Þjóðviljinn - 05.07.1988, Page 2
FRETTIR
Ríkisstjórnin
Uppgjör í vændum
Gífuryrðiforystumanna Framsóknar- og Sjálfstœðisflokks aðeins
forsmekkurinn að þvísem erí vœndum. Stjórnarþingmenn: Uppgjör
og trúlega kosningar í haust
Rfldsstjórnin kann að eiga stutt
eftir og spá sumir þingmenn
síjórnarflokkanna því að brigsl-
yrði Þorsteins Pálssonar og Stein-
gríms Hermannssonar síðustu
daga séu aðeins forsmekkurinn
að því sem koma skal þegar byrj-
að verður að takast á um gerð
nýrra fjárlaga í haust.
- Þær yfirlýsingar sem gengið
hafa á milli manna að undan-
förnu hafa ekki orðið til þess að
betrumbæta ástandið. Ég held að
það fari að styttast í lífdögum
ríkisstjórnarinnar, sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson, þing-
maður Framsóknarflokksins í
samtali við Þjóðviljann.
Guðmundur sagði að hann
hefði tii þessa ekki farið leynt
með að hann væri ósáttur við
gang efnahagsmála.
Einn þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins orðaði það þannig við
Þjóðviljann að það hitnaði veru-
lega í kolunum þegar farið yrði að
vinna að fjárlagagerð í haust.
- Fjárlagagatið minkar ekkert
þrátt fyrir aukna skattheimtu. Ég
er klár á því, sagði einn stjórnar-
liða og benti á að ríkisstjórnin
hefði gengið af sjálfri sér dauðri í
vetur þegar hún hefði svikið gefin
loforð og talið aukna skattheimtu
lausnarorðið í efnahagsmálum.
- Það er óhætt að segja að
ríkisstjórnina hefur borið ærið
mikið af leið frá því marki sem
hún setti sér í efnahagsmálum,
sagði Karvel Pálmason, Alþýðu-
flokki, er taldi ljóst að það kæmi
að því fyrr en seinna að ríkis-
stjórnin yrði að grípa til nýrra
efnahagsráðstafana.
- Ég er nú ekki talsmaður
flokksins. Mér finnst að menn
eigi ekki að vera með stórorðar
yfirlýsingar nema þá í sinn hóp,
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson,
alþingismaður Sjálfstæðisflokks,
er brigslyrði Steingríms og Þor-
steins voru borin undir hann.
-rk/hmp
Hestamenn skemmtu sér konunglega í blíðviðrinu á Kaldármelum um helgina þar sem mestu gæðingar fjórðungsins öttu kappi. Þessir
ungu hestamenn hlutu verðlaun í gæðingakeppni barna. Mynd-GTK.
Kaldármelar
Gæðingakapp í góðviðri
Fjórðungsmót hestamanna á
Vesturlandi var haldið um helg-
ina á Kaldármelum. Mótið er eitt
stærsta mót iandsins í ár og munu
nálægt 5000 manns hafa verið á
staðnum og hátt á annað þúsund
hross.
Erna Bjarnadóttir fram-
kvæmdastjjóri mótsins sagði að
mótið hefði í alla staði tekist
mjög vel og veðrið hefði leikið
við mótsgesti, sól og þurrviðri en
nokkur vindur.
Erna sagði að mikill tími hefði
farið í undirbúning mótsins og
framkvæmdir á mótsstað hefðu
hafist síðastliðið haust.
Byggður var nýr keppnishring-
Smáfiskafriðun
ur fyrir þetta mót og tvö ný hús
reist auk þess sem viðhald á eldri
mannvirkjum hefði verið mikið.
- Staðurinn er sérstaklega fal-
legur og ég held að allir geti verið
sammála um það að aðstaðan á
Kaldármelum er orðin mjög góð
þó eflaust megi alltaf bæta um
betur, sagði Erna.
Miljaróa ávinningur
Ragnar Árnason dósent: Friðun 3ja-4ja áraþorsks í2 ár eykur árleganþorskafla
um 50-60þúsund tonn að jafnaði. Bylgjan á ísafirði: Lítur vel út enfleiri
spurningum er ósvarað en svarað. Hafrannsókn: Þorskurinn sífellt að verða
léttari
Með því að friða þriggja til
fjögurra ára þorsk í tvö ár má
auka árlegan þorskafla að jafnaði
um 50-60 þúsund tonn að friðun-
artímabilinu loknu. Það jafngild-
ir þriggja miljarða króna ávinn-
ingi á ári hverju upp frá því. Þetta
er álit Ragnars Arnasonar dós-
ents við Háskóla íslands, sem
birtist í nýútkomnu tölublaði
Sjávarfrétta.
Þrátt fyrir þennan ávinning
skilar friðun þriggja til fjögurra
ára þorsks sér ekki í aflaaukningu
fyrr en tveimur árum eftir að hún
hefst og í millitíðinni yrði um
aflaminnkun að ræða, þó mest á
fyrsta árinu. Ragnar telur að mið-
að við núverandi sókn í smáfisk
láti nærri að friðun hans dragi úr
þorskaflanum um 60-70 þúsund
tonn á fyrsta árinu og jafnvel 15-
20 þúsund tonn á öðru ári. Á
þriðja árinu kæmi árangur af
friðuninni hins vegar í ljós og yrði
þá um aflaaukningu að ræða að
jafnaði uppá 50-60 þúsund tonn
árlega.
Að sögn Gísla Skarphéðins-
sonar formanns skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Bylgjunnar
á ísafirði er ekki hægt að mót-
mæla því að græddur sé geymdur
fiskur en hins vegar sé þeirrí
spurningu jafnframt ósvarað
hver eigi að jafna sjómönnum
tekjumismuninn á friðunartím-
anum. „Er það kannski meining-
in að við sjómenn eigum að taka
það á okkur eins og allt annað í
þessu þjóðfélagi og síðan þegar
friðunin fer að skila sér þá verði
það hirt af okkur í hina óseðjandi
hít afætanna?“ sagði Gísli.
Hafrannsóknastofnun hefur
margoft bent á hversu smáfiska-
drápið er mikið hér við land og
frægust er skýrsla forstjóra henn-
ar sem hann birti á aðalfundi
Landssambands íslenskra útvegs-
manna í fyrra. Þar lýsti Jakob
Jakobsson fiskifræðingur því yfir
að smáfiskadrápið í dag jafnaðist
fyllilega á við það sem Bretinn
stundaði hér við land áður en
honum var stuggað burt úr land-
helginni. Þá fór meðalþyngd
þorsksins aðeins niður fyrir 3 kg.
sem er aðeins minna en hún er í
dag. I tölum séð veiddum við 131
milljón fiska 1955 og sá fjöldi
viktaði 538 þúsund tonn. Sami
fiskafjöldi veiddist í fyrra en hann
reyndist aðeins vera 380 þúsund
tonn.
-grh
Helstu úrslit á mótinu urðu þau
að efstur í A flokki gæðinga varð
Fengur Gunnars Jónassonar,
knapi Sigurbjörn Bárðarson, en í
öðru sæti varð Drottning Ómars
Marteinssonar og Dóru Hjaltal-
ín, knapi Gísli Gíslason.
í B flokki gæðinga varð hlut-
skarpastur Sörli Þorsteins Vald-
imarssonar, knapi Ragnar Hinr-
insvií, og flæsiu! ytuo vjouiu
Hjartar Sigurðssonar, knapi
Guðmundur Bæringsson.
-iþ.
Hvalkjöt
Sent heim í
dag
Gámarnir með hvalkjötinu
sem Hvalur hf. ætlaði að flytja í
gegnum Finnland og Sovétríkin
til .Tapan eru nú á leið til landsins
en þeim hefur verið skipað um
borð í Urriðafoss sem leggur af
stað frá Helsinki í dag.
Þetta er í annað sinn sem hval-
kjöt er endursent til landsins en í
fyrrasumar létu þýsk stjórnvöld
endursenda hingað hvalagáma.
Fulltrúar Greenpeace voru á
bryggjunni í Helsinki í gær en
þeir hafa mótmælt því að kjötið
sé endursent, vilja að það sé gert
upptækt og því fargað. Urriða-
foss er væntanlegur til landsins á
mánudag.
->g-
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Ríkisstjórnin
Eyðimörk
framundan
Ungir framsóknarmenn
gefa stjórnina uppá bát-
inn. Kosningar betri en
eyðimerkurganga með
Þorsteini Pálssyni. Sjálf-
stœðisflokkurinn vé fjár-
magnseigenda og
braskara
„Kosningar eru ekki góður
kostur þegar erfiðleikar steðja
að, en þó betri en að leggja upp í
þá eyðimerkugöngu sem þjóðin
er að hefja með Þorstein Pálsson,
forsætisráðherra í fararbroddi,“
segir í stjórnmálaályktun miðst-
jórnar Sambands ungra fram-
sóknarmanna frá því á föstudag,
þar sem ríkisstjórnin og einkum
forsætisráðherra fá bágt fyrir
stjórnarstefnuna.
í ályktuninni segir að ríkis-
stjórnin hafi margsinnis gripið til
aðgerða í efnahagsmálum sem
hafi átt það sammerkt að vera
vanhugsaðar. í stað þess að kapp-
kostað hafi verið að hlúa að
rekstrargrundvelli atvinnuveg-
anna, haldi forysta Sjálfstæðis-
flokksins hlífiskildi yfir fjár-
magnseigendum og bröskurum
og skattsvikararnir sem Jón Bald-
vin Hannibalsson hafi ætlað að
koma höndum yfir, leiki enn
lausum hala.
Bent er á að framhaldist sú
óstjórn sem ríkt hefur í efna-
hagsmálum, muni það leiða til
gjaldþrots fyrirtækja, atvinnu-
leysis og aukinnar misskiptingar
tekna og eigna.
-rk
Klettur
Stjómlaust
rekald
Starfsmenn óhressir
vegna lélegrar stjórnunar
vélsmiðjunnar. Subbuleg
framkoma við starfs-
menn
- Það er svo mikil lygi og
blekking sem það mest getur ver-
ið að vandræði vélsmiðjunnar
séu vegna slæmrar stöðu fisk-
vinnslunnar. Þetta er subbuleg
framkoma, segir einn af starfs-
mönnum vélsmiðjunnar Kletts,
en Þjóðviljinn sagoi frá því fyrir
helgina að öllum starfsmönnum
Kletts hefði verið sagt upp störf-
um fyrirvaralaust. Starfsmaður-
inn vildi ekki láta nafns síns getið.
Hann sagði vélsmiðjuna hafa
verið sem stjórnlaust rekald frá
því Hagvirki keypti hana fyrir
þremur árum og jafnvel hafi ver-
ið dæmi þess að henni hafi svo
lítið verið sinnt að menn hefðu
gengið um verklausir svo dögum
skipti. Óánægja hefði því farið
vaxandi meðal starfsmannanna.
- Það er stjórnleysi og ekkert
annað sem er að drepa þetta fyr-
irtæki, segir starfsmaðurinn.
Hann segir vélsmiðjuna hafa ver-
ið verkstjóralausa í fleiri mánuði.
í vetur hafi verið ráðinn verk-
stjóri sem ekkert vissi og lítið
kynni. Klettur hafi verið með
verkefni fyrir Granda hf. og í því
hefði falist smíði á hlutum úr ryð-
fríu stáli og verkinu hafi verið svo
illa stýrt að meira en helminginn
hefði þurft að endurvinna. Slíkt
væri ekki nokkur hemja.
- Okkur var sýnd afskaplega
mikil lítilsvirðing með því að vera
ekkert látnir vita af því að upp-
sagnarbréfanna væri að vænta.
Þeir sögðu ekki orð um að
breytingar væru í aðsigi, sagði
starfsmaðurinn.
-tt