Þjóðviljinn - 10.06.1988, Page 9

Þjóðviljinn - 10.06.1988, Page 9
IPÍ Evrópukeppnin 1988 Evrópukeppnin 1988 Evrópukeppnin 1988 Evrópukeppnin 1988 1. riðni Danmöik Sennilega halda margir íslend- ingar meö Dönum, þannig var þar altént í Frakklandi fyrir fjór- um árum og í Mexíkó 1986. Þeir hafa á sérstaklega skemmtilegu liði að skipa og leikur þeirra er mikið fyrir augað. Þeir beita nú nánast óbreyttu liði og þá og því gæti verið komin þreyta í mann- skapinn. Á hinn bóginn eru Dan- ir undir minni pressu nú en áður og þá eru leikmenn liðsins orðnir gífurlega leikreyndir. Þjálfari þeirra er Sepp Piontek en stjórn- aði þeim einnig í Frakklandi ‘84 og þegar þeir klúðruðu HM í Mexíkó ‘86. Það er nánast óþarfi að kynna danska liðið, því það ætti að vera orðið gjörþekkt. Leikmenn liðs- ins eru flestir lykilmenn í stórlið- um í Evrópu og eru því engir aukvisar. Vörn Dana ætti að vera sterk með hinn 38 ára Morten Ol- sen sem aftasta mann og þá Ivan Nielsen, John Sivebæk og Sören Busk fyrir framan. Á miðjunni mun mæða mest á Sören Lerby en hann er höfuðpaur Evrópum- eistara PSV Einhoven. Þá eru Michael Laudrup og Preben El- kjær hættulegir hvaða vörn sem er og ekki má gleyma hinum unga Flemming Povlsen sem leikur með Köln í Budesligunni. Danska liðið er mjög gott, það efast enginn um það, en hvort að það geti staðist sterkustu þjóðum Evrópu snúning skal ósagt látið. Eitt er víst að róðurinn verður þungur hjá Dönum en erfitt er að afskrifa þá frekar en aðrar þjóðir. Lið Dana: Markverðir: I.TroeisRasmussen,Aarhus ...27/27 16.PeterSchmeichel, Bröndby...24/9 Varnarmenn: 2. John Sivebæk, St. Etienne 3. Sören Busk, Wien ...26/48 ...35/59 4. Morten Olsen, Köln ...38/95 5. Ivan Nielsen, PSV Eindhoven . 9. Jan Heintze, PSV Eindhoven .. 12.Lars Olsen, Bröndby ""3IM2 24/4 ...27/14 19. Björn Kristensen, Aarhus Miðvallarleikmenn: ...24/11 6. Sören Lerby, PSV Eindhoven .... 30/64 7. John Helt, Lyngby...........26/17 8. Per Frimann, Anderlecht ....27/14 11 .Michael Laudrup, Juventus..23/43 13. John Jensen, Bröndby.......23/14 14. JesperOlsen, Man. Utd......27/40 17. KlausBerggren,Torino.......30/25 Sóknarmenn: 10.PrebenElkjær, Verona.........30/67 15. FlemmingPovlsen,Köin ......21/13 18. JohnEriksen,Servette.......30/14 20.Kim Vilfort, Bröndby.........25/11 Aranmir 1964 Undanúrslit Arangur i984 undanúrslit 2. riðni England Englendingar hafa aldrei, svo furðulega sem það kann að hljóma, orðið Evrópumeistarar landsliða þrátt fyrir að ensk fé- lagslið hafi hvað eftir annað unn- ið frækna titla. Þeir hafa ekki svo mikið sem komist í úrslitaleikinn og eru svo sannarlega orðnir langeygir eftir góðum árangri landsliðsins. Nú virðist sem þeir eygi nokkra von og hafa þeir aldrei gengið til leiks jafn fullir bjartsýni og nú. Að auki lentu þeir í „léttari“ riðlinum og ættu því að komast í undanúrslit. Bobby Robson, þjálfari enska liðsins, hefur stjórnað því um nokkurt skeið og leikur liðið nú skemmtilegri knattspyrnu en áður. Framlínan hefur ekki verið jafn skæð í háa herrans tíð og ætti Englendingum ekki að verða skotaskuld úr því að skora mörk. Gary Lineker og Peter Beardley skipa skemmtilegt sóknardúó, þar sem Lineker skorar flest mörkin, og þá er John Barnes aldrei langt undan á vinstri væng. Miðjan er einnig sterk með Bry- an Robson í sínu gamla formi. Robson er einnig vanur að skora mikið af mörkum og ekki ætti það að saka. Aðrir á miðjunni verða væntanlega Trevor Steven og Peter Reid, en leikmenn eins og Chris Waddle, Neil Webb að óg- leymdum Glenn Hoddle eru einnig sterkir. Hoddle hefur leikið mjög vel með Monaco í vetur en það kemur honum ekki í náðina hjá Robson. Það er helst að vörnin verði ekki nógu góð hjá Englending- um. Tony Adams og Mark Wright eru báðir stórir og sterkir leikmenn en gætu þó virkað of seinir gagnvart fremstu sóknar- mönnum álfunnar. Hins vegar hefur vörnin sterkan bakhjarl þar sem Peter Shilton er. Enda þótt kappinn sé orðinn 39 ára gamall er hann enn í fremstu röð. Það verður gaman að fylgjast með gengi enska landsliðsins í Þýska- landi, sama hvernig fer. Lið Englands Markveróir: 1. PeterShilton, Derby......39/98 13.ChrisWoods, Rangers......28/12 Varnarmenn: 2. Gary Stevens, Everton......25/23 3. KennySamson, Arsenal.......29/83 5. Dave Watson, Everton ......26/10 6. TonyAdams, Arsenal.........21/10 14.Viv Anderson, Man. Utd......31/30 19. Mark Wright, Derby........24/20 20. TonyDorigo, Chelsea........22/0 Miðvallarleikmenn: 4. Neil Webb, Nott. For........24/7 7. Bryan Robson, Man. Utd.....29/66 8. Trevor Steven, Everton.....24/22 12.ChrisWaddle, Tottenham .....27/34 15.SteveMcMahon, Liverpool......27/3 16. PeterReid, Everton........31/12 17. GlennHoddle,Monaco........30/50 Sóknarmenn: 9. PeterBeardsley....Liverpool 27/24 10. GaryLineker, Barcelona ...27/32 11. John Barnes, Liverpool....24/39 18. MarkHately, Monaco........26/28 Árangur 1968 Undanúrslit 1980 8 liða úrslit BÚNAÐARBANKIÍSLANDS TRAUSTUR BANKI siígafiraaaii mm msmm fiMííii mmm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.