Þjóðviljinn - 21.06.1988, Page 7
ÍÞROTTIR
1. deild
Glæsimark Ama
Fram nýttifœrin vel gegn KA sem geta
huggað sig við glœsilegt markfráArna
af 30 metra færi
Akureyri 20.júní
KA-Fram......................1-4(0-1)
0-1 Pétur Arnþórsson 13.mín
1-1 Arni Hermannsson 55.mín
1-2 Arnljótur Daviðsson 58.mín
1-3 Pétur Ormslev 82.mín
1-4 Arnljótur Davíösson 86.mín
Lið KA: Haukur Bragason, Erlingur Krist-
jánsson, Jón Kristjánsson (Friðfinnur Her-
mannsson 66.mín), Þorvaldur Örlygsson,
Gauti Laxdal, Bjarni Jónsson, Valgeir
Barðason, Halldór Halldórsson, Arnar
Freyr Jónsson, Árni Hermannsson, Stefán
Ólafsson (Antony Karl Gregory 75.mín).
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Viðar Þorkelsson, Arnljótur
Davíðsson, GuðmundurSteinsson, Steinn
Guðjónsson, Pétur Arnþórsson (Kristján
Jónsson 49.mín), Kristinn Jónsson, Pétur
Ormslev, Jón Sveinsson, Ormarr örlygs-
son.
Spjald: ArnarFreyrJónsson, HalldórHall-
dórsson KA fengu gul spjöld.
Dómari: Sæmundur Víglundsson.
Maður leiksins: Arnljótur Daviðsson
Fram.
-kh/ste
I kvöld
Frjálsar
Flugleiðamótið fer fram kl. 18.00 á
Laugardalsvelli. Allt besta frjáls-
íþróttafólk landsins tekur þátt, svo
sem Einar Vilhjálmsson, Sigurður
Einarsson, Oddur Sigurðsson, Pétur
Guðmundsson, Helga Halldórsdóttir,
Vésteinn Hafsteinsson, Eggert
Bogason og Sigurður T. Sigurðsson.
Auk þeirra koma nokkrir útlendingar:
Wolfgang Schmidt, Alvin Wagner og
Hans Burchardt sem er hástökkvari.
Hann hefur stokkið 2.27 metra og
mun etja kappi við Gunnlaug Grettis-
son sem ætlar sér yfir 2.20 nú.
Fótbolti
Fossvogur kl.20.30 Víkingur-Valur
í 1. deild íslandsmotsins. Þessi
leikur átti að fara fram á sunnu-
dagskvöldið en var frestað vegna
veðurs!
Þrátt fyrir hetjulega baráttu
gegn Fram tókst KA-mönnum
ekki að nýta nema eitt færi en
Fram nýtti hins vegar fjögur.
Frammarar áttu mun meira í
fyrri hálfleik og Pétur Arnþórs-
son gerði fyrsta markið eftir góða
fyrirgjöf frá Guðmundi Steins-
jsyni á 13. mínútu 0-1. Á 38. mín-
útu tók Pétur Ormslev auka-
spyrnu utan vítateigs og boltinn
barst til Viðars Þorkelssonar sem
framlengdi hann á Arnljót Da-
víðsson er skallaði hann framhjá
markinu.
Akureyringarnir sóttu af full-
um krafti í síðari hálfleik og upp-
skáru fallegt mark. Það var Árni
Hermannsson sem það gerði með
sérstaklega fallegu langskoti og
boltinn fór í bláhornið uppi án
þess að Birkir kæmi neinum
vörnum við. Við markið drógu
KA-menn sig til baka. Fram
komst enn yfir eftir mistök hjá
Erlingi í KA-vörninni og Arnljót-
ur komst á milli og skoraði létti-
lega 1-2. Á 78. mínútu fengu þeir
gott færi eftir mistök Jóns Sveins-
sonar í Framvörninni þegar hann
ætlaði að senda á Birki í markinu
en Antony Karl komst á milli.
Hann gaf boltann á Valgeir sem
missti hann útaf. Mínútu síðar
varði Haukur vel frá Ormari. Á
82. mínútu gaf Kristinn Fram-
mari boltann fyrir á koll Péturs
Ormslev sem skallaði í stöng og
innfyrir að dómi línuvarðarins 1-
3. Síðasta orðið í leiknum átti síð-
an hinn stórgóði Arnljótur þegar
hann lék laglega á Erling Krist-
jánsson og skaut hörkuskoti í
markið 1-4.
-kh/ste
Knattspyrna
Góðgerðarieikir
að gróðastarfsemi
FIFA leggur bann við góðgerðarleik fyrir
baráttunni við eyðni
Alþjóðasamtök FIFA telja sig
tilneydd til að takmarka fjölda
góðgerðarleikja. Knattspyrnu-
leikur sem fara átti fram í Harare
í Zimbabwe 24. júlí hefur ekki
hlotið samþykki samtakanna.
Brasilíska knattspyrnugoðið Péle
hafði verið fenginn til að laða að
áhorfendur og átti allur aðgangs-
eyrir að renna til baráttunnar við
eyðni.
Rúnar Kristinsson sækir hér að Halldór Guðmundsson í leik KR og Leifturs.(mynd E.ÓI)
1. deild
Sæbjöm á skotskónum
Sæbjörn Guðmundsson átti
góðan leik fyrir KR og skoraði
bæði mörkin þegar KR sigraði
Leiftur á KR-vellinum 2-1.
Það var frekar jafnt með liðum
í fyrri hálfleik og það voru Leift-
ursmenn sem fengu fyrsta hættu-
lega marktækifærið á 21. mínútu
þegar Þorsteinn Geirsson átti
hörkuskot að marki KR, Stefán
Arnarson varði en hélt ekki bolt-
anum og Jósteinn Einarsson KR-
ingur rendi síðan boltanum í
fangið á Stefáni.
A31. mínútu skaut WillumÞór
Þórsson rétt framhjá Leifturs-
markinu eftir góða fyrirgjöf frá
Þorsteini Haldórssyni. Tæpri
mínútu síðar fengu KR-ingar
sannkallað dauðafæri, Rúnar
Kristinsson komst einn í gegnum
vörn Leiftur en Þorvaldur Jóns-
son bjargaði með góðu úthlaupi,
boltinn barst til Péturs Péturs-
sonar sem átti gott skot að marki
Leifturs en Gústaf Ómarsson
bjargaði á línu.
Skömmu fyrir leikhlé skoraði
Handbolti
Að sögn talsmanns samtak-
anna er misnotkun slíkra leikja
sem þessa því miður orðin alltof
algeng og oft er óljóst hvort féð
sem safnast rennur til réttra að-
ila. Leikur þessi er liður í
leikjaröð sem ber yfirskriftina
“KICK AIDS 88“ og fara aðrir
leikir fram í Tókýó París og Los
Angeles.
—fot
Stelpumar unnu!
íslenska kvennalandsliðið vann á al-
þjóðlegu móti í Frakkalandi
19. júní fór fram í Frakklandi
alþjóðlegt handboltamót þar sem
5 svokallaðar C-þjóðir tóku þátt
og var íslenska liðið meðal þátt-
takenda. íslandi var raðað meðal
neðstu þjóða að styrkleika en
stúlkurna létu það ekki á sig fá og
unnu allar mótið sem er eins kon-
Hjá hverjum liggur sökin?
Að gefnu tilefni þykir okkur
mál til komið að vekja athygli á
því virðingarleysi sem ríkt hefur
gagnvart kvennaknattspyrnu og
þá sérstaklega með tilliti til dóm-
aramála.
Undanfarið ár hefur það viljað
brenna við að dómari og/eða lín-
uverðir hafi ekki mætt til leiks,
hvort svo sem um er að kenna
vanrækslu KSÍ ellegar dómarast-
éttinni sem slíkri. í þessum tilfell-
um hafa leikir okkar tafist meir
en góðu hófi gegnir, meðan
öllum brögðum er beitt til að fá
manneskjur í stað þeirra sem
skipaðar voru til dómgæslu í upp-
hafí. Ef það hinsvegar tekst ekki,
hafa leikirnir yfirhöfuð ekki farið
fram þann daginn.
í kjölfar þess hafa skapast ýmis
vandamál svo sem vænta má. Að
loknum fyrstu leikjum íslands-
mótsins í ár er ekki að sjá að hér
hafi orðið nokkur bragarbót á,
nema síður sé.
Fyrsta heimaleik okkar Vals-
stúlkna, gegn KA, þann
5.6.1988, sem var jafnframt
vígsluleikur nýs íþróttasvæðis að
Hlíðarenda, seinkaði um tæpa
klukkustund. Ástæðan var sú
sama og venjulega: dómarartríó-
ið lét ekki sjá sig! Nokkrum
dögum síðar, þann 16.6.1988
stóð til að við spiluðum okkar
annan heimaleik, þá gegn KR. Sá
leikur hefur enn ekki farið fram,
af augljósum ástæðum. Hjá
hverjum liggur sökin? Er það
kæruleysi eða áhugaleysi dóm-
ara? Vanræksla stjórnar dómara-
mála eða eitthvað annað? Eitt er
víst að úr þessu verður að bæta
hið snarasta.
Knattspyrnukonur
úr meistaraflokki Vals
ar undirbúningur fyrir C-heims-
meistarakeppnina.
Greinilega kom fram hversu
mikil breidd er í íslenska liðinu og
hve ungu stúlkurnar komu vel frá
mótinu en það hefur oft borið við
hér á landi að nokkrar skara
framúr en aðrar dragast aftur úr.
í samtali við landsliðsnefndar-
konur vilja þær þakka árangurinn
Dr. Slavíco Bambir en undir hans
stjórn hefur öll þjálfun tekið
stakkaskiptum.
Unglingalandsliðið fer bráð-
lega á mót á Ítalíu en það er þó-
nokkuð síðan keppnisferð hefur
verið farin af þeim. Aðallandslið-
ið fer nú í frí til 1. júlí en þá taka
við séræfingar uns Dr.Slavko
kemur til landsins að nýju, en þá
hefjast æfingar á fullum krafti.
Næsta verkefni er 4 landsleikir
við Frakka hér á landi í septemb-
er.
Úrslit
island-Portúgal........16-15(9-6)
Ísland-Spánn...........17-15(7-7)
Ísland-Sviss...........21-17(9-9)
island-Frakkland.......16-13(6-7)
Sæbjörn Guðmundsson fyrir KR
beint úr aukaspyrnu með föstu
skoti, sem Þorvaldur Jónsson
markvörður Leifturs átti ekki
möguleika á að verja.
Leiftursmenn komu mun
ákveðnar til leiks í síðari hálfleik
og á 63. mínútu jafnaði Sigur-
björn Jakobsson með skalla.
Leiftursmenn voru enn að
fagna markinu þegar Águst Már
Jónsson brunaði upp kantinn,
þrumaði boltanum fyrir, þar var
Sæbjörn Guðmundsson staddur í
markteig Leifturs, tók boltann
viðstöðulaust og skoraði annað
mark sitt og KR.
KR-ingar tóku nú leikinn í
sínar hendur og á 73. mínútu átti
Willum þór hörkuskot af löngu
færi sem Þorvaldur Jónsson
bjargaði stórkostlega í horn.
Mínútu síðar fengu Leifturs-
menn gott færi þegar Hörður Be-
nónýsson átti fyrirgjöf á Steinar
Ingimundarson sem skallaði rétt
framhjá KR markinu
Ó.St
KR-völlur 20. júni
KR-Lalftur2-1(1-0)
Lið KR: Stefán Amarson, Rúnar Kristins-
son, Gylfi Aöalsteinsson , Þorsteinn Guö-
jónsson, Willum Þór Þórsson, Jósteinn
Einarsson, Agúst Már Jónsson, Gunnar
Oddsson, Pótur Pétursson, Sæbjöm Guö-
mundsson, Þorsteinn Halldórsson (Heimir
Guðjónsson 71 .mln.)
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Guö-
mundur Garðarsson, Sigurbjörn Jakobs-
son, Árni Stefánsson (Óskar Ingimundar-
son 72. m(n) Gústaf Ómarsson, Hafsteinn
Jakobsson, Halldór Guðmundsson, Þor-
steinn Geirsson, Friðgeir Sigurðsson;
Steinar Ingimundarson, Hörður Benónýs-
son.
Dómari: Magnús Jónatansson
Maður leiksins: Sæbjörn Guðmundsson
KR.
Umsjón: Þorfinnur Ómarsson og Stefán Stefánsson
Þriðjudagur 21. júní 1988 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 7
Staöan
Fram.............6 5 1 0 13-2 16
KR...............6 4 1 1 12-7 13
IA...............6 3 3 0 9-3 12
KA...............6 3 1 2 6-8 10
Valur............5 2 1 2 7-5 7
IBK.............6 1 3 2 8-9 5
Víkingur.........5 1 1 3 4-11 4
Leiftur.......6 0 4 2 5-5 4
Þór...........6 0 4 2 5-8 4
Völsungur.......6 0 1 5 3-12 1