Þjóðviljinn - 10.06.1988, Page 13
JöRFRÉTTIR—
Skotland
Hvítblæði
í umhverfi
Dourney
Nú er komiö í Ijós aö hvítblæði
er helmingi algengara í ungu fólki
sem býr nálægt kjarnorkuverinu
Dourney í Skotlandi en meðal
annarra íbúa landsins.
Þetta kemur fram í opinberri
skýrslu um ástandiö sem var birt í
fyrradag. Sérstök nefnd á vegum
stjórnarinnar og geislavarna-
nefndar komst að þeirri niður-
stöðu að frá árinu 1968 til 1984
voru sex tilfelli hvítblæðis á með-
al ungs fólks í næsta nágrenni
(innan við 25 km) kjarnorkuvers-
ins. Þetta er helmingi hærra hlut-
fall en gerist á landsvísu og svip-
að því sem hefur mælst í ná-
grenni Sellafield endurvinnslust-
öðvarinnar.
Heilbrigðisráðherra Skotlands
sagði að stjórn sín færi yfir þess-
ar niðurstöður og frekari rann-
sóknir væru nauðsynlegar. Tals-
maður umhverfisverndarhópsins
sem vill láta loka Dourney og
Sellafield sagði, að þetta væri
fyrsta viðurkenning stjórnarinnar
á því að samband væri á milli
hvítblæðis í börnum og geislunar
frá kjarnorkuverum.
Reuter/-gsv.
England
Hægri blús
frú Thatchers
Afleiðingar af stjórnarstefn-
unni í Englandi eru alltaf að koma
betur í Ijós með hverju árinu sem
líður.
Samkvæmt niðurstöðum
nefndar sem stjórnin skipaði sjálf
til að kanna ástandið, hefur gjáin
á milli, ríkra á fátækra aukist
mikiö. í norðurhéruðum landsins
býr fátækara fólk, þar er
heilbrigði minna og atvinnuleysi
meira heldur en í suðurhéruðum
landsins. Fátæktin er þó mest á
Norður-írlandi þar sem meira en
fimmti hver maður er atvinnulaus
þegar landsmeðaltalið segir að-
eins 11% landsmanna séu án
vinnu.
Launamunur á milli hærri og
lægri launa hefur aukist um
helming á árunum 1980-1986.
Drykkjuskapur, sjálfsmorð og
hvers konar glæpir eru mikið al-
gengari í norður-héruðum lands-
ins en suðurfrá.
Þá kemur einnig fram að fólks-
flótti frá norðursvæðunum hefur
verið mikill síðustu árin. Hálf
milljón manna fluttist suður á
bóginn frá norður- og miðhéruð-
um á árinu 1986.
Reuter/-gsv.
Noregur
Búist er við því að Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra, til-
kynni breytingar á stjórn sinni í
næstu viku. Vangaveltur eru um
að skipt verði um 3-4 ráðherra en
ríkistjórnina skipa m.a. 8 konur
sem er heimsmet.
Minnihlutastjórn Brundtlands
og verkamannaflokkurinn standa
nú frammi fyrir kosningum í sept-
ember og ekki er ólíklegt að þessi
andlitslyfting á stjórninni nú sé til
að styrkja stöðu flokksins fyrir
haustið.
Norska þingið samþykkti loks-
ins fjárveitingu (7.3 billjón n.kr.) til
nýs millilandaflugvallar sem á að
leysa Forneby-flugvöllinn af
hólmi. Hann verður staðsettur að
Hurum um 30 km suðvestur af
Osló. Á hann að verða tilbúinn
um næstu aldamót. Norðmenn
hafa þráttað um þetta flugvall-
armál frá 1950.
Reuter/-gsv.
I
ERLENDAR FRÉTTIR
Um helmingur Israelsmanna villsemja við PLO ef þeir viðurkenna Israel
Fimmtíu prósent ísraelsmanna
Hermenn skutu til bana ungling
á Vestur-bakkanum í gær og
særðu nokkra í viðbót en Palest-
ínumenn hafa að undanförnu
staðið fyrir sérstökum mótmæl-
um gegn 21 árs yfirráðum Israels-
manna á svæðinu. Palestínumenn
sögðu hermennina vera að hefna
fyrir morðið á ísraelskum borg-
ara á Gaza-svæðinu í fyrradag.
Nú hafa 212 Palestínumenn og 3
ísraelsmenn Iátið lífið frá því
uppreisnaraldan hófst fyrir sex
mánuðum.
Verkföll á hernumdu svæðun-
um ber upp á sama tíma og leið-
togar Arabaríkjanna þjappa sér
saman að baki Jassers Arafats
foringja PLO á fundi í Alsír. Þar
virðist PLO ná fram öllum sínum
kröfum og Arafat njóta mikillar
virðingar hinna leiðtoganna. Þar
er hann í hlutverki fátæka manns-
ins innan um hina auðugu fursta.
Á síðustu árum hefur samstað-
an ekki verið mikil í arabísku
löndunum og á einum best sótta
leiðtogafundi þeirra hingað til,
virðast ætla að takast órofa sam-
staða fyrir því að krefjast land-
svæðis til handa Palestínu-
mönnum sem nú búa við kúgun
ísraelsmanna. Þá virðast leið-
togar Alsír og Marakkó eitthvað
tala saman eftir 12 ára fjandskap
um málefni Vestur-Sahara. Haf-
ez Al-Assad leiðtogi Sýrlands og
Amin Gamayel ræddu málefni
þjóða sinna en það hafa þeir ekki
gert í tvö ár. Fundur þessi er því
gagnlegur að mörgu leyti og lík-
legt er að ráðstefna um vandamál
palestínsku þjóðarinnar eigi eftir
að líta dagsins ljós.
Alþjóðasamband verkalýðsfé-
laga heldur því fram að 100
milljón börn í um 150 löndum
Sameinuðu Þjóðanna búi við
mikla vinnuþrælkun. Sambandið
gagnrýnir sofandahátt verka-
lýðsfélaga um heim allan
gagnvart þessum mannréttinda-
brotum.
Samkvæmt könnun sem fram
fór í öllum löndum S.Þ. kemur
fram að börn eru höfð að féþúfu,
er refsað með erfiðsvinnu og
þurfa að þjást bæði andlega og
líkamlega vegna mjög lélegra að-
stæðna á vinnustað. í könnun
þessari er miðað við að 12 ára
börn geti leyst af hendi létta
vilja semja við PLO samkvæmt
niðurstöðum könnunar sem birt
var á miðvikudag. Um 40%
þeirra vilja flytja Palestínumenn í
burtu til annarra Arabaríkja.
Margir af eldri og reyndari
vinnu en yngri börn eigi ekki að
þurfa að vinna. Staðreyndin er
hins vegar sú að mörg börn allt að
9 ára aldri neyðast til að vinna
fyrir lífsviðurværi sínu.
Frá níu ára aldri vinna börn við
brúarsmíði í Cólumbíu, kafa eftir
fiski við Filippseyjar, lita leður í
Egyptalandi og grafa eftir gulli í
Perú svo einhver dæmi séu nefnd.
Vinnuaðstæður margra barna eru
mjög slæmar. Algengast er að
börnin vinni í alltof miklum hita
og að vinnustaður þeirra er há-
vaðasamur og rykmettaður.
í mörgum ríkjum S.Þ. eru í
gildi vinnuverndarlög fyrir börn
undir ákveðnum aldri en erfitt er
herforingjum sem nú hafa látið af
hermennsku hafa lýst þeirri
skoðun sinni að ísraelsmenn
verði að gefa eftir og semja um
frið við Palestínumenn og ná-
grannaþjóðir landsins.
Reuter/-gsv
að framfylgja þeim. Ekkert frum-
kvæði virðist koma frá verka-
lýðsfélögum þessara landa til að
hafa áhrif þar á. Hluti skýringar-
innar er sá að samningar verka-
lýðsfélaga við atvinnurekendur
ná alls ekki yfir vinnu barna. Þau
vinna mikið störf í óskipulögðum
einkarekstri sem eru ekki skil-
greind á pappírum atvinnurek-
enda og verkalýðsfélaga.
„Það hlýtur að vera í verka-
hring allra venjulegra verka-
lýðsfélaga að koma í veg fyrir
þessi mannréttindabrot. Gegn
þeim hafa þau barist frá uppp-
hafi,“ segir í yfirlýsingu frá al-
þjóðasamoandinu. Reuter/-gsv.
Barnaþrœlkun
Milljónir bama þjást
Börn höfð aðféþúfu og látin vinna erfiðsvinnu um allan heim. Verka-
lýðsfélög sýna lítið frumkvœði
MERKJASALA
FJAROFLUN 10.0G11. jUNI 1988
FYRIR ENDURHÆFINGARSTÖÐ HJARTASjÚKUNGA
LANDSSAMTOK HJARTASjUKUNGA
HAFNARHÚSINU v/TRYGGVAGÖTU - PÓSTHÓLF 830 - 121 REYKJAVÍK - SlMI 25744
GIROSEÐLA MA FA I BONKUM FYRIR ÞA SEM VILJA STYRKJA GOTT MÁLEFNI
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13