan ráðherranna
haft gífurleg áhrif á þær viðræður
um kjarasamninga sem farið hafa
fram síðustu dagana. Þá ætlar
ríkisstjómin sér að kippa rauðu
strikunum svokölluðu úr sam-
bandi 1. júlí en virðist ekki leggja
í að segja það hreint út á þessari
stundu.
Megineinkenni þeirrar yfirlýs-
ingar, sem ríkisstjórnin birti í
gær, eru almennt orðuð áform.
Þar má finna nokkur upphafs-
skref til að taka á málefnum
fjármagnsmarkaðarins og vanda
þeirra sveitarfélaga sem eru í
hvað mestum fjárhagsvanda. En
meira er um aímennar viljayfir-
lýsingar og tilmæli til bankastofn-
ana.
Sjá bls. 2, 4 og 5
Leikhús
Tilrauna-
leikhus í
Hlaðvarpanum
Gulur, rauður, grænn og blár
heitir nýtt verk sem verður frum-
flutt í Hlaðvarpanum á mánu-
dagskvöldið.
Leikritið varð til í samvinnu
leikhópsins Þíbilju og fjallar um
drauma og ævintýri og margt
fleira.
Sjá bls. 7
Biðillinn og prinsessan; getur
hann boðið henni eitthvað sem
henni líst á?> (Inga Hildur Har-
aldsdóttir og Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir.) Mynd - Sig.
- Sjónvarpið er miðstýrður,
fjarstýrður og á vissan hátt ein-
ræðiskenndur fjölmiðill, sem
ekki nýtist viðtakandanum nema
hann beygi sig undir smekk, hug-
myndafræði og veruleikamat
stjórnenda hans. Tímasetningar
og annað fyrirkomulag dagskrár
er einnig háð geðþótta þessara
sömu sjónvarpsstjórnenda. Öll
háttsemi þeirra er reyndar miðuð
við smekk og stundaskrá ráðsetts
miðaldra fólks, einkum karla.
Svo segir m.a. í ítarlegri og
fróðlegri grein eftir Þorbjörn
Broddason lektor sem birt er í
Sunnudagsblaði Þjóðviljans. Þar
kemur einnig fram að það eru
börnin sem fyrst og fremst mæta
afgangi og þeim er lítil virðing
sýnd.
Sjá Sunnudagsblað
bls. 6-8
Minnihluti byggingarnefndar
borgarinnar fullyrðir í áliti sínu til
félagsmálaráðherra, vegna kæru
37 íbúa við Tjarnargötu varðandi
sameiningu lóðanna við Vonar-
stræti 11 og Tjarnargötu 11, að
framkvæmdastjóri lögfræði- og
stjórnsýsludeildar borgarinnar
hafi gefið ríkislögmanni alrangar
upplýsingar þegar hann samdi
álitsgerð sína til ráðuneytisins
fyrr á árinu.
Gunnlaugur Claessen ríkislög-
maður tekur undir það álit minni-
hluta byggingarnefndar að sitt-
hvað sé lóð og byggingarreitur en
segist hafa gengið út frá því sem
vísu við álitsgerð sína að búið
væri að ganga frá lóðarstærð ráð-
hússins. Hann hafi ekki vitað bet-
ur.____________________________
Sjá bls. 3