Þjóðviljinn - 05.06.1988, Qupperneq 18
BRIDGE
KROSSGÁTAN Nr. 620
7 2 3 ¥ s Z (o 7 7 7 1? 9 )D n
12. /3 )0 )S ) )<* to 3 1 )2
)?■ )9 lo )e 7 ) 20 V zX n )8 )9 3 22
23 <fl J? )B 7 ) £ 21 7 ) 8 W ¥ 2t)
) 2S c? ) H9 xx 2á> £ 20 i 22 3 22 J8
4 J 2? J6> ¥ V e S- /<? 17 V /
) 8 % )0 ie t* ) )# )b 6 )£ <P 28 27
2 )8 )kK V U ie )0 b> 7 )t ÍO (o )8 22 V
? (o V 22 T é> lé 9 ¥ 22 n 22 /¥ 2Í 22
22 3 ) V ) 23 ? 7 v- S' 8 8 18
30 7 S U> e )9 7 4 18 <* sz
3/ 8 n y )0 k> )B V )8 22 )0 )8 7 ¥
22 2/ ¥ )é h? /0 7 3 32. i ¥ 13 18
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stati í reitina hór fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn. Sendið þetta
nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, merkt: „Krossgáta
nr. 620". Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send vinningshafa.
é 21 23 J J/ 8 25
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Lausnarorðið á krossgátu 617 var beiskaldi. Dregið var úr réttum lausnum, og
upp kom nafn Jóhannesar Jósepssonar, Rauðamýri 4, Akureyri. Hann fær
send bókaverðlaunin í pósti innan tíðar: Vefurinn sífelldi, Ijóðabók eftir Helga
Sæmundsson, gefin út af Skákprenti 1987.
Verðlaun fyrir krossgátu 620
verður Náttuglan „Ekki kven-
mannsverk," eftir P. D. James.
Bikarkeppnin hafin
Dregið hefur verið í 1. og 2. umferð
Sanitas-Bikarkeppni Bridgesam-
bandsins Eftirtaldar sveitir mætast
(heimasveit talin á undan);
Valtýr Pálsson Self. - Stefanía Skarp-
héðinsdóttir Skógum
Guðmundur Magnússon Reyðarfj. -
Romex Reykjavík
Delta Reykjavík - Ármann J. Lárus-
son Kópavogi
Ásgr. Sigurbj. Siglufj. - Zarioh Ham-
adi Akureyri
Ingi St. Gunnlaugss. Akranesi -
Gunnar Þórðarson Sauðárkr.
Samv.ferðir Landsýn Rvk - Guð-
mundur M. Jónsson ísafirði
Bragi Hauksson Reykjav. - Þórarinn
Sófusson Hafnarfj.
Gylfi Pálsson Akureyri - Þorsteinn
Bergsson Fáskrúðsfj.
2. umferð
Modern Iceland Reykjavík - Sigfús
Örn Árnason Reykjavík
Kristján Guðjónsson Akureyri -
Gylfi Pálss./Þorsteinn Bergsson
Eskfirðingur - Stefán Pálsson
Reykjavík
Hellusteypan Akureyri - Eiríkur Ell-
ertsson Keflavík
Sigurður Sigurj. Kópavogi - Ung-
lingalandsliðið
Ásgrímur/Zarioh-Burkni Dómalds-
son Reykjavík
Örn Einarsson Akureyri - Sigmund-
ur Stefánsson Reykjavík
Magnús Sverrisson Reykjavtk - Lár-
entsínus Kristjánsson Stykkish.
Pólaris Reykjavík - Björn Friðriks-
son Blönduósi
Guðmundur Magn./Romex-Ingi St.
Gunnl./Gunnar Þórðarson
Delta/Ármann J. Lárusson - Valtýr
Jónasson Siglufj.
Valtýr Pálss./Sefanía Skarph.-
Ragnar Haraldsson Grundarfj.
Flugleiðir Reykjavík
Samv.Landsýn/Guðm. M. Jónsson
K.K. Reyðarfirði - Eðvarð Hall-
grímsson Skagaströnd
Björgvin Þorsteinsson Reykjavík -
Bragi Hauksson/Þórarinn Sófusson
Grímur Thorarensen Kópavogi - Jón
Hauksson Vestm.eyjum.
Leikjum í 1. umferð skal vera lokið
fyrir sunnudaginn 26. júní og leikjum
í 2. umferð skal vera lokið fyrir sunn-
udaginn 24. júlí. Fyrirliðar athugi að
koma úrslitum leikja og nöfnum spil-
ara, ásamt tilkynningu um leikdaga
og greiðslu kr. 7000 pr. sveit til BSI í
tíma. Dregið verður í 3. umferð um
miðjan júlí. Allar nánari uppl. varð-
andi Sanitas Bikarkeppni Bridgesam-
bandsins 1988 eru veittar á skrifst.
BSÍ.
Meistarastigaskrá (vorskýrsla) frá
1. mars 1976 til 16. maí 1988, hefur
verið dreift til allra félaga (formanna)
innan BSÍ. f skránni (tölvulisti) er að
finna nöfn 3209 spilara, í um 50 fé-
lögum innan BSÍ. Stigefsti spilarinn
er Jón Baldursson, með 1153 stig en
næstir koma Sigurður Sverrisson og
Þórarinn Sigþórsson með 1106.
Þórarinn lætur því eftir efsta sætið,
að sinni, en hann hefur vermt það
undanfarin ár. Sigurður Sverrisson
hefur bætt flestum stigum við sig frá
síðustu skrá, eða 112 stigum, en aðrir
yfir 100 stig eru þeir Aðalsteinn Jörg-
ensen og Valur Sigurðsson.
Alls hafa 20 spilarar hlotið stór-
meistaranafnbót (yfir 500 stig) og 98
spilarar spaðagráðu (150 stig eða
meir). Næsta skrá kemur út í janúar
1989.
Líklegt er að tvær sveitir fari héðan
til keppni á Alþjóðlega mótinu í Am-
sterdam helgina 18.-19. júní. Auk
þeirra Magnúsar Ólafssonar, Jakobs
Kristinssonar, Ólafs og Hermanns
Lárussonar, hefur sveit Braga Hauks-
sonar sýnt viðleitni til að taka þátt í
mótinu. Um 100 sveitir munu vera
skráðar til leiks.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Bridgesambandið hefur auglýst
eftir umsóknum stighærri para, til
þátttöku í 60 ára afmælismóti
Stúdenta-klúbbsins í Kaupmanna-
höfn, sem spilað verður í september.
Um 180 pör munu taka þátt í mótinu,
þaraf 20 af sterkustu pörum Evrópu.
Frestur til að sækja um þátttöku renn-
ur út 15. júlí nk.
Sveit Málningalagersins frá Bol-
ungarvík, skipuð þeim Guðmundi
Þorkelssyni, Jóni H. Gunnarssyni,
Jóhanni Ævarssyni og Júlíusi Sigur-
jónssyni, varð Vestfjarðameistari í
sveitakeppni, um síðustu helgi. 11.
sveitir tóku þátt í mótinu, sem spiluð
var á Núpi í Dýrafirði. Keppnisstjóri
var ísak Örn Sigurðsson.
Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar frá
Siglufirði, skipuð þeim Stefaníu Sig-
urbjörnsdóttur, Antoni Sigurbjörns-
syni, Boga Sigurbjörnssyni og Jóni
Sigurbjörnssyni, ásamt Ásgrími, varð
Norðurlandameistari (bæði svæðin) í
sveitakeppni um síðustu helgi.
13 sveitir tóku þátt í mótinu, sem
spilað var á Sauðárkróki. Keppnis-
stjóri var Albert Sigurðsson.
Dregið hefur verið um töfluröð á
Norðurlandamótinu, sem spiluð
verður á Loftleiðum dagana 26. júní
til 2. júlí nk. í opnum flokki er hún
þannig: 1. fsland 2. Svíþjóð 3. Finn-
land 4. Noregur 5. Danmörk 6. Fær-
eyjar. í kvennaflokki; 1. Noregur 2.
fsland 3. Danmörk 4. Svíþjóð.
Spiluð verður tvöföld umferð í
Opnum flokki en þreföld umferð í
kvennafloki, 32 spil í leik.
__________________FJÖLMIÐLAPISTILL___________
Að ná eynjm 75% þjóðarinnar
Nú eru Ijósvakamiðlarnir að
íklæðast sumarfötunum og sýnist
mér það einkum vera í því fólgið
að fækka orðunum og fjölga lög-
unum. Þannig er Dægurmálaút-
varpið á Rás 2 stytt um klukku-
tíma í báða enda og í staðinn sett-
ir tónlistarþættir.
Vissulega er það skiljanlegt að
reynt sé að létta dagskrána yfir
sumarmánuðina. Þá er fólk í öðr-
um stellingum en að vetri til.
Fötunum fækkar og áhuginn á
þjóðmálum minnkar. Tími hinna
alræmdu sumarsmella rennur
upp og útvarpshlustun, í það
minnsta um helgar, á sér aðallega
stað í bílnum með íslenskt lands-
lag sem bakgrunn. Og þá fara
þeir Þorsteinn og Steingrímur og
hinir álfamir ótrúlega langt niður
eftir vinsældarlistanum.
Á einkastöðvunum bregðast
menn við hækkandi sól með því
að efna til leikja sem eru hver
öðmm bjánalegri en eiga það
sammerkt að virkja hlustendur til
þátttöku. Um síðustu helgi stóð
ég í mesta grandaleysi og beið
eftir afgreiðslu í ísbúð í miðbæn-
um þegar bifreið er lagt við
gangstéttina og út steðjar ein af
hláturvélum ljósvakans. Eftir að
hafa sagt einhverja brandara um
ísát á kostnað tæknimannsins
(mikið má sú stétt þola) og hlegið
drjúgt að þeim sjálfur fór þessi
fjallhressi útvarpsmaður að æsa
hlustendur upp í að leita að ein-
hverjum hamri sem lá falinn á ó-
nefndum stað í miðbænum. Ekki
varð ég nú var við að fólk færi í
flokkum í leit að hamrinum en
frétti þó síðar um daginn í sjoppu
á allt öðrum stað í bænum að
hann hefði fundist við Bæjarins
bestu.
Æ, hvað á maður að segja um
svona útvarp? Sennilega er best
að segja sem minnst. Hins vegar
heyrði ég þá sögu að þessum
leikjum hefði snarfjölgað í maí-
mánuði síðastliðnum. Skýringin
var sögð sú að þá hefðu stöðvarn-
ar fengið að vita að til stæði að
gera hlustendakönnun. Ekki var
vitað nákvæmlega hvaða dag hún
færi fram og þess vegna stóðu
leikirnir yfir lungann úr mánuð-
inum.
Mér finnst dálítið kúnstugt að
fylgjast með útvarpsstöðvunum
feta sig inn á braut sem blöð og
tímarit hafa troðið um árabil. Þar
hafa tíðkast lengi alls kyns get-
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
raunir, happdrætti og spurninga-
leikir sem hafa það markmið fyrst
og síðast að hala inn fleiri krónur
í kassann, ýmist í gegnum fleiri
kaupendur, meiri auglýsingar
eða bein styrktarframlög. Eins og
aðrir í þessu samfélagi hafa blöð-
in, og nú Ijósvakamiðlarnir, mak-
að krókinn á þeirri staðreynd að
íslendingar eru óðir í allt sem
heitir happdrætti og svipuðum
nöfnum og gefur séns á vinning-
um.
Að sjálfsögðu hefur Ríkisút-
varpið sýnt töluvert meiri hóf-
semi í þessu leikjafári. Enda
happadrýgsta og besta leiðin til
að auka tekjur RÚV að bæta
dagskrána og laða fleiri hlustend-
ur að með því móti.
Það er nefnilega geysistór ó-
plægður akur fyrir útvarpsstöðv-
arnar þar sem er fólk sem lítið
hlustar á útvarp. í hlustenda-
könnunum þeim sem gerðar hafa
verið hefur komið í ljós að yfir-
leitt hlusta svona 25-30% að-
spurðra yfirhöfuð á útvarp. Hinir'
- 70-75% - hlusta lítið sem ekk-
ert.
Ef maður heldur áfram með
þetta dæmi þá ætti að blasa við að
það sem gæti orðið til að laða
þennan stóra hóp að viðtækinu er
ekki popptónlist. Það er nóg
framboð af henni. Enda sést það
einnig í könnunum að í einu
skiptin sem hlustunin fer upp
fyrir áðurnefnda hundraðshluta
er þegar útvarpað er fréttum.
Lengi framan af virtist mér
stjórn RÚV vera þeirrar skoðun-
ar að besta leiðin til að keppa við
einkastöðvarnar væri að ganga
fram af þeim í því að útvarpa
poppi. Og eingöngu því sem kalla
má listapopp, magnið skyldi ráða
fremur en gæðin. Bitur reynsla
kenndi ráðamönnum að þetta var
ekki rétta leiðin.
Með stofnun dægurmálaút-
varpsins var farið inn á aðra
braut. Það var reynt að höfða til
annarra en aðdáenda Madonnu
og félaga. Það var ákveðið að það
væri í lagi að tala samfellt í lengri
tíma en 45 sekúndur. Mér sýnist
reynslan hafa sýnt að þetta er
leiðin í samkeppninni við
stjörnubylgjuna. Kannanirnar
sýna að Rás 2 kemst þá aðeins á
blað að dægurmálaútvarpið sé í
gangi. Vonandi verður það lengt í
báða enda eftir að gúrkutíð lýk-
ur.
18 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 5. júní 1988